Vísir - 27.07.1914, Blaðsíða 1
U6Ö
Besta
verslunin í bœnum hefur síma
%\\.
Reykjavfkur
lcW\0| BIOGRAPH
THEATER.
Sími 475.
Fjöruga
greifadóttirin. .
Fyrirtaki þýskur gamanleikur í|
þáttum.
j Aðalhlutverkið leikur besia kvik-
myndaleikkona Þýskalands
Henny Porten.
Aukamynd:
Basso undra api.
Hlægilegt.
Þetta eru myndir, sem öllum
mun þykja gaman að.
s
B Fkklstur fást venjulega tilbúnar
I á Hverfisg. 6. Fegurð, verð og
1 gæði undir dómi almennings. —
ian Sími 93. — Helgi Helgason.
*
Slys á Iþróttavellinum. Þeg-
ar lokið var veðreiðunum fyrir
þýsku ferðamennina á íþróttavellin-
um í gær, voru nokkrir piltár að
ríða sjer til gamans í kring um
völlinn. Mæltust þá tveir hópar á
spretti, og sló 4 hestum saman í
bendu og duttu allir samstundis.
Haföi það verið all-ægilegt á að Iíta,
segjasjónarvottar. Af piltunummeidd-
ist þó ekki nema einn lítið
eitt, en tveir hestarnir drápust, annar
samstundis, en hinn nokkru síðar.
Hinir tveir hestarnir höfðu líka
meiðst nokkuð, og er haldið, að það
verði að drepa annan þeirra.
|[ Sfaifcfettxt. 1
Akureyri í gær.
Botnvörpuskipin hafa veitt af
síld:
Snorri Goði 900 tn.
B a I d u r 450 —
Helgi Magri 1500 —
Tunasláttur er Iangt kominn í
Eyafirði, en hálfsmánaðar óþurkar
hafa gert að lítið er komið inn af
heyi. Túnin voru sprotfin í með-
allagi.
Sjódómur stendur yfir í máli
milli Snorra Goöa og Súlunnar.
Þau rákust nýlega á úti í firöi og
brotnaöi bátur og rifnaði nót af
Snorra. Skipin höföu bæði verið
að elta síldartorfu. Skipstjórarnir
kenna hvor öðrum um áreksturinn.
Mikil vitnaleiðsla.
Lik Þorv. Guðnasonar, sem
getið er um í 1088. tbl., er nú
fundið. Hann hafði fariö einn á
bát út í hákarlaskip, er lá mann-
laust á höfninni, til þess að dæla
úr því sjó. Hefur líklega fallið út-
byrðis, en var ekki syndur.
Þorskafli á þilskip og vjelbáta
er orðinn í betra iagi.
\%
Ferðalöö:
og sumardvalir
í sveit takast best ef menn
nesti sig í
Nýhöfn
Mánud. 27. júlí 1914.
Stríðið byrjað
Kaupmannahöfn og Hamborg í gær.
Sendiherra Austurríkis í Belgrad hefurathent Serbastjórn skjal
eftirfarandi efnis:
Samkvæmt játningu banatilræðismanna erkihertogans er það
ljóst orðið, að morðingjarnir hafa fengið skipanir sínar frá Belgrad
og að þeir hafa fengið sprengikúlur sínar fró serbneskum liðsfor-
ingjum og að þeir hafa fengið flutning á sjálfum sjer og vopnum
sínum hjá serbneskum landamæravörðum.
Skjalið heimtar að Serbastjórn skuldbindi sig til að bæla niður
alt hjá sjer, er mælir bót glæpnum, og láta stjórnarblöðin og her-
stjórnina birta orðrjettar yfirlýsingar, sem Austurríkis-stjórn hefurstílað.
Ennfremur heimtar skjalið, að hafin sje hin strangasta rannsókn
í Serbíu gegn samsærismönnunum frá 26. júní undir tilsjón austurrískra
rannsóknardómara og að vissir menn sjeu teknir fastir og að vikið
1 sje frá stöðu sinni ýmsum liðsforingjum og embættismönnum. Enn
fremur skal hin strangasta gæsla höfð á launflutningi sprengitóla og
skotvopna og að hegnt sje ýmsum landamæravörðum fyrir skeyt-
ingarleysi.
Svar við þessu skjali heimtaði Austurríki, að komið væri til
sendiherrans kl. 6 í gærkveldi.
Skjal þetta hefur Austurríki látið sendiherra sína birta öllum
ríkisstjórnum Evrópu. Segist stjórnin ekki gjöra þetta til þess að
troða illsakar við Serba, heldur til þess að gæta sóma síns. Vonast
hún eftir að Serbar bregðist rösklega við þessu, svo að alt fái frið-
samlegan e.nda.
Blöð Serba mótmæltu kröftuglega, að svona stuttur frestur
skyldi vera gefinn til andsvara.
Stjórnarblöðin í Pjetursborg töldu Rússa ekki geta staðið hlut-
lausa, ef til ófriðar kæmi, og reyndi Rússastjórn til að fá frestinn
lengdan.
Parísarblöðin halla á Austurríkis-menn, en þýsk og ítölsk blöð
mæla þeim bót.
Fáum mínutum áður en útrunninn var fresturinn (kl. 6 í gær-
kveldi, laugard.) kom P a s h i d, forsætisráðherra Serba, til sendi-
herra Austurrikis -manna, en með því að hann gaf aðeins ófullnægj-
andi svör, sagði sendiherrann slitið „diplomatisku“ sambandi ríkjanna
og fór með alla sína starfsmenn burt úr borginni hálftíma síðar. Hóf
Austurríki þá þegar ófriðinn. Serbastjórn fiúði í
dag frá Belgrad og er borgin varnarlaus. Stjórnar-
aðsefur er nú Kragujevac sem er inni í miðju landi (litlu
stærri borg en Reykjavík).
BIfrá únðNDOHg:
Hermdarverk
atkvæðakvenna.
Þau yrði oflangt mál upp að telja
Það er hið síðasta, að þær gerðu
tilraun til að kveikja í og sprengja
í loft upp hús það, er skoska skáld-
ið R o b. B u r n s var fæddur í.
Hafa Skotar miklar mætur á þeim
stað og halda húsinu í því horfi,
er var á Burns dögum. Voru tvær
konur að þessu verki og náöist
önnur þeirra, en hin flúði. Dýrmætar
myndir eru þær öðru hvoru að
skemma og valda fleiri spjöllum
þar er þær fá því við komið. Frú
Pankhurst, aðalhetja þeirra at-
kvæðakvennanna bresku, var tekin
höndum 8. þ. m. enn einu sinni
og flutt í Halloway-fangelsið. Er
mælt að nú verði hún ekki laus
Iátin að sinni, hvernig sem hún
Iætur, verði mötuð með valdi og
hótunum alkvæðakvenna að engu
skeytt.
-1
mBtíXXÓ
Italskir stigamenn.
Því fer fjarri að illræmdir stiga-
menn sjeu undir lok liðnir á fjöll-
um S a r d i n i u og S i k i 1 e y a r.
Enn er þar allt fullt af útilegumönn-
um og þótt einhvern náist að hand-
sama, rísa aörir óðar upp. Upp á
síðkastið hefur kveðið allmjög að
óskunda þeirra í Sardiniu og mörg
| morð verið framin. Liggur til þess
saga sú er hjer segir. Systkyn tvö
Fyrst um sinn verða að öllu
forfallalausu farnar fastar ferð-
ir frá Reykvík austur yfir fjalí
Mánudaga, Miðvikudaga og
Föstudaga. Lagt af stað frá
ÍReykjavík kl. 9. f. m.
Pöntunum austan fjalls verð-
ur veitt móttaka við Ölfus-
árbrú hjá stöðvarstjóranum-
þar, en í Reykjavík á skrif-
stofunni-
Antonio Corraine ogOio-
vanna Cossu áttu heima fyrir
nærri 8 árum í suðvesluriiluta Sar-
diniu, þar sem heitir O r g o s o 1 o,
en þar hefur Iöngum verið nafn-
kent útilegumannabæli.
Þau systkyn áttu gamlan frænda,
Diego Moro, sem mælt er að
hafi nælt sjer í allmikinn auð með
stigamennsku.
Þegar Moro dó, arfleiddi hann
Giovönnu Cossu frainku sína að
2|3 hlutum eigna sinna, en að
hluta Antonio Corraine bróður henn-
ar, og þótti bæði honum og fólki
hans það allt of lítið og ranglátt
skift. Stakk þá Antonio upp á því
að C a r m i n e sonur sinn skyldi
kvænast dóttur systur sinnar, »svo
peningarnir gengju ekki úr ættinni.*
En systir hans setti blátt bann
fyrir þennan ráðahag. Grimmdar-
hatur varð milli ættkvíslanna og
Ieið ekki á löngu áður en blóðs-
úthellingar fóru á'eftir hótununi.
Árið 1907 lenti þeim í flldeilum
Carnrine og Egidio Poddu
frænda Cossufólksins og lauk svo
að Carmine fannst skotinn til bana
þar sem hann sat yfir hjörð sinni.
Poddu var grunaöur,tekinn höndum,
en látinn laus af því að dómarinn
komst að þeirri niðutstöðu að vígið
hefði verið honum Iögmæt neyðar-
vörn.
Nú var það almannarómur, að
peningar og áhrif Cossu-fólksins
hefði ráðið hjer dómsúrslitum, og
Corraine-fólkið, sem ekki gat lög-
lega ráðið rjettar síns, rjeð af að
hefna harma sinna.
Þá var skoliinn laus. Tveir menn
af Corraine-fólkinu, O u o r a t u
Succu og Francesco De-
v a d d i s fóru til fjalla lögðust út
og urðu háskalegir stigamenn.
Þeir sprengdu hús Cossu’s í loft
upp með dynamiti. Var nú bæði
lögregla og hersveit á hælum þeini,
en þeir náðust ekki, því hjer fór
sem oftar á Ítalíu, að stigamennirn-
ir nutu verudar og hjálpar allra ná-
granna sinna; þeir kunna tökin á
að koma sjer vel viö þá.