Morgunblaðið - 26.09.1993, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 26.09.1993, Blaðsíða 12
12 B MORGUNBLAÐIÐ MENNINGARSTRAUMAR SUNNUDAGUR 26. SEPTEMBER 1993 Ein stórfjölskylda Tvær myndir á hátíð; „Mountains of the Moon“ og „Orlando". Kvikmyndahátíd Sambíóanna Sambíóin hafa byijað sýn- ingar á listrænum myndum á sérstakri kvik- myndahátíð þár sem sýnd eru verk eftir leikstjóra á borð við Bob Rafelson og Sally Potter. „Orlando" heitir mynd Potter og er saga ungs manns sem breytist í konu og lifir í 400 ár. Með aðal- hlutverkið fer Tilda Swinton en mynd þessi hefur hvar- vetna vakið mikla athygli og fengið hrós gagnrýn- enda. „Mountains . of the Moon“ er þriggja ára mynd Rafelsons um könnunarleið- angur Richard Francis Burt- ons og John Hanning Spe- kes árið 1854 í leit að upp- tökum Nílar. Patrick Bergin fer með aðalhlutverkið. Romuad og Juliette er eftir gamanleikstjórann franska Coline Serreau (Þrír menn og karfa) og er nútímaút- gáfa af sögunni um Rómeó og Júlíu. „Music Box“ er eftir gríska leikstjórann Costa-Gavras með Jessica Lange í aðalhlutverki og segir frá lögfræðingi sem kannar fortíð föður síns. „The Handmaids Tale“ er eftir Volker Schlöndorff og byggð á bókinni Saga þern- unnar sem komið hefur út á íslensku. Fjöldi þekktra leikara fer með aðalhlutverk en myndin gerist i framtíð- inni þegar aðeins örfáar konur geta eignast börn. „The'Power of One“ ger- ist í S-Afríku og er með Morgan Freeman í aðalhlut- verki, „City of Hope“ er eft- ir einn fremsta óháða leik- stjóra Bandaríkjanna, John Sayles, og þykir gefa rauns- anna mynd af lífinu í banda- rískum stórborgum sam- tímans og „Mississippi Ma- sala“ er nýjasta mynd Mira Nair með Denzel Washinton í aðalhlutverki.„The Man in the Moon“ eftir Robert Mulligan, „Pve Heard the Mermaids Singing“ eftir Patricia Rozema og „Naked Tango" eftir Leonard Schrader eru einnig á hátíð- inni. Nýtt kvikmyndablað. MNýtt tímarit fyrir áhugafólk um kvikmynd- ir hóf göngu sína í sumar og kom annað tölublað þess út fyrir skemmstu. Það heitir Bíómyndir og Myndbönd og segir frá i öllu því helsta sem í gangi er í kvikmyndahúsum borgarinnar og væntan- legum myndum og því nýjasta á myndbanda- markaðinum. Ritstjóri og ábyrgðarmaður er Guð- bergur Isleifsson. MBandaríski spennu- myndaleikstjórínn Ha- rold Becker, sem gerði „Sea of Love“ með A1 Pacino, hefur gert nýja mynd er hlotið hefur nafnið „Malice". Með aðalhlutverkin fara Alec Baldwin, Nicole Kid- man og Bill Pullman en myndin segir frá prófess- or í litlum háskólabæ og eiginkonu hans sem kynnast nýjum vini á sama tíma og nauðgari gengur laus í bænum. „Þetta er eiginlega sorglegur gamanleik- ur,“ sagði Jóhann Sigm- arsson, annar af hilf- undum Veggfóðursins þar sem við hittust á förnum vegi ogfórum að tala um nýja bíómynd sem hann er byrjaður að kvikmynda. Hún á að vera í fullri lengd og tökur munu standa yfír frá l.októbertil7. nóvember en Jóhann sagðist þegar vera bú- inn að kvikmynda einar 14 senur. Myndin gæti orðið tilbúin að ári. Jóhann er sjálfur leik- stjóri og handrítshöf- undur einnig en aðspurður um leikara í myndinni sagði hann Jón Sæmund Bjorn- holt fara með aðalhlut- verkið. Ekki væri eftir Arnald Indriéoson lærður leikan frekar en margir aðrir í myndinni en Jóhann sagð- ist velja leikara eftir því hvemig andlitin pössuðu í hlutverkin. Meðal annarra leikara nefndi hann Ásdísi Sif Gunnarsdóttur, Krist- ján Amgrímsson, Sigrúnu Hólmgeirsdóttur, Eirík Thorarensen, skáldín Sig- urð Pálsson og Braga Ólafsson, Þorstein Back- man og Björn Inga Ragn- arsson. Sagan er um náunga Jón Sæmundur Bjornholt og Ásdís Sif Gunnarsdóttir fara með aðalhlutverkin í mynd Jóhanns. sem er í sambúð með stelpu sem „á ferlega ríka foreldra en strákurinn vinnur kauplaust hjá pabba hennar. Öll reyna þau að nota hann í fjöl- skyldunni og náunginn byrjar að hefna sín á henni þegar honum finnst nóg komið, leigir sér herbergi pg tekur að draga hinar ýmsu konur á tálar,“ sagði Jóhann og bætti við sposk- ur að fimm böm fæddust í myndinni og einhveijir hvolpar. Jóharui sagði að leik- aramir hefðu æft textann undanfarið en hann útilok- aði ekki spuna á tökustað ef út í það færi. Hann sagðist hafa lagt áherslu á að hafa öll samtöl mjög eðlileg og segir orðfærið „pikkað beint upp af göt- unni.“ Hugmyndina fékk hann í vetur og blandaði saman í hana ýmsu úr tveimur handritum sem hann hefur unnið í, Rauðu vlni og Heimsflugum („vegamynd sem gerist um borð í flugvélurn"), svo úr varð Ein stór fjölskylda en það er nafnið á myndinni. Jóhann sagði myndina tekna á súper 16 mm vél en filman yrði blásin upp í 35 mm eins og reyndin var með Veggfóður og hún mundi koma til með að kosta svipað, á milli 20 og 25 milijónir. Hann segist hafa fyrir tökum og fram- köllun.„Maður er ungur og á að vera óragur við drauma sína,“ sagði hann. Kvikmyndatökumaður er Guðmundur Bjartmars, Steingrímur Karlsson sér um klippingu og fram- kvæmdastjóri er Eva Lísa Ward. Svanur Kristbergs- son sér um tónlistina og hljóðmaður er Róbert Bjarnason. Með minni hlutverk fara Sara Dögg Meulenbroek, María Hjálmtýsdóttir, Nína Björk Gunnarsdóttir og Rebekka Silvía Ragnarsdóttir. „Maður á að fram- kvæma hlutina fyrst mað- ur er að þessu á annað borð,“ sagði Jóhann og við kvöddumst. 24.000 hafa séð Flugása 2 Öðruvísi jól; úr hreyfimynd Tim Burtons. Martröð undir jólin ÍBÍÓ Clint Eastwood er maður dagsins og bregst ekki bogalistin I spennumyndinni í skot- línu I Stjörnubíói. Þar sýnir hann reyndar á sér nýjar hliðar þeim sem þekkja hann best sem harðjaxl kvikmynd- anna númer eitt. Hann leikur á píanó, enda jass- isti mikill I raun og píanó- leikári góður, gerir grín að aldrinum, orðinn 63 ára að daðra við sér mun yngri konur, og það sem kannski kemur flestum á óvart, brestur I grát. Það vakti sérstaka at- hygli þegar Eastwood, sem kallaður hefur verið Clintosaurus rex I sumar, brosti breitt I „Thunder- bolt and Lightfoot" I Tónabíói fyrir 65 milljón árum og nú hefur hann enn brotið blað. Hjá hon- um er þróunin sem betur fer afar hæg og bíómynd- irnar tryggja að hann verður aldrei útdauður. Gott ef hann er ekki farinn að höfða meira til kvenfólks en áður a.m.k. var talsvert um kvenfólk á nýlegri sýningu þar sem áður voru eingöngu harð- hausaaðdáendur. Alls höfðu um 24.000 manns séð gaman- myndina Flugása 2 I Sam- bíóunum um síðustu helgi að sögn Árna Samúélssonar kvikmyndahúsaeiganda. Þá sagði hann um 62.000 manns hafa séð Júragarðr inn, sem einnig er I Háskóla- bíói, 10.000 á Denna dæma- lausa, 10.000 á Þrælsekan, 9.000 á Skjaldbökurnar 3 og 5.000 sáu myndina um Tinu Tumer fyrstu sýn- ingarhelgina. Árni sagði að nú væri unnið við talsetningu á Dis- neyteiknimyndinni Aladdín og er hún fyrsta teiknimynd- in frá Disney sem fær ís- lenskt tal. Talsetningin mun kosta um fimm milljónir króna en á þriðja tug leikara sér um leikraddirnar. Má þar nefna Felix Bergsson, Eddu Heiðrúnu Back- man, Þórhall Sigurðsson, Jóhann Sigurðarsson, Arnar Jónsson og Rúrik Haraldsson. Eggert Þor- leifsson snýr söngtextun- um yfir á íslensku og upp- tökustjóm er I höndum Júl- íusar Agnarssonar en upp- tökum er nú lokið. Leikstjóri talsetningarinnar er Rand- ver Þorláksson. Er áætlað að frumsýna myndin á ann- an I jólum að sögn Árna og verður myndin einnig sýnd á frummálinu en Robin Will- iams ku fara á kostum sem andinn I lampanum. Næstu myndir Sambíó- anna em Flóttamaðurinn, sem fmmsýnd verður þann 29. september, Firmað með Tom Craise, Dave með Ke- vin Kline, „Rising Sun“ með Sean Connery, „The King of the Hill“ eftir Steven Sod- erbergh. Fyrsta Disneyteikni- myndin með íslensku tali; úr Aladdín. Bandaríski leikstjórinn Tim Burton, einhver frumlegasti og efni- legasti leikstjóri draumaverk- smiðjunnar, var teiknari hjá.Di- sneyfyrirtækinu áður en hann gerðist leikstjóri og þangað fór hann aftur að vinna þegar hann gerði nýju bíómyndina sína, 30 milljón dollara hrey- fimynd sem heitir „Nig- htmare Before Christmas" eða Martröð undir jólin. Þetta er dýrasta hreyfi- mynd sem vitað er um en persónurnar eru brúður og hreyfing er mynduð með því að taka mynd, hreyfa brúð- urnar, taka mynd, hreyfa, taka, hreyfa. Tökur stóðu yfir I tvö ár samfleytt. Burton er hönnuður mynd- arinnar en Henry Selick er skrifaður leikstjóri. Hann segir: „Það er engin leið að réttlæta það sem við gerum nema með því að segja að við blásum lifi I dauða hluti, brúður gerðar úr málmi, plasti, tré eða hveiju sem er.“ Handritið gerir Caroline Thompson, sem skrifaði Edda klippikrumlu, og tón- listina gerir Danny Elfman. Sagan segir frá Graskera- kónginum I Hrekkjavökubæ sem leiðist lífið, uppgötvar jólin og reynir að skipta um starf. KVIKMYNDIR Hvada mynd erJóhann Sigmarsson ab geraf

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.