Morgunblaðið - 31.10.1953, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 31.10.1953, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ Laugardagur 31 okt. 1953 Kristmann Guðmundsson skrifar um Ármann Halldórsson skólastjóri: BÓK Andvökur I. bindi. — Eftir Stephan G. Stephansson. — Þorkell Jóhannesson bjó til prentunar. — Bókaútgáfa Menningarsjóðs. ÞÓTT þess séu mörg dæmi að ís- lenzkir bændur hafi fengizt við ritstörf, og sumir þeirra orðið ágæt skáld, þá er Stephan G. Stephansson svo merkilegt fyrir- bæri í bókmenntum íslands, að hann hlýtur ávallt að vekja jafnt undrun sem aðdáun allra, sem kynnast lífi hans og starfi. Hér á landi ólst hann upp í fótækt, fór í vinnumennsku á afdalakot, en þaðan til Vesturheims. Þar stundaði hann daglaunavinnu í fyrstu, en tók síðan til við bú- skap á óruddu landi, og stundaði hann til dauðadags. Af öllu, sem um hann er vitað, má ráða, að dagsverk hans hefur alla æfi ver- ið hið strangasta, en auk þess hlóðust á hann er tímar liðu alls- konar félagsstörf, er vafalaust hafa rænt miklu af hinum fáu hvíldar- og tómstundum hans. Þrátt fyrir þetta hefur honum tekizt að mennta sig allvel á eig- in spýtur, sjálfsagt án annarar tilsagnar en gáfna sinna og skiln- ings. En gáfur hans voru óneitan- lega frábærar, skilningurinn v skarpur, minnið óbilandi, dóm- greindin vökul og hugsunin skap- andi. Og hneigð hans til skáld- skapar var slík, að hann er einn af allra afkastamestu ljóðskáld- um landsins, þótt enginn skilji hvernig honum hefur unnizt tími til að yrkja og skrifa allt það, er eftir hann liggur. Að vísu verður ekki gengið að því grufl- andi, að margt hefði verið betur unnið hjá honum, ef hann hefði átt betri kost, tíma og rýmri fjárhag til þess að losa sig við hversdagsáhyggjurnar. Það er sárara en sagt verði, að slíkur maður skyldi ekki fá aðstæður til þess að gefa sig óskiptan að ritstörfum og hljóta þá menntun, er honum hæfði. Fátæktin hefur jafnan leikið íslenzka menningu illa. En ekki dugir nú um að fást, heldur fagna því, sem þetta stórmenni lét í té, þrátt fyrir hinn versta aðbúnað frá þjóð sinni og samtíð. Það er gleðilegt að Bókaútgáfa Menningarsjóðs skuli nú hafa ráðist í að gefa út Andvökur all- ar, því að fyrri útgáfur þeirra eru orðnar ófáanlegar. I þessu fyrsta bindi eru kvæði skáldsins frá árunum 1868—1907, eða frá því það var fimmtán ára til þess, er það hafði fjóra um fimmtugt. Því er ekki að leyna, að margt er þarna stirt og tyrfið og sumt harla fánýtt. Eigi að síður er eitthvað það við jafnvel léleg- ustu ljóðin, sem vekur áhuga lesandans þegar í stað. Tónninn er sérstæður, róleg alvara og hreinskilni býr í kaldhömruðum háttum, málið er hreint og hrjúft. Og brátt eykst skáldinu ásmegin, en einkum er það vitið, sem vex. Stephan G. er að vísu vart hægt að telja meðal hinna miklu hugs- uða, en hann er skír og hrein- skiftinn raunhvggjumaður og yf- ir hugsun hans er heiðríkja, heil- brigði og karlmennska. Hann er leitandi, jákváeður og hlýr, án heimskugæða og tilfinningasemi. Rímgallar eru á kvæðum hans, margir og leiðir, en stundum er rímið svo knosað og skrúfað að nálega gegnir furðu! Þó er hann meðal mestu Ijóðskálda íslands, svo mikið skáld, að enginn menn ingarmaður íslenzkur getur látið hjá líða að lesa hann. „Kveðið eftir drenginn minn“ er eitt af fyrstu kvæðunum í þessu bindi, sem grípur lesandan föstum tökum, eihkum fjórði og síðasti þáttur þess. „En land hans mínum muna — Ijúfra var M E N N « Stephan G. Síephansson og moldin kærri — fyrst hann hvíldi þar. I — Að þurfa að snúa heim á leið til harms,' þó hugur kvíði ekkaþrungins barms. Þá er það víst, þeim undan því ei vék, að óbætt sorg er karlmennskunni þrek“. „Útlegðin“ er andvarp útlag- ans, sem þráir heim, en æðru- laust, þrátt fyrir hófstillta angur- værð: „Ég á orðið einhvern veginn ekkert föðurland, þó að' fastar hafi um hjartað hnýtzt það ræktar band, minn sem tengdan huga hefur handri mig sem ól, þar sem æsku brautir birti björtust vonarsól". „Vestur í frumbýli“ er sömu tegundar, einnig „Ástavísur til íslands“: „En svo ert þú, ísland, í eðli mitt fest, að einungis gröfin oss skilur“. „Skagaf jörður“ er mikið kvæði og veglegt, er sýnir eins og fjöl- mörg önnur ljóð hve hugur skáldsins er bundin við heima- hagana. Þó yrkir hann glæsilegar drápur til fóstru sinnar, Amer- íku, og kann vel að meta kosti hennar. Hér eru einnig mörg ágætiskvæði orkt í minningu dá- inna vina og ættingja, og ann- ara. Hann kastar ekki til þeirra höndunum, fremur en annars er hann gerir, og á vel við flest þeirra þessi hending úr kvæðinu um „Dr. D. W. Fiske“: „í íslenzkri örbirgð úr ljóði á ástfóignu gröfunum vér oft hlóðum þó merki til minja — það marmari og gull okkar er“. Stephan G. er heimsborgari, furðulega víðsýnn, og lætur sig margt varða. „Ávarn til Norð- manria" er veigamikið kvæði og glæsiiegt. Hversu glöggskygn hann er á frændsemi okkar við Austmenn, fundum við allvel í síðustu heimsstyrjöld: „Við hörpu íslands hnýttur sérhver strengur fær hijóm-titiring, ef skrugga um Noreg gengur“. Oft finnur hann til þess, hversu mjög ytri aðstséður þjarma að skáidhneigð hans. — „Afkastaleysið" er gott dæmi: „Léðar mér eru til Ijóðasmíða valtar og stopular stundir. Rykfallin harpa, T I R ryðgaðir strengir nú verða leiknir lítt. Undrastu ekki, að mér verða stuttorð ljóð og stirfin. Hljóma þó innst í hugardjúpi fegri lög og lengri". Hvenær yrkir þessi erfiðismað- ur og bóndi? Því er svarað í ágætiskvæði, sem nefnist „Kveld“. „í rökkrinu, þegar ég orðinn er einn og af mér hef reiðingnum velt og jörðin vor hefur sjálfa sig frá sól inn í skuggana elt og mælginni sjálfri sígur í brjóst og sofnar við hundanna gelt. — En lífsönnin dottandi í dyrnar er sezt, sem daglengis vörður minn er, sem styggði upp léttfleygu ljóðin x mín öll, , svo liðu þau sönglaust frá mér, sem vængbraut þá hugsiyi, sem hóf sig á loft og himininn ætlaði sér ..“ o. s. frv. Við sjáum hann sitja í rökkr- inu, líkamlega þreyttan eftir langt og erfitt dagsverk, ein- mana andans jöfur í bóndaham, prins í álögum. En hugur hans lyftir sér arnfleygur frá þessum auðibýkjandi ytri aðstæður og brátí eru þær gleymdar, en skájdið skygnist „of heima alla“. Þar krefur hann meðal annars, sagna hinn stranga guð Gyðing- anna í kvæðinu „Jahve“, minnist við „Norna-Gest“ og lítur yfir sögu þjóðar sinnar. Mörg af beztu kvæðum hans eru í flokki þeim, er nefnist: „Úr sögnum og sög- um“. Þar er hið stórsnjalla ljóð „Hergilseyjarbóndinn“, sem eitt myndi hafa varðveitt nafn skáldsins frá gleymsku. Einnig snilldarkvæðið „Elgfróða“ er þar að finna, — og meistaraverkið „Jón hrak“. Vafasamt er hvort saga oln- bogabarnsins hefur nokkru sinni verið sögð betur í bókmenntum Islands en í kvæðinu um Jón hrak. Þar fer Stephan á slíkum kostum að hrein og ómenguð Framh á bis. 12 Nokkrar athugasemdir í MORGUNBLAÐINU 22. okt. s.l. komast í menntaskóla“. (Letur- birtist frásögn af ræðu Pálma breyting mín.) Ekki get ég fallizt Hannessonar rektors við setn- á, að þetta sé djúpsær skilningur ingu Menntaskólans í Reykjavík á aðalhugsun laganna. nú í haust. | Varðandi það atriði að gera Vegna tiltekinna ummæla í skóla landsins sem samfelldasta ræðu rektors tel ég æskilegt, að er það að segja, að milliþftiga- eftirfarandi athugasemdir komi nefnd í skólamálum var falið að fyrir almenningssjónir. | samræma skólakerfið samkvæmt 1. Rektor segir: „Ég kom hér ályktun frá Alþingi 16. júní 1041. að skólanum fyrir 24 árum. Marg Þingsályktunin hljóðar svo: ar breytingar hafa á honum orð- j „Alþingi ályktar að fela ríkis- ið síðan, flestar fyrir atbeina stjórninni að skipa milliþinga- annarra aðila en forsjármanna stofnunarinnar og sumar gegn vilja þeirra“. Fræðslulögin síðustu voru ekki sett að menntaskólunum forn- spurðum né í andstöðu við þá, heldur miklu fremur í góðu sam- komulagi eins og sjá má af fund- arsamþykkt þeirri, er hér skal birt. Úr gerðabók Félags mennta- skólakennara: „Á aðalfundi félagsins, er hald- inn var í Reykjavík dagana 24,— 28. júní 1945, voru eftirfarandi tillögur samþykktar: „Fundur í Félagi menntaskóla- kennara telur, að frumvörp þau, er milliþinganefnd í skólamálum hefur lagt fram, stefni í rétta ótt og sé í samræmi við þá þró- un, sem orðið hefur í skólamál- um landsins hin siðari ár“. Samþykkt þessi er nokkuru lengri og geta þeir, sem vilja kynna sér hana gerr lesið hana í Um menntamál á íslandi 1944— 1946 bls. 110—111. Umræddan fund sátu bæði kennarar frá Akureyri og Reykjavík. Þess má og geta, að Kristinn Ármannsson yfirkennari, formað- ur Félags menntaskólakennara af hálfu Sunnanmanna, átti sæti í milliþinganefnd í skólamálum og minnist ég þess ekki, að aðrir nefndarmenn hafi í nokkuru atriði lagzt gegn tillögum hans varðandi menntaskólana. Hann mun þá leiðrétta það, ef svo hef- ur verið. 2. Á öðrum stað í ræðu sinm segir rektor: „En svo voru nýju fræðslulög- in sett 1945.* Ein aðalhugsunin í þeirri lagasetningu virðist sú að gera skóla landsins sem sam- felldasta og gera hverjum miðl- ungsnemanda sem auðveldast að * 1946. Á. H. nefnd skólafróöra manna, til þess að rannsaka kennslu- og uop- eldismál þjóðarinnar og gera i;l- lögur um skipun þeirra, þar '',ein stefnt sé að því að gera skólana sem hagfelldasta, samræma -'kóla kerfið, ákveða betur en :iú er starfssvið hinna ýmsu skóli og sambandið'þeirra á milli“. Fyrri flutningsmaður tillög- unnar og sá, sem talaði fyrir henni, var Pálmi Hannesson, bing maður Skagfirðinga, Bjarni Bjarnason var meðflutningsmað- ur. í greinargerð segir: „Skóla- kerfi landsins er hvergi nærri svo samfellt sem ýmsir telja æskilegt og annars staðar tíðk- ast“. — í upphafi framsöguræðu sinnar segir Pálmi Hannesson: „Hlutverk þeirrar neíndar á að vera að íhuga skólakerfi lands- ins allt í heild og gera tillögur um samræmingu þess og annað, sem þeirri nefnd mætti þykja horfa til bóta frá því, sem nú er“. Hins Vegar er mér algjörlega ókunnugt um, að sú hugsun leyn- ist á nokkurum stað í fræðslu- löggjöfinni, að gera eigi hverjum miðlungsnemanda sem auðveld- ast að komast í menntaskóla, hvað þá heldur að það sé ein- hver aðalhugsun, enda ekkert kveðið á um það í lögunum hver skuli lágmarkseinkunn til að standast inntökupróf í mennta- skóla, heldur tekið fram, að hún skuli ákveðin í reglugerð. 3. Enn fremur segir rektor: „í fræðslulögunum er gert ráð fyr- ir því, að menntaskólarnir og kennaraskólinn ráði allmiklu um skipun landsprófsnefndar. Jafn- vel þessu hefur ekki verið fram- fylgt. Af tíu mönnum, sem lands- prófsnefnd skipa, eru aðeins tveir úr hópi fastra kennara mennta- skólanna. Margir hinna hygg ég Framh. á bls. 11. Öryggisráð tók nýlega að ræða ósamkomulagið og óeirðirnar milli fsraels og Arabaríkjanna. Þá bar svo við að Andrei Vishinsky hélt ræðu, þar sem hann réðist af mikilli hörku á ísrael. Sagði Vishinsky að ísrael ætíi alla sök á ófriðarástandinu í náægum Austurlöndum, enua kvað Vishinsky ísrael vera leppríki Bandaríkjanna. Hér sést Vishinsky flytja árásarræðu sína.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.