Tíminn - 07.06.1957, Blaðsíða 1

Tíminn - 07.06.1957, Blaðsíða 1
Fylgist með tímanum og lesið TÍMANN. Áskriftarsímar: 2323 og 8 1300. — Tíminn flytur mest og fjölbreyttagt almennt lesefni 41. árgangur. Efnlt Erlent yfirlit, bls. 4. Skák, bls. 5. Á kvenpalli, bls. 5. •*S Reykjavík, föstudaginn 7. júní 1957. 125. blaS. Finaskir ferðamálamenn í Reykjavík Norska stjórnin hefir ákveðið, að taka boði um afnot rakettuvopna Fimm forsfjórar finnskra ferSaskrifstofa komu hingaS til lands í gær á- samt forsliéra finnska gufuskipafélagsins og forstjóra PAA í Finnlandi. Þeir koma hingað á vegum PAA fiugfélagsins til að kynnast landinu og ferðamannaskilyrðum hér. Myndin er tekin við Hótel Garð í gær, en þar búa Finnarnir. Nauðsynlegt að herða róðurinn að því marki, að umferðamiðstöð rísi í Rvík TiUaga Þóríar Björnssonar um þetta efni sam- þykkt í bæjarstjórn Reykjavíkur í gær Þórður Björnsson, bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins, flutti eftirfarandi tillögu á fundi bæjarstjórnar Reykjavíkur í gær, og var hún samþykkt samhljóða: „Bæjarstjórn lítur svo á að það sé ekki einungis til verulegra þæginda fyrir ferðafólk og stórt spor í átt til að leysa úr umferða Enn einn dauða- dómur á Kýpur NICOSIA, 6. júní. 1 dag var grísku- mælandi Kýpurbúi, Michael Rossides dæmdur til dauða í Nicosíu fyr- ir að hafa myrt brezkan hermann. Rossides neitaði stöðugt sekt sinni. Hermaður sá, er hann er sakaður um að hafa drepið, er annar þeirra tveggja hermanna, sem EOKA-sam- tökin tilkynntu um á seinasta ári, að þau hefðu látið taka af lífi í hefnd- arskyni fyrir aftöku grískumælandi manns, er brezka herstjórnin sakaði um hefndarverk. vandamálum -tniðbæjarins held ur sé það hreimt menningarmál! höfuðstaðarins, að komið verði | upp umferðamiðstöð í bænum. | Telur bæjarstjórn framkvæmd þessa vera eitt af þeim fram- faramálum í bæmum, sem ekki þola bið. Þess vegna og í framhaldi af því að bæjaryfirvöldin hafa þeg- ar ákveðið umferðamiðstöð stað við Hringbraut gegnt Sóleyjar- götu, ályktar bæjarstjórn að skora á fjárfestingaryfirvöldin að veita leyfi til að byria á fram kvæmdum þessuin og felur borg- arstjóra að hefja viðræður við i yfirvöld þessi um málið.“ Þórður rakti nokkuð forsögu þessa máls og minnti á, að tillaga um umferðamiðstöð hefði verið (Framhald á 2. síðul Sex hundruð skip fóru um Súez-skurð LUNDÚNUM, 6. júní. — Brezka verzlunarmálaráðuneytið hefir gef ið út tilkynningu, þar sem segir, að sex hundruð skip hafi farið um Súez-skurð í maí, þar af 100 brezk. Er farið lofsamlegum orð- um um samskipti við hin egypzku yfirvöld skurðarins og tekið fram, að reksturinn hafi gengið vel og svo virðist, sem leiðsögumenn fé- lagsins séu starfi sínu vaxnir og hinir hæfustu. Forstjóri enskrar glergerðar hér Hér er nú staddur í bænum Mr. Frederic Cole, sem er forstjóri fyrir William Morris Studio í London, en það fyrirtæki gerði hinar steindu rúður í Bessastaða- kirkju eftir teikningum Finns Jónssonar og Guðmundar Einars sonar. Guðmundur bafði eftirlit með glergerðinni í London. Þeir, sem kynnu að vilja hitta Mr. Cole, vegna gluggagerðar í kirkjur eða aðrar byggingar, geta náð fundi hans með því að hringja í síma Guðmundar Einarssonar, nr. 2223, í dag og á morgun. RáÖherra skýrSi Stórþinginu frá þessari ákvörÓ- un í gær. Lagði áherzlu á, atS stefna landsins í varnarmálum væri óbreytt NTB—Ósló, 6. júní. — Á fundi í norska stórþinginu í kvöld upplýsti landvarnamálaráðherrann Nils Handal, að Noregur hafi fengið tilboð frá Bandaríkjunum um tvær tegundir af rakettuvopnum nægilegt til að útbúa eitt herfylki. Er tilboð þetta einn liður í því að styrkja varnir A-bandalagsins og aðildarríkja þess. Ráðherrann skýrði frá því, að yfirhers- höfðingi iandsins hefði mjög mælt með því að taka þessu boði og ríkisstjórnin hefði einnig komizt að þeirri niður- stöðu að svo skyldi gert, ef tilteknum skilyrðum væri full- nægt. Rakettuvopn þessi eru af tveim tegundum og nefnist önnur „Hon- est John“, en hin „Nike Ajax“. Tilboðinu verður tekið á þeim for sendum að það stangist ekki við núverandi höfuðlínur í stefnu Norðmanna um landvarnir, að það raski ekki fjárveitingum til hers ins, og jafnframt að það sé fram kvæmanlegt að taka slík vopn með tilliti til tæknilegrar kunnáttu og mannafla í norska hernum. Ekki kjarnorkuvopn. Ráðherrann kvað engin launung armál fylgja þessu tilboði. Við höfum ekki kjarnorkuskeyti, kjarn orkusprengjur né önnur vopn af slíku tægi. Við getum ekki fram leitt þau og enginn hefir boðið 8 ára drengur drukknar viS bryggju á Siglufirði, var leitað heila nótt S. 1. þriðjudagskvöld varð það hörmulega slys í Siglufirði, að átta ára gamall drengur drukknaði þar við bryggju. Fannst hann þó ekki fyrr en á miðvikudagsmorgun. Jallorkaferð“,sem aldrei var farin og siðavendni Svía STOKKHOLMI, 6. júní. — Ung lijónaefni unnu nýlega verðlaun í samkeppni er sænska ríkisút- varpið hafði efnt til í sambandi við skemmfiþátt, ef tii vill eitt- hvað í líkingu við Brúðkaups- ferðina hér heima. Nú er þetta í sjálfu sér ekki svo merkilegt, en hér kom annað til. Það hefur sem sé komið upp úr dúrnum, að unga stúikan og kærastinn hennar eru ekki gift og hafa ekki í huga að giftast í bráð. Þetta höfðu þau ekki hugsað út í, og forsvarsmenn skemmtiþátfarins ekki heldur, þegar þeir úthlut- uðu þeim sinni Malorkaför. Hún var reyndar ekki til Miðjarðar- hafsins, heldur á sumargistihúsi á ey nokkurri í Aangermanaánni. Þegar kunnugt varð um úrslit í skemmtiþættinum og einnig hversu háttað var hjúskaparmál- um þeirra hjónaleysanna fór held ur en ekki að heyrast hljóð úr horni frá siðsömum og æruverð- ugum borgurum í Svíþjóð. Rigndi. niður skammarbréfum íil út- varpsins, þar sem m. a. er sagt, að álit manna erlendis á sænsku „siðferði" væri nógu lélegt fyrir, þótt ríkisútvarpfð sænska tæki ekki að sér að draga það eun lengra niður í svaðið. Eftir allan þennan gauragang sá kærustuparið sití óvænna og tilkynnti, að það myndi ekki þiggja boðið um dvöl á sumar- gistiliúsinu. Marcusson sælgæfissali, sem upphaflega stóð fyrir kostnaði af sumarleyfisdvölinni segir, að boð | sitt standi þó ungu hjónaefnun- ■ um til boða, hvenær sem þau1 vilja, eftir að þau hafa gengiðl í heilagt hjónaband. Annars' sagðist hann ekkert skilja í hug- arástandi slíks fólks, sem ekki gæti unnt ungum ekkendum þess að dveljast sfuttan tíma á svo fögrum stað. Litli drengurinn er sonur hjóna sem nýflutt eru til Siglufjarðar, Gísla Halldórssonar, vélstjóra, sem ættaður er frá Dalvík, og Sigríðar Guðlaugsdóttur frá Siglufirði. — Drengurinn hét Sigurður. Drengsins var saknað undir mið nætti á þriðjudagskvöldið og var þá leitað til lögreglunnar. Kom í Ijós, að hann hafði ekki sézt síðan snemma um daginn. Lögreglan og fleira fólk hóf þegar leit, og var leitað stanzlaust alla nóttina og fram undir hádegi á miðviku dag. Þá fannst lík drengsins í sjónum í svonefndri hátastöð. — Virðist augljóst, að hann hafi farið Kadarstjórnin lækk- ar útgjöld til land- varna BÚDAPEST, 6. júní. — Eins og við mátti búast, samþykkti ung- verska þingið samhljóða fjárlaga- frumvarp stjórnarinnar fyrir árið 1957, sem lagt var fyrir þingið. Það, sem helzt er merkilegt við þetta fjárlagafrumvarp er, að út- gjöld til landvarna eru minnkuð mjög eða niður í 1,5 milljarða norskra króna, en var á fyrra ári áætlað 2,5 milljarðar króna. Þá er einnig gert ráð fyrir, að dregið verði úr fjárfestingu til þungaiðn- aðarins frá því, sem verið hefir undanfarin ár. Fréttaritarar segja að fjárlögin séu við það miðuð, að rétta við fjárhag landsins, sem er í kaldakoli eftir uppreisnina á s. I. hausti. út í trillubát þar við bryggju og fallið í sjóinn. Nær sólarhringur mun hafa verið liðinn frá því það gerðist þangað til hann fannst. okkur þau. Þau vopn, sem x boði eru, eru í rauninni aðeins útfærsla á stórskotavopnum eins og þau voru áður og koma að nokkru f stað þeirra. Raketturnar eru ein- göngu varnarvopn og breyta því ekki meginstefnu Noregs í varnar- málum. Gerð vopnanna. Ráðherrann lýsti allnákvæm- lega hinum nýju vopnum. „Hon- est John“ er eldflaug, sem skotið er frá jörðu að marki, sem einnig er á jörð niðri. Rakettan er ekki sjálfstýrð, en heldur þeirri stefnu, sem henni er upphaflega skotið í. Hún dregur frá 9 og upp í 24 km. Vopn þetta er mjög líkí þyngstu tegundum fallbyssna eins og þær áður voru og verður notað á svipaðan hátt. Vopnið er þó miklu léttara og er stað- sett á stórum bíl og því mjög hreyfanlegt. Nike Ajax er sjálfstýrt vopn og eingöngu ætlað sem loftvarna byssa. Ráðherrann sagði, að Bandaríkjamenn hefðu þessa rak ettu til varnar öllum helztu borg um sínum. Norskum vörnum væri hinn mesti styrkur að því, að fá þetta nýja vopn, þar eð staðreyndin væri sú, að loftvarna byssur norska hersins nú, drægju alls ekki nægilega langt til að Framh. á 2. síðu. Þúsundir Alsírbúa flýja átthaga sína af ótta við grimmdarverk ofbeldismanna Alsír, 6. júní. — Svo sem kunnugt er geisar nú mikil ógnaröld í Alsír. Fyrst og fremst er þaS borgarstyrjöldin sjálf milli franskra hersveita og þjóðfrelsismanna og auk þess hafa seinustu daga verið framin hin verstu níðingsverk á varnarlausu fólki hundruðum saman. Er ýmsum kennt um, hver valdur sé að grimmdarverkunum. í dag fréttist, að mörg þúsund íbúar séu á göngu frá austurhéruðum lands- ins í nor'ðurátt. Allir íbúar tveggja þorpa í hér- aðinu Moulouza í austurhluta Alsír, eru á göngu norðureftir, en í þessu héraði var þorpið, þar sem nálega allir karlmenn eða 302 að tölu, voru drepnir fyrir nokkrum dögum. Bera eigurnar á bakinu. Sagt er að í þessum hópi séu um 5 þús. manns, konur, karlar og börn. Rekur það búsmala á undan sér, en ber reyturnar á bakinu. Mikil ókyrrð er sögð meðal fólks á þessum slóðum og talið, að fleiri muni hyggja á bústáða skipti. Franska herstjórnin segir, að íbúarnir í héraðinu hafi margir hverjir beðið Frakka um vopn, svo að þeir geti varið sig fyrir árásum þjóðfrelsishersins. Tvær fylkingar meðal Serkja sjálfra virðast nú berjast um völd in. Báðar eru andvígar yfirráðum Frakka, en þó virðist Þjóðhreyf- ingin (MNA) vilja fara vægilegar í sakirnar. Hin eiginlega og gamla Þjóðfrelsishreyfing (FLN) er miklu harðskeyttari. Frakkar full- yrða, að það séu menn úr her þessara samtaka, sem staðið hafi fyrir morðunum í áðurnefndu svertingjaþorpi. FLN-samtökin segja Frakka hins vegar sjálfa hafa framið ódæðið og vilji nú nota það til að ófrægja uppreisn armenn. Bourguiba forsætisráðh. Túnis sagði í dag, að rétta leiðin væri að skipa alþjóðlega rannsóknar- nefnd til að ganga úr skugga um hver væri valdur að ódæðisverk- unum.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.