Tíminn - 21.01.1962, Blaðsíða 7

Tíminn - 21.01.1962, Blaðsíða 7
Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Framkvæmdastjóri: Tómas Árnason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason. Frétta- ritstjóri: Indriði G. Þorsteinsson. Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson Auglýsingastjóri: Egill Bjarnason. Ritstjórnarskrifstof- ur í Edduhúsinu; afgreiðsla, auglýsingar og aðrar skrifstofur Bankastræti 7. Símar: 18300 — 18305. Auglýsingasími 19523. — Afgreiðslusími 12323 — Prentsmiðjan Edda h.f. — Áskriftargjald kr. 55 á mán. innan lands. í lausasölu kr. 3 eint. Er enn þá von? Alþýðusamtökin hafa lagt fram tillögur sínar um að tryggja svipaðan kaupmátt launa og í júlímánuði s.l. og bent á haldgóðar og eðlilegar leiöir til þess, að þeim áfanga verði náð. Tilögur þessar hafa þau lagt fyrir ríkis- stjórnina og óskað viðræðna um þær. Var nánar frá þess- um tillögum skýrt hér í forystugrein blaðsins í gær. Þessum tillögum og stefnu þeirri, sem í þeim birtist, ættu stjórnarflokkarnir að fagna og taka þeim vel. Eink- um væri ekki ólíklegt, að Bjarni Benediktsson tæki þeim vel, því að þær eru raunar eins og jákvætt svar við friðar- tali hans um áramótin og sífelldum yfirlýsingum hans um vilja sinn til „raunhæfra kjarabóta“. Ýmsir munu þó telja, að til þess bendi bæði rök og reynsla, að ekki megi taka orð þessa foringja og flokks of alvarlega og ekki sé vert að byggja á stuðningi hans. Hins vegar kallast hinn stjórnarflokkurinn Alþýðuflokkur enn þá og telur sig verkamannaflokk. Þar ætti því að vera vís stuðningur við þessar tillögur, sem fjalla ekki um launahækkanir, heldur kjarabætur í annarri mynd og með raunhaéfum stjórnaraðgerðum. Það væri jafnvel ekki fráleitt að ætla, að þessi flokkur mundi tryggja þessum tillögum sigur, svo sem er á valdi hans í stjórnaraðstöð- unni. Ýmir munu því líta svo á, að hér sé prófsteinninn á þennan verkamannaflokk. Og menn spyrja: Hvernig bregzt hann við? Er nokkurt verkamannablóð í honum lengur? Er hann orðinn gegnsýrður íhaldsflokkur? í áramótagrein sinni hér í blaöinu minntist Hermann Jónasson formaður Framsóknarflokksins, á þetta atriði. Hann sagði m. a.: „Ýmsir spyrja, hvort Alþýðuflokkurinn muni ekki tek- inn að þreytast á þessu samstarfi, sem svo mjög stefnir í íhaldsátt. Ég veit ekki um hug hins almenna kjósanda. En forvígismenn flokksins hafa jafnt og þétt verið að þokast í þessa átt síðustu árin. Vinstri sinnaðir menn, sem fylgdu upphaflegri stefnu flokksins, hafa yfirgefið hann, stundum í stórhópum, stundum einn og einn. Stefnuskrár Alþýðu- og Sjálfstæðis- flokksins voru svo til alveg eins fyrir síðustu kosningar, enda deildu blöð þessara flokka um það, hvor flokkurinn hefði frumsamið stefnuskrána — eða hvor hefði hnuplað stefnunni frá hinum. Ég hef spurt allmarga menn um það, hvort þeir geti greint einhvern mun flokkanna í fram- kvæmd, en aldrei rekið mig á neinn, sem hefur getað það. Helzti munurinn kynni að vera sá, að Alþýðuflokkur- inn virðist upp á síðkastið .vilja sýna launþegum meira harðræði í vinnudeilum. í útvarpsræðu frá Alþingi nýlega sagði einn þingmaður, sem talaði af hálfu Alþýðuflokks- ins, að verkföllunum s.l. sumar hefði ekki verið mætt nógu ákveðið. Það yrði að búa sig undir það, ef verkföll yrðu í vetur, að mæta þeim með meiri hörku." fæssi orð eru skýr og eðlileg ályktun af stefnu og framkomu Alþýðuflokksins undanfarin ár, og það er sam- dóma álit þeirra, sem nokkra yfirsýn hafa um íslenzk stjórnmál, að svo sé komið, að hann sé enginn verkalýðs- flokkur lengur og firrtur trausti og fylgi verkamanna að mestu leyti. Er það mikil raunasaga, og mörg mein is- lenzkra 'stjórnmála má til þess rekja. En menn halda i vonina, og margir líta svo á, að með þeim tillögum alþýðu- samtakanna, sem nú liggja fyrir, gefist flokknum síðasta tækifæri til að sjá fótum sínum forrað og sýna einhvern vott þess, að hann viti, hver fyrri stefna hans og staða var., i g®-****-™®™*™. Walter Lippmann ritar um alþjóðamál- Er það útilokað að hægt sé að ná samkomulagi um Berlín? Slíkt samkomulag gæti verið ávinningur fyrir alla atiila FYRIR skömmu átti ég tal við starfsbróður minn, kunnan blaðamann, sem ég virði mikils. Við ræddum meðal annars, 'hvort mögulegt yrði að ná sam- komulagi við Sovétríkin. Starfs- bróðir minn hélt því fram, að það vaai'i ekki mög.ulegt. Hann sagði, að þau mýndu aldrei afsala okkur neinu því, 'sem við gætum þegið, og við myndum aldrei afsala þeim neinu, sem þeir girntust. Séu samningar með öllu ó- færir, sagði ég, þá er ekki um neina lífvænlega framtíð að ræða fyrir Bérlín. Sovétríkin verða fijáls að því að gera það, sem þau vilja og okkur verður frjálst að bregðast við eins og okkur sýnist. Örlög Beirlínar byggjast þá á atvikum, sem við höfum ekkert vald yfir, og verða háð hvers konar sveifl- um og yfirsjónum. Ég get ekki fallizt á, að þetta sé þolanleg framtíð fyrir íbúa Vestur-Berlín ar. Við getum ekki gengið inn á að svo sé. HUGURINN hvarflar oft aft ur að viðfangsefnum, sem mað ur hefur rætt í kvöldverðar- boði. Svo fór fyrir mér í þetta sinn. Ég tók málið til meðferð ar á ný, þegar ég var kominn heim og háttaður. Ágreiningur okkar starfsbræðranna byggðist að nokkru á því, að vinur minn leit á samninga sem viðskipti, þar sem annar aðilinn sigrar en hinn tapar. Ég^ var uppalirin í þeirii trú, að sannar samninga umleitanir leiði tii samkomu- lags, þar sem hvor aðili um sig ávinnur meira en hann lætur af hendi. Þannig eru þeir samn ingar, sem haldnir eru og að notum koma. Ákvæði þeirra hafa það í för með sér, að með því að brjóta þá myndu báðir aðilar tapa miklu og hvorugur ávinna sér neitt. Auðvifað veit ég ekki, hvort hugsanlegir eru nokkrir slíkir samningar um Berlín. Við höf- um náð einum góðum samn- ingum við Sovétríkin eftir stríð. Það voru samningarnir um Austurríki. Ekki liggur Ijóst fyr’ir, hvort hægt er að gera sambærilegt samkomulag um Berlín. Til þess að geta sagt til um það verðum við að bíða eftir því, sem undirbúningsvið- ræðurnar leiða í ljós. En ég tel mig vita að við verðum að reyna að ná samkomulagi, því að ókostirnir við að ná því ekki verða þess þungbærari fyrir okkur sem' lengra líður. Og ég trúi því, að Rússum sýnist einn ig að töpin við að neita að semja muni verða þyngri og þyngri með tímanum. Þess vegná trúi ég því, að samninga grundvöllurinn finnist. HVERS FÆRUM við á mis við að fylgja ráðum de Gaullé og neita að semja? Ég held því fram, að við höfum þegar orðið varir áþreiíanlegrar sönnunar þess, hvaða áhætta getur fal- izt í því að neita samningum. Eftir fund þeirra Krustjoffs og Kennedy í Vín á liðnu sumri ákváðu stjórnendurnir í Banda-\ ríkjunum að auka handbæran Thompson herstyrk sinn til muna til þess að leggja áherzlu á alvöruna í kröfum sínum, um leið og samn ingar hæfust við yfirvöldin í Moskvu. De Gaulle hershöfð- ingi felldi samningaumleitanir í júlí, en Bretaj- og Bandaríkja menn vildu reyna þær og jafn,- vel Vestur-Þjóðverjar drógust á þær, þó að tregir væru. Það var engin tilviljun, að Krustjoff skyldi fallast á bygg- ingu veggsins í Berlín fáum vik um eftir að hætt var við samn- inga. Vera má að hann hefði jafnvel gert þetta meðan samn ingar stóðu yfir, vegna þess, hve flóttinn frá Austur-Berlín knúði fast á. Sú framkvæmd hefði þó sannarlega orðið erfið ari viðfangs við þær aðstæður. AÐSTAÐA Vesturveldanna í Vestur-Berlín er nú miklu veik ari en hún var í júlímánuði, áð- ur en borgin var klofin með veggnum. Flóttamennirnir að austan eru nú læstir inni. Skipt ing Þýzkalands er staðfest með veggnum, Vesturveldin hafa sætt sig við þá táknrænu skipt ingu. Aðstaða okkar hefur versnað það mikið, að ég ótt- Gromiko ast það einna mest, að ef til vill neiti stjórn Sovétríkjanna að semja vegna þess, að hún trúi því, að Vestur-Berlín muni verða að engu þegar ekki er hægt að endurnýja frelsi lienn ar, réttindi, atvinnuöiyggi, né aðgang Vesturveldanna að henni. Hvers vegna ætti Vestur- Berlín að veslast upp? Vegna þess, að sé ekki um neina samn ingsmöguleika að ræða, geta íbúar'Vestur-Berlíhar aldrei vit að stundinni lengur hvort lífi þeirra og atvinnu verði þyrmt. Þeir geta ekki lifað lengi, hvað þá óendanlega, á því loforði okkar, að við verðum áfram þáttlakendur í leiknum, livern- i.g sem hann gengur. Einhver fótfesta 1 verður að vera fyrir hendi ef unga fólkið á að halda áfram að undirbúa líf sitt í Vestur-Berlín og eldra fólkið að halda áfram að ávaxta fé sitt þar. Tilgangurinn með samningunum er meðal annars að treysta grundvöll þessa. Án þess geturn við aldrei staðið við loforð okkar gagnvart Vestur- Berlín. ÞÖRF OKKAR fyrir sain- komulagi um tilveru Vestur- Berlínar er svo mikil, að það hlýtur að vera mikil freisting fyrir valdhafana í Moskvu að neita að semja. En ég lít svo á, að í Moskvu sé vaxandi skiln ingur, sem valdi því, að valdhaf arnir semji. Það mun segja til sín, að í Berlín standa kjarn- orkuveldin hvort andspænis öðru. Það er að vísu mjög ó- sennilegt, að annað hvort stór- veldið grípi til kjarnorkuárás- ar, en Iiin þvingandi óvissa og cþægindi þau, sem fyrir kunna þá og þá að koma, þegar ekk- ert er ákveðið, láta vafalaust til sín taka. Rússar geta engu fremur en við lifað á blábrún kjarnorkustríðsins. Auk þessa trúi ég að fyrir hendi sé önnur ástæða til þess, að valdhöfunum í Moskvu ætti að vera það kappsmál að ná samkomulagi. Samkomulag, sem styrkti aðstöðu Vestur- Berlínar, yrði til þess að lægja ólgu og draga úr uppreisnar- hættu í Austur-Þýzkalandi og Austur-Evrópu. Sumir fylgjendur Vesturveld- anna munu halda því fram, að þetta sé einmitt ástæðan til þess, að við eigum ekki að semja. Ég held að þar hafi þeir á röngu að standa- Þeir hafa ekki einungis á röngu að standa vegna þess, að íhlutun Vestur- veldanna í uppreisn í Austur- Evrópu hlyti að ýta þriðja heimsstríðinu af stað. Hinu má heldur ekki gleyma, að sú að- stöðu-styrking, sem, drægi úr þrýstingi óánægjunnar, yrði einnig til þess að létta af nauð syn járnagans, leyfði íbúum Austur-Evrópu betri lífskjör og þokaði þeim nær hinum vest- rænu þjóðum. Það er því beggja hagur að treysta aðstöðuna og auka ör- yggið og einlægar samningavið ræður leiða í ljós skilyrði til gagnkvæmra hagsbóta af auknu öryggi. T í MI N N , sunnudaginn 21. janúar 1962 7

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.