Tíminn - 13.11.1964, Blaðsíða 6

Tíminn - 13.11.1964, Blaðsíða 6
18 TIMINN FÖSTUDAGUR 13. nóvember 1964 ,Þú bregður stórum svip yfir dálítið hverfi' . . . VIÐ ÓKUM af stað í sunnan roki og rigningu suður með sjó, en þegar nálgaðist Krýsu- vík, stytti upp og sólin braust gegnum skýjaþykknið á stöku stað. Hjá Herdísarvík áðum við, og þótt ekki skini þar sól þá stundina, var einkennilega lygnt í landi, en sjórinn reis oft hátt áður en hann féli í faðma við ströndina stutt neð- an við túnfótinn. Ekki höfðum við áður komið heim að bænum, sem skáldið og heicnsborgarinn Einar Bene- diktsson lét reisa þarna við hraunströndina aldraðui og Hlín Johnson ujó honum heim- ili síðustu æviárin, en okkur fannst túnið fallegur og hlýleg- ur blettur, þótt hraunið sé úf- ið í kring, og ýmsir hafa furð- að sig á, að skáldið hafi kosið að setjast að á svo eyðilegum stað. En þessi jörð hafði lengi verið í hans eigu, svo og Krýsu vík. Þarna er skammt i milli fjalls og fjöru, útsærinn ekki nema steinsnar frá stofuglugga skáldsins. Einar lét það ein- hvem tíma í ljós við kunningja sinn, að honum fyndist hann hafa ort eitt kvæði sæmilegt um dagana. Það var mörg ár í íimiðum, að því er Valgerður kona hans hefur sagt. — Að nokkru leyti mun það sprottið af æskukynnum hans við sjó- inn norðan lands, en það virð- Næstu grannar Einars þar syðra voru bændurnir í Selvogi, þeir litu oft inn til hans, og hann mat þá meira en marga svokallaða heldri menn og átti vináttu þeirra margra, þeir voru honum og Illín innan hand ar um ýmislegt, sem gera þurfti í Herdísarvík. Og þegar Einar var allur, báru bændurnir hann um há- vetur yfir Hlíðarvatn á ísi, fyrsta spölinn á leið í síðasta hvílustað. Þessir vinir hans eru nú flest ir á brott af jörðum sínurn, látnir eða fluttir til annarra byggða. En einn vissum við þó ist einnig að ýmsu leyti geta átt heima á þessum stað lands- ins, Herdísarvík, þótt fullskap- að og prentað væri nærri tutt- ugu árum áður en skáldið sett- ist þarna að. um, sem enn býr þar syðra, Snorra bónda Þórarinsson í Vogsósum, og þangað er ferð- inni heitið til að hitta hann að tnáli. — Hvenær hitturðu fyrst Einar Benediktsson? Var hann ekk’i að koma hingað suður áð- ur en hann settist hér að, þar sem hann hafði átt þessar jarð- ir tvær, Herdísarvík og Krýsu- vík, í mörg ár þar á undan? spurði ég fyrst Snorra í Vogs- ósum. — Ég hafði ekki hitt hann fyrr en hann fluttist hingað til Herdísarvíkur nálægt mið- sumri 1932, þegar búið var að ganga frá smíði íbúðarhússins, sem hann lét þá reisa þar. Hlín Johnson var þá komin þangað nokkru á undan honum til að fylgjast með smíði hússins og bjó á meðan í gamla bænum hjá Ólafi Þorvaldssyni, sem veríð hafði ábúandi jarðarinn- ar um hríð og fram að þessum tíma. Annars tók það stuttan tíma að byggja hús þeirra Ein- ars og Hlínar. Það kom að mestu leyti í flekum, sem smíðaðir höfðu verið í Reykja- vík og var mjög fljótlegt að koma húsinu upp hér í Her- dísarvík. — Hvernig kom Einar þér fyrir sjónir í fyrstu? — Mér varð strax starsýnt á manninn fyrir það, hve stór- glæsilegur hann var að vallar- sýn, og þó orðinn þetta rosk- inn, hár vexti, breiður og mik- ill um brjóst og herðar, and- litið frítt og skarpleitt yfir- bragðið, augun fögur og snör. Mér fannst hann þá bæði kátur og hress, svo sem hann var í við- móti löngum síðan, eiginlega fram á síðasta æviár. Og þó komst ég auðvitað að raun um það, að hann var orðinn lítil- fjörlegur til heilsu þegar fyrst eftir að hann kom til Herdís- arvíkur. En hann bar veikíndi sín af mikilli karlmennsku. Manni fannst það dálítið ein- kennilegt fyrst, að þegar þau Hlín fóru að ferðast á hestum, var Einar oft nokkuð kvíðinn áður en lagt var af stað. En svo eftir að hann var kominn á bak, var það allt horfið. Hann var eigínlega mjög duglegur að ferðast, hef- ur áreiðanlega verið mik- ill hestamaður. En þetta, að hann skyldi vera svona hálfragur að fara af stað eða á bak, það fannst mér skiljanlegt, þegar ég fór að athuga það. Þegar hann var sýslumaður á Rangárvöllum og fór eitt sinn ríðandi yfir Þverá að vetrarlagi, hrasaði hestur- inn með hann fram af ísskör. Einar skall þá svo illa á hnakknefið, að lær- beinið brákaðist. Eftir ræki- lega skoðun bannaði lækn- ir honum að sitja í hnakk, ef hann færi á hestbak, og lét Snorri bóndi í Vogsósum Einar sig hafa það að sitja í kvensöðli til að komast ferða sinna um sýsluna næst á eftir. Gerðu gárungar og andstæð- ingar hans sér mat úr þessu. En meiðslin gerðu Einari svo erfitt að ferðast á hestbaki, að hann lét af sýslumannsembætt- inu ekki löngu síðar. Ég gæti hugsað mér, að tregðu Einars til að stíga á hestbak þetta löngu síðar mætti rekja til þessa óhapps, þegar hesturinn hrasaði með hann fram af ís- skörinni á Þverá. En eins og ég sagði, þá hefur Einari horf- ið þessi tilfinning um leíð og hann var kominn á bak og sprett var úr spori. Við, sem ferðuðumst með honum og yngri vorum, urðum að hafa okkur alla við til að geta fylgt honum eftir. Það leyndi sér ekki, að honum hafði verið tamt að umgangast hesta og kunni á þeim tökin. — Fóru þau oft í útreið- arferðir úr Herdísarvík, Einar og Hlín, eða áttu þau eitthvað af hestum? — Hlín átti tvo hesta. En það var lítið um það, að þau færu í útreiðarferðir, nema helzt til að komast milli bæja, einna lengst upp í Hveragerði, þangað sem helzt var farið til að ná í bíl til Reykjavíkur. Ég man vel eftír einni ferð þangað upp eftir, rétt áður en Einar varð sjötugur og þau voru að fara í siglingu til út- landa, það var síðasta utan- landsferð Einars. Þetta var seint í október og við fengum mesta vonzkuveður á leiðinni uppeftir, slagveðursrigningu Útsær — þú ber mér lífsins sterkustu minning. Ég sé þig hvíla í hamrafanginu víðu, ég finn þig anda djúpt yfir útskaga grynning. Ofsinn og mildin búa þér undir bránni, þú bregður stórum svip yfir dálítið hverfi, þar lendingarbáran kveðst á við strenginn í ánni, en uppiit og viðmót fólksins tekur þitt gervi. Brim við Herdísarvík um veturnætur 1964. Tímamynd-KJ,

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.