Tíminn - 26.01.1962, Blaðsíða 1

Tíminn - 26.01.1962, Blaðsíða 1
Munið að tilkynna vanskil á blaðinu í síma 12323 fyrir kl. 6. Þeir, sem vilja gerast áskrif- endur að blaðinu, hringi í 12323 S8S38SSS: ■ r;. ■■ •• >x. ■''tísK *: IÍís:'5E H \ i giiiililiiipg 5JÁ 15. SÍÐU STRAND í fyrrinótt strandaði Viktoría í mynni Grinda- víkurhafnar. Á bátnum voru sex menn, sem allir björguðust f land í gúmmíbát, eftir að hafa velkzt í þrjá og hálfan tíma í stórviðri og brimi á strand stað. — Myndin hér til hliðar var tekin af Viktoríu í gær. — Sjá myndir og viðtöl við skipbrots- menn á baksíðu. FJÓRIR BATAR NÆRRI Þetta er eitt af innsiglingarljósun- um sem logaðii ekki þegar f jórlr bát ar voru nærrl farnlr. Irmsiglingarljósin við Grinda víkurhöfn loguðu ekki í fyrri- nótt, og Viktoría strandaði á Rifinu af þessum sökum. Höfn in í Grindavík er einhver hættulegasta hér við suður- ströndins, einkum í sunnan- og suðvestanátt, og hafa orðið þar mörg strönd og mannskað ar á liðnum árum, þegar vetr- arvertíð stendur hæst. Sólar- hring áður en Viktoría strand aði, eða á miðvikudagsmorg- un, slokknuðu Ijósin í báðum vitunum og öll siglingaljósin við höfnina, og fjórir bátar, sem þá voru á útleið í róður, voru nærri horfnir í djúpið. Það var skipstjórinn á v.b. Sæ- þóri, sem rær frá Grindavík, sem skýrði fréttamanni blaðsins frá þessu ófremdarástandi í gær. Sagði hann sem von var, að ekki yrði lengur við þetta unað, enda hefði strandið í gær og mörg slys áður sýnl, að Grindavíkurhöfn væri sérlega hættuleg í' slæmum vetrarveðrum, og væri því enn brýnni þörf að bætá úr þessu þar en annars staðaf. Mjótt og hlykkjótt sund Eins og skýrt er frá í fréttinni á sextándu síðu blaðsins í dag, verður að þræða örmjótt og hlykkj ótt sund milli Hópsnesvita annars vegar og boða í sundinu hins veg ar til að komast í höfn í Járngerð arstaðarhverfi. Þegar komið er inn fyrir boðann, verður fyrst að taka mið af tveimur grænum siglinga- ljósum, unz nýr hlykkur kemur á mjóan álinn, en þá vísa tvö |önnur, rauð siglingaljós til vegar jsíðasta spölinn inn fyrir hafnar- garðinn. Logi ekki þessi ljós, er sama, hve kunnugir og reyndir menn eiga í hlut; ekkert má út af bera, ef skip og báta á ekki að reka upp á grynningarnar allt í kring, þar sem miskunnarlausl vetrarbrimið molar þá sundur. Ljósin í Grindavík loguðu ekki í fyrramorgun, og fjórir bátar voru hætt komnir. Þau loguðu ekki held ur nóttina eftir, og nú liggur Vikt- oría í fjörunni, og veltur á veður- guðunum, hvort hún næst þaðan, áður en brimið á leik. Vitarnir í Grindavík eru tengdir rafkerfi frá Sogsvirkjuninni, en þar eni ekki gasljós eins og í flestum öðrum (Framhald á 15. síðu) Mokað fyrir skíða- fólk en ekki mjólk Svo er aö sjá, sem þeir sem nota vegina og þeir sem hugsa um vegina séu ekki á eitt sátt ir og komi ekki saman um, hvorir viti betur hvenær tími er til að moka snjó af vegum og hvenær ekki. Síðasta bit- beinið er Hellisheiði. I I gær var hringt til blaðsins frá Selfos-si og beðið um, að á fram- færi yrði komið kvörtun yfir vega málaskrifstofunni vegna þess, hve slælega hún sæi um snjóhreinsun á Hellisheiði. Opnað fyrir skíðafólk Þessi maður sagði, að í gær hefðu aðeins verið tveir til þrír skaflar á veginum milli Skíðaskál- ans og Hveragerðis, og vegamála- skrifstofan hefði ekki hreyft hönd né fót til þess að ryðja það svo að auðveldara væri að flytja af- urðir austan yfir fjall til Reykja- víkur. Hins vegar hefði veginum austur að Skíðaskála verig haldið opnum, svo að skíðafólk gæti sportað sig austur þar, þótt mjólk urbílar og aðrir slikir yrðu að fara Krýsuvíkurleið, sem er mun lengri. Stöðugur bylur Tíminn hringdi í Kristján Guð- (Fran.h á (5 síðu.) ,V- Hauskúpa Ciríks eða Leifs heppna Læknadeild Kaupmanna- hafnarháskóla tilkynnti i dag, að skurðlæknirinn og mannfræðingur.inn dr. Jörg en Balslev hefði verið veitt ur 5000 danskra króna styrkur til Grænlandsferð- ar. Verkefni hans er að kom ast að raun um, hvort haus kúpan, sem fannst í fyrra- sumar, þegar elzta kirkja Grænl., Þjóðhildarkirkja, fannst og var grafin upp, er af Eiríki rauða eða ef til vill af syni hans Leifi heppna. Jafnframt er reikn að með að leiðangur Þjóð- minjasafnsins haldi næsta sumar áfram uppgreftrin- um þarna. Aðils. Myndin hér til hliðar er af Þjóðhildarkirkju, eins og grænlenzki listamaðurinn Rosing hugsar hana. SIGLDIRISTRAND

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.