Morgunblaðið - 27.11.1940, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 27. nóv. 1940.
3
MORGUNBLAÐIÐ
Pjetur Halldórsson
borgarstjóri
V-
andaðist kl. 3^ í gær
á Landakotsspítala
íc •
Pjetur Halldórsson borgarstjóri.
UM KLUKKAN 4 í gær barst andlátsfregn
Pjeturs Halldórssonar borgarstjóra út um
bæinn. Hann andaðist á Landakotsspítala.
Síðustu vikur hefir honum ekki verið hugað líf. Lækn-
ar höfðu gefið upp alla von um það, að um nokkurn bata
væri að ræða. Hvað éftir’annað hafði hann verið í .heljar
greipum. En lífsþróttur hans var svo mikill, að þjáningar
hans framlengdust um sinn. Banamein hans var mein-
semd í lungum.
í vor sem leið fjekk hann svæsna lungnabólgu, en reis brátt
úr rekkju, og vonuðust.menn eftir því að hér væri ekki um neinn
langvinnan sjúkdóm að ræða. En hann hafði skamma fóta-
vist eftir þetta, og lagðist banaleguna í maí. Fram eftir sumri
álitu læknar að hér væri um að ræða brjósthimnubólgu. En síð-
ar kom í Ijós að hann hafði ólæknandi meinsemd.
„Með Pjetri Halldórssyni
eig(a Reykvíkingar á bak að sjá
þeim manni, sem átti almenn-
ustum og traustustum vinsæld-
um að fagna í þessum bæ.
Traust samtíðar- og samstarfs-
manna hans á drengskap hans
og góðvild, hreinskilni hans og
karlmannslund, var svo ein-
dregið og ótvírætt að aldrei
fjell nokkur skuggi þar á. Hann
var, sem kunnugt er, borinn og
barnfæddur Reykvíkingur. í
Reykjavík og fyrir Reykjavík
vann hann alt æfistarf sitt.
Sjálfum var honum líklega alt-
af geðfeldast að vinna verk sín
án þess að mikið bæri á. En
hann fjekk það ekki. Á tímum
sundrunga og flokkadrátta eru
menn eins og hann kallaðir til
starfa, menn sem allir vita, að
alt vilja í sölurnar leggja fyr-
ir velferð almennings. Þannig
var Pjetur Halldórsson. Þetta
mótaði æfi hans og starf.
Þegar frjettist um andlát
borgarstjóra í gær var öllum
skrifstofum bæjarins samstund-
is lokað. Verða þær lokaðar í
dag.
Æfiatriða þessa mikilsvirta
forystumanns bæjarins verður
nánar getið hjer síðar.
Aðalftindur
S. í. F.
Aðalfundi S. í. F. var kaldið
áfram í gœr.
Voru ræddar iagabreytingar,
sem allar voru smávægilegar.
Einnig voru miklar umræður um
verðskala á fiskinum, eftir þurk-
unarstigum.
Fundurinn heldur áfram kl. 2
í dag.
Almenf
mannfal
á land-
inu n. k.
mánudag
Aðalfundur Verslunarmannafje-
lags Reykjavíkur verður haldinn
í kvöld. f
Næstkomandi mánudag, 2.
des. fer fram alment
manntal um alt 1 and. Hefir
ekki farið fram alment mann-
tal hjer síðan 1930.
J.afnframt manntalinu verð-
ur safnað húsa og bæjaskýrsl-
um (þ. e. tala húsa, íbúða,
hvbrt miðstöðvarhitun er í hús-
um eða önnur þægindi, hve há
húsaleiga o. s. frv.).
Hagstofán hefir undanffu’ið gert. mik
ið ítð jþyí að andirbúa að manntalið fari
skipulega fram. í kaupsföðiun annast
bæjarstjórnin uin frnipkvæmd mann-
falsiris, en annftrs staðar prestarnir,
með aðstpð hreppsstjóra og hrepps-
riefnda.
Svo er fyrir mælt, að áður en mann
talið fer fram, skuli hverjum kaup-
stað eða prestakalli skift í svo mörg
umdæmi eða hverfí, að einn maður
komist á eiuum tjegi yfir að afla það-
an þeirra npplýsinga, sem krafist er.
Síðan eru skipaðir teljarar fyrir
hvert hverfi og ef teljarastarfið trún-
aðarstarf, sem enginn getur skorast
undan, sem til þess er hæfur. Það er
hinsvegar álitið mikilsvert að teljarar
sjeu vel valdir, þ\1 að undir þeim er
að miklu leyti komið, hvernig mann-
talið tekst.
Manntalið nær ekki til setuliðsins,
sem dvelur hjer á landi og heldur ekki
til erlendra skipa í höfnum landsins.
Eins skulu engar skýrslur teknar um
hús þau, sem leigð hafa verið fyrir
setuliðið, en ef setuliðsmenn búa í
öðrum íbúðarhúsum, hvort heldur öllu
húsinu, einstökum íbúðum, eða einstök-
um herbergjum, þá skal geta þess í
skýrslunni, en engar upplýsingar aðr-
ar þarf að gefa um þá, heldur aðeins
um húsnæðið. Annars næf manntalið
til erlendi’a manna, sem dvelja hjer
manntalsdaginn, þar á meðal til fjöl-
skyldna setuliðsins, sem kynnu að
dvelja hjer. Einnig eru taldir erlend-
ir flóttamenn, sem hingað hafa leitað
enda þótt þeir kunni að dvelja í eigin'
skipum.
Þegar teljarar hafa skilað skýrslum
sínum ber sóknarpresti eða bæjarstjóm
að yfirlíta og verði þá vart við villur
í þeim eða ónákvæma útfylling, ber að
leiðrjetta það og Iaga. Skýrslumar
eru síðan sendar til Hagstofunnar.
Ef svo skyldi atvikast einhvers stað-
ar að ómögulegt reynist aS framkvæma
manntalið á einhverjum heimilum um-
ræddan dag (2. des.), þá ber að fram-
kvæma manntalið þar eins fljótt ög
auðið er þar á eftir, en miða ber
skýrsluna við það, er var 2. des. eða
aðf aranótt þess dags, til þess að,
skýrslurnar í heild sinni sýni, hvernig (
ástatt var hjer á landi þann dag.
í íslenskum skipum, sem koma hjer.
að landi eftir 2. des. er tekið mann- (
tal, þegar þau koma að landi.
t
Verndið bðrnin gegn beinkröm
Ungbarnavernd
Liknar vantar tvó
ljóslampa
-C * " *r f: i
Morgunblaðið tekur
á móti samskotum
EF við fengjum tvo lampa, í viðbót við þann
einaysem við nú höfum, myndum við^geta
náð til allra barna í Reykjavík og veitt
þeim ljósböð og verndað þau gegn beinkröm. 1 -
Þetta voru ummæli Katrínar Thoroddsen læknis og drú Srgríðar
Eiríks, er þær litu inn á skrifstofu Morgunblaðsins í gær, en þær
eru, sem kunnugt er, aðalstoðir Ungbarnaverndar Lákuar, sem starfar,,
hjer í bænum. “f ' ’ *
Fyrir þrem árum fekk Ung-
barnaverndin lampa, sem síðan
hefir verið notaður til ljósbaða.
Til ársloka 1939 höfðu 237 börn
fehgið fjósböð, og á. þessu ári eru
börnin þegar orðin um 150, sem
hafa fengið Ijósböð. ,Nú eru t. d.
80 krakkar í ljósum lijá Ung-
barn averndinni.
En vegna þess að Ungbarna-
verndin hefir aðeins einn lampa,
getur liún ekki nálægt því sint
öllum börnum, sem þurfa að fá
Ijósböð. Nú bíða um 200 börn
eftir að komast að. Vegna lampa-
skorts hefir TJngbarnaverndin að-
eins getað tekið þan hörn í ljós,
sem eru orðin veik af beinkröm
og ekki komist yfir þau öll. Hin-
um, sem þurft hafa ljósböð til
varnar beinkramar, hefir alls ekki
verið hægt að sinna.
Mæðurnar eru nú farnar að
skilja þýðingu Ijósbaðanna fyrir
börnin og því er eftirsóknin orð-
in mikil eftir Ijósunum og miklu
meiri, en hægt er að sinna.
Til þess að fyrirhyggja bein-
kröm í hörnum, þurfa þau að fá
ljósböð á fyrsta eða öðrum árs-
fjórðungi. Og ef Ungbarnaverndin
hefði 3 lampa — fengi tvo í við-
bót við þann sem hún hefir nú —
myndi vera hægt að veita öllum
börnum í Reykjavík Ijósböð og
vernda þau fyrir beinkröm.
★
Morgunblaðið hefir spurst fyrir
um það hjá fagmanni, hvað slík-
ur lampi myndi kosta nú. Hann
gat ekki svarað því beinlínis, en
giskaði á 1500 kr. eða svo, með
hæfilega mörgum brennurum. Yrði
þá allur kostnaðurinn 3—4000 kr.
og má furðulegt heita, ef ekki
mætti takast að safna þessu fje
nú þegar.
Morgunblaðið vill mjög eindreg-
ið skora á alla þá, sem fjárráð
hafa, að leggja fje að mörkum til
þessa og veitir fúslega móttöku
samskotum í þessu skyni. Söfnum
þessu fje strax í dag!
★
í hinu ágæta og stórfróðlega
erindi próf. Níelsar Dungals s.I.
sunnndag, vakti bann einmitt máls
á nauðsyn þess, að 'taka fyrir ræt-
ur beinkramarinnar, sem væri
mjög fítbreidcl hjer á landi og
hið langa og dimma skammdegi
ætti aðalorsökina. Ráðin voru ljós-
höð þau, sem' Ijngbarnávfernd
Líknar hefir ’ iverið > með, <en í of ■
litlum mæli, yegáá fjárskorts. Ei» [
nú biður Ungharpaverndin pm typ.,f
larnpa í viðbót, til þess að geta »
náð ti] allra barha í Reykjavík og
veití þeim ljósböð ókeypis. Þetta .
* r ; ■ : \
kostar eínar 3—4000 krónur. O- .
dýrari heilsuvernd er áreiðan|ega
ekki unt, að fá. .
MVtti
Katrín Thoroddsen ljet svo um ^
mælt við Morgunblaðið í gær, að- ■
beinkröm væri svo algeng hjer
bænum, að jafnvel greindir og að-
gætnír foreldrar (íorfðu á alls-
konar líkamslýti barna sinna, án 1
þess nokkuð að aðhafast, því að
foreidrarnir álitu líkamslýtin ihéði-
sköpuð og ekkert væri við þau '
að gera. En þetta væri mestá fjár- 1
stæða; hjer væri beinkrömin að /
verki. o I'
Reykvíkingar! Styðjum Ung» <
barnavernd Líknar í baráttunni
gegn beinkröminni. Söfnum nú
þegar fje til þess að kaupa tvo
lampa og sétjum okkur takmark-
ið: Útrýmum allri beinkröm! i:«
Morgunblaðið tekur á móti f jár-
framlögum í þessu skyni og skor-
ar á menn að bregðast nú vel við. 1
I
ólöglegur póstur
skipi einu, sem var að
fara hjeðan í fyrra-
kvöld til Ameríku fundu bresk-
ir eftirlitsmenn, sem leituðu í
skipinu áður en það ljeti,,úr
höfn, sendibrjef hjá þremur eða
fjórum skipsmönnum skipsins.
Tafðist brottför skipsins við
þetta.
Sjómenn ættu að athuga að
það er stranglega bannað að
taka með sjer sendibrjef til
útlanda eða böggla. Geta' Mik
brot haft hinar alvarlegustu af-'
leiðingar. Almenningur ætti
einnig að neita sjer um að þota
greiðvikni sjómanna til þess að
fá þá til að taka fyrir sig brjef
og sendingar á þenna ólöglega
hátt.
Leikfjelag Reykjavíkur
„Logann helga“ í kvöld, en „Öld-
ur“, eftir síra Jakob Jónsson, ann-
að kvöld, og hefst sala aðgöngu-
miða í dag.