Tíminn - 16.04.1957, Blaðsíða 1

Tíminn - 16.04.1957, Blaðsíða 1
Fy’ jist með tímamim og lesið TÍ:.:.'.NTJ. Áskriftarsímar: 2323 og 21300. Tíminn flytur mest og fjelbreyttast almennt lesefni. 41. árgangnr. inni í blaðinu í dag: Landbúnaðarmál, bls. 4. Bækur og höfundar, bls. 5. ] Erlent yfirlit, bls. 6. I Frumvarpið um húsnæðismálin, bls. 7. 88. blað. Biskup Islands herra Ásmundur Guðmundsson vígir Neskirkju Hússein Jórdaníukonungur bældi uppreisnina niður. Ný stjórn mynduð Nuvar herráðsforingi fiúinn til Sýrlands. - Ástandið enn mjög ótryggt í Jórdanín ! Amman og London, 15. apríl. — Þróun málanna í Jórdaníu . tók óvænta stefnu síðdegis í gær, er fyrrverandi utanríkis- ! ráðherra Hússein Kahalidi tókst að mynda stjórn, sem margir ! flokkar standa að. Meðal annars er Nabulsi fyrrverandi for- sætisráðherra meðal ráðherra í hinni nýju stjórn, en Hússein konungu1’ veik honum frá völdum fyrir viku síðan. Tilraun virðist hafa verið gerð undir forystu Ali Abu Nuwar herráðs- foringja að steypa Hússein konungi af stóli, en samsærið mis- tókst. Er mælt., að nær 40 leiðtogar hersins og stjórnmála- menn sitjí í fangelsi, en Nuwar mun hafa sloppið á flótta úr landi til Sýrlands. Er sagt, að meirihluti hersins sé konungi hollur, en þó er ástandið enn talið mjög ótryggt og mikil ólga í landinu. Konungur féllst formlega á myndun hinnar nýju 'stjórnar á fundi í höll sinni í kvöld. Voru þar samankomnir yfir 60 helztu stjórnmálaleiðtogar lands- ins. í stjórninni eiga sæti 7 ráð- herrar. Khaldi forsætisráðherra er óháður, en hefir oft verið utanrík- isráðherra og er vafalaust hlynnt- ur vesturveldunum. Hvað gera Sýrlendingar? Nuwar herráðsforingi átti mest j an þátt í því að Glubb pasha var ! rekinn frá Jórdaníu á s. 1. sumri. 1 Ilann er eindreginn andstæðingur i vesturveldanna, en vinveittur Rússum og áformum Nassers um bandalagsríki Egyptalands, Sýr- lands og Jórdaníu. Fréttaritarar segja, að Hússein konungur ótt- ist íhlutun sýrlenzka hersins, og hafi sett öflugustu hersveitir sín- ar til varnar höfuðborginni að norðan, en þar eru herbækistöðv- ar sýrlenzks setuliðs, sem er í landinu samkvæmt samningi um sameiginlegar varnir þessara ríkja. Slitið stjórnmálasambandi við Sýrland? Óstaðfestar fregnir herma, að Hússein konungur hafi í kvöld til kynnt sendimönnum Sýrlands og Egyptalands að yfirgefa landið Hafi sýrlenzki sendiherrann þeg- ar orfið á brott. Aðrir segja, að liann hafi farið með öðrum hætti og flytji Kuwatli skýrslu um á- standið í landinu og sérstaka orð- sendingu frá Hússein konungi. Kongur ávarpar Iýðinn. í dag ávarpaði hinn ungi konung ur um 3 þús. manna, sem safnast höfðu saman við höllina. Hann kvaðst enn fylgja stefnu sinni um að gera landið sjálfstætt og óháð, og hann léti ekki stjórnast af eigin hagsmunum. Það er ætlan margra fréttaritara austur þar, að afstaða Saud Arabíu konungs til atburðanna í Jódaníu muni endanlega skert úr um það, hvort Hússein konungi tekst að halda völdum og taka upp stefnu fremur vinsamlega gagnvart vestur veldunum. Ef Saud tekur málstað konungs, þá hefir Hússein unnið mikinn persónulegan sigur og má teljast öruggur í sessi — í bráð að minnsta kosti. Vegir koma undan snjó á Vestfjörðum Frá fréttaritara Tímans á _ ísafirði í gær. « Landleiðin milli Patreksfjarð ar og ísafjarðar er ekki öil orðin. fær, en vegir þó sem óðast að koma undan snjó. Frá Patreks firði er bílfært yfir Kjöl til Tálknafjarðar. Lítill snjór er á Hálfdáni milli Tálknafjarðar og Bíldudals. Á Rafnseyrarheiði er lítill snjór og bílfært orðið fyrir Dýrafjörð, sömuleiðis er búið að ryðja veginn yfir Gemlufalls- heiði og fært er fyrir Önundar fjörð til Flateyrar. Vegir eru þó víða blautir og erfiðir. í Breiða dal og á Breiðadalsheiði er all mikill snjór enn og ófært þá leið á bílum til ísafjarðar. GS Krustjoff blíður á manninn og boðar bráðaþey Moskvu, 15. apríl. Nikta Krustjof sagði í veizlu, sem haldin var í Kreml í kvöld fyrir sendinefnd frá Albaníu, að hann teldi ástand ið í alþjóðamáium nú stórum hafa batnað á ný. Liti hann björtum augum á framtíðina. Vestrænir fréttamenn túlka þessi ummæli svo, að nú muni Krustjoff á ný taka upp blíðari tón í viðskipt um sínum við vesturveldin og sína meiri samningalipurð en verið hefir seinustu mánuðina. Biskupinn yfir íslandi og sóknarprestur Nesprestakalls, séra Jón Thorar- Skjóta á konungsliöllina. ensen, fyrir altarinu vió kirkjuvígsluna í Neskirkju. — Ljósm.: J. H. M. Biskupinn yíir íslandi vígði Neskirkju á sunnudaginn viS hátíðlega atíiöín • Á sunnudaginn var hin nýja Neskirkja í Reykjavík vígð við hátíðlega athöfn. Biskupinn yfir felandi, herra Ásmundur Guðmundsson,, framkvæmdi vígsluna. Fjöldi fólks var við- staddur athöfnina, og komust ekki allir í kirkjuna sem vildu. Stálu teikningum að nýtízku kafbátum Svía og reyndu að selja þær sendiráðum Voru drykkfeldir og gerðu þetta til að afla sér peninga fyrir áfengi Stokkhólmi, 15. apríl. — Enn nýtt njósnamál varð heyrum' kunnugt 1 Svíþjóð í dag, er ákæruvaldið höfðaði mál gegn fimm mönnum fyrir njósnir. Tveir þessara manna höfðu bein- línis tekið þátt í njósnastarfinu, en þrír aðrir voru í vitorði með þeim. Þeir félagar höfðu komizt yfir ýms skjöl, er varða endurbætur á sænskum kafbátum og ennfremur kjarnorku- 'leyndarmál. í fyrstu var því haldið fram, að menn þessir hefðu beinlínis rekið njósnir sínar á vegum erlends stórveldis en síðar var það borið til baka og sagt, að allar líkur bentu til að þeir hefðu engum upplýsingum komið til erlendra aðila,: þótt þeir hins vegar hefðu gert tilraun til þess. Athöfnin hófst kl. 11 með því að prestar gengu skrúðgöngu í kirkjuna og fóru biskup og sóknar presturinn, sér Jón Thorarensen í fararbroddi. Séra Jakob Jónsson Hvassviðri á raon- róknarmiðum Ægis Ægir er nú við hafrannsóknir í Faxaflóa, og er skipið nú í fjöl- inennasta rannsóknarleiðangri, sem farinn hefir verið á vegum íslenzkr ar vísindastofnunar, enda fjölþætt rannsóknarefni, sem sinna á í þess- um leiðangri. Unnsteinn Stefáns- 'son er leiðangursstjóri, en hann hefir annazt rannsóknir í mörgum leiðöngrum, sem áður hafa verið farnir á Ægi. Þá daga, sem skipið hefir verið við rannsóknir út í flóanum, hefir hvassviðri hamlað nokkuð rann- sóknunum, enda oft verið 7—9 stiga vindur. las bæn í kórdyrum og síðan var sungin sálmur, en að því loknu ílutti biskup ræðu fyrir altari. Þá lásu þeir séra Jón Auðuns, séra Jón Thorarensen, séra Gunn ar Árnason og séra Björn Magnús son ritningargreinar en söngflokk urinn söng á milli. Þessu næst fór sjálf vígsluat höfnin. fram og flutti bískup vígslu orðin. Biskup og prestar fóru með faðirvor, en sófnuðurinn reis úr sætum og tók undir, og síðan var sunginn sálmur. Þá steig séra Jón Thorarensen í stólinn. í ræðu sinni minntist hann allra þeirra sem átt hafa hlut að kirkjubyggingunni í smáu eða stóru og þakkaði allan stuðning. Að ræðu hans lokinni var sunginn sálmur og útgönguvers, en síðan gengu prestar skrúðgöngu úr kirkju á sama hátt og þeir gengu áður til hennar. Athöfnin var öll hin hátíðleg asta, og var mikill fjöldi fólks viðstaddur eins og fyrr segir. Einn ig var athöfninni útvarpað. Nuwar gaf þeim hersveitum, er hann réð yfir, skipun um að hefja stórskotahríð á höfuðborgina og sérstaklega á konungshöllina, en einhvern veginn mistókst þetta áform hans. Konungur náði yfir- höndinni og Nuwar varð að flýja. Hússein skipaði þá Ali Liayari yfir mann herráðsins, en lausafregnir herma, að hann hafi einnig sagt af sér. Westergaard Nielsen prófessor í Árósum Kaupmannahöfn í gær. — f gærkveldi skýrði danska útvarpið frá því, að Christian Westergaard Nielsen, lektor í forníslenzku við háskólann í Kaupmannahöfn, hafi verið skipaður prófessor í vest norrænum málum við háskólann í Árósum. Gildir skipun hans í emb- ættið frá 1. apríl. —Aðils. Fulltrúaráðsfundur í kvöld Fulltrúaráð Framsóknarfélag- anna í Reykjavík heldur fund í Edduliúsinu í kvöld 8,30. Um ræðuefni verður bæjarstjórnar- mál. Fulltrúaráðsmenn og vara menn í fulltrúaráði eru kvattir til að mæta stundvíslega. Menn þessir heita Jakobsson skrifstofumaður, sem meðal annars sá um framköllun eftirrita af ýms- um teikningum, og Damstadt lög- fræðingur, sem var ritari hjá kjarn orkumálanefnd sænska ríkisins. Voru í fjárþröng. Við yfirheyrslur hafa báðir játað að hafa í leyfisleysi og í því skyni að afla sér peninga stolið ýmsum ■téikningum af kafbátum þeim, er áður getur og safnað sér öðrum leynilegum upplýsingum. Þeir hafi síðan gert tilraun til að selja er- lendum sendiráðum í Stokkhólmi þessar upplýsingar, en þau hafi ekki viljað sinna því. Virðast yfiiS völdin vera þeirrar skoðunar, aff engar teikningar eða upplýsingar hafi komizt I hendur erlendum að> ilum, enda segja þau að slflrt myndi hafa geta reynzt mjög hættulegt öryggi Svíþjóðar í styrj- öld. ' | Gekk í AA-samtökin. Báðir voru þeir félagar drykk- feldir og segjast þeir hafa gripið til þessara óyndisúrræða til aS afla sér peninga. S. 1. vetur reyndi Damstadt þó að klóra í bakkann og gerðist meðlimur í AA-samtökun- um. Hann var þó ekki sterkari á svellinu en svo, að hann féll fyrir Bakkusi að nýju eftir nokkra mán- uði.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.