Vísir - 19.11.1918, Blaðsíða 1

Vísir - 19.11.1918, Blaðsíða 1
S. irg. ÞriðjiutagÍM 19 nóvember 1918 Bílstjórar eða farþegar öjörið svo vel að láta mig vita ef autt sæti er í bíl, sem kynni að fara austur yfir fjall, helst austur á ítangárvelli. Staddur í Rvík 18. nóv. Tjarnargötu 37. Sími 245. Pétor H. Lárnsson. Baráttan við InflAensnna. Hjúkrnnarneíndln Það var ekki nákvæmlega rétt skýrt frá skipun hjúkrunarnefnd- arinDar i blaðinu í fyrrad. í nefnd- ina voru skipaðir þrír menn upphaflega. Það voru: borgar- arstjóri, l'greglustjóri og pró- fessor L. H. Bjarnason. Borgarstjóri var veikur þegar nefndin var ekipuð og hafði þá verið veikur um hrið, en mun nú vera f atturbata. Lögreglu- stjóri lagðist veibur daginn eftir að nefndin var sbipuð. Starfið hefir því hvílt á L. H. B. pró- fessor einum nefndarmanna. En hann hefir fengið marga góða menn í lið við sig, og þar á meðal eru þeir þrír, sem nefnd- ir hafa verið í blaðinu(: Gísli ísleifsson, Pétur Guðmundsson og Þorkell Þorláksson. En auk þeirra hefir einn mað- ur gengið í lið við nefndina og unnið ósleitilega frá upphafi. Það er Garðar Gíslason stór- kaupmaður, sem próf. L. H. B, segir að hlotið hafi nafnið „hjálparhellan0, vegna þess að ef eitthvað vantar er altaf leit- að til hans, og hann hefir altaf einhver ráð. Hjúkrunarnefndin hefir aðset- ur sitt i brunastöðinni. Þar eru sbrifstofur hennar, þar hefir hún lækni á verði dag og nótt og þaðan eru menn seudir út um bæinn til að rétta sjúklingunum bjálparhönd. Enn önnur aðal- bækistöð nemdarinnar er: Barnaskóiinn. Þar er sjúbrahús í tveim deild- um, uppi og niðri, og matreiðsla í kjallaranum. Og nú hefir nefnd in komið þar upp harnahæli fyrir umhirðulaus börn. Svo er ástatt viða í bænirm, að foreldr- &r Lggja veikir og geta ekki annast börn sín og hafa enga til þess. Mörg slik börn hafa verið tekin til hjúkrunar og um- hirðu á önnur heimili, en mörg eiga ebkert athvarf. Pyrir þau var barnaheimilið stofnað. I fyrstu gafst nefndin upp við það, vegna fólksleysis, en í gærmorg- un hafði raknað svo úr fyrir henni, að hún gat auglýst, að barnaheimilið yrði opnað þá. Umsjónarbona verður þar ung- frú Sigurborg Jónsdóttir. í sjúkrahúsið í barnaskólanum höfðu alls verið lagðir 75 sjúkl- ingar í gærkvöldi klukban 7. Þeir eru undir læknishendi Þórð- ar Sveinssonar spítalalæbnis, eins og áður er sagt. Þar eru nú þrjár útlærðar hjúkrunarkonur, auk yfirhjúkr- unarkonunnar, frú Bjarnhéðins- son, og nægt hjúkrunarlið annað. í barnahælið voru flutt 16 börn i gær, og í dag er búist við að 5 bætist við og er þá ekki rúm fyrir fleiri. Ágæt lækuisaðferö. Þórður Sveinsson notar lækn- isaðferð, sem gefist hefir ágæt- lega. Hann lætur sjúklingana baða fæturna í brennandi heitu vatni. svo er vafið um þá bera volgu ullarteppi og í því eru þeir látnir liggja. Meðul notar hann litið en lætur sjúblingana drekka mikið af heitu vatni, og að öðru leyti mest áhersla lögð á það, að hafa hlýtt í sjúkra- ! stofunni. Um þessa lækningaaðferð get ur sá, er þetta ritar, borið af eigin reynd, því að hann notaði hana sjálfur og gafst hún ágæt- tega. Má telja það nokburnveg- mn áreiðanlegt, að ef henni er fy’gt frá uppliafi, þá legst veik- in aldrei þungt á mann Versti óvínurinn. Það er áreiðanlega kuhliun Og við þann óvin hefir þvi miður áreiðanlega altof víða ver- ið við að stríða. Má telja það : alveg víst, að hann hafi orðið | uiörgum að bana. Fólk hefir ’ ýmist ekbi gætt þess að hita ;herbergi sín köldu dagana, eða [ ekki getað það, en rúojfötin held- jur ekki svo hlý tem skyldi. ’Sumir sjúklingar, sem fluttir hafa [verið á sjúkrahús, hata verið helkaldir á hönduru og hand- leggjum og á fótum upp aðhnjám, þó að þeir hafi haft 40 stiga sótthita. Sumir hafa verið með bálfkreptar hendur af kulda. Og þeir hafa dálið án þess að þeim hafi getað hitnað, eftir að þeir höfðu verið fluttir í upphitað herbergi. „Spæuska veikin" á isafirði. Það er sagt, að inflúensan sem gekk í Hafnarfirði hafi verið ensk að uppruna og flutst þangað með botnvörpungnum Yiði. Yeikin hérna er áreiðanlega dönsk. En svo er sagt, að þriðja tegund veikinnar eé á Isafirði, og hún só s p ö n s k, þ. e. sú rétta „spænska veikiu, og á hiin að hafa flutst þangað með seglsbipi, sem kom þangað nýlega beina leið frá Spáni. En þvi fer fjarri, að sú spænska só verst. Veikin á ísafirði er einmitt sögð fremur væg. Sið- ustu dagana hefir hún breiðst á- kaft út þar og margir liggja, en ebki hefir heyrst um mann- dauða þaðan. Flugufregnir hafa borist hór út um það, að annar lækuirinn á ísafirSi væri dáinn, eða jafnvel báðir læknarnir. En i Visir hefir sannfrétt það, að annar læknirinn, Eiríkur Kjerúlf, hefir alls ekki veifest, og hinn, Kristján Arinbjarnarfon, settur héraðslæknir þar, heíir að vísu verið talsvert veikur, en hann er nú í góðum afturbata. Simastöðin á ísafirði hefir ver- ið lokuð tvo uudanfarna daga vegna veikinnar. Ionflúea-an á Akranesi. lunfiúensan er sögð mjög mögn- uð á Akranesi og éstandið þar hið ískyggilegasta. Réraðskskn- irinn !þar, Ólafnr Finsen, hefir | tekið veikina og liggnr rúmfast- ] ur. Þar er því sama sem lækn- j islaust. Tvær eoa fleiri ferðir í hafa veiið geiðar kingað til að sækja meðöl, en þau er nú varla j að fá hór nú orðiö. Sagt var í gær, að 16 manns ! væru dánir úr veíkinní þar í i þorpinu. 805. tbl. Kjötsalaa. Þar verður nú aftur að víkja að, sem fyr var frá horfið, og taka til athugunar skýrslu útfiutningsnefud- arinnar um kjölsöluna til Norð- manna. En vegna þess að svo langt er um liðið, og af því að lesendur Vísis munu fæstir hafa átt kost á að lesa skýrslu nefndarinnar, verð- ur að byrja á því að birta þá kafla úr skýrslunni, sem einkum skifta máli, en öll skýrslan er lengri en svo að Vísir geti birt hana í heild. Nefndin kveðst hafa boðið um- boðsmanni Norðmanna kjötið (2Q þús. tunnur) í byrjun ógústmánað- ar fyrir 170 —200 krónur tunnuna eftir flokkum. Var það tilboð sím- að til Noregs 9. ágúst, en ekkert svar var komið, er síminn slitnaði. Um þessar mundir var það að forstöðumaður Höepfnersverzlunar hér í bænum kom að ináli við einn af nefndarmönnum um það, hvort lians íirma i Kaupmanna- höfn gæti eigi komið til greina sem kaupandi að saltkjötinu. Tók nefnd- in þetta til íhugunar og ályktaði, að rétt væri. að afla sér sem flestra tilböða í kjötið, ef til kæmi, að Bandamenn afsöluðu sér forkaups- rélti og leyfði því nefndin forstöðu- inanninufn að síma til húsbænda sinna í Ivaupmannahöfn, að nefnd- inni væri kært að fá tilboð þeirra, ef kjötið yrði lausl til sölu og gaf þá bending að hún hyggist við, að kraíist myndi verða 200 til 220 kr. fyrir liverja tunnu við skipslilið liér. . . »Botnía« kom lil Reykjavikur föslud. 20. sept. og með henni hr. stórkaupmaður Aage Berléme fyrir h/f. Höepfner til þess að leita samninga við nefndina um kjöt- kaup. Kom hann daginn eftir tii fundar við útflutningsnefndina. Voru þá þegar rædd nokkur helztu samningsatriði til undirbúnings því, ef saman gæti gengið um kjötverð- ið. En einn nefndarmanna var þá fjarverandi og kom því kjötverðið litið til meðferðar. Með bréfi dags. 21. sept. tilkvnti nú útflutningsnefndin ræðismanni Norðmanna. að liún teldi sig lausa við tilboð það um kjötið seni áður er nefnt, en kvaðst þó fús til að taka upp samningsumleilum á ný, ef hann óskaði og gæti gerl einhver á- kveðin boð. Þetta gerði nefndin lil þess að hafa frjálsar hendur á með- an á samningum stseði við hr. Ber- léme, enda var þá liðið talsvert á annan mánuð síðan tilboðið var gert, án þess því væri svarað.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.