Vísir - 08.12.1918, Blaðsíða 2
Jóla og nýárftkort
afarfalleg, með ágætis islenek
um erindum. íslensb landslags-
kort og margskonar útlend kort
fást hjá Helga Árnasyni í Lands-
bókasafnshúsinu.
Hvenær lækkar
vöruverðið?
Prófessor L, V. Birck, danskur
hagfræðingur og þingmaður, seg-
ir að vöruverð muni verða helm-
ingi lægra haustið 1920, heldur
en það er nú, en vextir af pen-
ingum hækka, Kol og járn muni
ekki lækka eins mikið og aðrar
vörur, því að útfiutningslöndin
muni leggja útflutningstoll á þær
vörur. Ef stjórnarbyitingin hefði
ekki orðið í Þýskalandi, segir
hann að skipaleigan mundi hafa
lækkað strax, sem svarar stríðs-
vátryggingunni, og enn meira að
herilutningunum ioknum. En
byltingin geti haft óhrif á þetta.
Vöruverð muni hækba í þeim
löndum, þar sem bylting er, og
það hafa áhrif á önnur lönd.
vl* vL» *vL* sJy*
Afmæli í dag.
Jenny Lambertsen, húsfrú.
Ingveldur Sverrisdóttir, húsfrú.
Jóhann Guönnmdsson, skipstj.
Sofía M. Jóhannesdóttif, húsfrú.
Sveinn Sigrtrðsson, cand. theol.
Samskotin.
5 króna gjöf i hjálparsjóöinn,
var Vísrfærð í gær frá Gróu Sig-
urðardóttur.
Bráðabirgðalög
hafa verið gefin út um breytingu
á lögum um skrásetning skipa, er
meðal annars skylda öll íslensk
skip til að nota íslenska fánann i
innan- og utanlands siglingum. Þó
má veita undanþágu frá þessu, ef
svo stendur á, að það gæti valdið
töfUm og óþægindum i útlendum
höfnum, meðan eigi er hvervetna
orðið kunnugt um hkin nýja ís-
lenska rikisfána, og hefir stjórnin
þvi með augíýsingu heimilað ís-
lenskum skipum aö nota danska
fánann í siglingum utan landhelgi
til 31. mars n. k., en innan þess
tíma eiga öll ísl. skip að hafa feng-
ið ný þj ðernis- og skrásetningar-
skírteini.
Veitt prestaköll.
Sandfell i Öræfum hefir verið
veitt síra Eiriki Helgasyni, og
Mosfellsprestakall i Árnessýslu
síra Þorsteini Briem á Hrafnagili.
Cement
nokkrar tunnur til sölu.
Við skiitaf élagið
— Slmi 701 —
GrUllfOSS
kom til New-York 4. desemb.
Miunisí
þess, að skemtunin í Iðnaðar-
mannahúsinu í bvöld er haldin
eingöngu til ágóða fyrir hjálpar-
sjóð bágstaddra. Skemtunin
byrjar stundvíslega.
Likræður,
Hinn 13. okt. síðastl. stóð grein
sú, sem eftirfylgjandi kafli er tek-
inn úr, í danska blaðinu „Dagens
Nyheder."
„Gætum vér ekki skorið fyrir ræt
ur þessarar meinsemdar, hœtt al-
gerlega við líkrœdurnar. Gætum
vér ekki við greftranir hinna dánu
viðhaft einhvern helgisið, sama
helgisiðinn hver sem i hlut ætti?
Eg gæti t. d. hugsað mér slíkan
helgisið á þessa leið ; Á undan
athöfninni sé sunginn sálmur, sem
aðstandendur velja; síðan sé lesin
f’astákveðin og viðeigandi bæn,
undantekningarlaust sama bænin,
hver sem í hlut á, ungir og gamlir,
menn og konur, háir og lágir, fá
tækir og ríkir; því næst sé sunginn
annar sálmur og athöfnin enduð
meðþvíað lesa Faðirvor og bless-
unarorðin.
Látum Di'otni eftir að dæma
um dauðan hvern, en losurn prest-
ana við það ofætIunarvei-k.“
Mér finnst þetta „orð í tíma
lalað.“ Það hlýtur að vera af-
skaplegt þreytu og vandræðaverk
fyrir prestana, alt þetta líkræðu-
smíði. Og stundum vei-ður lika
þreytandi að hlusta á líkræðurnar
þeirra.
I samdandi við þetta langar mig
til að minnast á, að mér þykir
það mjög ilia farið, og óviðeigandi
sá siður, sem nú orðið tíðkast, að
minsta kosti hér í Reykjavík, að
hætt er að syngja hinn gamla,
gullfallega sálm, „Alt eins og blóm-
strið eina“ við jarðarfarir. Jafn
fagran og andríkan útfararsálm
munu þó fáar þjóðir eiga. í hans
stað er nú kominn enskursálmur,
„Hærra, minn Gnð, til þín“, sem
stendur hinum iangt, langt að
baki, bæði hvíið efni og orðfæri
snertir. Okkar gömlu, góðu út-
fararsáimar, „Alt eins og blómstrið
eina“ og „Mín lífstíð er á fleygi-
ferð“, eru enn í fullu gildi, að mér
finnst, og óþarfi að útrýma þeim.
H.
Það tilkynnist að elsku litli sonur okkar, Björgvin Sig-
urðsson, andaðist 5. þ. m. .1 arðarförin ákvðin síðar.
Guðjónína Sæmundsdóttir. Sigurður Kristjánsson.
Grettisgötu 18.
Heildverslun
Garðars Grislasonar
Simar Í381, 481 og 681 Reykjavík.
lielir- birgðir aí neðantöldum vörum:
Salt
Kartöflumjöl
Ostar (4 tegundir)
Kjötsalt
Smjörsalt
Borðsalt
Spaðkjöt
Rullupylsur
Læri
Edik
Bökunarfeiti
Yindlar
,Hessian‘-strigi 51” o»72”
Eisbilínur (ýmsar st.)
Síldarnet
Sildartunnur (gamlar)
Kjöttunnur (nýjar)
Sólaleður
Vatnsleður
Gjarðajárn l1/*”, IV2”
Primusvélar
Dyramottur (úr járni)
Ljábrýni
Baðlögur
Málningavörur
Gólfdúkar (Linoleum)
Gaddavfr
Saumur (ýmsar lengd.)
Eldhúsvaskar
Þvottaskálar
Þvagskálar
Reiðhjól (unglinga)
Saumavélar
Járnvörur (mikið úrv.)
Vefnaðarvara
Timbnr (tré og borðviður)
Pappirsvörur (á HYerflsg. 4)
Á leið frá Ameríkn:
Óáfengt öl
Gerduft
Ofnsverta
Skósverta
Þvottasápa
„Emailieraðar11 vörur
Glervörur
Laubur
Stumpasirs
Handsápa
fl.
Hvksbúnaður
Dagstoin- borðstofn- og
sveínherbergisgögn
ágætt fortepiano eg fleira
er nú þegar til sölu. Alt tilheyrandi dánarbúi Jóns Kristjánssonar
prúfassors.
í umboði skiptaráðanda
Ben. S. Þörariasson.
um 300 kg. til sölu.
Sími 426. Túngötu 20.
Skðgrækfarstjórinn.
3
ceta feneið atvinnu. Uppl. á
Vatnsstíg 8
i dag bl. 2 til 4.