Vísir - 13.02.1918, Blaðsíða 3

Vísir - 13.02.1918, Blaðsíða 3
VlSlL. Regnkápur nýkomnar í stóru úrvali fyrir karlmenn, nnglinga og drengi. NB. Mínar góðkunnu Ullar-Waterproofs-kápur hafa reynst bestar og þolað best islenska veðráttu. Jafngóðar í frosti sem regni. L I. Möller, &nstnrstræti 7. að herða. Og saga Finnlands síðasta árið mun vebja undrun og skelfingu heimsins yfir því sem fram hefir farið í einu af menningarlöndum heimsins. Það sem hér fer á eftir er skrifað af nákunnugum manni,- sem segir frá því sem hann hefir sjálfur séð. 3?egar stjórnarbyltingin hófst i Bússlandi, voru 200 þúsund rússneskir hermenn á víð og dreif um alt Finnland. Uessir hermenn hafa alt af verið Finn- um þyrnar i augum, en eftir að stjórnarbyltingin hófst, heraginn hvarf og herdeildirnar leyst.ust upp, urðu þeir hiu versta land- plága, og eru þeir valdir að öll- um þeim hörmungum, sem síð- an hafa dunið yfir landið. Óöldin hófst með því, að her- mennirnir gerðu uppreist gegn yfirmönnum sínum, eltu þá um götur borganna og drápu þá, stungu þá með byssustingjunum eða rotuðu með byssuskeftunum, um hábjartan daginn. Engum var hlíft. Aldraðir hershöfð- ingjar voru drepnir í návist fjöl- skyldu sinnar. Blóðið rann bób- staflega í lækjum um göturnar. Manndrápararnir gengu í hóp- um um götur og torg og báru lík hinna myrtu á byssustingj- unum sem sigurmerki. Hræjun- um var siðan varpað í djúpa kjallara — þar gátu skyldmenni hinna myrtu síðan ieitað að þeim í blóðugri kös af mannabúkum. 3?egar gengið hafði verið af öllum liðsforingjum dauðum og við sjálft lá, að morðiAgjarnir réðust hver á annan, mynduðu þeir „hermanna- og verkamanna- ráð“ að dæmi Bússa, og tók það ráð í sínar hendur alla æðstu stjórn Finnlands, herstjórn og borgaralega stjórn. Maður, sem unnið hafði i sykurverksmiðju, en á sínum tíma verið dæmdur í fangelsi, var gerður að forseta, en nítján vetra gamall sjómaður varð varaforseti. Nú byrjaði ráðið að „stjórna“. Stjórnin settist að í keisarahöll- inni, en hafðist ekki síður við á veitingastöðum, sem það orð lá á, að hefðu góðar vintegundir á boðstólum. Skríllinn dansaði og drakk nótt og dag. Laun her- mannanna hrukku ekki fyrir út- gjöldunum, en þeir veittu sér launaviðbót, sem 25-faldaði kaup- ið. En það hrökk samt ekki til, og þá byrjðu rán og innbrot, sem síðan voru daglegir við- burðir. 3?að bætti ekki ástand- ið, að glæpamenn, sem slept hafði verið úr hegningarhúsum, voru gerðir að lögregluþjónum. Loks tóku hinir róttækustu „jafnaðarmenn11 Finna höndum saman við þennan rússneska hermannaskril, gerðu bandalag við Maximalista í Bússlandi og varð ávöxturinn af því hin ill- ræmda „rauða hersveit“, og óöld sú, sem verið hafði í landinu, var hreinn barnaleikur hjá því, sem nú tók við. Markmiðið var rað kæfa alla mótspyrnu og gera öllum siðuðum mönnum ólíft í landinu. Fyrst var öllum búð- um lokað; síðan öll samgöngu- tæki stöðvuð; þá var öllum morð- ingjum og ræningjum hleypt út úr hegningarhúsunum. Nú var ekki verið að drepa herforingja í hefndarskyni, það var ráðist á hvern sem var; nú voru menn drepnir til f]ár eða bara morð- ingjunum til dægrastyttingar og VíHii* ©r elsta og besta dagblað landsins. mönnum var misþyrmt, alt án þess nokkur skifti sér af þvú Bauða hersveitin fór í ránsferðir um borgirnar og út á landsbygð- ina og tók fjármuni manna og matvælaforða með valdi. Gflæpa- mennirnir réðu lögum og lofum í landinu, og hin voðalegasta hungursneyð, sem sögur fara af á síðari öldum, svarf að alþýð- unni. Allir hinir betri menn höfðu verið sem lamaðir af þessum ófögnuði, en loks risu þeir upp, tóku höndum saman og mynd- uðu hina „hvítu hersveit", sem siðustu mánuðina hefir átt í höggi við þá rauðu. En enn er ekki óöldinni lokið, þó að svo virtist um það leyti, sem lýst var yfir sjálfstæði Finnlands og leitað viSurkenningar annara ríkja. Síðustu símfregnir segja, að „rauða hersveitin" hafi enn yfirhöndina í Helsingfors. Og svo er sagt í síðustu erlendu blöð- um, sem hingað hafa borist, að á dánarskýrslum sé algengasta dauðameinið talið — sultur. Erlesd myiat. Xh. Bank. Pfatb SieirS.pá. 15,65 15,70 16,20 Frc. 58,00 59,00 60,00 Dol). 329 3,50 3.60 272 273 274 Larf eg hvorki annaö né meira til þess a'iS sviíta gnmuiini af þessum níðingi svo aö rétt- vísinni veröi fullnægt. Legg eg þar við dreng- skap minn, þó aö hann sé máske ekki mikils virði í yöar augum, aö skila furstafrúnni dótt- ur sinni og hefna Nevers, en aö öörum kosti geiig eg yður á vald, reiÖubúinn aö þola dóm minn.“ Hann brá hendinni upp og kallaöi: „Víkið úr vegi fyrir mér, þvi að eg ætla mér að nota rétt minn.“ „Víkið úr vegi!“ skipaöi rikisstjórinn, „en í sama mund a morgun verðið þér leiddur fyrir dómara yðar og veit hamingjan, að þá skal réttvísinni veröa framgengt." Lagardere gekk nú aleinn og vopnlaus ofan stigann. Þar urðu fyrir honum vinir Gonzagua og hann sjálfur fremstur þeirra. „Hægan, hægan, herra Lagardere!“ sagði Gonzagua. „Við þurfum að hafa tal af yður. Allar dyr eru læstar og heyrir enginn hvað okkur fer á rnilli nema þessir gó'ðkunningjar mínir. Er yður því óhætt að segja það, sem yður býr í brjósti.“ Hann hló hæðnishlátur um leið og hann mælti þetta, en Lagardere nam staðar og hélt að sér höndum. g^TJvíkisstjórinn leyfir yður útgöngu,“ mælti 'Wonzagua enn fremur, „en eg banna yður hana. Eg var vinur Nevers engu síður en ríkis- stjórinn og her mér jafnmikil skylda og hon- Paul Feval: Kroppinbakur. um að hefna dauða hans. Ekki skuluð þér heldur kalla mig niðing og þrælmenni, herra Lagardere, því að yður er það enginn ávinn- ingur. En nú skal eg segja ySur nokkuS. Þér hélduð, að þér væruð að blekkja ríkis- stjórann, þegar þér sögðuð honum, að Áróra væri ekki á yðar valdi--------“ Hinrik brá sýnilega við þessi orð, en Gon- zagua var hinn hreyknasti. „Þér hafið að eins ofurlítið hallað réttu máli,“ sagði liann. „Hefð- uð þér bara sagt, að hún væri e k k i f r a m- a r á yðar valdi---------“ „Ef eg héldi------“ tók Lagardere til máls og reiddi hnefann. „En þetta er helber lygi — eg ætti að þekkja þig!“ „Hefðuð þér hagað orðum yðar svona eins og eg sagði, þá hefðuð þér sagt satt,“ sagði Gonzagua ofurrólega. Lagardere ætlaði þegar að ráðast á hann, en Gonzagua otaði að honum sverðsoddinum og hélt honum þannig frá sér. „Já, við höfum unnið glæsilegan sigur,“ sagði hann, „og Ár- óra er nú gengin o k k u r í greipar.“ „Hún Áróra!“ hrópaði Lagardere skjálfandi af reiði. „Já, hún Áróra og ýmisleg skjöl þar að auki.“ Hann datt kylliflatur, því að Lagardere henti sig yfir hann og þaut eins og elding ofan í garðinn. Gonzagua stöð hlæjandi upþ. „Alt er harölæst og lokað,“ sagði Pey- rolles. „Hvað eru margir niðri í garðinum?“ „Fimm,“ svaraði Peyrolles. „Það er nægilegt, því að hann er vopnlaus.“ Gengu þeir síðan báðir saman til að sjá hvað gerðist, en hinir stóðu í forsalnum og var þeim all-órótt. „Mér finst þetta dragast æði lengi,“ sagði Gonzagua. „Yður leiðist auðvitað biðin, en þeir eru þarna bak við tjaldið.“ 1 garðinum var kolsvarta myrkur og heyrð- ist að eins vindurinn gnauða i tjaldinu. „Hvar náðuð þér í ungfrúna?“ spurði Gon- zagua og réði sér ekki fyrir óþolinmæði. „í Chantre-götunni, rétt fyrir utan húsdym- ar.“ „Haf'ði hún örugga fylgd?“ „Það voru tveir vopnaðir menn með henni, og voru þeir aö vísu vaskleika menn, en þó lögöu þeir báðir á flótta, þegar við sögðum þeim, að Lagardere væri fallinn.“ „Sáuð þér framan i þá?“ „Nei, þeir höfðu báðir grímu fyrir andliti.“ „En hvar voru skjölin?“ Peyrolles gat ekki svarað þessari spurn- ingu, því að í sömu svifunum heyrðist dauða- vein einhvers bak við tjaldið í nánd við dyra-

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.