Tíminn - 21.01.1962, Blaðsíða 3

Tíminn - 21.01.1962, Blaðsíða 3
TRÚBOÐSSTÖÐIN í BJÖRTU BÁU NTB—Leopoldville, 20. jan. I Fyrrverandi fulltrúi Sþ í Elísa- Allt er enn í óvissu um af- clrif kaþólsku prestanna 30 og nunnanna á trúboðsstöðinni Sola í Norður-Katanga. Flokk- ur uppreisnarmanna úr Kongó her gerði árás á stöðina, en þar sjást nú engin lífsmerki. Gizenga, fyrrverandi varafor- seti Kongó, var í dag fluttur til Lepooldville. Þar verður hann undir vernd Sameinuðu þjóð- anna í bili, en bráðlega hefjast yfir honum réttarhöld. Þegar flugvólar Sþ flugu yfir trúboðsstöðina Sola í afturelding- unni í morgun, sást þar ekkert lífs- mai'k. Byggingarnar stóðu í ljósum logum. Ekki sást heldur nokkur sála við menntaskólann og kvenna skólann við stöðina. Þorp í ná- grenni Sola var brunnið til kaldra kola. Ekkert herlið frá Sþ er á þessum slóðum, en reynt verður af öllum mætti að hafa upp á hin um seku. Þórólfur skoraði 4 mörk Þórólfur Beck var aðal- maður St. Mirren I gær, þeg- ar liðið vann Raith Rovers meg 5—1 á heimavelli sín- um í Paisley. Þórólfur skor- aði fjögur af mörkum St. Mirren, eitt í fyrri hálfleik en þrjú í þeim síðari. Þegar skozka útvarpið skýrði frá Iciknum í gær sagði það, að Þórólfur hefði verið bezti maður framlínu St. Mirren (outstanding playev). St. Mirren hafði eitt rnark yfir í háiflcik og skoraði Þórólfur það á 31. inín. í síðari hálf- leik skoraði Þórólfur annað markið, síðan MacLean, en á 10. og 73. mín skoraði Þór- ólfur tvívegis. f vikunni vann St. Mirren Aberdeen með 2—1 og hcfur því liagur liðsins batnað mjög. Dundee sigraði Th. Lanark með 2—1 og hcfur sex stiga forustu í 1. dcild. Nánari úrslit á íþróttasíðu á þriðjudag. I bethville, George Smith, sagði í I skýrslu í dag, að unnið væri skipu I lega að því að rægja Sþ og starf- semi þeirra í Kongó. Vegna áróð- ursins gegn Sþ hefðu margir al- ranga hugmynd um aðgerðir sam takanna í Katanga. Þar hefði eng um sprengjum verið kastað og inn an við 50 borgarar hefðu látið líf- ið vegna bardaga herliðs samtak- anna og Katangahers. Gizenga B:osti breitt, þegar flugvélin lenti með hann í Leo- poldville. Um 100 áhangendur hans tóku á móti honum með fagnaðar ópum. Hann mun hafa fullt ferða frelsi í borginni undir vernd Sþ, en samtökin munu að öðru leyti halda sér utan deilna hans við miðstjórnina í Leopoldville, sem mun stefna honum fyrir rétt fyrir samblástur. Krefjast hefnda NTB—DJAKARTA og HAAG, 20. janúar. — Nýlénduráðið í Irian, Iþrætuepli Hollendinga og Indó- nesa, kemur saman á mánudag- inn næstkomandi til þess að á- kveða, hvenær Irian hljóti sjálf- stæði. Ætlunin er að innleiða jafn framt herskyldu meðal hinna inn- fæddu Papúa, svo að þeir geti var'- ið sig gegn Indónesum. Hollenzki ráðuneytisstjóri mála Irian kemur á sunnudagskvöldið til Irian til þess að vera viðstaddur fundinn. í nýlenduráðinu eru 28 Papúar. Súkarnó Iridónesíuforseti hefur skrifað U Thant, framkvæmdastj. Sameinuðu þjóðanna, bréf, þar sem hann segir, að dyrnar séu stöðugt opnar fyrir samkomulagi í Irian-deilunni. Hins vegar séu Indónesar við hinu versta búnir, þar sem Hollendingar vilji ekki fallazt á skilyrði Indónesa fyrir samningum. Súkarnó sagði, a£ al- menningur '\ Indónesíu kirefðist hefnda fyrir tapið í sjóorrustunni við Hollendinga um daginn, NTB—Moskva, 20. janúar. | Pravda, málgagn kommúnista- ! flokksins rússneska, vísaði í dag ; þeim fregnum á bug, að Sovétrík- I in muni gefa eftir fyrir Vesturveld- junum og undirrita ekki sérfriðar- 'samninga vð Austur-Þýzkaland að sinni. Blaðið sagði, að Sovétríkin '11 mundu ekki láta undan ágengni V Vesturveldanna. EFNÁHÁ GSBANDA LAG S-AMíRÍKU Sjö Suður-Ameríkuríki hafa kom ið sér saman um að stofna Efna- hagsbandalag Suður-Ameríku í lík ingu við Efnahagsbandalag Ev- rópu. Það eru löndin Argentína, Brasilía, Chile, Mexikó, Paraguay, Perú og Uruguay. í fyrstp var rætt um 8% tollalækkun til að byrja með, en nú hefur náðst samkomu- lag um 27% tollalækkun til að byrja með og meira síðar. Ecuador og Columbía hafa sótt um aðild að bandalaginu. Þá mun bandalagið ná yfir mestan hluta Suður-Ameríku eða 81% íbúanna. Tollalækkunin er þegar komin til framkvæmda og gert er ráð fyrir meiri lækkunum næsta haust. Tvö ár eru liðin síðan þetta kom fyrst til tals, en það var fyrst í september í haust, að nefnd var skipuð til að vinna að framkvæmd Efnahagsbandalags Suður-Ameríku Nefndin lauk störfum í byrjun janúar og hafði þá náðst samkomu lag um ofangreinda 27% tollalækk un. „Hann njósnaöi fyrir Trujillo!" Gagnbyltingarstjóinin í Dóminikanska lýSveldinu hefur nú tryggt sig í sessi. Echaverría hershöfðingi og Bogaert, forsætisráðherra byltingarstjórnar Trujillosinna, eru komnlr undir lás og slá. Verða þelr dregnir fyrir dóm innan tíðar. Hinn nýi forsætisráðherra, Bonnelly, tilkynntl í gær, að hernaðarástandlnu f höfuð borginni, Santo Domingo, væri aflétt, sömuleiðis útgöngubanni og ritskoðun. Stjórnin hefur sent út her- lið til að verja eignir hinna hötuðu Trujiliosinna, en borgarmúgurinn hefur farið eyðandi hendi yfir sum ar skaruthallir þeirra. — Þessl mynd er tekin á götu í Santo Domingo, þegar múgurinn hefur uppgötvað einn af gönilu njósnurum Trujillo á meðai sín, — og þá er ekkl að sökum að spyrja. Riðar fimmta lýð- veldið til falls? NTB—París og Algeirsborg, 20. janúar. Alsírstríðið er nú að ná há- marki. Samtímis sem viðræð- um frönsku stjórnarinnar og I I Efnahags bandalag er aðeins byrjunin NTB—Bonn og London, 19. janúar. Adenauer, kanzlari Vestur-Þýzkalands, lýsti því yfir í Bruxelles í fyrradag, að nýja sam- komulagið í Efnahags- bandalagi Evrópu sé einn mesti atburður síðustu alda í Evrópu. — Við óskum eftir bandalagi Evrópu; efnahagsbanda- lag er aðeins byrjunin; endanlega takmarkið er stjórnmálalegt — sam- eining Evrópu, sagði Ad- enauer í yfirlýsingu sinni. uppreisnarstjórnar Serkja var frestað fram yfir mánaðamót, lét neðanjarðarhreyfingin Lýð- veldisvarnarráðið dreifa bæk- lingi, þar sem lýst er byltingar- undirbúningi hers og hægri manna í leynihreyfingunni OAS. Segir þar, að De Gaulle verði hótað borgarastyrjöld, ef hann komi á vopnahléi í Alsír. Almenningur í Frakklandi er ekki jafn bjartsýnn og ríkisstjórn- in um lausn Alsírdeilunnar. Hryðjuverkas'tarfsemi leynihreyf- ingar hægri manna, OAS, veldur geysilegum áhyggjum, og De Gaulle sætir harðri gagnrýni fyrir að geta ekki haldið hreyfingunni í skefjum. í Alsir er landsstjórnin að rnissa öll völd úr höndum sér, og hryðju- verkamenn OAS og uppreisnar- hreyfingar Serkja ráða á götunum. 13 manns létu lífið í óeirðum í Alsír í gær og 15 særðust. Meðal þeirra, sem voru drepnir var 10 ára drengur, sem var að hengja upp áróðursspjöld fyrir OAS. Fjór- ir menn voru drepnir fyrir hádegi í dag. De Gaulle segi af sér í bæklingnum, þar sem sagt er frá byltingarundirbúningi OAS, segir, að OAS muni láta til skarar skríða, ef De Gaulle semur við uppreisnarhreyfingu Serkja. Þá muni OAS taka völdin í Alsír. Sal- an, foringi hreyfingarinnar, muni afvopna franska herinn í landinu og 200 þingmenn hægri manna muni ganga á fund De Gaulle og hóta honum borgarastyijöld, ef hann segi ekki af sér. Auknar varnir NTB—WASHINGTON, 20. janúar. — Varnarmálastjórn Bandaríkj- anna mun í náinni framtíð leggja stóraukna áherzlu á varnir lands- ins. Verður innan tíðar hafizt handa um byggingu neðanjarðar- byrgja, sem þola kjarnorkustríð, í 14 borgum, og eiga skýlin, sem byggð verða í fyrstu umferð, að rúma 92.000 manns, en samkvæmt áætluninni verða í náinni framtíð gerð neðanjarðarskýli fyrir millj. manna. McNamara varnarmálaráðherra sagði í þinginu í dag, að Banda- ríkin hefðu þegar svo öruggt ör- yggiskerfi, að enginn aðili gcti gert ár'ás á landið, án þess að bjóða eyðingu heim sjálfur. Þótt. Sovétríkin geri skyndiárás á Bandaríkin, geti Bandaríkin svar- að í sömu mynt, svo að Sovétríkin muni ekki leggja út í slíkt. Mc Namara sagði, að í framtíðinni mundi verða lögð áherzla á varnir ge.gn kjarnoi'kuskeytum frá kaf- bátum neðansjávar, en á því sviði væru varnirnar veikastar enn sem komið er. T í MI N N, sunmHlaginn 21. janúar 1962 3

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.