Tíminn - 21.06.1963, Blaðsíða 16
Föstudagur 2T. júní 1963
135. tbl.
47. árg.
| KVÖLDSKEMMTANIR
B-LISTANS í R-VÍK
Kvöldskemmtanir fyrir starfsfólk
B-llstans f REYKJAVÍK, verða
haldnar [ súlnasal Hótel Sögu,
föstudaginn 28. og sunnudaglnn
30. þessa mánaðar. Aðgöngumlð-
ar verða afhentir á mánudaglnn
kemur f Tjarnargötu 26, frá kl.
1—S. Sfml 16564. — Skemmti-
atriði verða auglýst sfðar.
B-listinn.
HAFNARBÆTUR A 50
STÖDUM Á LANDINU
MB-Reykjavík, 19. júní
f sumar er unniS á nær fimmtíu
stöðum aff hafnargerðum eða við-
gerðum á höfnum, og til þeirra
framkvæmda er í ár varið rúm-
um 100 milljónum króna. Sums
staðar munu í sumar koma í gagn
ið verulegar umbætur á höfnum,
en annars staðar er um viðgerðir
eða undirbúningsstörf undir hafn-
arframkvæmdir að ræða.
Þetta kom fram í viðtali við
Aðalstein Júlíusson, Vita- og hafn-
armálastjóra, er blaðið átti við
hann tal í dag. Verður hér á eft-
ir getið helztu framkvæmda.
A AKRANESI verður unnið að
dýpkun fyrir framan dráttarbraut-
ina.
í RIFI verður mikið unnið nú í
sumar. Þar er gert ráð fyrir að
hefja oyggingu hafnargarðs og
lengja þann, er fyrir er og einnig
að reisa þil, sem síð'ar verður
hluti af hafskipabryggju. Alls er
reiknað með að fá með þessu móti
viðlegupláss fyrir 25 'báta og eitt
hafskip. Vonir standa til, að þessar
framkvæmdir komist það langt í
sumar, að á vertíðinni í vetur verði
löndunaraðstaða fyrir um 10 báta,
en unnt verði að geyma þar mun
fleiri.
í ÓLAFSVÍK verður í sumar haf
izt handa um bátakví og byggingu
hafnargarðs, en aðstað'an til
geymslu báta þar mun ekki breyt
ast að ráði eftir þetta sumar.
í STYKKISHÓLMI verður hald
ið áfram byggingu dráttarbrautar
cg standa vonir til að hún komist
5 gagnið snemma á næsta ári.
í SÚGANDAFIRÐI og TÁLKNA
FIRÐI verður að öllum líkindum
iokið við að reisa þil.
Barnaskékr rísa á Kol-
viðarneslaug og Leirá
KH-Reykjavík, 20. júní
Tveir nýir heimavistarbarna-
skólar eru nú í smíðum á Suð-
vesturlandi, þar sem allt til þessa
hefur verið mjög erfið aðstaða til
skólahalds, Leirá í Leirárhreppi
og Kolviðarneslaug í Eyjahreppi.
Var þörfin fyrir slíka skóla orð-
in mjög brýn á þessum stöðum,
cins og reyndar víða annars staðar
á landinu.
Byrjað var á byggingunni á Kol-
viðarneslaug fyrir u. þ. b. ári, og
er ætlunin að húsið verði orðið
fokhelt í haust og múrhúðað að
innan. Þarna er heit laug og að-
staða til skólabyggingar prýðileg.
Aðalbyggingin er á þremur hæð-
B-LISTA-
SKEMMTUN
Skemmtun verður lialdin
fyrdr starfsfólk B-listans í
Kópavogi, _ Hafnarfirði,
Garðahreppi, Álftanes- og
Bessastaðahreppi, Seltjarn-
ameshreppi og Mosfellssveit
iaugardaginn 22. þ.m. í fé-
lagsheimili Kópavogs (efri
salnum) og hefst hún kl.
8,30 síðdegis. Skemmtiatriði
og ávörp. Aðgöngumiðar
verða afhentir á eftirtöldum
stöðum: Haukur Nielsson,
Helgafelli í Mosfellssveit,
ilfhólsvegi 8a, Kópavogi.
sími 2-35-76. Bergþór Sig-
tirðsson, Goðatún 12, sími
50895. Jóhann Sölvason,
Lindarbraut 2, Seltjarnar
nesi, sími 1-72-82. — Að-
göngumiða verður að vitja
í dag fyrir kvöldiið.
um, á efri hæðunum verða heima-
vistarherbergi fyrir 56 nemendur,
en auk þess tvær fjölskylduíbúðir
fyrir kennara, ein minni fyrir ein-
hleypan kennara og enn ein fyrir
ráðskonu. Á fyrstu hæð verður
mötuneyti, eldhús, setustofa, bóka
safn o. fl., og í kjallaranum verð-
ur væntanlega smíðastofa, o. þ. h.
Kennslustofumar verða þrjár, og
rúmar hver þeirra 30 nemendur.
Þær verða í álmu út frá aðalbygg-
ingunni, og er nú nýbyrjað á þeirri
álmu. Byggingin er 6.000 rúm-
rnetrar í allt. Teikninguna gerði
Guðmundur Þór Pálsson, en Jón
Guðmundsson, byggingarmeistari
Akranesi, tók að sér að reisa hús-
ið.
Börn úr fjórum hreppum, Kol-
beinsstað'ahreppi, Eyjahreppi,
Miklaholtshreppi og Breiðavíkur-
hreppi, munu sækja skólann að
Kolviðarneslaug. Vonir standa til,
að skólinn verði tilbúinn til notk-
unar haustið 1964.
Guðmundur Þór Pálsson gerði
einnig teikningu að byggingunni
á Leirá. og er hún mjög svipuð í
rniðum og að Kolviðarneslaug
nema heldur minni, sem liggur í
því, að ekki er búizt við jafn mörg
um börnum í heimavist þar.
Kennslustofur verða fyrir jafn
marga og er ætlunin að taka þær
í notkun um næstu áramót. Börn
úr Strandahreppi, Leirár-, Mela-,
Skilmanna- og Innri-Akranes-
hreppi munu sækja skóla að Leir-
á. Bjarni Egilsson, byggingameist-
ari Akranesi, tók að sér að reisa
húsið, og miðar verkinu vel áfram
í BOLUNGARVÍK verður unnið
sð þriðja áfanga við endurbygg-
íngu brimbrjótsins og verið er að
keyra grjót í sandvarnargarð, sem
koma á á móti brimbrjótnum.
Á ÍSAFIRÐI er lokið við 100
metra langa kantaukningu á báta-
kvínni og dýpkun hennar. Verður
þá komið þar ágætt dýpi og nægi
iegt rými um fyrirsjáanlega fram-
tíð fyrir bátaflotann þar.
Á SKAGASTRÖND hefur verið
unnið við dýpkun, og endurbætur
á hafnargarði, og á SAUÐÁR-
KRÓKI hefur verið unnið að leng
mgu á sandvarnargarði.
Á SIGLUFIRÐI hefur verið unn
ið að frágangi á hafskipabryggju,
viðgerð á öldubrjótnum og nú eru
að' hefjast að nýju framkvæmdir
við byggingu innri hafnarinnar,
en er þeim lýkur mun þar aukast
mjög athaí'narými.
Á ÓLAFSFIRÐI og DALVÍK
verða byggðar bryggjur og á Húsa
vík, þar verð'ur einnig byggð ver-
búð. í GRENIVÍK er unnið í landi
að undirbúningi bátakvíar og e. t.
v einnig hafskipabryggju.
Á RAUFARHÖFN er byrjað á
hafskipabryggju og er búið að aka
í hana fyllingarefni sem nemur
20 til 30 búsund rúmmetrum. —
Þarna verður steinsteypt opin
bryggja og þekjan verður að mestu
leyti úr strengjasteypu, en það er
nýjung hériendis. Við bryggjuna
verður um 6 metra dýpi. Þessi
hryggja átti upphaflega að verða
tilbúin um miðjan þennan mánuð
en vegna þess, hve tíðin var góð
i vetur, seinkaði verkinu. Þetta er
ekki prentvilla, heldur stafar það
Framhald 6 15. síðú.
mm
: :.V
&
FólkiS í húsinu Grenimel 25 f eRykjavfk varð heldur betur undrandl
elnn morgun fyrlr stuttu, er þröstur hóf óvenjulega hreiðurgerð ofan
á toppi reykháfs, sem stendur upp af bflskúrnum við húsið. Þröstur-
Inn v^r tvo daga að gera hreiðrlð og brátt voru eggin komin. Hann
trónir þarna hátt uppl, — vill víst hafa gott útsýni. (Ljósm.: Tíminn,GE)
Hæstu skattgreiðendur
FB-Reykjavík, 20. júní.
Skiattskráin j Reykjavík var lögð
fram í dag, og að vanda streymdu
borgarbuar upp á skattstofu til
þess að athuga, hvað þeim bæri
að greiða í opinber gjöld þetta
árið. Virtist engu skipta, að blöðin
skýrðu frá því i dag, að mönnurn
yrðu sendir heim álagningarseðl-
ar, fólk var bráðlátt og vildi strax
fá að vita uin gjöld sín.
Tíminn brá sér niður á skatt-
stofu og gætti að því, hversu há
gjöld alls, þinggjöld og útsvör,
þeir menn verða að greiða, sem
bera hæstu útsvörin. Útkoman var
þessi:
Otto Kornerup Hansen forstjóri
kr. 525.114.00, Þorvaldur Guð-
mundsson veitingamaður kr. 512.-
247.00, Þorsteinn S. Thorstejnsson
lyfsali kr. 433.668.00, Sigurður
Berndsen db. kr. 392,379.00, Har-
aldur Ágústsson skipstjóri kr. 315.
097.00, Friðrik A. Jónsson útvarps
virki 310.620.00, Benedikt Ágústs-
son skipstjóri kr. 299.736.00. Páll
Þorgeirsson heildsali kr 288.764 -
00, Hörður Björnsson skipstjóri
kr. 273.809.00, Ingimundur Ingi-
mundarson skipstjóri 255.498 00,
Kristján Siggeirsson forstjóri kr.
238.832.00, Guðmudur Ibsenson
skipstjóri kr. 234.849.00, Hrólfur
Gunnarsson skipstjóri kr. 214.302,-1 Loftleiðir h.f. kr. 9.028.033,-
Áki Jakobsson, lögfr. kr. 204.363. Hekla h.f. kr. 2.662.080,-
Og útkoman hjá félögunum varð Kassagerðin kr. 2.550.919,-
þessi: | Framhald á 15. siöu.
Fann 5 útigengnar
IH-Seyðisfirði, 19. júní.
Síðast liðinn föstudag kom Vil-
hjálmur Iljálmarsson, fyrsti vara
þingmaður Framsóknarmanna á
Austurlandi, frá Mjóafirði til Seyð
isfjarðar. — Þegar varaþingmaður
inn kom níður i Austdal í Seyðis-
firði, fann hann 5 kindur, eina á
og fjóra gemlingá-, auðsjáanlega
útigengna. Þykir það mjög merki
legt. að fé þetta hafi gengið úti
og litið svo vel út setn raun bar
vitni.
/