Tíminn - 24.08.1960, Blaðsíða 2

Tíminn - 24.08.1960, Blaðsíða 2
2 T í MI N N, miðvikudaginn 24. ágúst 1960. Fimmtíu ára starf að menningartengslum Undanfarna daga hefur dvalizt hér á landi C. P. Strong, framkvæmdastj. The American-Scandinavian Found ation, en stofnunin verður fimmtíu ára gömul á þessu ári. Strong er á heimleið úr ferð um Norðurlönd, og kom hér á föstudag. Hann hélt ferð sinni áfram í gærkveldi. í viðtali við fréttamenn í gær sagði C. P. Strong lauslega fr'á staa*fi stofnunarinnar undanfarin 50 ár. The American-Scandrnavian Foundation var stofnað árið 1910 af dansk-amerískum auðmanni, Niel Poulsen, og var ein fyrsta slík stofnun í Bandaríkjunum en margar aðrar af sama tagi hafa fyigt á eftir eins og kunnugt er. Stofnunin hefur aðalstöðvar sínar í New York, en starfar í 12 deild- um í Bandaríkjunum og stendur einnig í nánum tengslum við vin- áttufélög Bandaríkjanna og Norð- urlanda. Mannaskipti The Arr.erican - Scandinavian Foundation hefur frá upphafi unn- ið að auknum menningartengslum Bandaríkjanna og Norðurlandanna og gagnkvæmum kynnum þjóð- anna. Stofnunin hefur boðið ýms- ura norrænum forustumönnum til ferðalaga um Bandaríkin og geng- irt fyrir ferðum bandarfskra manna til Norðurlanda. Er þess sfcemmst að minnast að Halldór Kiljan Laxness fór slíka boðsferð fvrir nokkru Þá styrkir stofnunin vjsindamenn til framhaldsnáms og rannsókna og veitir námsmöMum margvíslega fyrirgreiðslu. Á síð- i'Stu árum befur stofnunin einkum haft fyrirgreiðslu um tækniþjálf- un Norðrlandamanna í Bandaríkj- num, og eru um 350 manns á veg- ! nm hénnar árlega til slíkra starfa. Bókaútgáfa Stofnunin hefur frá upphafi gef- ið út um 90 rit um norræn efni, cinkum bókmenntir og sögu Norð- urlandaþjóðanna, þ. á m. íslenzka bókmenntasögu eftir dr. Stefán Einarsson. Margar íslendingasögur haia komið út á vegum hennar, og mun enginn annar aðili hafa gefið jafmörg íslenzk fornrit út á ensku. Þá gefur félagið út árs- fjórðungslega tímaritið The Amer- iccn-Scandmavian Review, sem mikils álits nýtur, og mánaðarlega félagsritið Scan. Stofinunin á mikið bókasafn um norræn efni, og enn fremur hefur það á seinni árum beitt sér fyrir kynningu nor- rænnar tónlistar og myndlistar í Bandaríkjunum. Meðan C. P. Strong dvaldi hér á landi ræddi hann við forystu- menn Íslenzk-ameríska félagið um samstarfið í framtíðinni. í tilefni sf 50 ára afmæli stofnunarinnar munu full'tiúar Norðurlandanna sækja hana heim, þ. á m. með- limir dönsku, norsku og sænsku konungsfjölskyldnanna. Ekki er enn ráðið hver fer af hálfu fs- lands. — ó. Tvö héraðsmót Framsóknarmanna um næstu helgi. - Strandasýsla. Héraðsmótið í Strandasýslu verður í félagsheimilinu á Hólmavík n.k. laugardag og hefst kl. 8,30. — Ræður flytja Hermann Jónasson, alþm. og Jónas Jónsson, bóndi, Melum. Ávarp frá S.U.F. flytur Páll Þorgeirsson, verzlm. Erlingur Vigfússon syngur með undirleik Fritz Weiss- happels. Gamanleikararnir Gestur Þorgrímsson og Har- aldur Adólfsson fara með skemmtiþætti. Að lokum verður dansað. Vestur-Húnavatnssýsla - Fundir og sumarhátíð verða að Laugarbakka n.k. sunnudag. Aðalfundir Fram- sóknarfélags V-Húnvetninga og F.U.F. hefjast kl. 3. Um kvöldið kl. 8,30 verður almenn skemmtisamkoma. Alþingismennirnir Ólafur Jóhannesson og Björn Páls- son flytja ræður. Jóhannes Jörundsson, skrifstofum. flytur ávarp frá S.U.F Einsöngur: Erlingur Vigfússon syngur með undirleik Frit Weisshappzels Gamanleik- ararnir Haraldur Adolfsson og Gestur Þorgrímsson skemmta. Síðan verður dansað. i j Kjördæmisþing Vesturlands- j kjördæmis verður haldið að Varmalandi, Stafholtstungum, laugar- daginn 3. sept. n.k. og hefst það kl. 2 e.h. — Fulltrúar eru beðnir að mæta stundvíslega. , Nú stendur berjatíminn sem hæst. Berjum hefur vegnað ágætlega hjá okk- ur f sumar og allt útlit fyrlr að berjatekja verSi mjög mlkil og góð. í Danmörku hefur kirsuberjatrjám vegnað mjög vel í sumar og húsmæð- urnar hafa ekki undan að sulta. Þessi mynd er af danskrj stúiku að tína kirsuber, en hún gæti allt eins verið tekin hér upp á íslandi af blómarós við rifsberjatínslu. Kálfafellskirkja vígð á sunnudag Vík, 22. ágúst. — Biskup íslands, herra Sigurbjörn Ein- arsson, endurvígði á sunnudag Kálfafellskirkju í Fljótshverfi. Fjölmenni var við athöfnina, sem var hin hátíðlegasta í hví- vetna. f Kálfafellskirkja var gömul timburkirkja, sem ríkið af- henti fyrir nokkrum árum söfnuðinum til eignar og um- ráða með nokkru álagi. Hefur kirkjan verið endurbætt og stækkuð, byggð við hana for- kirkja og klukknaturn, og er hún nú hið bezta hús. Kirkj an á margt fornra og góðra gripa, m.a. altaristöflu frá 17. öld. Hátíðleg athöfn Vígsluathöfnin hófst kl. 2 e. h.. Við vígsluna aðstoðuðu séra Gísli Brynjólfsson, pró- f astuir að Kirkj ubæ j ar- klaustri, séra Valgeir Helga son, Ásum, Páll Ólafsson cand. theol., Reykjavík, og formað ur sóknarnefndar, Ólafur J. Jónsson, Teygingalæk. Sóknar presturinn, séra Gísli Brynj- ólfsson, prédikaði, en organ- leikari var Óskar Jónsson, for maður kirkjukórasambands prófastsdæmisins. Fjölmenni var við athöfnina svo sem kirkjan framast leyfði. Að lokinni vígslu og guðs- þjónustu bauð sóknarnefndin öllum viðstöddum til rausnar legra veitinga, en síðan hófst samkoma í kirkjunni. For- maður sóknamefndar sagði frá endurbyggingu kirkjunn- ar og þakkaði öllum þeim, er höfðu átt þar hlut að máli, en séra Gísli Brynjólfsson rakti sögu kirkjunnar, sem fyrst er getið á 12. öld. Séra Valgeir Helgason fiutti frum ort ljóð, en aðrir ræðumenn voru Páll Pálsson, frú Guðríð- ur Pálsdóttir, sem flutti kveðju frá Prestbakkasöfnuði, og Óskar Jónsson. Að lokum ávarpaði biskup söfnuðinn, þakkaði ánægjulegan og eftir minnilegan dag og óskaði öll- um guðsblessunar. Ó.J. Fjórir lönduðu í s.l. viku f síðastliðinni viku lögðu togarar Bæjarútgerðar Reykja víkur á land afla i Reykjavík sem hér segir: 16 ágúst, B.v. Þorsteinn Ing ólfsson, 232 tonn af ísfiski. 17. ágúst, B.v. Jón Þorláksson 191 tonn af ísfiski. 18. ágúst, B.v. Skúli Magnússon 132 tonn af ísfiski. 19. ágúst, B.v. Pétur Halldórsson 261 tonn af ís- fiski. Fjöldi skipa hættur veiðum Á Austurmiðum var storma samt alla síðustu viku og gátu veiðiskipin ekkert athafnað sig á þeim slóðum. Þegar lygndi í vikulokin og skipin komust út, var hvergi síldar vart. Á Norðurmiðum var gott veiðiveður síðari hluta vik- unnar, en þar varð ekki vart sildar. Er nú talið, að herpinóta- veiði sé lokið á þessu sumri. Nokkrir bátar fengu slatta af smásíld inni í Reyðarfirði. Vikuaflinn nam aðeins 4415 málum og tunnum og er rek- netjaaflinn meðtalinn. Þar sem fjöldi veiðiskipa er hættur veiðum fyrir nokkru og aflatölur þeirra fáu skipa, sem fengu slatta í vikunni hafi lítið breytzt, er ekki á- stæða til þess að gefa út heild arskýrslu nú. (Frá Fiskifél. íslands). LeiSrétting ; Tvær villur slæddust í frá- i sögn blaðsins á dögunum af i væntanleguih j arðbor sem j staðsettur verður á Norður- jlandi,_og var þar rangt haft . eftir Áskeli Einarssyni, bæjar i stjóra í Húsavík. Vegalengd !in frá hverum í Reykjahverfi er 18 km. en ekki 186. Þá eru ekki hverir í Laugardal við Húsavík, heldur aðeins finn | anlegur ylur í jörðu. Loks er þess að geta, að fram- kvæmdir við borun í Húsavík hefjast því aðeins i marz, að borlnn verði látinn hefja þar verk sitt, sem óráðið mun enn. Nýstárlegt taflmót Taflfélag Reykjavikur mun halda skákmót með allný- stárlegu sniði um næstu helgi. Tefldar verða 5 umferðir eftir Monrad kerfi, í einum ; flokki, og er öllum heimil þátt i taka. Verður þetta hnað- j keppni, því ljúka á mótinu á 4 dögum Mun mótið hefj- ast á föstudagskvöld kl. 8. 2. umferð verður tefld á laug ardag kl. 2, 3. umferð á sunnu dag kl. 2, 4. umferð sunnu- dagskvld kl. 8 og 5. umferð á mánudagskvöld kl. 8. Taflstaður verður Breiðfirð ingabúð, niðri. Umhugsunar- tími verður 2 klst.. á 40 leiki og síðan Vz klst. til lúkningar skákinni. j Verðlaun í mótinu verða þrenn: 1000 kr., 500 kr. og 300 kr. Efstu menn úr 1. og 2. flokki flytjast upp um flokk. Þátttaka tilkynnist á æf- ingu taflfélagsins í Breiðfirð- ingabúð, uppi, n.k. fimmtu- dagskvöld. Þátttökugjald verð ur 100 kr. fyrir fullorðna, en 50 kr. fyrir drengi, 14 ára og yngri. Þess skal getið, að fyrirhug aðri för taflfélagsins til Norð urlands verður frestað til helgarinnar 3. og 4. septem- ber.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.