Tíminn - 29.05.1964, Blaðsíða 15
SIGURJÓN JÓHANNS.
SÝNIR í MOKKA-KAFFI
SLIPPURINN
Framhald af 1. s(5o.
hefði borið á því í vetur, að bátar
hefðu fjrnað nokkrum dögum af
vertíðinni til þess að komast í
slipp, og komast hjá mestu ösinni
nú í vertíðarlokin.
Síðan hringdum við í Guðmund
Hjaltason hjá Slippfélaginu í
Reykjavík. Hann sagði að mjög
mikið hefð; verið að gera ajj und-
anförnu, en tíðarfarið hefði auð-
veldað störfin mikið. Unnið hefði
verið öll kvöld og allar helgar, en
nú eru skólarnir úti, og Slipp-
félagið hefur fengið skólapilta í
vinnu, og hjálpar það töluvert í
mestu önnunum. Frá áramótum
•hafa 140 skip verið í slipp hjá
Slippfélaginu, en þar með eru tal-
in bæði flutningaskip og togarar.
— Venjuleg botnhreinsun og
málun á báti tekur um 14 til 24
tíma, sagði Guðmundur, og flestir
bátanna þurfa ekki meiri viðgerð-
ar við. — Það er rétt, að nokkrir
bátar komu í slipp í vetur meðan
á vertíðinni stóð, og það hefur
minnkað álagið núna. Um þessar
mundir eru 40 manns í vinnu hjá
okkur, og við þyrftum að hafa um
30 manns allt árið, en í vetur
komst starfsmannafjöldinn allt
niður í 10 manns. Það er verið að
taka upp báta í allan dag, og í
kvöld verða komnir sex í slipp-
inn og tveir bætast við á morgun,
en alls höfum við rúm fyrir 9,
sagði Guðmundur að lokum.
Iþréttir
á heimavelli gegn Atlanta, en
liðið er þar í efsta sæti ásamt
Bologna (Harald Nielsen, Þjóð-
verjinn Haller), sem einnig á
einn leik eftir á heimavelli. —
Sigri bæði liðin vinnur Inter
á hetra markahlutfalli — en
bæði liðin verða þó í Evrópu-
bikarnum næsta ár, þar sem
Inter sigraði þar nú. Þess má
geta, að Atlanta (lið Flemming
Nielsen) sigraði Inter í báð-
um leikjum liðanna f fyrra.
Á VlÐAVANGI
segir Ásgrímur: „íhaldsmennsk
an, eiginhagsmunasjónarmið og
skammsýnin vairð á einum tíma
ofaná. Fátt var gert, litlu til
kostnað. Framkvæmdir: skóla-
hyggingar, samkomuhús, nýjar
iðngreinar, fyrst og fremst til
atvinnu og tekjuöflunar fyrir
æsku sveitanna var að litlu
sinnt.“
Og í framhaldi af þessu spyr
bæjairstjórinn með stærra og
feitara letri: ,;HVAÐ, HEFUR
EITTHVAÐ BREYTZT?"
OHLIN LÝGUR
Framhald af 1. síðu.
Þjóðarflokksins, og Heckseher,
formaður íhaldsmanna.
Helztu atriðin í árásum stjórn
arandstöðunnar voru, að lögregl
an hafi þegar árið 1959 fengið
leyfi til þess að láta hlusta síma
Wennerströms og að hann hafi
þá þegar verið grunaður um
njósnir. Samt sem áður hafi rík-
isstjómin árið 1961 gert hann að
sérfræðingi í afvopnunarmálum
í sænska utanríkismálaráðuneyt-
inu sem að sögn laganefndarinn
ar, sem rannsakaði málið, gerði
honum léttara fyrir að njósna.
Ríkisstjómin svaraði því til,
að gmnsemdiraar á hendur
Wennerström hafi verið svo veik
ar árið 1961, að hún hafi ekki
getað neitað honum um þetta
starf. Sagði Andersson, að staða
hans í utanríkisráðuneytinu hafi
verið miklu hættuminni en staða
sú, sem hann hafði áður í vamar
málaráðuneytinu og staða sú,
sem hann sótti um. Andersson
sagði einnig, að hann hefði orð
ið fyrir hreinum ofsóknum af
hálfu stjórnarandstöðunnar fyrir
að hafa ekki rekið Wenner-
ström, og benti á, að ef hann
hefði gert það, þá hefði líklega
aldrei komist upp um njdsnar-
ann.
Formaður Miðflokksins, Gunn-
ar Hedlund, var miklu varkárari
í gagnrýni sinni á stjómina, en
Ohlin og Hecksoher fullyrtu, að
vamarmálaráðherra hefði gefið
rangar upplýsingar í þessu máli.
Anderson fór þegar í ræðustól-
inn og hrópaði:
— „Herra Ohlin veit ekki neitt.
Herra Ohlin hefur ekki lesið
lexíuna sína. Herra Ohlin lýgur.
Komið þér fram sem heiðursmað
ur og breiðið ekki út fleiri lyg-
ar í þessu máli, herra Ohlin!“
Bæði Andersson og Erlander
lögðu mikla áherzlu á, hversu
mikið ríkisstjómin hefði látið
uppi um þetta mál, og að slikt
væri einsdæmi í heiminum. Er-
lander benti einnig á, að það
væri mjög óvenjulegt, að ráð-
herrar létu yfirheyra sig, eins og
gerzt hefði í þessu máli.
Erlander var algjðrlega á
bandi Anderssons og kvaðst hafa
gert hið sama og hann og að
hann hefði ekki látið reka Wenn
erström úr starfi þegar grun-
semdimar gegn honum urðu
sterkari vorið 1962. Hann benti
einnig á, að lögreglan hefði ekki
krafist þess, að Wennerström
yrði sagt upp, og að hún hefði
samþykkt, að 'hann væri ráðinn
til utanríkisráðuneytisins 1961.
Margir ræðumenn hafa skrifað
sig á mælendaskrá og munu um-
ræðurnar taka nokkra daga. Víst
er talið að ríkisstjómin fari með
sigur af hólmi við atkvæðagreiðsl
una, því að bommúnistamir hafa
tilkynnt, að þeir muni styðja
hana. Einnig er hugsanlegt,, að
Miðflokkurinn verði klofinn í
málinu.
LOFTLEIÐIR
segir malfækið, og þa8 á svo
sannarlega vi8 í þessu sam-
bandi, þv[ auk þess sem Loft-
leiðir flytja nú í eigið skrif-
stofuhúsnæði, og taka á leigu
Flugvallarhótelið, þá er fyrrl
Rolls Royce flugvél þeirra að
ölium Ijíklndum lent f fyrsta
skipti hér á landi, þegar þú,
lesandi góður, lest þessar lín-
ur.
ESKIMÓABYGGÐIR
(Framhald af 2. síðu)
var að kortleggja þessar byggðir
árið 1934, og er því starfi haldið
áfram. En nú hefur Grænlands-
ráðið beðið þjóðminjasafnig um
að friðlýsa byggðirnar, svo að þær
menjar um menningu Eskimóa,
sem finnast á Grænlandi, geymist
þar óáreittar.
Bþróffir
mín. og átti Bergur Guðnason,
sem kom inn fyrir Ingvar, sem
meiddist snemma í hálfleiknum,
heiðurinn af markinu, en hann
lék laglega út að endamörkum og
gaf fyrir — og það var næsta
auðvelt verk fyrir Hermann að
skora 2:1,
Lítið var um góða knattspymu
í fyrri hálfleik, en Valur sýndi þó
öllu jákvæðari knattspymu. í síð
ari hálfleik snerist taflið hins
vegar alveg við — og þá vom Vals
menn mátaðir. Þróttarar mættu
mjög ákveðnir til síðari hálfleiks
og á 10. mín. náði Haukur Þor-
valdsson að jafna, 2:2. Og ör-
skömmu síðar, bætti Haukur
þriðja markinu við, þegar hann
skaut langt utan af kanti „jarð
arbolta“, sem Björgvin markvörð
ur missti klaufalega inn fyrir sig.
Þetta var meira en Valsmenn
þoldu og það sem eftir var voru
þeir í ,statista“Jhlutverkum. Þrótt
ur fékk að leika að vild og það var
satt að segja heppni Vals, að
Þrótti tókst einungis að bæta einu
marki við, en það kom á 30. mín.
og skoraði Ólafur Björgvinsson
það. _________
Ungur maður nýkominn frá
myndlistamámi í London held
á 16 myndum í Mokka. Mynd-
imar eru gerðar með vatnslit-
um þekjulitum og kolum og
HVERFISTlGI
Framhald af 2. síðu.
Þetta er fyrsti áfangi breyting-
anna í Hafnarstræti 93. Innan
skamms hefst svo síðari áfanginn,
sem er innrétting fyrir Herradeild
ina á fyrstu hæð hússins. En áður
þarf að flytja Búsáhaldadeildina
í húsnæði það, er Vefnaðarvöru-
deildin flutti úr.
Milil fyrstu og annarrar hæðar
í Hafnarstræti 93 mun verða sett-
ur upp hverfistigi, sá fyrsti norð-
an lands. En auk hans mun venju-
legur stigi tengja saman þessar
tvær deildir.
Deildarstjóri Vefnaðarvöru-
deildar er Kári Johansen en deild-
arstjóri Herradeíldar, sem starfað
hefur sem sérstök deild frá 1.
janúar s.l., er Björn Baldursson.
Þama vann Þróttur óvæntan
sigur, en fyllilega verðskuldaðan.
Eg hef oft séð Þróttar-liðið ná bet
ur saman en að þessu sinni —
og varlega skyldu liðsmenn taka
þennan sigur. Guttormur var góð
ur í markinu, en af sóknarmönn-
um bar mest á Hauki, Ólafi og
Axel, sem nú sýndi sinn bezta leik
í langan tíma.
Valsliðið má sannarlega fara að
athugá sinn gang. í fyrsta lagi
er augljóst, að liðið er úthalds-
laust — og auðvitað veit það
aldrei á gott. Varnarleikurinn, sem
hefur verið sterkari hlið Vals, var
ekki upp á marga fiska í leiknum
gegn Þrótti. Loks má benda á, að
sóknarmenn liðsins hafa ekki hinn
rétta baráttuanda. Það þýðir ekki
að leggja árar í bát, þótt á móti
blási. Meistaraflokksmaður á að
berjast í 2x45 mín. siðan getur
hann hvílt sig — og gert upp
reikningana. Hreint út sagt, léku
allir liðsmenn Vals undir getu í
leiknum.
Dómari var Steinn Guðmunds-
allar nýjar. Sigurjón Jóhanns-
son heitir listamaðurinn Sigl-
firðingur að uppruna, s-túdent
frá Menntaskólanum í Reykja-
vík 1959, hefur lagt stund á
myndlist hér í Handíða- og
myndlistarskólanum og dvaldi
við myndlistamám í London í
vetur. Sigurjón hefur teiknað
mikið í blöð hér heima og auk
þess teiknaði hann í Fauna
Menntaskólans í Reykjavík í
mörg ár. Myndin hér að of-
an er af Sigurjóni og tveimur
mynda hans á Mokka.
' ________(Tímamynd—KJ).
FÉKK ÞANN STÆRSTA
Framhald af 16. síðu. ,
fessor Bauer á veiðar í golf-
straumnum, sem liðast þarna
milli eyja og lands. Veiðarnar
þar eru stundaðar á stórum
bátum, og mikið undir skip-
stjóranum á bátnum komið,
hvernig gengur, því hann fer
í alls konar króka afturábak
og áfram, þegar fiskurinn hef-
ur tekið. Það var í þessari
veiðiferð, sem ég fékk þennan
524 punda sverðfisk. Sérslakur
veiðistóll er fyrir veiðimenn-
ina um borð, og em óíar spnnt
ar yfir bakið á þeim og í stöng
ina, enda betra þegar svona
stórir fiskar bíta á. Við veið-
amar notaði ég 7 feta fiber-
stöng með 130 punda línu, og
beitan var makríll í þetta
skiptið. Sverðfiskurinn, sem
ég veiddi, stakk sér á annað
hundrað metra, þegar hann var
búinn að taka, og í hvert sinn
sem tókst að ná honum upp á
yfirborðið, tók hann á rás. í
sjávarskorpunni stökk hann
svo í loft upp hvað eftir annað,
fjögurra metra langur og
rennilegur. Viðureignin við
þennan sverðfisk tók alls einn
og hálfan tima, og mátti varla
á milli sjá, hvor var þreyttari,
fiskurinn eða ég, þegar hann
var kominn í bátinn.
Nýja vélin kemur
FB-Reykjavfk, 28. maí
í fyrramálið klukkan 9 kemur
nýja flugvél Loftleiða til Kefla-
víkur, eins og skýrt hefur verið
frá í fréttum. Með vélinni koma
100 boðsgestir í boði Loftleiða,
þ. á. m. Thor Thons sendiherra og
frú, Hannes Kjartansson ræðis-
maður í New York og frú hans,
Ámi Helgason ræðismaður í
Chicago, Bjöm Bjömsson og frú
frá Minneapolis og Grettir Jó-
hannsson frá Winnepeg.
Nýja flugvélin verður öllum til
sýnis frá klukkan 4—6 á laugar-
dagseftirmiðdag, og mun hún vera
fyrir utan flugstöðvarbygginguna
á Keflavíkurflugvelli.
Lík Gunnars fundið
FB-Reykjavík, 28. mal
f dag fann froskmaður lfk Gunn
ars Finnbogasonar frá Bogahlíð
í Vestmannaeyjum. Gunnar hafði
verið að klifra í klettum við
Teistuhelli í Vestmannaeyjum,
þegar sjór reið yfir klettinn, og
tók Gunnar með sér, og dmkkn-
aði hann. Varðskipið Óðinn kom
til Vestmannaeyja með froskmenn
og hefur Gunnars verið leitað
nokkuð, og fannst hann að lokum
í sjónum undir klettinum í dag.
Innllegar bakklr sendi ég öllum þeim fjölmörgu, sem sýndu mér
samúð við fráfall og jarðarför sonar míns
Guðjóns Bernharðs Jónssonar,
Fáskrúðsfirði.
Svanhvít Guðmundsdóttir.
Maðurinn minn,
Sigurjón Ólafsson
frá Geirlandi,
lézt að morgni 27. maí.
Fyrir mína hönd, barna og annarra vandamanna.
Guðrún Ámundadóttlr.
Öllum ykkur mörgu, kunnlngjum, vinum og frændum, sem vottuðu
okkar hjartkæra bróður, mági og stjúpsyni,
Sigurbirni Sigurjónssyni
frá Krumshólum, virðingu og þökk við útför hans, og þeim, sem
á margan minnisstæðan hátt hafa tjáð okkur innilega samúð og
hluttekningu við hið sviplega fráfall hans, þökkum við af heilum
hug og blðjum allrar blessunar.
Kristján Sigurjónsson, Ása Eiríksdóttlr,
Guðlaug Sigurjónsdóttir, Jón Úlfarsson,
Finnbogi Haukur Slgurjónsson, Sigriður Ingimundardóttlr,
Guðrún E. Gísladóttir.
Framhalö af 1 siðu.
Og allt er þá þrennt er.
ur um þessar mundir syningu
T I M i N N, föstudagur, 29. mal 1964.
ts