Vísir - 05.07.1943, Blaðsíða 1

Vísir - 05.07.1943, Blaðsíða 1
Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson Hersteinn Pálsson Skrifstofur: Félagsprentsmiöjan (3. hæð) 33. ár. Reykjavík, mánudaginn 5. júlí 1943. Ritstjórar Blaðamenn Slml: Auglýsingar 1660 Gjaldkeri 5 linur Afgreiðsla 149. tbl. »Það verður að reka Japani heim«, segir Auchinleck. Auchinleck hefir gefið út fyrstu dagskipan sína, eftir komuna til aðalstöðva hersins í Nýju-Delhi. j Hann minnti á það, að fyrir tveim árum liefði liættur steðj- i að að Indlandi úr tveim áttum. j Þjóðverjar hefði ætlað að brjót- i ast austur um Sýrland, írak og , Persíu, en Japanir ógnað úr | anstrí. Vegna hetjuskapar Rússa og herkænsku Breta við austan- vert Miðjarðarliaf hefði hætt- unni verið bægt frá að vestan, en í austri liáttaði öðru vísi til. Þar mundi hættan vofa yfir þangað til Japanir liefði verið reknir heim. Það mætti engan tima missa við að gera það. Skipbrotsmenn taka kafbátsforingja til fanga. Til Brasiliu hefir verið kom- ið með þýzkan kafbátsforingja, sem var tekinn til fanga af á- höfn skips, sem hann hafði sökkt. Þegar kafbáturinn liafði skot- ið skipið tundurskeyti kom hann úr kafi og kafbátsforing- inn fór að taka myndir af skip- brotsmönnunum, sem voru á flekum og hátum umhverfis kafbátinn. Þá kom flugvél allt í einu í Ijós og kafháturinn fór í kaf, áður en foringi hans gæti komizt undir þiljur. Björguðu skipbrotsmennirnir kafbátsfor- ingjanum og eftir nokkurra daga hrakninga var þeim öllum bjargað. Varnir Narvíkur styrktar Þjóðverjar styrkja nú sem óð- ast varuir sínar hjá Narvik í Norður-Noregi. Fregn hefir komið um það frá Stokkhólmi, að flotaforingi Þjóðverja í Noregi hafi tilkynnt, að lagt hafi verið gríðarmiklu af tundurduflum undan strönd- inni þar. Er tundurduflasvæði þetta svo stórt og þétt, að það á alveg að loka samgöngum við horgina utan af hafi. Sviffluga hefir nú verið dregin austur yfir Atlantshaf í fyrsta sinn. • í London var sagt frá því í morgun, að fyrir nokkuru hefði komið til Bretlands fyrsta „fljúgandi flutninga- lestin“ frá Bandaríkjunum, þ. «. tvíhreyfla flugvél hefði dregið *vifflugu yfir hafið 5000 km. leið á 28 klst. Svif- flugan var hlaðin hálfri ann- ari smálest af bóluefnum og varahlutum í flugvélar og hreyfla, sem Rússar eiga að fá. Það er tekið fram, að ekki hafi verið farið beint yfir haf- ið, enda mun engin flugvél get* haldið sér á lofti í 28 ktet. án viðkomu. Loftárásír á Köln, Nantes, La Pallice og fleiri borgir. Árás á flugvöll á Sikiley í fréttum í dag er þess getið, að loftsóknin gegn flugvöllunum á Sikiley og Sardiniu liafi enn farið í vöxt um lielgina. Þessi mynd er frá einni af árásum amerískra flngvirkja á Milo- flugvöllinn á Vestur-Sikiley. Þar voru þá 70—80 flugvélar, flestar Ju-52 flutningavélar. Sést greinilega, hvernig sprengjur springa um völlinn þveran og endilangan. Eldar brunnu i Köln 8 klst. eftir árásina. Loftsóknin við Miðjarðarhaí nær nýju hámarki. Bandamenn tóku upp loftsóknina gegn Þjóðverj- um í Vestur-Evrópu í fyrrinótt og héldu henni áfram í gær. Um nóttina fóru Bretar til Köln, Hamborgar og víðar, en í gær fóru amerískar flugvéJar í björtu til Le Mont, Nantes og La Pallice í Frakklandi. í nótt var ekkert farið. Við Miðjarðarliafið náði loftsókn handamanna gegn eyjun- um Sardiniu og Sikiley nýju hámarki. Var ráðizt á sjö flug- velli á eyjunum, alla þá stærstu og unnið á þeim mjög mikið tjón. í herstjórnartilkynningunni frá Norður-Afríku í gær, var sagt, að loftárásir bandamanna hefði aldrei verið eins liarðar siðan Pantellaria var tekin. 1 fyrrinótt var aðalárás Breta á Köln og var sendur þangað mikill fjöldi flugvéla. Þær réð- ust einkum á tvö hverfi Kölnar og eru þau hæði á eystri bakka Rínar. Þar eru miklar verk- smiðjur, sem framleiða diesel- vélar, rafhlöður og annað sem kafbátar geta ekki án verið. Auk þess eru þar mikil hafnar- mannvirki og jérnbrautar- stöðvar. Árásin stóð aðeins í 45 mín- útur, en hún var gríðarhörð og þegar njósnaflugvélar Breta voru sendar til Kölnar 8 klst. eftir að árásin var ipn garð gengin, sáu flugmennirnir mikla elda brennandi víða i borginni. Aðrar flugvélar voru sendar til Ilamborgar og Ruhr. 32 komu ekki aftur. Árásin á Frakkland. Stórir hópar flugvirkja og Liberator-véla fóru til Frakk- lands síðdegis í gær. Sumar fóru tii Le Mont, sem er skammt fyrir sunnan París, aðrar til Nantes á vesturströndinni og sem Þjóðverjar hafa kafbáta- stöð. í Le Mont og Nantes eru flugvélaverksmiðjur. Þær vélar, sem fóru lil Le j Mont og Nantes lentu í miklum ' hardögum, en það var lítið um varnir lijé La Pallice. Átta af amerísku flugvélunum komu ekki aftur. Loftsóknin við Miðjarðarhaf. Þrir stærstu flugvellir Sar- diniu og þrír þeir stærstu á Sikiley urðu fyrir geysihörðum | árásum í fyrradag. 'Auk þess j réðust flugvélar frá Malta á ! einn flugvöll á Sikiley. Ellefu möndulveldavélar voru skotn- ar niður, og tíu bandamanna- vélar. Þá var og farið til Ostia og Fiumicino skammt frá Róm. Var flogið yfir úthverfi Rómar og segir ítalska útvarpið, að loftvarnahyssur hafi rekið vél- arnar á brott. I gær var ráðizt á fimm flug- velli á Sikiley, þar á meðal hjá Catania og Milo. í fyrrinótt var ráðizt á Trapani og tvisvar á Comiso. Bandamenn eyðilögðu 45 flugvélar möndulsins i gær. Herför til Grikk- lands undirbúin. Georg Grikkjakonungur á- varpaði þjóð sína í útvarpi frá Kairo í gær. Sagði hann, að stjórn hans hefði unnið að þvi undanfarna mánuði, að leggja á ráðin um þær hernaðaraðgerðir, sem framkvæma þyrfti til að ná Grikklandi úr höndum Þjóð- verja, ítala og Búlgara. Þegar einhver hluti landsins hefði verið tekinn, j)á mundi liann og stjórnin setjast þar að, en kosn- ingar yrði látnar frain fara jafn- skjótt og það væri unnt. Herstjórnin gríska í Kairo hefir tilkynnt, að allir skæru- flokkar i Grikklandi muni fram- \egis teljast hluti af hernum og hlýði j>eir i einu og öllu j>eim f jrirskipunum, sem herstjórnin gefi j>eim. Framleiðsla Bzeta jöfn framleiðslu Þýzkalands, Austur- ríkis og Tékkó- slóvakíu. Bretar einir framleiða nú jafnmikið og allar verksmiðjur Þýzkalands, Austurríkis og Tékkóslóvakíu. Þetta sagði Oliver Lytlelton framleiðsluráðherra Breta í ræðu í gær. „Menn geta svo hug- leitl það,“ bætti hann við, „hvort Bandarikin og Rússar muni ekki framleiða meira en Italir, Japanir og hernumdu þjóðirn- ar.“ Lyttelton upplýsti það m. a.. að 9 af hverjum 10 ógiftum konum landsins störfuðu í þágu ríkisins. Bandamönnum miðar vel áfram á Kyrrahaf seyj unnm Japanir hafa ekki byrjad neinar veruiegar gagnsóknir ennþá, Herstjórnartilkynning MacArthurs í morgun ségir frá því, að mönnum hans miði alls staðar vel áfram á eyjun- um fyrir norðan og norðaustan Ástralíu. Hafa þeir ekki enn þurft að verjast neinu verulegu gagnáhlaupi af Jap- anna hálfu, sem virðast hafa verið undarlega illa viðbúnir sókn af hálfu bandamanna. Skothríðin á Munda-flugvöll- inn verður æ harðari eftir þvi sem fleiri fallbyssur eru fluttar íil Rendova-eyju. Japanir virð- ast hafa mestar áhyggjur af þessaiá skothríð, j>ví að j>eir hafa nokkurum sinnum reynt að gera loftárásir á fallbyssustæð- in. I gær misstu j>eir 21 flugvél i þessum árásum. Hersveitirnar, sem fóru á land hjá Wiru-höfn, liafa nú hreinsað alveg til umhverfis hana. Sumar þeirra eru lagðar af stað inn í slcógana, til þess að ryðja sér leið í gegnum j>á til Munda. Amerískar flugvéla'- hafa gert loftárásir á staði fyrir austan og vestan Munda. Ný landganga. í morgun er sagt i fregnum frá bardögum á eyju einni, sem hefir eklci verið nefnd áður. Heitir hún Vangun-eyja og er i Nýju-Georgiu klasanum. Hafa amerískar hersveitir farið á land þar og virðast þær hafa gert það allra siðustu daga. Samkvæmt fregnum í morgun hafa Banda- ríkjamenn telcið þorj) á eynni og fellt 300 Japani í bardögum um j>að. Kyrrð við Nassau-flóa. Hersveitum bandamanna við Nassau-flóa ætlar að gefast gott tóm, til að efla stöðvar sínar, því að Japanir hafa látið það alveg óáreitt. Þeir reyndu að gera loft- árás j>ar á fyrradag, en voru relcnir á flótta, þegar búið var að slcjóta fimm af flugvélum j>eirra niður. I stöðvum handamanna fyrir vestan Salamaua, hjá Bena- Bena, er mikið um, að vera. Þar geta handamenn gert hættulega sólcn til sjávar og lcróað Japana í Salamaua og Lae inni. Loftárás á Nauru. Fyrir viku gerðu ameriskar Liherator-vélar árás á japönsku eyna Nauru, sem er um 750 mil- ur fyrir norðaustan Salomons- eyjar. Er Jætta lengsta árásar- för, sem farin hefir verið á þessum hjara heims. í Nauru er flotabækistöð og flugstöð. Eitt verkfallið enn í Fleetwood. Enn eitt verkfall hófst í Fleet- wood á laugardaginn, það fimmta á 4 vikum. Um, 300 hafnarverkamennn lögðu niður vinnu, j>egar j>eir voru beðnir að vinna önnur verk við skip, sem inn lcomu, en losun fiskjar. Héldu þeir því fram, að samningar þeirra næði ekki til annarar vinnu en að taka fisk á land. Þessi verkföll í Fleetwood hafa liaft milcið tjón í för með sér fyrir útgerðarmenn þar og fiskkaupmenn. Sikorski ferst í flugslysi. Sikorski, forsætisráðherra Póllands, fórst síðdegis í gær í flugslysi skammt frá Gíbraltar. Flugmálaráðuneytið hrezlca tilkynnti þetta i morgun. Libera- tor-vél, sem Sikorski var i, var nýfarin frá Gibraltar, þegar hún lirapaði í sjó niður. Allir, sem í henni voru, fórust, nema flug- inaðurinn, sem slasaðist hættu- lega. Meðal farþega voru margir úr herráði Pólverja og brezkur þingmaður. Innrásarbáiar stre^ma til Tiinis Innrásarbátar streyma nú austur eftir Miðjarðarhafi frá Gibraltar, segir í fregn frá Sviss. Milano-fréttaritari svissneska blaðsins „Neue Zúricher Zeit- ung“ símar fregn þessa og seg- ir, að njósnaflugmenn Þjóð- verja og ítala liafi að undan- förnu séð látlausan straum, inn- rásarbáta halda austur á bóginn meðfram Miðjarðarhafsströnd frönslcu nýlendanna til Tunis. Lítil herskip fylgja þeim á leið- inni. Norræn sam- vinna efíirsfríð. Tveii* sænskir ráðherrar, Gunther utanríkisráðherra og Sköld landvarnaráðherra, héldu ræður í gær um samvinnu Norð- urlanda eftir stríðið. Gunther talaði í Granna. Hann sagði meðal annars, að enn væri ekki kominn tími til þess að undirbúa endanlega nor- ræna samvinnu eftir stríðið. Slcöld hélt sína ræðu i Arvika. Hann kvaðast hafa mikla trú á samvinnu og bandalagi nor- rænna þjóða. Taldi hann kosti slíkrar samvinnu og bandalags mjög marga og mikla, ekki sízt á hernaðarsviðinu. Stfitt og“ laggott Útvarpið í Alsír hefir aðvar- að íbúa Frakklands öðru sinni við að búa í nágrenni verlc- smiðja, sem starfa fyrir Þjóð- verja. Sagði útvarpið, að fóllc skyldi flytja þaðan liið bráðasta. • Kyrrð er ennj>á á landi í Rússlandi. Loftárásum er eink- um haldið uppi í Kúban-héraði og beggja megin við Kerchsund. • Flugvélar af miðstærð fóru í gær i árásarleiðangur til Ami- ens í Norður-Frakklandi. /

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.