Alþýðublaðið - 05.01.1956, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 05.01.1956, Blaðsíða 7
Fimmtudagnr 5. janúar lí)5ð AlþýgufalaSJg HAFNARFiRÐ! Napólí 10 i (Carosello Napoletano) Stœrsta dans- og söngvamynd, sem ítalir hafa gert til þessa. 40 þekkt lög frá Napóli eru leikin og sungin í myndinni t. d. O solo mio, St. Lucia, Vanþakklátt hjarta. — Allir frægustu söngvarar ítala koma fram í myndinni — t. d. Benjamino Gigli Carlo Tagliabue. Leikstjóri: ETTORE GIANNINE. Aðalhlutverk: Sophia Loren, mest umtalaða leikkona ítala í dag, sem sjáif var viðstödd frumsýningu á myndinni 9. des. s.l. í Osló. Myndin er í litum og hlaut „Prix Inter- national“ í Cannes, sem er mesta viðurkenning sem ein kvikmynd getur fengið. Danskur skýi'ingartexti. Myndin hefur ekki verið sýnd áður hér á landi. Sýnd kl. 9. H e i ð a Þýzk úrvals mynd fyrir alla fjölskylduna. Kvikmyndasnillingurinn Luigi Comencini gerði þessa mynd, e.n hann hefur og gert myndirnar Lokaðar dyr og Konur til sölu. Sýnd kl. 7. — Sími 9184. Allra síðasta sinn. Dskar áðaisíeinn Framhald af 4. siðu. játandi. En enn sem komið er, þá er þetta bara undirbúnings- starf — og þó orðin ársvinna, eftir því sem ég bezt veit. En undirbúningsstarfið er kannski erfiðasta og tímafrekasta vinn-1 an við hvert skáldverk. En ég ; tel mig nú loks hafa fundið þann tón, sem hæfir þessu verki. Þá er mikið fengið —. næstum því allt, þótt ég hins : vegar telji, að þetta nýbyrjaða ár nægi mér trauðla til að j ljúka sogunni. Annars veit mað ur ekkert fyrirfram um þessa hluti. En við skulum samt láta það bíða svolítið að ræða frek- ar um söguna að sinni.“ — Nær kom fyrsta skáidsag- an þín út? „Árið 1939. Það var „Ljósið í kotinu“. Síðan hef ég gefið út fjórar skáldsögur, eina minn- ingabók og eina unglingabók.“ — Það verður að teljast dá- lítið undarlegt, að þú njótir ekki rithöfunadrlauna af opin- beru fé eins og starfsbræður þínir flestir. Hvað viltu segja okkur um þetta? „Þetta er víst dálítið við- kvæmt mál fyrir suma. En það [ snertir mig ekki lengur neitt I bara bækur, heldur rödd lífs- ins. Rödd þessarar bókar, ljós hennar og tónn, varð mér mik- ill aflgjafi til ritstarfa. Síðan þá hefur mér ævinlega þótt það svolítið þungbært, ef ég hef orðið að leggja pennann á hilluna um lengri tíma.“ Gestur. Sameiningin óþægilega, þótt „nefndin11 sjái ekki ástæðu til að bera á mig fé árlega. Ég er að sjálfsögðu ekki dómbær um það, hvort rit störf mín séu það ágæt, að sjálfsagt sé að ég hljóti fvrir þau styrk af opinberu fé. Ann- ars varð ég ákaflega sár fvrst, þegar styrkur til mín var felld- ur niður, og ræði ég ekki frek- ar um það. En ekki vildi ég vera í þessari nefnd — hvað svo sem í boði væri. Þetta verk verða samt einhverjir að vinna. Og okkur ber að þakka þeim, sem taka það að sér hverju sinni. Og nú skal ég trua ykkur fyrir því, að næst þegar ég fæ styrkinn, þá hef ég hugsað mér að gera mikil bókakaup. Þessi yfirlýsing mín gæti að sjálf- sögðu haft sín heillavænlegu áhrif fyrir mig, ef bóksali yrði einhverju sinni valinn í nefnd- ina.“ — Langar þig til að segja eitthvað fleira? r7 „Já, eitt enn. Það urðu svo- lítil jól hér í Galtarvita, þegar útvarpið sagði okkur, að Hall- dór Laxness hefði hlotið bólc- menntaverðlaun Nóbels fyrir árið 1955. Ég hafði enga bók slcrifað, þegar „Ljós heimsins“ kom út. En þegar ég hafði les- ið þessa bók, þá fann ég það fyrst, að góðar bækur eru ekki (Frh. af 5. síðu.) á verði og tryggt það, að verka- menn hljóti þann skerf, sem þeim ber, af hinum aukna gróða, sem tækniframfarirnar hafa leitt af sér. Á ráðstefnu sambands félaga í bifreiðaiðn- aðinum, sem haldinn var í Cleveland s.l. vetur og ég sótti sem gestur, var ræddur sá mögu leiki, að innan skamms myndi vinnuvika starfsmanna í iðnað inum stytt úr 40 stundum í 35 stundir, sökum þess hve tækn- inni í framleiðslu bifvéla hefði fleygt fram á síðustu árum, og yrði slíkt þá auðvitað gert án þess að kaup raskaðist á neinn hátt. ÞRÓTTMIKIÐ FÉLAGSSTARF Á ferð minni um Bandaríkin s.l. vetur og vor fékk ég tæki- færi til þess að heimsækja mörg verkalýðsfélög og vinnustaði víðs vegar um landið. Það, sem mér fannst vera mest einkenn- andi fvrir starfsemi félaganna, var hið fastmótaða skipulag þeirra og hið þróttmikla fræðslu og upplýsingastarf, sem einnig virtist einkar vel skipulagt og lifandi. Var auðséð, að félögin og samböndin lögðu mikla á- herzlu á þessa starfsemi og skáru f járveitingar til þess ekki sérlega við nögl. Þá var engu síður athyglisvert að kynnast því, hve mikil vinna sérfræð- inga var lögð í að fylgjast með þróun þess iðnaðar og fyrir- tækja, sem einstök félög hafa kaup- og kjarasamninga við. Var það gert af slíkri nákvæmni og kunnáttu, að mikið má vera, ef sumir stjórnendur viðkom- andi fyrirtækja gætu ekki af því lært. Einn verkalýðsleiðtogi sagði við mig: „Þessi liður í starfi okkar er mjög mikilvæg- ur. Það eru okkar hagsmunir, að fyrirtækin standi traustum fæti og séu vel rekin, ella get- ur atvinna okkar verið í hættu. Einnig byggjast kröfur okkar um bætt kjör og hærri laun að mjög miklu leyti á þessum rannsóknum.“ Fimmfugur (Frh. af 5. síðu.) lægur vinur vina sinna. Þeir eru orðnir ótrúlega margir, sem notið hafa hinnar miklu greið- vikni og hjálpsemi Hannesar í skiptum sínum við afgreiðslu ríkisskipanna. Kvæntur er Hannes Sigríði Ilannesdóttur, og hafa þau hjón bæði tekið drjúgan þátt í félagsstörfum bæði í Alþýðu- flokknum og verkalýðshreyf- ingunni. í kvöld verður Hannes áreið anlega hrókur alls fagnaðar í góðra vina hópi á hinu myndar lega heimili þeirra hjóna að Meðalholti 9. Hafðu svo mínar innilegustu hamingjuóskir með kæru þakk læti fyrir margar glaðar stund- ir. Kristján Guðmimdsson. Hátíðarrit tileinkað próf. Holtsmark Frá félaginu Ísland-Nor- egur hefur blaðinu borizt eftirfarandi tilkynning: „PRÓFESSOR dr. Anne Holtsmark, sem mörgum ís- lenzkum fræðimönnum er að góðu kunn, verður sextug á vori komanda. í tilefni af því ætla nemend- ur hennar og vinir að gefa út hátíðarrit, sem verður tileinkað henni sem prófessor og fræði- manni. j Gert er ráð fyrir að rit þetta jverði um 200 bls. og kosti um n. kr. 27,00 til áskrifenda. Titill bókarinnar verður: Studier i norrön diktning. Þeir fræðimenn og aðrir hér á landi, sem kunna að óska að gerast áskrifendur að hátíðar- riti þessu og vera þannig með að heiðra prófessor Önnu Holts- mark á 60 ára afmæli hennar, eru beðnir að gefa sig fram við formann félagsins Ísland-Nor- egur án tafar, svo að hægt verði að skrá nöfn þeirra meðal þeirra, sem að útgáfu hátíðar- ritsins standa (Tabula gratulor- ia). Tími er mjög naumur til að koma þessu í kring, og er því áríðandi að skráning nafnanna dragist ekki.“ Kosningarnir (Frh. af 1. xíðu.l ræddi við blaðamenn í París í gær. Kvað hann nauðsyn á að mynda stjórn þjóðlegrar sam- fylkingar, er hefði innan sinna vébanda fulltrúa allra flokka nema kommúnista og poujad- ista. Kvað hann verkefni slíkr- ar stjórnar mundu verða að end urskoða stjórnarskrá landsins með tilliti til þess að treysta lýðveldið í landinu, annars væri það í bráðum voða. Þá kvað hann stjórnina verða að taka landvarnarmálin til athugunar og sömuleiðis Algier-málið. Ekki kvaðst hann vilja taka að sér forstöðu ríkisstjórnar. Brynjólfur Valdimars- son Selfossi sextugur SELFOSSI í fyrradag. SEXTUGUR varð á nýársdag Brynjólfur Valdimarsson oíl- stjóri frá Sóleyjarbakka í Hrunamannahreppi. Mun hann vera elzti starfandi bílstjóri hjá hinum stóru fyrirtækjum á Selfossi. Brynjólfur nýtur trausts og vináttu allra, er til hans þekkja, enda félagslynd- ur, greindur og gegn maður. Hann hefur um árabil verið for maður stéttarfélags bílstjóra hér og verið fulltrúi þess heima og heiman. Þá hefur hann einn ig verið starfandi í kirkjukórn- um og starfað þar sem annar staðar af lífi og sál enda söng- maður góður. Brynjólfur er giftur Lilju Eiríksdóttur, ætt- aðri úr Borgarfirði, ágætri konu. Félagar Brynjólfs og vin ir óska honum og konu hans heilla og blessunar á þessum merkilegu tímamótum í lífi hans.. G. J. S SamúSarkort v Slysavarnafélags íslairds) hjá um S S Reykjavík i ^ kaupa flestir. Fást slysavamadeildum land allt. í Hannyrðaverzluninrri »^ Bankastr. 6, Verzl. Gunn-^ þórunnar Halldórsd. og í\ skrifstofu félagsins, Gróf- s in 1. Afgreidd í síma 4897. S Heitið á Slysavarnafélag- S ið. — Það bregsi ekkL —S - — sDvalarheimili ádra&a^ sjómanna, ? Minningarspjöld fást hjá: C, Happdrætti DAS, Austur- S stræti 1, sími 7757. S Veiðarfæraverzlunin Verð-S andi, sími .3786. V Sjómannafélag Reykjavík-!? ur, sími 1915. Jónas Bergmann, Háteigs- • vég 52, sími 4734. ý Tóbaksb. Boston, Lauga- ^ vegi 8, sími 3383. v, Bókaverzl. Fróði, Leifs- s götu 4. S Verzlunin Laugateigur, S Laugateig 24, s'mi 81666.. Ólafur Jóhannsson, Soga-1? bletti 15, sími 3096. ^ Nesbúðin, Nesveg 39. ^ Guðm. Andrésson gull- ^ smiður, Lvg. 50, s. 3769. (j í Haínarf irði: s Bókaverzl. Vald. Long., \ sími 9288. N Mintilngarsp|öld v V Barnaspítalasjóðs Hringsins > V eru afgreidd í Hannyrða- r Cverzl. Refill, Aðalstræti 12^ S(áður verzl. Aug, Svend- ý Ssen), í Verzluninni Víctor, C S Laugavegi 33, Kolts-Apé- S S teki, Langholtsvegi 84, S Werzl. Álfabrekku við Suð-S S urlandsbraut og Þorsteins-S Smurt brauð ogs snittur. t Nestispakkar. < Ódýrast og bezt. Vin-^ samlegast pantið með ^ fyrirvara. Matbaiisa, Lækjargötu 6 B Sími 80340 Hús og íhúir s s s s s -s s s > af ýmsum stærðum ÍS bænum, úthverfum bæj- S arins og fyrir utan bæinnS til sölu.-liöfum einnig ^ til sölu jarðir, vélbáta, ■ bifreiðir og verðíiréf. ^ Nýja fasteigna saian, ^ Bankastræti 7. i Sími 1518. ÚTBREIÐIÐ ALÞÝÐUBLAÐIÐ! í s s * s Hafnarfjariíar Vesturgöfu 6. Sími 9941. Heimasímar: »192 og 9921

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.