Tíminn - 21.01.1962, Blaðsíða 15

Tíminn - 21.01.1962, Blaðsíða 15
Sfðasta vopnift ’ !• Tinihnlf -M 8 siflu' hefði séð það hjá okkur. Það eru þess konar sannanir, sem við höfum fengið. — En svo við snúum okkur að byrjunarörðugleikum okkar. Við urðum að finna hina réttu blöndu af „P“ og vísindalegum hæfileikum. Við fundum hana fyrir aðéins tveimur árum. Á meðan höfðum við haldið á- fr’am með hina, prófað og end- urbætt „P“-eiginleikann okkur í hag. Við lærðum meira og meira um hann með það tak- mark í huga, að beizla hann, ef svo mætti segja. — Þannig vissum við, hvern- ig átti að meðhöndla þetta, þeg ar við fundum sambandið, sem við vorum að leita að. Mark- mið okkar var að fá fullkomna teikningu af stórkostlegasla vopninu að hundrað árum liðn- um. Það þýddi, að við urðum að kenna drengnum undirstöðu atriði dr'áttlistar. Og við urðum að láta hann reyna við nálæga framtíð. Við æfðum hann á tímabili frá einu til tíu ára fram í tímann. Árangurinn var prýðilegur. Við fundum, að það var unnt að dáleiða hann með þá skipun að ná einhverri ákveðinni hugmynd úr ákveð- inni framtíð og honum heppnað ist það í hvert sinn. Pr’ófessorinn þagnaði og augu hans reikuðu yfir hina litlu samkundu. — Herrar mínir, sagði hann, — í dag er sigurdagur olckar. Við erum svo vissir, að við höf um boðið ykkur öllum hingað til að athuga árangurinn. Fyrir klukkustund var skilið við drenginn, Rudolf Leyton, í næsta herbergi með þá dá- leiðsluskipun að teikna ná- kvæmlega það vopn, sem mun ráða heiminum árið 2061. Við munum nú ganga inn og at- huga árangurinn. Einhver muldraði eitthvað um „öryggisráðstafanir". Pró- fessorinn lyfti upp annarri hendi. — Þið þurfið ekki að hafa á- hyggjur af öryggisráðstöfunun- um. Minnist þess, að hverju við erum að leita. Það mun taka sér'fræðinga ef til vill mánuði að skilja nákvæmlega það, sem þið munið nú sjá. Við getum kallað þetta hátíðlega athöfn. Erum við reiðubúnir? Það fór samþykkiskliður urn hópinn. Norwood prófessor steig niður frá háborði sínu og gekk gegnum hópinn í áttina að dyrunum á enda herbergis- ins. Hann kinkaði v'ingjarnlega kolli, er hann kom til mín. — jSg vona, að þetta muni binda endi á starf yðar og starfsbræðra yðar fyrir fullt og allt, hershöfðingi. Þér áfellizt mig ekki fyrir það? Eg sagði: — Alls ekki, pró- fessor. Stundum óska ég þess, að eitthvað kæmi fyrir, sem endaði starf yðar og starfs- bræðra. Þó álít ég, að hvorug- ur geti verið vongóður. — 0, ég er það, svaraði hann. Svo sannarlega er ég það. Hers höfðingjar þarfnast jafnvægis- ástands í hermálum. Með til- komu þessa vopns verðið þið allir að segja upp stöðunni og ganga í lögregluna. Eg fylgdi honum til dyranna og sá sjálfan mig í anda standa og stjórna umferðinni í ellinni. Mér var ýtt til hliðar í þvög- unni við dyrnar og varð síðast- ur' inn í herbergið. Þar var stórt borð hulið teiknipappír og áhöldum; hinum megin lá á að gizka tíu ára snáði fram á borð ið og svaf. Mér hafði ekki dott- ið í hug, að hann mjmdi vera svo ungur. Norwood prófessor gekk til hans. — Vaknaðu, sagði hann. — Vaknaðu, Rudolf. Drengurinn vaknaði, lj'fti höfðinu og horfði undrandi á þröngina handan við borðið. En þeir höfðu ekki áhu.ga á hon- um. Þeir tróðust að borðinu með hinum hvítu pappírsörk- um. Drengurinn stóð upp og gekk frá borðinu án þess að nokkur liti við honum. Hann gekk framhjá mér og ég þreif- aði í vasa minn eftir sælgæti handa honum. Síðan gekk ég til hinna. Það var þarna teikning. Góð, skýr teikning. Þeir störðu allir á hana og enginn þeirra hafði minnstu hugmynd af hverju hún var. Norwood prófessor beygði sig yfir hana stundarkorn og rétti síðan úr sér. — Það verður að vinna að þessu, sagði hann. — Eins og é_ sagði áðan, getum við ekki ætlazt til þess að skilja þetta við fyrstu sýn. Við munum fá færustu mönnum okkar þetta til úrlausnar. Stjórnmálamaðurinn, sem gr'ipið hafði fram í fyrir hon- um frammi í hinu herberginu, sagði: — Þetta er undarlega — mér virðist sem þetta hafi alll saman verið sóun fjár. Eg er ekki vísindamaður, en ég . fæ ekki séð, að þetta geti verið bezta vopnið árið 2061. Prófessorinn byrjaði að and- rnæla. — Eg sé það, sagði ég. Þeir sneru sér allir við og störðu á mig. Jafnvel hinn van- trúaði stjórnmálamaður brosti. Prófessorinn sagði: — Hvað þá, hershöfðingi, þér ætlið þó ekki að segja okkur, að þér vit- ið hvað þetta er? — Jú, sagði ég- — Það er vissulega öflugasta vopn heims ins eftir hundrað ár. Eg fór að setja upp hanzk- ana. Það var ekki til neins að hanga hér lengur. — Þetta er mjög góð teikn ing . . . af krossboga. Eggert Sigfússon þýddi. Svanur deyr (Frámh al Mi siðu' svananna og þeirra islenzku á Tjöninni í Rej'kjavík. Orustur af þessu tagi eru þó ekki háðar til þess eing að svala bardagafýsn. Þær eiga sér fyrst og fremst stað vegna hinnar miklu samkeppni í lífsbaráttunni Lífsbaráttan er hörð, — ekki síður hjá fuglum en mönnum. Hver svanur helgar sér sitt athafnasvæði, þar sem hann citnn sinnar tegundar skal eiga rétt til setu. Þetta athafnasvæði er hans heima, og hver sem dirfist að stíga fæti á það, er miskunnarlaust tekinn í karphúsið. Það er ekki að- eins, að heiður heimasvansins sé í veði, þegar utangarðssvanur gerir | innrás, heldur einnig lífsafkoma hans. Þegar þessa er gætt, er ekki að furða þótt grimmdin sé mikil. Venjulega sigrar heimasvanurinn, i þegar svona stendur á, því að grimmd hans og harka er þeim mun meiri, sem hann hefur meiri hagsmuna að gæta. Þegar þýzki svanurinn hér á Tjörninni beið ósigur fyrir þeim íslenzku, var það fyrst. og fremst vegna liðsmunar. Keisaradrottningin lá '^nefnilega á eggjum um þær mundir, og keisar- inn varð að heyja sína styrjöld einn gegn ofurefli liðs. Sennilega hefði það orðið hans síðasta orusta í þessu lífi, ef hjartaprúður lög- regluþjónn hefði ekki dregið hann á hálsinum I land. Hann var þá aðframkominn og hafði drukkið mikið vatn, því að íslenzku svan- irnir skiptust á að stinga hausn- ' um á honum niður í vatnið. til þess að drekkja honum. Venjulega láta svanir aðrar fuglategundir afskiptalausar, þótt þær séu á þeirra heimasvæði, að minnsta kosti þegar þeir hafa sæmilega rúmt um sig, eins og víð- ast hvar er á vötnum á íslandi. En | eí tjörn, sem svanafjölskylda held- ur til á, er mjög lítil, hrekur hún alla aðra fugla á brott þaðan — eða drepur þá að öðrum kosti. Þessu er ekki til að dreifa á Tjörn- inni í Rej'kjavík, — Tjörnin er stór, og auk þess eru endurnar svo margar, að ógerningur er fyrir keisarahjónin að gera þær útlægar. í hittiðfyrra eignuðust keisara- hjónin sex unga óg komu þeim öll- um á legg með kurt og pí. Þegar ungarnir voru orðnir fleygir og færir, ráku þau þá burt af Tjörn- inni, til þess, að geta setið ein að krásum þeim, sem Reykvíkingar bera þeim, — vissu auk þess sem var, að þau myndu brátt eignast ný afkvæmi, og betra væri þá, að búrið væri ekki tómt. Ungarnir röt- uðu ekki gæfuveg, — þrír þeirra létus’t með válegum hætti, en hinir þrír sneru til heimkynna sinna aft- ur. En gæfan beið þeirra ekki held ur í foreldragarði, því að gömlu hjónin hröktu þá um þvera og endi langa Tjörnina og vörnuðu þeim bæði svefns og matar. Nótt sem nýtan dag mátti sjá ungana á flótta undan þessum gömlu hvítsegldu kempum, sem fóru svo mikinn, að. freyddi um bóga. Nú eru aðeins tveir eftir af þess-! um þremur. Þeir hafa ekki látið sjá sig á Tjörninni síðan slysið varð, — líkt og þelr óttist að hljóta sömu örlög. Birgir. t VatnsfjartSardrambsemi • Framnfíio 9 siðu ekkert mein; fengu það þær kven- persónur, s-em ■ óspilltar píkur voru“. Öryggisleysið hefur vei’ið ótta-: legt, auðsöfnun eina trygging, sem 1 menn eygðu. Hólmfríður og séra Jón eru bæði.af höfðingjaættum,1 sem kynslóð eftir kynslóð treystu auð sinn og völd með mægðum. Þá hefur munurinn á auðugum emb- ættismönnum og sveltandi almúga, sem stráféll milli bæja, sannarlega verið mikill. Sjaldnar fer orð af gjafmildi en harodrægni. Má vera, að stórlætið hafi fylgt Hólmfríði ævina út, svo að henni hafi þótt meiri vegur að því að flytja til dóttur sinnar, biskupsfrú- arinnar að Hólum, er hún var orð- in ekkja, heldur en sitja áfram hjá Guðbrandi syni sínum í Vatnsfirði. En það getur líka verið, að skap hennar hafi mildazt, ekki síður en bónda henr.ar, þegar ellin færðist yfir. Um það er ekki getið. En vafalaust hefur sópað að henni, er hún gekk um hús í Vatnsfirði, glóhærð, nostursleg og með reisn Vatnsfjarðardrambseminnar. Sigríður Thorlacius. Mánuí í kolanámu (Framhald af l. siðu). í síðastliðinni viku hóf allur al- menningur Aveyron-fylkis samúð arverkfall. Öll kaffihús, bakarí og gasstöðvar lokuðu. Póstþjónusta féll niður og rafmagnsstöðvarnar stöðvuðu vélar sínar. Verkamönn unum berast matargjafir hvaðan- æva að af landinu. Meðan skegg námuverkamann- anna lengist stöðugt nokkur hundr uð metrum undir yfirborði jarðar, reyndu hinir 307 fyrrverandi borg arstjórar að fá ríkisstjórn De Gaulle til þess að semja. Féllst stjórnin á, að látá kenna námu- verkamönnunum aðra iðju, greiða þeim lágmarkskaup og að auki þriggja mánaða laun í skaðabætur. Hins vegar vilja námuverkamenn- irnir að auki halda rétti sínum til að fá ellilaun fimmtugir, þótt þeir hætti námústörfum. Þar stendur hnífurinn í kúnni. Hvorki hefur gengið né rekið við samn- ingaumleitanir síðustu daga. Þeir eru búnir að vera heilan mánuð í námunni, og um daginn sagði einn af borgarstjórunum: „Við skulum vona, að verkamenn irnir komi ekki upp á yfirborðið með örvæntingu í hjarta sínu. — Þeir gætu þá komið upp með kola axir sínar reiddar til höggs“. Klukkan níu í kvöld lieldur liinn góðkunni tenórsöngvari Einar Sturluson söngskemmtun í kirkju óháða safnaðarins. Und- irleik annast dr. Hallgrímur Helgason. Efnisskráin er mjög fjölbreytt og eru í henni lög bæði eftir innlend og erlend tónskáld, svo sem Franz Schu- bert, Robert Schumann, J. S. Bach, Richard Strauss, César Frank og Björgvin Guðmunds- son. Auk þéss mun Einar syngja þrjú lög, sem dr. Hall- grímur liefur útsett. Einar Sturluson hélt síðast söngskemmtun í Reykjavík 1950, en hefur haldið margar söngskemmtanir úti á landi síðan. Hann hefur sungið í út- varpsdagskrám víða erlendis og stendur nú slíkt til boða í f jór- um stórborgum á meginlandi Evrópu. Aðgöngumiðar að söng- skemmtuninni verða seldir við inngang kirkjunnar. (Ljósmynd TÍMINN, GE). Rækjan á þrotum ísfir$mgar vilja ný rækjutniS og auknar rækjurannsóknir Bæjarstjórn ísafjarðar beinir þeirn tilmælum til sjávarútvegs- málaráðuneytisins, að áherzla verði lögð á framhald þeirra rannsókna á rækjum, sem þegar eru hafnar, og einnig að haldið verði áfram leit að nýjum rækjumiðum. Jafn- framt mælir bæjarstjórnin með því, að settar verði reglur til þess að koma í veg fyrir gegndarlausa veiði á smæstu rækjunni, og að veiði í ísafjarðardjúpi verði fyrst um sinn takmörkuð frá því, sem verið hefur s.I. tvö ár. Greinargerð Rækjuvinnsla hefur í mörg ár verið arðbær atvinnuvegur fyrir ísfirðinga o. fl. íbúa við ísafjarðar- djúp og hafa rækjurnar eingöngu verið veiddar í ísafjarðardjúpi á átta til fimmtán rúmlesta bátum. Lengst af stunduðu aðeins 6—8 bátar þessar veiðar, og vegna tak- markaðra afkasta vinnslustöðv- anna í landi var veiðimagnið í hverri sjóferð takmarkað við 500 —700 kg. á bát. Fyrir um það bil tveim árum jukust afköst vinnslustöðvanna á ísafirði og ný vinnslustöð með miklum afköstum var sett upp á Langeyri við Álftafjörð. Jafnframt var veiðileyfunum einnig fjölgað og hafa 15—-18 bátar stundað rækjuveiðar í ísafjarðardjúpi upp á síðkastið. Samtímis voru einnig takmarkanir þær, sem vinnslu- stöðvarnar settu áður á afla hvers báts í sjóferð afnumdar. Þetta aukna veiðiálag segir nú þannig til sín, að rækjan í ísa- fjarðardjúpi er til þurrðar gengin a. m. k. í bil; og hefur veiðunum verið hætt. Á rækjubátunum hafa verið 30—40 manns. Við vinnsluna í landi á ísafirði og í Hnífsdal hafa unnið 100—120 manns og er það í mörgum tilfellum fólk sem ekki stundar aðra vinnu utan heimilis, til dæmis húsmæður. Þetta' alvarlega ástand er bæjar- búum mikið áhyggjuefni, og telur bæjarstjórn ísafjarðar nauðsyn- legt, að rækjuveiðar verði stundað- ar af meiri varfærni en gert hefur verið s.l. tvö ár. Samtímis þarf að halda áfram rannsóknum á rækj- um og leit nýrra rækjumiða, eins og tekið er fram í framanritaðri ályktun. Einnig þarf að vernda rækjuna á uppvaxtarskeiði, eftir því sem tök eru á. Væntir bæjarstjórnin þess að háttvirt ráðuneyti taki þetta mál til rækilegrar athugunar í samráði við fiskifræðinga, sem starfað hafa að rannsókn á rækjum að undan- íörnu. Rugvél Oag sett saman NTB—Ndola, 20. jan. Yfirheyrslur sianda nú yfir vegna flugslyssins í Rhodesíu í sumar, er Hammarskjöld fórst. Leifar flugvélarinnar hafa veriö settar saman á flugvellinum í Ndola. Rannsakaði rétturinn þær í dag, en síðan var rétturinn fluttur til Sal- isbury, þar sem vitna- leiðslur halda áfram. Vitnaleiðslurnar verða mjög langar, því tugir vitna verða kallaðir fyrir réttinn. Læknirinn, sem annaðist flugmanninn Harry Julian, sem var sá eini, sem lifði slysið af, sa.gði, að Julian hefði sagt, að spreng- ingin hefði orðið fyrst, en siðar hefði hann sagt, að flugvélin hafi hrapað áður en sprengingin varð. Lækn irinn sagði, að Julian hefði sagt, að Hammarskjöld 'hefði gefið skipun um að snúa við stuttu áður en slys ið varð. Julian komst aldrei nemá stutta stund til með- vitundar og dó á sjúkrahús inu í Rhodesíu, áður en hægt var að inna hann eftir að- draganda slyssins. TÍMINN, sunnudaginn 21. janúar 1962 15

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.