Morgunblaðið - 30.09.1990, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 30.09.1990, Blaðsíða 18
18 € MORGUNBLAÐIÐ MINIMINGAR SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 1990 DULRÆN EFNI Sálargerðirnar sjö - sálaraldur Námskeið í efni frá MICHAEL verður haldið í október. Meðal efnis: Sálargerðirnar sjö ★ Aldurskeið sálna ★ Sálnasamstarf ★ Hvernig við veljum sjálf persónuleikaþætti okkar ★ Jákvæðir og neikvæðir pólar ★ o.fl. Þátttakendur fá tækifæri til að greina sál- arhlutverk sitt og sjálfvöldu persónuleika- þættina með einföldum og skemmtilegum prófunum. Islenskur leiðbeinandi. Skráning og nánari upplýsingar hjá Hug- ræktarhúsinu, Hafnarstræti 20 og í síma 91-620777 frá kl. 16.15-18.30 virka daga. Takmarkaður þátttakendafjöldi. Skráning hafin. Jónatan Jónsson kennari - Minning Vímulaus Ferð til Florida! 3.nóvember - 26.nóvember 1990 I Orlando eru Disney World, Sea World, Wet’n Wild og Cypress garðurinn meðal viðkomustaða. í þessum ævintýraheimi má m.a. heilsa upp á Mikka mús, sjá hin ýmsu dýr leika listir sýnar og kynnast af eigin raun einum stærsta v atnsleikj agarði jarðar. A sandríkri sjávarströnd mun svo notið lífsis í hálfan mánuð þar sem nóvembersólin skartar sínu fegursta. Bankastræti 2-101 Reykjavík - Sími: 62 71 44 Fæddur 17. september 1917 Dáinn 14. september 1990 Jónatan er látinn. Mér varð óneytanlega hverft við að vera til- kynnt, þetta við komuna í spítalann nýlega. Ég hugðist heimsækja vin minn eins og svo oft áður. Þrátt fyrir hina erfiðu fötlun sjúkdóms- ins, var hann alltaf svo andlega hress, að maður leiddi ekki hugann að nálægð dauðans í hans viður- vist. Orð þjóðskáldsins mætti vel heimfæra upp á Jónatan. Fijáls þinn og auðugur andi sér átti og nýtti álfaslot hveijum í hamri og hægindi í skýjum, búgarðs hvers i blómsturs bikari miðjum og hvem sér til viðtals valdi af vitringum liðnum. Það er svo stutt síðan við hitt- umst síðast og tefldum skák. Þá varðist Jónatan fimlega öllum atlög- um, eins og svo oft áður, enda van- ur að fást við meiri spámenn en undirritaðan á því sviði. Við þetta sama tækifæri flutti Jónatan langt frumort kvæði um sinn ástkæra Skagafjörð, og það algerlega eftir minni. Orðkyngin og líkingamálið gat ekki annað en hrifið hugann, vald Jónatans á íslensku máli var með ólíkindum. Bragreglur skáld- skaparins voru virtar til fullnustu og ort updir vandasömum, dýrum háttum. í túni Braga komu engar ódýrar lausnir til greina. Um þetta getur hver sannfærst sem les ljóða- bók hans „Dvergskip". Minni Jónatans var alla tíð frá- bært. Aldrei gleymist ferðin, er við fórum, einn fagran sumardag, um sveitir suðurlands, ásamt Önnu heit- inni systur hans. Þama hafði Jónat- an verið farkennari endur fyrir löngu. Öll nöfn bæja, íbúa og kenni- leita vora honum enn í fersku minni. Staðþekkingin hreint ótrúleg hvar sem farið var. Heimsóknir okk- ar Önnu til Jónatans, um eins og hálfs áratuga skeið, líða seint úr minni. Hver heimsókn næstum eins og að ganga á fund heilags manns. VÖUJSTEINN OPI GLÆSILEGA SAUMAVÉLA- OG FÖNDURVERSLUN AÐFAXAFEN114 VÖLUSTEINN er einka umboðsaðili á fslandi fyrir hinar frábœru HUSQVARNA og BROTHER saumavélar. HUSQVARNA saumavélar á 10% kynningarafslœtti vikuna 1 .-6. okt. BROTHER saumavélar á aðeins 18.900 stgr. VÖLUSTEINN er verslunin sem býður, í fyrsta sinn á íslandi, upp á fjölbreytt úrval af hinum vel þekktu og vinsœlu PANDURO og FREDENSBORGINKÖBCENTRAL föndurvörum. G VÖLUSTEINN FAXAFEN 14 SÍMAR 679505 og 30380 VIUIRÐU SPARA ER VÖLUSIEINN VERSLUNIN FYRIR ÞIG Allt fas heilsteypt, alþýðlegt og hlý- legt, öll orðræða vönduð og upp- byggjandi. Af hans fundi hlaut hver að fara betri maður. Það er gæfa að hafa fengið að kynnast slíkum manni. Blessuð sé minning hans. Ásgeir Sigurðsson Þegar síðasta kornið rann úr stundaglasi Jónatans Jónssonar, var löng og oft torsótt píslaganga að baki og vegmóðum ferðamanni um síðir búin hvíld. Örðugu stríði lauk þann veg, sem viðureign lífs og dauða lýkur ævinlega. Mörg undanfarin ár bættist hver kvillinn á annan ofan til þess að þyngja þann kross, sem á Jónatan var lagður. En jafnframt lagðist honum ýmislegt til. Þannig hélzt andleg orka hans lítið sem ekkert skert allt þar til yfir lauk. Fram undir það síðasta gat hann farið með langa ljóðabálka eftir minni, mér liggur við að segja hálfar eða heilar ljóðabækur, og þá annarra skálda verk ekki síður en sín eigin. Þá hefði hann varla látið sig muna um að fylla væna bók með þeim lausavísum og gamanbrögðum ásamt meðfylgjandi sögum, sem hann hafði löngum á hraðbergi, hve- nær sem af honum bráði. Ég kynntist Jónatan fyrst sumar- ið 1942, þegar við voram saman í vegavinnu. Þá kom á daginn að við áttum samleið í námi. Hann var þá í blóma lífsins, hafði lokið kennara- prófi og bjó sig að svo búnu undir stúdentspróf utanskóla. Næstu ár umgengumst við mikið, og þá fékk ég að kynnast fjölskrúðugum áhuga- málum hans og viðfangsefnum. Of- bauð mér stundum hversu víða hann kom við og hversu mörg járn hann hafði í eldinum samtímis. Hann söng, lék á hljóðfæri, æfði langhlaup og glímu, spilaði á spil og tefldi. Af öllu þessu leiddi að kunningjahóp- urinn var býsna fjölmennur. Síðar kom reyndar á daginn, að í þessum hópi voru hreint ekki svo fáir, sem reyndust vinir, þegar í raunir rak. Stríðsárin vora að því leyti góð, að þá var næga atvinnu að fá fyrir þá, sem vettlingi fengu valdið. Voru það notaleg umskipti eftir þrenging- ar kreppuáranna. Engu að síður var lífsbaráttan hörð hjá Jónatan og fleirum, sem einvörðungu urðu að byggja á eigin afla. Þá stóðu engin námslán til boða, og umtalsverðir styrkir voru fáir og torfengnir. Húsnæðisskortur var tilfinnanleg- ur um þessar mundir, og man ég t.d. að einn vetur fékk Jónatan að sofa í skrifstofuherbergi íþróttafé- lags, þar sem oftast var umgangur til miðnættis og oft illa vært þar eftir kl. 7-8 á morgnana. Þó að hann barmaði sér ekki og leyndi því eft- ir beztu getu, bjó hann oft við þröng- an kost á þessum árum. En aflmesti drifkrafturinn í lífi hans var þráin til mennta. Þegar hnignandi heilsa varð til þess að hann varð að hverfa frá óloknu háskólanámi, var honum áreiðanlega þungt fyrir bijósti. En hann tók þessu eins og öðrum áföllum, sem lífið var svo örlátt á við hann, og til æviloka varðveitti hann þann opna stúdents- huga, sem mætir menn hafa talið aðalsmerki sannra menntamanna, var m.ö.o. studiosus perpetuus. Starfsævi Jónatans var skamm- vinn, sé hún borin saman við æviára- ijölda og miðað við launuð störf, — brauðstritið. Þeim mun lengri varð dvölin á hælum og sjúkrahúsum. Lengst af var langlundargeð Jónat- ans með ólíkindum, og fór hann oft viðurkenningarorðum um mjúkar hendur og alúð þeirra sem önnuðust hann, lækna og hjúkranarfólk. Þá lofaði hann mjög þá ættingja sína og aðra vini, sem lengst ræktu við hann gamlan kunningsskap og vin- áttu, en sjálfur var hann óbrigðull vinur vina sinna. Var honum löngum tamara að íjölyrða um þá sem hon- um geðjuðust en hina, sem andað höfðu köldu að honum. Jónatan fæddist á Þangskála á Skaga hinn 17. september 1917, sonur hjónanna þar, Jóns Sveinsson- ar kennara og Maríu Jóhönnu Sveinsdóttur. Móðir hans dó snemma árs 1929, og fóru þá þrír yngstu bræðurnir, þar á meðal Jón- atan, að Bergþórshvoli í Landeyjum til bróður þeirra, síra Jóns Skagan, sem þar var þá prestur. Kennara- prófi lauk Jónatan 1941 ogstúdents- prófi 1945. Hann stundaði nám í heimspekideild Háskóla Islands árin 1946-51. Þá vann hann um skeið á Pósthúsinu í Reykjavík og enn síðar var hann kennari á Skagaströnd. Mörg síðustu árin átti hann við van- heilsu að stríða og var þá oft og lengi sárþjáður. Eftir hann liggur ljóðabókin Dvergaskip, sem kom út 1975. Hann lézt hinn 14. september sl. Bergsteinn Jónsson Eva María Sævars- dóttir - Kveðja Fædd 12. nóvember 1982 Dáin 25. september 1990 Það er erfitt að trúa því að litla fallega frænka mín og vinkona hafi hvatt þennan heim aðeins sjö ára gömul. Ég get ekki sætt mig við að við séum að kveðja hana, þó ég viti að það er aðeins um stundarsakir. Eva María var óvenjulega yndis- legt barn, lífsglöð, dugleg og góð, hún var þroskuð sál. Það var alltaf mikil gleði að hitta þessa litlu vin- konu mína glaða og glettna. Hún var opin og sagði sína meiningu, framkvæmdasöm og drífandi. Ég veit að hún hefur fengið góða heim- komu og nú líður henni vel hjá Guði. Guðs vegir era órannsakanleg- ir, en sagt er að þeir deyi ungir sem Guð elskar, henni hefur verið ætlað mikilvægara hlutverk á öðru sviði. Elsku Auður, Sævar, Alli Maggi, Gummi og Lilja, guði gefi ykkur styrk í ykkar miklu sorg. Minningin lifir um yndislegu litlu stúlkuna mína og verður ljós í lífi okkar. Ég og fjölskylda mín sendum að- standendum innilegar samúðar- kveðjur. Guð blessi ykkur öll. Bless- uð sé minning Evu Maríu. Erla Gestsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.