Vísir - 01.07.1943, Blaðsíða 1

Vísir - 01.07.1943, Blaðsíða 1
Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson Hersteinn Pálsson Skrifstofur: Félagsprentsmiðjan (3. hæð) Ritstjórar Blaðamenn Siml: Augtýsingar 1660 Gjaldkeri 5 llnur Afgreiðsla 33. ár. Reykjavík, fimmtudagnlnn 1. júlí 1943. 146. tbl. Bandamenn á Kyrrahafi ráðast á Japani á 5 stöðum 7 Ráðast á þá á Salomon§eyjum, á ©g* við I\lýjn><)ininen. Japanskir fangar í N.-Gulneu Salouioraseyjar Þetta kort af Salomonseyjunum sýnir allar helztu eyjarnar, meðal annars Guadalcanal, Rendova og Nýju-Georgiu. Martinique: Robert landstjóri biður Washington ásjár. Til að fopða blóðbaöi. Robert, Vichylandstjórinn ú Martinique, hefir beðið stjórn- j ina í Washington um að rétta sér hjálparhönd. Útvarpsstöð eyjarinnar liefir sagt frá því, að Robert hafi sent tilmæli um það til Washington, að þaðan verði sendur stjórn- arfulltrúi,- til þess að sjá um það, að skipt verði um land- stjóra. Sagði útvarpið, að hann hefði farið þessa leið, til þess að hindra blóðblað, sem virt- ist yfirvofandi, ef ekki yrði að gert. Það er vitað, að hagur manna er mjög þröngur á Martinique, sem er í Vestur-Indium, og eyjarskeggjar kunna svo illa stjórn Roberts, sem tekur skip- anir sínar frá Vichy, að um 100 manns flýja þaðan hvern dag. I Washington segja opinber- ir talsmenn, að þeir hafi ekk- ert heyrt um þessa málaleitan Roberts flotaforingja. Stjórn- málasamband hefir ekki verið milli stjórnarinnar í Washing- ton og landstjórans á Martin- ique síðan í aprílmánuði, er Bandarikjamenn kölluðu heim Loítárás á Orel. Fátt eitt gerist markvert í Rússlandi þessa dagana. Ein- göngu loftárásir rjúfa kyrrðina. Rússar hafa enn gert árás á Orel og virðist þeim standa stuggur af stöðvum Þjóðverja þar, vegna þess að þeir eru þar austast. Þjóðverjar halda líka uppi víðtækum njósnaleiðöngr- um, og gera árásir að baki rúss- nesku víglínanna, en þær eru á lítinn mælikvarða. Þeir hafa einkum látið til sín taka hjá Leningrad að undauförnu. Þýzku skipi var sökkt á Finn- landsflóa í gær, að sögn Rússa. fulltrúa þann, sem þeir liöfðu haft á eynni um nokkurt skeið. Martinique er eina franska nýlendan, sem lýtur enn stjórn Vicliy. Einkatúlkur Hitlers í fangelsi Kanadiskur herforingi, sem var tekinn til fanga í Dieppe, en slapp úr haldi, segir frá því, að Paul Schmidt, einkatúlkur Hitlers sé hafður í fangabúðum. Foringinn átti einu sinni tal við Schmidt, i ágústmánuði, og barst talið að striðinu eins og vænta mátti. Sagði Schmidt, að ef Þjóðverjar tæki ekki Stalin- grad og Rommel gæti ekki brot- izt í gegnum varnir Breta aust- ur til Kairo, þá væri Þjóðverjar búnir að tapa stríðinu og gæti aðeins lialdið áfram að berjast, þangað til þeir fengi frið. Víðast hefir orðið lítið um varnir enn. — Sóknin ákveðin í apríl. Hersveitir bandamanna á suðvesturhluta Kyrra- hafsins liafa byrjað hernaðaraðgerðir, sem eiga að vera upphaf þess, að Japanir verði reknir af þessu svæði og jafnframt undirbúningur að allsherjarsókn gegn veldi þeirra. Hafa hersveitir undir stjórn MacArthurs gengið á land á ýmsum eyjum fyrir norðan Ástralíu. Það var tilkynnt seint í gærdag, að amerískar hersveilir hefði gengið á land á Rendova-eyju i Salomonseyjaldasanum með aðstoð herskipaflota. Nánari fregnir voru ekki um það, hvernig gengið hefði. Þær fregnir kornu liálfum sólarhringi síðar, en um, sama leyti bárust fregnir um það, að bandamenn hefði einnig gengið á land á Nýju-Georgiu og loks væri þeir farnir á stúfana á Nýju-Guineu og við hana. Japamr hafa farið lialloka fyrir handamönnum á Nýju- Guineu að undanförnu og þessi mynd e'r frá fyrri bardögum þar. Fremst á myndinni eru þrír niðurlútir japanskir fangar, sem tveir Ástraliumenn gæta. Tveir njósnarar tekn- ir í Bandaríkjunum. 1 New York hafa verið hand- teknir tveir njósnarar síðan um helgi. Annar þeirra hafði sent upp- lýsingar um skipaferðir og her- flutninga í pósti til Evrópu og var liann handtekinn á sunnu- dag. Hinn, sem er af hollenzk- um ættum, gaf sig þá á vald lög- reglunni. Hann liafði bæði af 1- að hinum samskönar iqiplýs- inga, en auk þess náði hann í leikningar af l'lugvclum, sem var verið að framleiða i verk- smiðju í New Yorlc. Þar réðust bandamenn á land hjá einni mikilvægustu bæki- stöð Japana, Salamaua. Auk þess gengu hersveitir á land á tveim eyjaklösum við austan- verða eyjuna. Rendova. Rendova-eyja er um 200 km. norðvestur frá Guadalcanal og er þannig sett, að frá henni er aðeins 8 km. sund yfir til Munda — stærstu flugstöðvar Japana í nágrenni Guadalcanal. Eyjan er fjöllótt og mjög skógi vaxin. Japanir veitlu þegar mót- spyrnu, er Bandarikjamenn gengu þar á land, en hún var ekki mikil. Þó var enn barizt þar, þegar seinast fréttist. Ef bandamenn geta komið sér fyrir á Rendova-ey, þá verða þeir þannig settir, að þeir geta skotið á Munda-flugvöllinn. Nýja-Guinea. Sóknin á Nýju-Guineu hófst ekki fyrr en skömmu eftir mið- nætti í nótt og áður hafði verið haldið uppi miklum loftárásum á þá staði, sem ætlunin var að ráðist á. Japanir snérust þegar til varnar og er barizt enn hjá Salamaua. Bandamenn hafa haldið uppi svo strangri loftsókn gegn Sala- maua að undanförnu, að Jap- anir eru orðnir mjög aðþrengd- ir þar. Hafa þeir orðið að flytja allar birgðir þangað landveg þvi að hvert það skip, sem hætti sér þangað i björtu, var samstundis sent niður á marar- hotn af sprengjuflugvélum MacArthurs. Kafbátar hafa líka verið notaðir i flutningum þang- að. — Nýja-Georgia. Þegar tilkynningin var gefin í gær um landgönguna á Ren- dova-eyju, var ekkert minnzt á það, áð jafnframt hefði verið ráðizt á Nýju-Georgiu. Það er á þeirri eyju, sem Munda flug- stöðin er og eyjan er öll vel víggirt af Japönum. Lögðu þeir kapp á að tryggja aðstöðu sína þar, þegar þeir urðu að lirökkl- ast hurt af Guadalcanal. Einu fregnirnar, sem hafa borizt af bardögunum á Nýju- Georgiu eru á þá leið, að Banda- rikjamenn hafi lagt til atlögu við víggirðingar Japana. Við Nýju-Guineu. Eyjarnar, sem bandamenn réðust á við Nýju-Guineu eru við austurodda liennar. Annar eyjaklasinn, sem þeir réðust á, Iieitir Trohriand-eyjar, en liinn er Woodlark-klasinn. Þær eru í norður og norðaustur frá Milne-flóa, sem hefir komið við sögu. Trobriand-eyjarnar eru um 440 km. vestur af Guadal- canal, en Woodlark-eyjar eru aftur 225 kni. suðaustur af þeim. Engar fregnir hafa borizt af bardögum þarna, en þeir munu hafa verið smávægilegir. Undirbúningurinn. í fregnum frá Ástralíu segir, að það hafi verið ákveðið fyrir tveim mánuðum, að leggja í þessa sókn. í lok apríl-mánaðar kom Halsey flotaforingi til fundár við MacArthur í Mel- bourne og þá lögðu þeir á ráðin um þetta. Það er skýrt frá þvi i fregn frá Bandaríkjunum, að hernað- araðgerðirnar á og við Nýju- Guineu sé undir beinni stjórn MacArthurs. LOFTÁRÁS Á DARWIN. Japanir hafa gert enn eina árangurslausa tilraun tii að ráð- ast á Port Darwin í Norður- Ástralíu. I gær sendu þeir þangað 27 sprengjuflugvélar og 21 orustu- vél. Átta af árásarvélunum voru skotnar niður, en tvær þeirra voru auk þess laskaðar. Tjón varð að þessu sinni óvenju- lega mikið meðal verjendanna, þvi að 6 Spitrire-vélar voru skotnar niður. Tveir flugmann- anna komust af. Skemmtiferð Hvatar. Sjálfstæðiskvennafélagið Hvöt fór skemmtiferð í gærdag. Haldið var af stað frá Rvík á Kamhahrún og var staðnæmst þar til að skoða hið fagra út- sýni. Haldið var áfram til Hveragerðis og kaffi drukkið, en síðan lialdið að Sogsvirkjun- inni og virkjunin skoðuð. Á Þingvöllum neyttu konur mið- degisverðar og undir borðum voru ræðuhöld, söngur og upplestur. Ferðanefndin og fé- lagskonur hafa beðið blaðið að færa veitingamanninum á Þingvöllum síiiar beztu þakkir fyrir hina framúrskarandi framreiðslu þar. Mjög margar konur tóku þátt i þessari ferð félagsins og skemmtu þær allar sér liið bezta. Hermenn stela þvotti, í nótt er leið gerðu amerískir hermenn sig seka um þvotta- stuld á Kringlumýrarvegi. Mennirnir voru tveir og hafði lögreglan hendur í hári þeirra. Atvik til þessa máls voru þau, að laust fyrir ld. 5 í morgun var kært á lögreglustöðina að út- lendir hermenn væru að stela þvotti af snúru við Kringlumýr- arveg. Er íslenzka og erlenda lög- reglan kom á staðinn voru mennirnir farnir þaðan, en lögreglunni var gefin visbend- ing um hvert hermennirnir hefðu farið. Veitti lögregan þeim eftirför og náði þeim fljótlega. Voru mennirnir tveir, báðir ölvaðir og var farið með þá á lögreglustöðina. Við leit hjá þeim fannst hjá öðrum þeirra karlmannsnáttföt og kvenbuxur, sem horfið hafði af snúrunni. Chester Davies, sem var yfir- maður matvælafrarnleiðslunnar í Bandaríkjunum, hefir sagt af sér. Gerði hann það vegna þess, að þingið felldi áð greiða upn- bætur á landbúnaðkrafúi'ðir. Nýr maður hefir þegar tvkið við, Marvin Jones, dómari, sem var forseti matvælaráðstefn- unnar í Hot Springs. Aðalfundur Tann- læknafél, íslands. Daily Telegraph birtir þá fregn frá Stokkhólmi, að ýmis þýzk fyrirtæki, t. d. í Wupper- tal, Essen og Berlín hafi orðið að tilkynna sænskum viðskipta- vinum sínum, að þau geti ekki staðið við skuldbindingar sínar um afgreiðslu pantana. Sama er um Phillips-verksmiðj'urnar í Eindhowen. • Til London hefir borizt ein- tak af blaði, sem gefið er út á laun í Torino á Norður-Ítalíu. Það lieitir Italia Libera — Frjáls Italía. Tannlæknar skora á ríkisstjórn að auka innflutning ávaxta. Tannlæknafélag íslands hélt aðalfund sinn á Akureyri að þessu sinni, og stóð hann dag- ana 25.—26. júní. Á fundinum voru mættir allir íslenzkir tannlæknar. Voru tekin til meðferðar ýms ■ fagleg efni. I stjórn voru kosn- ir Hallur L. Hallsson formaður, frú Thyra Loftsson gjaldkeri, Theodor Brynjólfsson ritari. Voru þau öll endurkosin. Vara- maður i stjórn var kosinn Björn Br, Björnsson. Sam- þykkti fundurinn og sendi ríkis- stjórninni eftirfarandi ályktun: „Aðalfundur Tannlæknafé- lags Islands haldinn á Akureyri dagana 25.—26. júní 1943, leyf- ir sér að skora á liæstvirta rikis- stjórn Islands að hún leyfi ó- hindraðan innflutning á ávöxt- um til landsins, eftir þvi sem kringumstæður leyfa. Jafn- framt skorar fundúrinn á rikis- stjórnina að fella niður hina liáu tolla, sem verið hafa á þess- ari fjörefnaríku og heilsusam- legu fæðu, eða færa þá niður að miklum mun.“ Óverkaður saltfiskur hækkar. Fisksölusamningurinn milli íslendinga og Breta frá 27. júní 1942 hefir verið fram- lengdur til næstu áramóta. Breytingar hafa nær engar verið gerðar frá þvi sem áð- ur var. Eina verðbreytingin er fólgin í því, að óverkaðus salfiskur hækkar um 8Mi%, í kr. 1.27 pr. kg. fritt um borð, miðað við fyrsta flokks salt- fisk, og aðrar tegundir hlut- fallslega. Saltfiskbirgðir í landinu eru mjög litlar. Verðtækkun saumalauna. Verðlagsstjóri auglýsir í dag lækkun saumalauna á karlmanna- fötum i 300 kr. (einhneppt) og 310 kr. (tvíhn.). Lækkun nemur 7 kr. Um svipaða lækktm er að ræða á kvenkápum og drögtum. Saumalaun á hraðsaumuðum karlmannafötum verða 254 kr. Þá hafa um leið ver- ið lækkuð saumalaun á kápum og drögtum hjá kjólasaumastofum.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.