Alþýðublaðið - 22.10.1947, Blaðsíða 2
2 ALÞÝÐUBLAÐ8Ð
M'*. .'tJlq ..SS 'ií^n.íAhm€,
Miðvikudagur 22. okt. 1947
Síamskonungur
Söguleg stórmynd.
Böm inn-an 12 ára frá ekki
aðgang.
Sýnd kl. 9-
æ gamla bio æ æ nýja bio
Hættulegir félagar
(Dangerous Partners)
Framúrskarandi spennandi
■amerísk sakamálamynd.
James Craig
Signe Hasso
Edmund Gwenn
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Börn innan 16 ára
fá ekki aðgang.
TJARNARBIO
Gönguför í sólskini.
(A Walk in the sun)
Stórfengleg mynd frá inn-
rás bandamanna á Italíu.
Dana Andrews.
Richard Conte.
Aukamynd:
Baráttan gegn ofdrykkjunni
(March of Time)
Sýnd kl. 5.
(THE MAGIC BOW)
Hrífandi mynd um fiðlu-
snillinginn Paganini.
Stewart Granger
Phyllis Calvert
Jean Kent
Einleikur á fiðlu:
Yehudi Menuhin
Sýning kl. 5 — 7 — 9.
TRIPOLI-BfO
Vér dönsum
(THRILL OF BRAZIL)
Aðalhlutverk:
Evelin Keyes
Keeman Wynn
Sýnd kl. 7 og 9.
Öskubuska
Allir þekkja ævintýrið
um Öskubusku jafnt ungir
sem 'eldri, ljómandi vel
gerð rússnesk mynd.
Sýnd kl. 5.
Sími 1182.
æ BÆJARBIO æ
Hafnarfirði
Útiagar
Spennandi amerísk mynd
í eðlilegum litum frá Vest-
ur-sléttunum.
Evelyn Keyes
Willard Parker
Larry Parks
Sýnd kl. 7 og 9.
Bönnuð fyrir börn.
, Sími 9184.
Fimmtugur;
Guðmundur Óskar
r
Olafsson matsveinn.
FIMMTUGUR er í dag
Guðmundur Óskar Ólafsson
rnatsveinn, Miðtúni 66.
Óskar fæddist 22. okt.
1897 í Ólafsvík. Foreldrar
hans voru Katrín Hjálmars-
dó'ttir og Ólafur Bjarnason,
myndarhjón og þékkt þar
vestra fyrir dugnað sinn.
Óskar byrjaði snemnaa að
vinna fyrir sér, enda var
heim'ilisástæðum þannig hátt
að, að þar varð hver að
gjöra sitt til, til þess að afla
heimilinu bjargar. Óskar var
fimmtá barnið í röðinni af
ellefu systkinum. Þrettán ára
garnall fór Óskar w stunda
sjóvinnu, réri hann þá til
fiskjar á árabát, og var hlut
ur hans þá oft ekki stór. En
sjaldan var hann þá það lít-
III, að hann vekti ekki gleði
í búi hjá pabba og mömmu.
Strax teftir fermingu réðst
Óskar á handveiðafiskirí tfl
Vesfjarða. í þann mund stóð
skútuöldin í blóma sínum.
Stundaði hann þá atvinnu til
ársins 1927, en réri á vetrum
heima, og þótti sæti hans á-
LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR
BLUNDUR OG BLASYRA
(Arsenic and old Lace).
Gamanleikur eftir Joseph Kesselring.
SÝNING í kvöld klukkan 8.
Aðgöngumiðasala frá kl. 2. (Sími 3191).
Börn fá ekki aðgang.
valt vel skipað, þar sem hann
var við starf.
Til Reykjavíkur fluttist
Óskar árið 1928, og réðist
hann þá strax á b.v. Hilmir
og var hann á því skipi sam-
fleytt 18 ár eða til ársins
1946 að skipið var selt héð-
an af landi burt.
Árið 1920, 22. nóv., kvænt
is Óskar Jóhönnu Jóhannes-
dóttur frá Brimsvöllum,
dugnaðar konu, og eiga þau
fimm mannvænleg börn, fjög
ur uppkomin og eitt við ferm
ingaraldur.
Ég minnist þess, að ein-
hvern tíma, þegar ég átti tal
við Óskar, taldi hann sig hafa
verið lánsaman og heppinn
sjómann, ávallt lent á góðum
skipum með ágætis yfirmönn
um og góðum félögum. Þeir
sem þekkja Óskar, þekkja
hann sem áhugasaman dug-
andi verkmann. Góðan og
glaðværan félaga, vinfastan
og trygglyndan.
í dag við þessi merku tíma
mó't í' ævi þinni, veit ég, að
margur kunninginn hugsar
hlýtt til þín og sendir þér
hlý.jar kveðjur út á hafið um
borð í b.v. Gylli. Ég sem þess
ar fáu línur skrifa, þakka þér
alla góða kýnningu og óska
þér alls góðs farnaðar í kom-
andi framtíð.
G. G.
íslenzk fyndni XI. árg.
ELLEFTA HEFTI „ís-
lenzkrar fyndni“ er nýkomið
út. Flytur það 150 skopsagn
ir og skopvísur. Heftið er
myndum prýtt.
Er nú komið hátt á fimmta
ár síðan tímarit þetta lét sjá
sig síðast, og mun mörgum
hafa þótt löng biðin. En bót
er þeim, að þetta hefti stend-
ur þeim fyrri sízt að baki.
Skóiarnlr á Ákranesi.
Frá fréttaritara Alþýðublaðsins,
AKRANESI
IÐNSKÓLI AKRANESS
var settur 20. september. 35
iðnhemar eru að þessu sinni
innritaðir í skólann. Auk
skólastjórans ‘starfa nú 7 kenn-
arar við skólann.
Barnaskóli Akraness var
settur í kirkjunni 1. október.
Skólabörn eru alls 325, en
skólinn skiptist í 14 deildir.
Auk skólastjórans, Friðriks
Hjartar, starfa 8 kennarar við
skólann. Sú breyting varð á
keninaraliði skólans, <að í stað
Þorgeirs Ibsens, sem orðinn er
skólastjóri í 'Stykkishólmi,
kom Þorgils Stefánsson, og í
stað Elínborgar Aðalbjarnar-
dótt'ur, er dvelur við nám er-
lendis, kom Sigríður Elías-
dóttir.
Gagnfræðaskóli Akraness
var settur í kir*kjunni 4. októ-
ber. Nemendur verða í vetur
75, en það er nokkru fleira en
s.l. skólaár. Guðlaugur Einars-
son 'bæjarstjóri, formaður
fræðsluráðs, ávarpaði ‘hinn
nýja skólastjóra, Ragnar Jó-
'hannesson, en hann flutti svo
setningarræðu. Kirkjukórinn
söng. Auk skólastjórans starfa
við skólann 3 fastir kennarar
og 2 aukakenn'arar. Magnús
Jónsson, sem starfað hefur við
skólann frá stofnun 'hans, hef-
ur fengið utanfararleyfi, í
hans stað kennir Sigurlaug
Bjarnadóttir stúdent frá Vig-
ur.
Háskólafyrirlestrar
um H. C. Andersen
DANSKI sendikennarinn,
Martin Larsen, byrjar há-
skólafyrirlestra sína um æv-
intýri H. C. Andersens á
morgún kl. 6. Fyrirlestrarnir
Júgóslavía er í
„vesfuráft" frá
Þjóðviljanum!
SVO gersamlega rússnesk
ir eru þeir nú orðnir við
Þjóðviljann, að þeim finnst
endilega, að Júgóslavía sé í
vesturátt frá þeim. Hvert
skólabarn veit þó. að Júgó-
slavía er í suðausturátt frá
okkur hér á íslandi, og það
langt í suðausturátt, en hins
vegar er landið í vestur eða
ífið til suðvesturs frá
Moskvu.
Einhver sanntrúaður kom
múnisti, sem skrifar undir
nafninu ,,Verkamaður“, skrif
aði um „endurreisnarstarfið
vestur í Júgóslavíu“ í hréfi
til Bæjarpóstsins í gær. Og
auðvitað hefur ritstjóra
dálksins og prófarkalesurum
blaðsins fundizt þetta svo
eðlilegt að þeim kom ekki til
hugar að leiðrétta það.
Borgarablöðin hér hafa
ruglað menn nóg í landa-
fræði Balkansskagans nú í
seinni tíð. en nú keyrir um
þverbak, þegar sjálfur Þjóð
viljinn leggur hönd á þann
plóg.
verða fluttir í II. kennslu-
stofu 'háskólans, og er öllum
heimill aðgangur.
Fyrirlestrarnir um H. C.
Andersen verða fluttir á-
dönsku.
1 Dragf, Kápa og
Drengjafrakk!
til isölu miðalauist.
Klapparstíg 27,
frá kl. 2—6 í dag.
Sögur, sem vekja athygli:
GÖMUL BLÖÐ
EFTIR ELINBORGU
LÁRUSDÓTTUR.
Hvergi hefur lífstrú höf-
undar og traust á gildi ein-
staklingsins hirzt á fjöl-
breyttari hátt en í þessum
sögum. I stuttum og ein-
földum dráttum bregður
skáldkonan upp myndum
af í'slenzku fólki í bæ og
byggð, 'gleðistundum þess
og þjáningum, trú þess og
efasemdum.
Gömul blöð á erindi til
allra, og er ein af þeim bók-
um, sem vermir og gleður.
Bókaútgáfan Norðri.
j r'.’S.