Vísir - 25.07.1914, Blaðsíða 1

Vísir - 25.07.1914, Blaðsíða 1
 Laugard. 25. júlí 1914. Háfl. kl. 6,54‘ árd. og kl. 7,13'síðd. A f m æ 1 i: Frú Guðrún Pjetursdóttir. F.ggert Briem, skrifstofustjóri. Helgi Zoega, kaupmaður. Júlíus Árnason, verslunarm. Sig. Sigurðsson. dbrm. Tómas Tómasson, slátrari. Á MORGUN: A f m æ 1 i: Jón Brynjólfsson, kaupmaður. Rich. Braun, kaupmaður. Póstaáætlun: Ingólfur fer til Borgarness. gblol bTogra'ph" THEATER. Sími 475. IFjöruga greifadóttirin. 1 Fyrirtaki þýskur gamanleikur í Iþáttum. Aðalhlutverkiö Jeikur besta kvik- Ímyndaleikkona Þýskalands Henny Porten. Aukamynd: Basso undra api. Hlægilegt. Þetta eru myndir, sem öllumii mun þykja gaman að. I SÍ!S!?Í**,ÍÍ venjulega tilbúnar á Hverfisg. 6. Fegurð, verð og M gæði undir dómi almennings. — icasB Sími 93. — Helgi Helgason. U R BÆNUM Brjefspjald af austfirskum sagnaþul Jóhannesi Árnasyni hef- ur Rikarður Jónsson mynd- höggvari látið gjöra eftir einni af sínum góðu teiknimyndum er hann gjörði á ferð sinni um æsku- stöðvar sínar í fyrra sumar. Jóhannes sá, er myndin er af, er sagður einkennilegur karl og margar smásögur eftir honum hafðar. Ríkarður hefur í hyggju að gefa út fleiri brjefspjöld afís- lenskum andlitum, sem hann hef- ur teiknað og hafa sjerstök ein- kenni. Er þetta hið fyrsta. Fæst á afgr. Vísis. Ceres fór í gærkveldi til Vest- urlandsins. Meðal farþega: þorv. próf. Jónsson, frú Kristín þor- valdsdóttir, Brynj. stud. Kjartanss. öll frá ísafirði. Sjera Sig. Jenson TILBOÐ. Óskað er eftir tilboði á uppskipun á kolum. það er tilskilið, að ekki sje skipað upp minnu en 200 tonn- um á dag. Tilboðin skulu komin mánudagskvöld kl. 6, þann 27. þ. m. Uppl. þessu viðvíkjandi gefur SassVóB frá Flatey, þorst. Gislason ritstj. o. fl. Sterling fór til útlenda í gær- kveldi. Meðal farþega: H. Erkes frá Köln með frú og dóttur, Edelbo stabskapt. með konu og börn, og margir fleiri útlendingar. Sr. Jóhann Þorkelsson dóm- kirkjuprestur hefur dvalið rúma viku á Þingvöllum sjer til upplyftingar. Kom þaðan í gærkveldi. Messur í Fríkirkjunni á morgun kl. 12 sr. Bjarni Jónsson og kl. 5 próf. Haraldur Nielsson. PrinsFriedrich Wilhelm skemti- ferðaskipið mikla frá Nord-deutsche Lloyd í Bremen kemur seint í kveld og dvelur hjer til mánudagsmorguns- j Farþegar freklega 400. Hjeðan fer skipið norður að heimskautaísnum og þaðan til Spitsbergen. Sjómerki verður sett upp 1. ágústyst á Batteríisgarðinn. Verða það 2 rauð Ijós annað 2 stikur yfir pall og hitt stiku þar yfir. Guðrún Gestsdóttir yfirsetu- kona í Hafnarfirði hefur fengið leyfi stjórnarráösins til nuddlækninga. , Hjálpræðishers- foringarnir. Eins og Vísir hefur áður getið um er stabskapteinn S. Grauslund skipaður forstjóri Hjálpræðis- hersins hjer á landi um fimm ára tímabil. Stabskápteinninn og frú hans eru gamlir og reyndir foringjar. Síðast liðið ár veittu þau deild hersins á Sjálandi, Lálandi og Falstri forustu og var allmikið látið af þeim þar. Miklum fram- förum hafði starf hersins tekið í umdæmi þeirra þessi síðustu ár og gera því allir sjer góðarvon- ir um framför hersins hjer á landi undir stjórn þeirra. Margt og mikið er öðruvísi hjer en í Danmörku og fá þau marga örð- ugleika við að glíma hjer, sem þau ekki urðu vör við þar, en jafnframt losna þau við ýmsa örðugleika hjer, sem þau höfðu þar. Við óskum þeim heilla og og blessunar á komandi dögum og æskilegt væri að verutími þeirra hjer yrði sigursæll Hjálp- ræðishernum til handa og þar af leiðandi almennigi til gagns. Á. J- Efri deild. R æða Guðmundar Björnssonsar í borgarstjóramálinu í gær. Hjer er enn á ný farið fram á aS taka borgarstjórakosninguna í Rvík út úr bæjarstjórninni og hleypa því vandamáli bæjarins út í óvissuna, undir atkvæði allra kjós- enda, þó aS engurn geti dulist, aS miklum meiri hluta allra kjósenda getur aldrei veriö líkt því eins kunnugt um þarfir bæjarins og ætlunarverk borgarstjóra eins og bæjarfulltrúunum, sem vinna í sí- fellu aö öllum vandamálum bæjar- ins og borgarstjórinn þeirra fram- kvæmdarstjóri, líkt og ráöherrann andspænis alþingi. En þessi strekkingur gengur nú hjer á þingi ár eftir ár, og er síst fjarri sanni um þann gust, aö eng- inn veit hvatSan hann kemur eöa hvert liann fer. Menn h a 1 d a víst allir, að þessi stroka standi innan úr Skugga- hverfi, ofan úr Þingholtum og ut- an úr Ánanaustum, — aö bæjar- menn liafi fundiö þetta upp sjálf- ir. En það er ekki kollgáta. Þessi vindblika er lengst út í hafsauga, lengra en auga eygir. Þaö var fyrir 7 árum þegar borg- arstjórinn kom til, þá sögöu nokk- urir ákafamenn, jeg og nokkurir aörir bæjabúa, aö þa'S væri siöur í frjálsustu löndum, aö öll alþýöa kysi í bæjum borgarstjóra sinn og 5Vev^av\kut Vonarstræti. Pantanir um bifreiðir að eins gildar á skrifstofunni. Sími 405. svona ættum viö að hafa það, og óöar kvaö við úr öllum h.verfum bæjarins: „Já, vitanlega, svona eigum viö að hafa þaö, kjósa hann sjálfir, þeim er aldrei trúandi til þess í bæjarstjórninni.“ Þetta voru upptökin. Kenningin er aðflutt. Hún fjell strax í faöm- inn á þeirri heimskunnu ástriöu, allra kjósenda, aö hver þeirra trú- ir sjálfum sjer til alls, en fulltrú- um sínum aldrei til neins. Jeg var einn af þeim, sem krafð- ist þess í fyrstu, að viö kjósendur veldum sjálfir bæjarstjórann — heimtaöi þaö eins og aörir, án nán- ari ihugunar; þaö vantaöi ekki að því væri laumað að mjer hjerna í fyrra. En jeg sagði þá og segi ]>að enn og aftur, jeg kann að skammast mín fyrir sjálfum mjer, ef jeg geri glappaskot; síöan jeg vitkaöist hef jeg átt í því látlausa skynsemisstríði aö lagfæra og um- bæta skoðanir mínar; á ekki því láni að fagna, aö vera skynlaus eins og skepna eöa sáluhólpinn í blindri trú á þaö, sem allir segja og allir vilja eins og — eins og þeir, sem það eru. Og þvi fór nú svo: Við nánari ihugun sá jeg aö mjer hafði skjátl- ast í þessu borgarstjóramáli — sá að sterk rök mæltu með því, að bæjarstj ó r n veldi manninn. Og mjög margir bæjarbúar eru nú sama sinnis — ánægöir með þaö sem er. En þaö má vel vera, að hinir sjeu fleiri, og kanske rniklu fleiri, sem hafa ekki enn h u g s a ö þetta vandlega og lifa enn í trúnni á sjálfa sig, i þessu máli, eins og mörgum öðrum. Jeg á hjer viö þá nýju alheimstrú, sem viö allir játum meir eða minna, tröllatrú allra kjósenda á ráðdeild sína og alvisku andspænis glópsku og djöfulskap allra sem þeir sjálfir kjósa úr sinum hóp og fyr- ir sína hönd — hvort heldur er í sveitastjórn, bæjarstjórn eöa á þjóöarþing. Þessi mikla trú kjósenda á mátt sinn og megin er alls engin hje- gilja, hún er bygð á fullum rök- um reynslunnar, þjóðræðisreynsl- unnar, annars væri hún ekki orðin að alheimsátrúnaði. í æsku þjóð- ræðisins hugsuöu kjósendur með fögnuöi til þess, að mega kjósa sjálfir bestu menn til að ráöa fyr- ir sig. En þeir hafa kvekst illilega, hvergi megnað aö vara sig á mis- endismönnum, sem lofa öllu fögru Framhald á 4. síöu.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.