Morgunblaðið - 23.07.1996, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚLÍ 1996 11
LANDIÐ
Flugdagur á Blönduósi
Frá dönskum her-
þotum í heima-
smíðaðar flugvélar
Blönduósi - Flugklúbburinn Flug-
smíð efndi til flugdags á Blönduósi
sl. laugardag. Dagskráin var fjöi-
breytt og afar athyglisverð hvar
sem á var litið.
Dagskráin hófst á hópflugi
heimasmíðaðra flugvéla og síðan
rak hver atburðurinn annan.
Dornier flugvél íslandsflugs sýndi
listir sýnar og þota frá danska
fiughernum heilsaði upp á sam-
komuna.
Listflug sem Þorgeir L Arnason
formaður Flugsmíðar sýndi á TF-
UFO var vel útfært og a.m.k. ógn-
þrungið þeim sem telja öruggast
að hafa traust jarðsamband. Enn-
fremur fengu flugdagsgestir að sjá
listlug heimasmíðaðs „flugmódels“
og að lokum var boðið upp á útsýn-
isflug.
Félagið Flugsmíð er áhuga-
mannafélag og að sögn Þorgeirs L
Árnasonar eru félagar um 80 tals-
ins. Megintilgangur félagsins er
eins og nafnið segir til um að auka
áhugann á flugvélasmíði og flugi
almennt.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
FJOLDI fólks lagði leið sína á Blönduósflugvöll til að fylgjast með flugmönnum leika listir sínar.
Malbikun lokið í
miðbæ Húsavíkur
Húsavík - Ein af fjárfrekustu
framkvæmdum Húsavíkurbæjar
er gatnagerð, bæði jarðvegs-
skipti og malbikun. Að loknum
framkvæmdum í sumar verður
allur miðbærinn malbikaður, en
eitthvað verður eftir að ganga
frá gangstéttum. Til þeirra fram-
kvæmda er áætlað að verja 22
millj. króna. Fjárfrekari fram-
kvæmd sem unnið er að er við-
bygging við Grunnskólann, sem
tekin verður að nokkru leyti til
afnota á komandi hausti.
Setur svip
á bæinn
ÍTALSKA skemmtiferðaskipið
Ítalía Príma frá Napolí hefur
komið í tvígang til Grundar-
fjarðar í júlí. Þetta er 16 þúsund
tonna skip, sem hefur að vonum
sett svip sinn á höfina. Nær 500
farþegar eru á skipinu og 200
manna áhöfn og hefur þessi
mikli fjöldi lífgað upp á bæjar-
lífið.
Morgunblaðið/Guðlaugur Albertsson
Bílvelta í
Fnjóskadal
BIFREIÐ valt út af veginum
við Víðivelli í Fnjóskadal um
kl. 4.30 aðfaranótt laugardags.
Að sögn lögreglunnar á
Akureyri urðu ekki alvarleg
slys á fólki. Einn maður var
fluttur á slysadeild Fjórðungs-
sjúkrahússins á Akureyri og
er líðan lians eftir atvikum.
Heiðarfjall á Langanesi
Ruslahaugar
menga umhverfi
Vaðbrekku. Jökuldal.
RUSLAHAUGAR frá tímum ratsjár-
og herstöðvarinnar á Heiðarfjalli á
Langanesi eru farnir að menga
umhverfi hauganna verulega sam-
kvæmt mælingum sem gerðar hafa
verið á jarðvegi og grunnvatni í
umhverfi þeirra.
Hákon Erlendsson, einn eigenda
jarðarinnar Eiðis sem ruslahaugarn-
ir eru á, segir að blýmengun sé far-
in að gera vart við sig grunnvatni
í fjallinu neðan við haugana og sé
farið að menga vatnsból jarðarinnar.
Samkvæmt upplýsingum er Há-
kon hefur fengið voru á sínum tíma
urðaðir um 20 þúsund rafgeymar,
50 oiíuspennar, sennilega PCB
mengaðir, og mikið af úrgangsolíu
í tunnum. Einnig var miklu magni
af hráolíu dælt yfir haugana þegar
verið var að reyna að brenna draslið
áður en það var urðað, en þarna var
urðað allt sorp frá þessu nær 200
manna samfélagi er þarna var þau
18 ár er stöðin var starfandi.
Hákon segir að ekkert hafi geng-
ið að ná fram rétti landeigenda hjá
bandarískum hermálayfirvöldum.
Þegar landeigendur fara fram á úr-
bætur koma þeir alls staðar að lok-
uðum dyrum hjá bandaríska hern-
um. Ennfremur telur Hákon það
óeðlilegt að landeigendur fái ekki
aðgang að þeim skjölum frá banda-
ríska hernum er segja frá hvað er
urðað á þessum haugum, þó búið
sé að létta af þeim skjalaleyndd sam-
kvæmt reglum er um skjalaleynd
gilda hjá bandarískum hermálayfir-
vöidum.
^ Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
HÁKON Erlendsson, einn eig-
enda jarðarinnar Eiðis á
Langanesi, bendir á ýmislegt
brak í yfirborði hauganna á
Heiðarfjalli. Þar standa jafn-
vel leifar af gömlum rafgeym-
um og hálffullum olíutunnum
uppúr jarðveginum.
Handbóh garðeigandans í996/1997
Garðurinn
og umhverflð
48 síðna hugmyndabæklingur með vörunum
frá BM*Vallá fyrir garðinn þinn.
Komdu við eða hringdu í síma 577 4200
(grænt númer 800 4200) og fáðu sent
eintak - þér að kostnaðarlausu.
Netfang: bmvalla.sala@skima.is
BM'VAILA
Breiðhöfða 3
112 Reykjavík.