Lesbók Morgunblaðsins - 26.01.1980, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 26.01.1980, Blaðsíða 2
Næst á myndinni er hús, sem enn stendur: 'Líverpool. neðst við Vestur- götuna. Áftan við það stendur stórhýs- ið Glasgow sem reist var 1863. en brann til grunna 1903. Nú er þar bílastæði. Síðustu greinar Árna Óla Þessi er önnur í röðinni af þremur, sem hann ætlaði til birtingar í Lesbók Grjóti hét ein af hjáleigum Reykja- víkur og stóð á háholtinu ofan við Víkurbæinn. Brekkan þar á milli var í öndverðu stórgrýtt mjög og svo alla leiö niöur að Grófinni. En eftir að klæðaverksmiðjurnar komu, tók að byggjast þarna upp á brekkunni og um miðja 19. öld voru þar komin um 20 býli, allt torfbæir. Þarna haföi því myndast sérstök byggð og var hún í daglegu tali kennd viö fyrsta kotiö og kölluð Grjótaþorp. Þeir bæirnir, sem næstir voru Grófinni, mundu nú teljast til Vesturgötu, en þá var engin Vesturgata til. Svo var þaö árið 1863 aö brezkir kaupsýslumenn keyptu tvo nyrztu bæina, Þorfinnsbæ og Melbysbæ og reistu verslunarhús á lóöum þeirra. Þetta hús var kallað Glasgow og var stærsta hús, sem þá var til á íslandi, 40 alnir á lengd og 20 alnir á breidd, GLASGOW stórhýsi og stórverzlun sem gnæfði yfir Griótaþorpið og setti svip á bæinn. tvær hæðir og hátt ris með kvistum, en undir öllu húsinu hár og mikill kjallari. Til hliðar við það var 25x12 alna stór geymsluskúr. Þarna skyldi svo rekin stærsta verslun á íslandi og voru eigendur hennar taldir Henderson, Anderson & Co. Sölu- búö var í miöju húsinu, og mjög stór. í suðurenda voru skrifstofur, en geymsla í norðurenda. Framundan Grófinni var gerð stór bryggja og lágu þaðan járnbrautir inn í kjallara hússins, og meö þeim fluttar allar vörur, en í kjallara var lyfta upp í þakhæð, og með henni var vörunum dreift um húsakynnin. Var þarna allt með nýtísku sniöi og bar mjög við af því er íslendingar höfðu átt aö venjast. Um þessar mundir voru ekki nema rúmlega 1400 sálir í Reykjavík, eða svipaöur fjöldi og nú er á Sauðár- króki. Var það því dirfska mikil að hefja hér svo stórt verslunarfyrir- tæki, en eigendur verslunarinnar hljóta að hafa haft óbifanlega trú á vexti og viðgangi Reykjavíkur. Það fór nú samt svo, að rekstur verslunarinnar gekk skrykkjótt og eftir fimm ár varð hún gjaldþrota. Voru þá allar eignir hennar seldar á uppboði, en húsið sjálft var ekki selt fyr en fjórum árum seinna. Var þá söluverð þess 6000 ríkisdalir, eða 12.000 krónur. Kaupandinn var Egill Egilsson, bróðir Benedikts Gröndal. Lagðist þá verslun þar niður aö mestu leyti. Mikill hluti hússins var tekinn til íbúðar og áttu þar heima ýmsir kunnir menn auk Egils, svo sem Jón Hjaltalín landlæknir, Hall- dór Danielsson bæjarfógeti, Tryggvi Gunnarsson bankastjóri, Steingrím- ur Johnsen söngkennari, Magnús Einarsson dýralaéknir o.m.fl. En í ósélegri útbyggingu hafðist við Sæ- finnur á sextán skóm og safnaöi þar að sér kynstrum dýrgripa á sinn mælikvaröa, en allir aðrir töldu aðeins rusl og óþverra. En krambúðin mikla í miðju hús- inu varð þá samkomustaður bæar- búa. Þar fóru fram leiksýningar og allskonar fundir. Og þá var það að Þorlákur Ó Johnsen stofnaöi Sjó- mannaklúbbinn ásamt Agli Egilsen, Árna Thorsteinsson landfógeta og skáldinu Matthíasi Jochumssyni, sem þá var ritstjóri Þjóðolfs. Hlut- verk þessa klúbbs var að auka alþýðumenntun og venja sjómenn af drabbi og drykkjuskap. Klúbburinn fékk inni í Glasgow og var opinn alla daga. Þar voru töfl og spil og bækur, sem sjómenn gátu skemmt sér við í landlegum, þar voru fluttir fræðandi

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.