Tíminn - 06.04.1957, Blaðsíða 4

Tíminn - 06.04.1957, Blaðsíða 4
TÍMINN, laugardaginn 6. apríl 1957, 4* Friðrik Ólafsson skrifar um síðustu einvigisskákma við Hermann Piinik EINVÍGINU LOKIÐ. 8. SKÁKIN Þá er loksins lokið þessu ein- vígi okkar Pilniks og féll sig- urinn mér í skaut eftir mjög harða baráttu, eins og úrslitin bera með sér. Hvort 4V2-3V2 séu réttlát úrslit vil ég ekki leggja neinn dóm á, enda eru utanaðkomandi menn betur fær ir um, að skera úr um slíkt en við, sem hlaut eigum að máli. Þó vil ég segja það, að tafl- mennska okkar Pilniks í ein- vígi þessu, hefur verið með slík um óiíkindum, að úrslitin hefðu getað orðið á hvorn veginn sem væri, svo tilviljunarkenndar virtust skákirnar vera. Einvígi, þar sem aðeins ein skák er jafntefli, ber það með sér, að eitthvað hefur farið aflaga, ekki sízt, þegar stjórnandi hvítu mannanna er næstum einvörð- ungu sá sem sigur ber úr bít- um. Þar sem jafntefli eru í meirililuta, er að jafnaði bet- ur teflt. En slíkri taflmennsku veröur maður víst að taka eins og hverju öðru hundsbiti um ævina. 8. skákin var vel tefld, lengi vel framan af, en er líða tók á seinni hlutann tóku keppend- ur að brydda hana með sínum venjulegu „brilliant“ hugdett- um og undir lokin var það ég sem kórónaði sköpunarverkið (33. Be2—). í biðinni virtist skákin fljóít á litið vera far- in veg allrar veraldar, en við nánari athugun kom í ljós, aö í henni leyndust ýmsir furðu- legir jafnteflismöguleikar, sem bókstaflega þvinguðu fram jafntefli. Eins og skákin svo tefldist var aldrei neinn vafi á, hver endalokin yrðu. Jafn- tefli var samið í 71. leik. 8. SKÁKIN. Hvítt: Fr. Ólafsson. Svart: H. Pilnik. Sikileyjarvörn. 1. e4—e5 2. RfS—Rc8 (Piln ik hsfur ekki vogaö sér í e6- heimabruggið sitt aftur.) 3. d4 —cxd 4/ Ílxd4—Rfo 5. Rc3— dí> S. Bg5 (Richter árásin.) 6. —e&- 7. Dd2—a6 8. 0-0-0—hC 9. Bh4 (Þessi leikur hefur að jafnaði ekki verið talinn góður vegna riddarafórnarinnar á e4, en upp á síðkastið hefur ýmis- legt nýtt verið dregið fram í dagsíjósið, sem sýnir að svart ur ætti heldur að láta þá fórn liggja milli hluta. Venjulegi leikurinn er hins vegar '9. Bf4, sem leiðir til flókinnar stöðu eftir —Bd7 (Ekki —e5 vegna 10. RxcS—bxe6 11. Bxe5.) 10. Rb3—b5 ll.Bxdö—b4.) 9. — DbS (Sýnifórnin 9. —Rxe4, sem ég talaði um áðan virðist ekki hafa fengið neinn hljómgrunn hjá Pilnik. Athugum afleiðing- arnar: 9. —Rxe4 10. Df4 (Ekki 10. Rxe4—Ðxh4 11. Rxc6—Dx e4 og svartur hefur unnið peð.) 10. —Rg5 (Svartur reyndi 10. —Rf6 í skákinni Najdorf— Ilivitzki, Gautaborg ’55, en galt mikið afhroð eins og eftirfar- audi leikjaröð ber með sér: 11. RxcB—bxc6 12. Re4—d5 13. BxfS—gxf6 14. Rxf6f—Ke7 15. Db4—c5 16. Dxc5—Dd6 17. Ddi—Bg7 13. Rxdðf. í stað 10. —Rg5 mælir Pachmann með g5.) 11. Rxc6—bxc6 12. Dal—Ðc7 13. Í4—Rh7 14. f5 og hvítur hefur stórhættulega sókn. Leikur sá, er Pilnik leik ur er h.ins vegar nýr af nálinni og leiðir íil afbrigðis, sem Botv- innik teflir mikið.) 10. f4 (Eft ir mikil þankabrot vaidi ég þennan leik, þótt mér væri það ekki sárlega ijúft. Eina ráðið ti! að komast hjá drottningarupp skiptum er að leika 10. Rb3, en við það kemur fram afbrigði af Sikileyjarvörninni (Alek- hine-afbrigðið.), sem talið er hagstætt svörtum. Aftur á móti gat ég gjarnan reynt 10. FRtÐRIK OLAFSSON sigraði stórmeistarann í annað sinn I Bxfö—gxíS 11. Ilb3, þótt ég sé leik á eftir miðað við venju- legt afbrigði.) 10. —DxR (Gi'íptu gæsina meðan hún gefst!) 11. Ðxö—RxD 12. Hx R (Nú er kemin fram sama staðan og í skókinni Eeres— Pamio, Gautaborg ’55. Panno reyndi 12. —Rd7, en fék.k snöggtum lakara tafl. Leið sú, er Pilnik velur er geíin upp í lausblöðungum Eawe og gefur svörtum ágæta mögtileika.) 12. —Bd7 13. Be2—B-eö 14. IixfC (Eiginlega þvingao vegna hót- unarinnar —e5. Ti! að sporna viö þessu gat ég kúkið 14. Bf3 en mér líkaði ekki að snma skapi staðan, sem kemur fram eftir —Be7 15. Hdl—g5!) 14. —gxf6 15. Ba5 (Nú verSur svartur ávallt bundinn við að valda f-peðið.) 15. —Hg8 16. g3—3e7 17.. Hfl? (Leiktap. Bezt var undir eins 17. Hel.) 17. —Hg7 13. Hd2 (Rýmir til fyrir riddaranum síðar meir.) 18. —b5 19. Hel (Þessi leikur felur í sér peösfórn í þágu stöð unnar.) 19. —b4 29, Re2—e5 (Annars kemst hviti riddarinn á d4. Peðið á e4 er „taboo“ eins og við getum xljótlega sann færst um: 20. — Bxe4 21. Rd-4 —fö 22. Rxe6. Eða 21. —Bg6 22. BxB—HxB 23. f5.) 21. Rgl (Ekki 21. Bf3 vegna —f5.) 21. —exf 22. Ke2 (Jafnteflis- staoa kemur fram eftir 22. gxf—Bxe4 23. Hxe4—Hxgll. 24. Hdl—HxHf. Athyglis- verður leikur væri 22. Bf3—fxg 23.e5!, en nú á svart ur svarið —Kd7! sem bjargar alveg við málinu. En ekki 23. —BxB? vegna 24. exf og hvítur vinnur.) 22. —fxg 23. Kxg3— Hg5 (Stefnir liróknum að e5, þar sem hann stæði eins og klettur. Hvítur kemur í veg fyrir þessa fyrirætlun með næst.11 leikjum sínum.) 24. Hd4 —Hb8? Yfirborðskenndur leik- ur. Einfaidara var 24. —a5.) 25. Rf5—KfS (25. —Hxh5 strandar sýnilega á 26. Rg7i.) 28. Bc2—a5 27. h4 (Nú vinnur hvítur peð sitt aftur.) 27. — Hg2 28. RxIiS (Hinn rólsgi leik ur 28. Bcl er sennilega engu síðri og staðfestir enn betur yfirburði hvíts á miðborðinu.) 28. —dö (Svartur var kominn í hálfgerða úlfakreppu og reynir nú þessa fórn til að ná betra samspili manna sinna.) 29. Bf3 —Hg6 30. exd—Bd7 (Þar sem ég var í tímahraki, reynir Piln- ik að flækja stöðuna. Betri möguleika til jafnteflis hafði hann eftir 30. -—Bxd5 31. Hxd5 —Hxh6.) 31. d6? (Þessi leikur er upphafiö á öllum minum erfiðleikum. Einfaldast var strax 31. Rg4. Svarta taflið er þá ekki upp á marga fiska.) 31. —Bd8 32. Rg4—Bb8 33. Hf-1—f5 (Þannig jafnar svartur taílið mikið til.) 34. Re5—Hxd6 35. Rxd7v (35. Rc4 er þýðingar laust vegna —He6.) 35. —Ilx d7 36. Hxf.^-Kbd8 (Máthættan niðri í bormnu er alltaf dálítið óþægileg hvítum.) 37. h5—a4 38. Be2?? (Einu orði sagt: hræðilegur leikur. Ég hafði hugsað mér að leika 38. Hefl og síðan B-e2-d3, en hugsðai sem svo að það gerði ekkert íil í hvaða leikjaröð þetta væri gert. En það var nú öðru nær!) 38. —He7 (Auðvitað. Nú kemst hvítur í örgustu vandræði og verður að fórna peði til að losa sig úr mestu klemmunni. Takið eftir, að við —He8 á hvítur svarið 39. Hdl.) 39. h6— Be3t 40. Iíbl—Bxhö (40. —Bd2 gengi ékki vegna 41. Hgl og síðan 42. h7, ef svartur dræpi biskupinn á e2.) 41. Hdl (Eini leikurinn og jafnframt björgunarleikurinn.) 41 —IIxH 42. Bxll—Hel 43. Hd5—Be3 (Pilnik átti nú um aðra leið að velja: 43. —Hfl 44. c4—b3 45. axb—axb 46. c5—Ke7 47.c6— Bf4 48. Hd3 og c-peðið hvíta er nægileg trygging fyrir jafn- teflinu.) 44. b3 (Nú gengur ekki hin leiðin: 44. c4—b3 45. axb—axb 46. c5—Bxc5 og svart ur vinnur.) 44. —axb (Pilnik hefði sennilega getað gert mér erfiðara fyrir með 44 —a3 45. c3—bxc 46. Kc2—Bd2. Eins og taflið hins vegar tef'dist er aldrei neinn vafi á um jafn- teflið. Skýringar eru því ó- þarfar.) 45. cxb—Hgl 46. Kc2 —Bg5 47. Be2—IIg2 48. Kd3 —Be7 49. Ke3—Hg3t 50. Ke4 —Hg2 51. Bc4—Hxa2 52. Hf5 —f6 53. Hb5—Hal 54. Hb8t —Kg7 55. Hg8t—Kli7 56. Hg2 —Ha5 57. Hh2t—Kg7 58. Hg2t —Kh6 59. Hh2t—Kg5 60. Hg2t Kh4 61. Hg7—f5 62. Iíf3—Bc5 63. IIg2—Ba7 64. Hg6—Ha2 65. Hg2—Ha5 66. Hg6—Hc5 67. Ha6—Bb8 68. Hb6—Hc8 69. Hxb4—Kg5 70. Hb5—He8 71. Be6 Jafntefli. Orgelsjóður Akraneskirkju Nýlega hefir verið myndaður Orgelsjóður Akraneskirkju. Stofn- endur sjóðsins eru Árni B. Sigurðs son, málari og kaupmaður á Akra- nesi, og átta börn hans: Einar, Sigurður, Þuríður, Geiriaugur, Árni Þórir, Hreinn, Hallgrímur og Rut. Sjóðurinn er stofnaður með 10 þúsund krónum, og er það minningargjöf, bundin nafni konu Árna og móður barnanna, Þóru Einarsdóttur. Þóra lézt 7. júní 1939, aðeins fertug að aldri, frá sínum stóra barnahópi. Hún var félagslynd, prúð og ljúf í viðmóti og öllum kær, sem höfðu kynni af henni. Þóra hafði fallega söng- rödd, unni kirkju sinni og söng í kirkjukór Akraneskirkju í mörg ár. Gjöfin er einnig til minningar um foreldra hennar, Einar Ás- geirsson Möller og Geirlaugu Krist jánsdóttur, og foreldra Árna, Sig- urð Jónsson og Þuríði Árnadótt- ur. Áttu þau hvorutveggja hjón langan og merkan starfsdag á Akranesi. Einar Möller var hringj ari í Akraneskirkju um langt ára- bil, góður söngmaður og n.jög lengi í kirkjukórnum. — Ég vil með línum þessum færa Árna B. Sigurðssyni og börnum hans inni- lega þökk fyrir gjöfina, fyrir hönd safnaðarins á Akranesi og í eigin (Framhald á 8. síðu). Hreinsun mjólkuríláta Við hreinsun mjólkuríláta er á- ríðandi mjög að hafa gott mjólkur- hús. Varast ber að hafa það í beinu sambandi við fjósið, því að tryggja verður örugglega, að fjósaþefur berist ekki inn í það. í mjólkur- húsi þarf að vera útbúnaður til þvotta á mjólkurílátum, handlaug, handþurrkur, burstar og þvotta- efni, ennfremur grind til að hvolfa ílátunum á eftir lireinsun. Þó cr betra að hengja þau á vegg. Þar þarf einnig að vera góð kæliþró. 1. Þegar effir mjaltir skal skola öll mjólkurílát með' köldu vatni til þess að skola burt nijólkurleifar. Hver mínúta, sem mjólk fær að þorna í ílátunum, bakar óþarfa fyrirhöfn, sem ey'ðir tíma og orku. Mjólk er vökvi, en hefir þó föst efni að geyina, og þessi efni mynda þétta skán, og þorni þau alveg mynda þau mjólkurstein. 2. ílátin skulu síðan þvegin úr heitu vatni. Bezt er að nota sápu- laust þvottaefni, svo sem þvotta- sóda. Sápa hreinsar ekki eins vel og þvæst ekki heldur vel af. Hún skilur ávallt eftir þunna húð eða himnu, og miljónir gerla geta þrif- izt í þeirri himnu. Öll ílát skal þrífa með bursta, en alls ekki tusku. Nauðsynlegt er að sjóða burstann eftir hverja notkun. 3. Síðan skal skola ílátin með sjóðandi vatni. Það hefir tvenns konar áhrif. f fyrsta lagi skolar það burt síðustu leifum af mjólk- urskán og þvottalegi, og ennfrem- ur hitar það ílátin svo, að þau þorna miklu fyrr. 4. Því næst skal hvolfa ílátun- um á hreina grind eða hengja á vegg. Varast skal að þurrka ílátin með klút eða tusku. Þau eiga að bonm af sjálfu sér. 5. Áður en mjaltir hefjast næst, skal skola ílátin með gerlaeyðandi efni, svo sem klórkalki eða t. d. eermidíni, en að því búnu skola ilátin með hreinu vatni. Notkunarreglur: Klórlcalk. Nota skal tvær vel fullar matskeiðar af klórkalki (sem er duft) í 10 lítra af vatni. Germidín. Nota skal eina mat- skeið af germidíni (sem er lögur) í 10 lítra af vatni. Það skal tekið fram, að tilgangs- laust er að skola ílátin með gerla- evðandi efnum, nema ílátin séu vel hreinsuð áður. Kári Guðmundsson. Mörg námskeið og mót á vegum Norrænu féiaganna í snmar Á vegum Norrænu félaganna verða í sumar haldin allmörg mót og stutt námskeið í sumar eins og venja er til. Þar býðst fólki, sem vill fara til Norðurlanda, ódýr dvöl og ferðalög við hin beztu skilyrði. Magnús Gíslason skýrði fréttamönnum frá þessu í gær. Helztu mót og námskeið, sem ákveðin hafa veri'ð, eru þessi: í Danmörku. Norræn æskulýðsvika verður 30. júni til 7. júlí í Hindsgavlhöllinni á Fjóni og er mót þetta einkum ætlað fólki á aldrinum 17—25 ára. Kostnaður verður 85 d.kr. fyrir vikudvöl. Tveggja vikna námsskeið verða í sumar á 25 dönskum lýðháskól- um á tímabilinu frá 19. maí til 15. september. Á morgnanna er ýmis konar kennslustarfsemi en síðara hluti dags er frjálsari. Dvalarkostn aður er alls 165 d.kr. Auk þess verður norrænt kennaranámskei'ð í Askov eins og venja er til. f Finnlandi. Norrænt æskulýðsmót verður í Helsingfors 26. til 29. maí. Það er ætlað skólanemendum og er lág- marksaldur 14 ár. Þátttakendur dvelja á einkaheimilum. 10. til 19. júní verður norrænt blaðamannamót í Finnlandi á veg- um norræna félagsins finnska og finnsku blaðamannasamtakanna. Ferðast verður víða um landið. Dvalarkostnaður verður 10.000 mörk (ca. 700 kr.). Norrænt skólastjóramót verður í Helsingfors 3. til 5. ágúst. Það er í tengslum við hið almenna skóla- mannamót sem verður þar 6. til 8. ágúst á vegum fræðslumála- stjórnar allra Norðurlanda. 12. til 17. ágúst verður námskeið fyrir norræna æskulýðsleiðtoga í KK-samvinnuskólanum í Helsing- fors. Dvalarkostnaður er 6600 mörk. 7. til 13. júlí verður haldið nám skeið á Ringsaker lýðháskóla. Það er ætlað félagsmönnum norrænna stéttarfélaga. Kostnaður verður 150 n.kr. 14. til 20. júlí verður norrænt æskulýðsmót í Hundorp lýðháskóla Heimsóttir verða frægir sögustað ir og ferðast um nágrennið. Kostn aður verður 100 n.kr. Norrænt fræðslumót verður á Sjusjöens háfjallahóteli 26. til 31. ágúst. Kostnaður verður 130 n.kr. f Svíþjóð. Norrænt æskulýðsmót verður haldið á Bohusgarden 302. júní til 7. júlí. Það er ætlað fólki á aldr- inum 16—25 ára. Fjallað verður um ýmist norræn málefni og farið í stutt ferðalög. Kostnaður verður 95 s.kr. 7. ti 13. júlí verður fræðslumót á sama stað, og nefnist það Norð urlönd í dag. Kostnaður verður 120 s.kr. Námskeið er nefnist Litir og snið okkar nánasta umhverfis verð ur á sama stað 21. ti 28. júlí. Það er einkum ætlað kennurum og æskulýðsleiðtogum. Kostnaður er 160 s.kr. Fræðslumót um kvik- myndir verður á sama stað 23. til 29. júní og er einnig ætlað kennur um og æskulýðslei'ðtogum. Kostn- aður verður 125 s.kr. 20. ti 26. júlí verður kennara- námskeið uppi í fjöllum í Abisko- héraði í Lapplandi. Kostnaður verður um 150 s.kr. (Framhald á 8. slðu). Ritgerðasamkeppni f Noregi. 17. til 23. júní efna fjórir nor- rænir lýðháskólar til æskulýðs- móts í Romerike lýðháskóla í Nor- egi. Mótið er haldið í samvinnu við Norrænu félögin. Það er hugs að sem nemendamót, en ungu fólki frá íslandi og Færeyjum er einnig boðin þátttaka. Dagskrá mótsins er mjög fjölbreytt. Dval- arkostnaður verður aðeins 45 n.kr. fyrir vikuna. 1. til 6. júlí verður námskeið á Elingaard við Fredrikstad. Það er fyrst og fremst ætlað þeim, sem fást við endurskoðun norrænna sögukennslubóka á vegum Nor- rænu félaganna og öðrum þeim er hafa áhuga á sögu Norðurlanda. Kpstnaður verður alls 150 n.kr. fyrir unglinga Norræna félagið efnir til rit- gerðastfmfceppni í samráðti við fræðslumálaskrifstofuna. Ritgerð arefnið er: Hvert Norðurlandanna mundir þú helzt vilja heimsækja og hvers vegna? Öllum unglingum á aldrinum 15 —17 ára er heimil þáttataka. Veitt verða verðlaun fyrir beztu ritgerð ina. Loftleiðir h. f. býður sigur vegaranum ókeypis flugferð til kjörlands hans og heim aftur og vikudvöl á sumarskóla í landinu. Ritgerðirnar skulu hafa borizt Norræna Jéláginu í Reykjavík (Box 912) fyrir 10. maí n. k. ásamt nafni, heimilisfangi, fæð- ingardegi og ári höfundar. j ___.-.-fai;

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.