Tíminn - 22.07.1961, Blaðsíða 9

Tíminn - 22.07.1961, Blaðsíða 9
TÍMINN, laugardaginn 22. júlí 1961, 9 Tallahasse er höfuðstaSur Flóridaríkis. Nafnið er orð úr máli Creek-indíána og þýðir „gamla borgin". Og þó að Tallahasse sé töluvert yngri en Róm, þá er hún samt mjög gömul á vísu amerískra borga, og hún er byggð á sjö hæðum eins og Róm. Tallahasse stendur á lágum og ávölum hæðum nokkra mílnatugi upp frá strönd Mexikó flóans, þar sem heitir Krókódílaskagi, í krik- anum, þar sem strandlengjan sveigist til suðurs og myndar vest- urströnd Floridaskagans. Þetta er lítil borg. Þar búa að- eins nokkrir tugir þúsunda, og margar b'orgir á Flórída-skaga eru stærri. En þarna er stjórn fylkis- ins, hæstiréttur, fulltrúaþing og aðrar fylkisstofnanir. Þetta er ein- staklega falieg borg, stjórnarbygg ingarnar reisulegar, garðar mikl- ir og fagrir, stórmyndarlegar há- stoólabyggingar og söfn ýmiss kon- ar. / Umhverfis borgina eru auðug landbúnaðarhéruð, þar sem hver blettur er ræktaður til akra eða skóga, og skammt undan eru fjöl- sóttir baðstaðir. TaLlahasse er mik ill ferðamannabær. Á þessum slóðum búa ekki margir íslendingar, en í Talla- hasse eru samt tvær íslenzkar kon field, óperusöngvara, en Ragnheið- ur er gift Leonard Pepper, kunn- um lögfræðingi. Þetta fólk fluttist vestur fyrir einum áratug og hefur komið ágætlega fyrir sig fótum. Þegar Hilmar Skagfield flutti vestur, starfaði hann fyrst í lögfræði- og endurskoðunarskrifstofu Peppers svila síns, en gekk jafnframt í skóla og tók próf löggiltá endui- skoðanda. Síðan setti hann á stofn sjálfstæða endurskoðunarskrif- stofu, og hefur hún dafnað vel og Hilmar notið sívaxandi álits sem endurskoðandi og haft miklum störfum að gegna sem rekstrar- ráðunautur ýmissa fyrirtækja og verksmiðja. Jafnframt hefur Hilm- ar’ tekið sívaxandi þátt í félags- lífi borgar sinnar og gegnt ýms- um trúnaðarstöðum. Hann hefur átt sæti í víðtækum félngskap, sem nefnist Junior Chamber of Commerce, og var t.d. árið 1959 formaður fylkisnefndar fyrir Flor- ida, er sá félagsskapur skipaði til að annast aukin kynni við útlend- inga. Vann hann svo mikið og gott starf í þessum efnum, að hann hlaut sérstaka viðurkenningu rík- isstjórnar. Þá hefur Hilmar verið mjög framarlega í félagssamtök- um verzlunarmanna í Tallahasse. Kristín, kona hans, sem er vel lærð í hannyrðum og saumum, stofnaði fyrir þrem árum tízku- verzlun eða saumastofu, er nefn-i Fró Kristín Skagfield stendur fyrir dyrum hússins, þar sem tízkustofa hennar er, íslenzkt atgervi getur líka bldmstraö á Fldrida jr, og önnur ýþeirra gift íslenzk- jm manni. Á vegum þessa ís- enzka fólks hafa ýmsir íslending- ar dvalið sem gestir, lengri og skemimri tíma, og notið mikillar *estrisni. Konumar eru systur, Kristín jg Ragnheiður Guðmundsdætur :rá Ánabrekku í Borgarfirði. Krist 'n er gift Hilmari Skagfield, end- jrskoðanda, syni Sigurðar Skag- ist: Kristins Fasion and Design Studio, og hefur aðsetur í gömlu og fögru húsi í hjarta bæjarins. Hefur þetta fyrirtæki hennar not- ið sívaxandi vinsælda og viðskipta. í vor efndi hún t.d. til tízkusýn- ingar, er vakti óskipta athygli. Þau hjón, Hilmar og Kristín, eiga allstórt og fallegt hús á fögr- um stað í útjaðri Tallahasse, og er heimili þeirra einkar aðlaðandi. Hilmar Skagfield í endurskoðunarskrifstofu sinni í Tallahasse. Þau eiga þrjú myndarleg, stálpuð börn. Frú Ragnheiður og Pepper mað- ur hennar, búa einnig í útjaðri Tallahasse í nýju og mjög stóru og nýtízkulegu húsi. Pepper rekur umfangsmikla lögfræðistarfsemi og fasteignasölu og nýtur mikils trausts og virðingar í starfi sínu. Hann hefur dvalizt hér á íslandi og kann góð skil á íslenzkum efn- um, og tekur íslendingum manna bezt. Þau hjón eiga nokkur mann-. vænleg böm. Á báðum þessum íslenzku heim ilum í Tallahasse eru íslendingar, sem leggja leið sína þarna suður á bóginn, auðfúsugestir og jafnan vel fagnað. Hafa ýmsir gert það og eiga þaðan góðar minningar um dvöl í fögru og mildu landi með framandi skóg, en heimakunn ugt viðmót og gestrisni ungra og skemmtilegra íslendinga. Ég átti þess kost að dvelja nokkra dagá á heimili Hilmars og Kristínar sumarið 1960, og mér I var það óblandið ánægjuefni að ; sjá og finna, hve vel þau höfðu komið sér fyrir í þessum nýju heimkynnum og skotið þar sterk- um rótum. Það fór heldur ekkr fram hjá gestinum, hve mikils- metin þau voru af sambor'gurum sínum í Tallahasse og orðin þar heimavön. | j Við kynni af starfi Hilmars j Skagfield varð mér það ljóst, að endurskoðunarstörf eru með nokk- 1 uð öðrum hætti, víðtækari og yfir- gripsmeiri, en tíðkast hér á landi. Endurskoðandi fyrirtækisins er einnig og fyrst og fremst rekstrar ráðunautur með allmiklu valdi um tilhögun rekstrar. Hann gerir ýt- arlegar áætlanir um rekstur, nauð- synlegt fjármagn, verð og vöru- blrgðir, og segir til um, hvað ó- hætt muni að gera og hvað ekki. Einnig fylgist hann nákvæmlega með, allt rekstrarárið, og gefur oft mánaðarleg yfirlit um það, I hvernig reksturinn stendur eftir könnun, er hann gerir. Einnig sem ur hann ýtar'legar skýrslur um reksturinn og einstaka þætti hans til leiðbeiningar um breytingar til meiri hagkvæmni. Endurskoðunar skrifstofur hafa þannig nákvæma umsjón með nokkrum fyrirtækj- um. Einnig heldur endurskoðand- inn tíða fundi með framkvæmda- stjórum og eigendum fyrirtækja og verksmiðja, þar sem rekstur- inn er ræddur. Eitt hinna stærri fyrirtækja, sem Hilmar hefur haft slíka um- sjón með siðustu árin, nefnist Or- lando. Það á 5 togara og verk- smiðjur' til að vinna aflann í mark- aðsvöru. Það hefur meira að segja eigin flugvél til fiskleitar fyrir togarana. Mjög mikillar hag- kvæmni þarf að gæta í þessum rekstri, og er jafnan reiknað út nákvæmlega, hve mikið megi leggja í kostnað, og hvernig, og eklkert gert af handahófi. ' Fari rekstrartölur örfá prósent út af ákveðnum rekstrarstöðtum, er taf- arlaust rannsakað, hvernig á því standi og reynt að bæta úr. Á s.l. ári skipaði Collins ríkis- stjóri í Flórída, Hilmar í ríkis- nefnd, er annast vinnumiðlun fyr- ir fatlað fólk. Hann hefur því meira en nóg að starfa, enda starfsmaður mikill og góður. Þær systur. Kristín og Ragn- heiður, munu koma í stutta heim- sókn til íslands í þessum mánuði. — a.k. íbúöarhús Hllmars og Kristínar í skjóli mikilla eika á fögrum stað í Talla- hasse. Aðalfundur Sambands íslenzkra karlakóra Aðalfundur Sambands íslenzkra karlakóra (S.Í.K.) var haldinn í húsi K.F.U.M. í Reykjavík, sunnu- daginn 4. júní 1961. Formaður sambandsins Ágúst Bjarnason, setti fundinn. Fundar- stjóri var kjörinn séra Garðar Þor- steinsson og ritarar fundarins þeir Jón G. Bergmann og Magnús Guð- mundsson. Fundinn sátu fulltrúar sam-1 bahdskóranna víðs vegar að af landinu. Formaður gaf yfirlit yfir störf sambandsins á liðnum árum og gerði grein fyrir hag þess. Allmikl- ar umræður urðu um margvísleg málefni S.Í.K. og báru þær glöggt merki mikils og almenns áhuga fyrir eflingu sambandsins til Framh a bls L5.)

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.