Vísir - 08.07.1943, Blaðsíða 1

Vísir - 08.07.1943, Blaðsíða 1
Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson Hersteinn Pálsson Skrifstofur: Félagsprentsmiðjan (3. hæð) 33. ár. Reykjavík, fimmtudaginn 8. júlí 1943. Ritstjórar Blaðamenn Slmli Auglýsingar 1660 Gjaldkeri 5 llnur Afgreiðsla ' 152. tbl. Danir vinna kol ogr grais úr jörðu. Vegna eldsneytisskortsins í Danmörku í fyrra jókst brún- kolaframleiðsla í landinu upp í 100.000 smálestir á mánuði. Menn voru farnir að óttast, að kolin mundu vera á þrotum, en þá fundust ný kolalög á Jótlandi og Borgundarhólmi. Var þetta árangurinn af víðtækri kolaleit, sem liið opinbera lét fram fara. Þá liefir vinnsla á jarðgasi faríð svo í vöxt, að hún nemur um 2 milljónum lítra á ári. Er gasið sett á „flöskur“ og notað á bíla, eimreiðar og fiskibáta. Menn geta lika fengið gasið til heimilisnota. Belgiskir gislar drepnir. Þjóðverjar hafa tekið af lífi átta belgiska gísla í borginni Charleroi. Menn þessir voru handteknir eftir að borgarstjórinn, sem var rexisti, hafði verið myrtur. Belgiska blaðið „La Libre Belgique“, sem gefið er út í trássi við Þjóðverja, skýrir frá þessu og því jafnframt, að tveir Þjóðverjar hafi síðan verið drepnir fyrir hvern Belgíumann. Ástralíumenn vilja fjölþættari sókn, Ástralíumenn eru ekki á- nægðir með það að bandamenn stikli ey af ey í sókn gegn Jap- önum. Dr Evattv utanrikisráðherra Ástralíu, var í gær gerður að heiðursborgara í Leeds. Hélt hann ræðu við það tækifæri og sagði, að það yrði að hef ja sókn gegn Japönum úr mörgum átt- um í einu. Það gæti að vísu verið gott, að ná frá þeim mik- ilvægum eyjum, en það nægði ekki eitt til að vinna skjótan lokasigur. Herfang Japana. Stjórnin í Ghungking hefir látið reikna það út,hvað Japanir fái mikið af ýmsum nauðsynj- um í lönduin þeim, sem þeir hafa hertekið síðan i árslok 1941. Telst henni svo til, að þeir fói 2,5 milljónir smálesta af hrisgrjónum, næstum 2 millj. smál. af salti, 4 milljónir smá- lesta af kolum, 6 millj. smál. af járni og auk þess ógrynni af tini, olíu og gúmmií sem enginn viti hvað sé mikið. Quislingar drepnir. Sex belgiskir menn, sem eru njósnarar fyrir lögregluna í Briissel, hafa verið myrtir. Frá Póllandi berast líka tiðar fregnir um það, að Þjóðverjar, sem hafa getið sér orð fyrir harðstjórn og illa meðferð á landsfólkinu. Hafa fimm em- bættismenn verið myrtir fyrir þessar sakir nú um helgina. Þá segir pólska stjórnin í London, að Pólverjar heima hafi dæmt til dauða yfirmann setuliðsins í Krakow, Kassel að nafni. Þjóðverjar tefla fram 30 her- deildum. Maðurinn til vinstri á myndinní er George Kenney, hershöfð- ingi, sem hefir á hendi stjórn flughers MacArthurs. Það voru fiugvélar undir lians stjórn, seiri sökktu japönskum skipaflota á Bismarkshafi í vor, þegar Japanir reyndu að koma liðsauka til Nýju-Guineu. Var 22 skipum með 15.000 japanska hermenn sökkt, en 72 japanskar flugvélar eyðilagðar fyrir aðeins fjórar amerískar vélar. T. h. á myndinni er Henry Arnold, yfirmaður alls flughers Bandaríkjanna. Olíufundui* í Kákasus. Sókn Þjóðverja hefir nú slaðið í þrjá sólarhringa og hefir jafnt og þétt farið í vöxt. Fór svo sem skýrt var frá í gær, að Þjóðverjar mundu leggja allt kapp á að hag- nýta sér það, sem þeim hafði áunnizt áður. Játuðu Rússar í gær, að þeir hefði enn orðið að láta undan síga þá um daginn. Eins og áður liafa Þjóðverjar unnið á i nágrenni Byelgorod. Þar tókst þeim fyrst að kvarna úr varnarbeltum Rússa, sam- kvæmt tilkynningum frá Moskva, og hefir siðan orðið allmikið ágengt við að víkka út fleygana. 1 gær segjast Rússar liafa eyðilagt um 520 þýzka skrið- dreka og skotið niður 229 flug- vélar, en manntjón Þjóðverja segja þeir um 10.000 manns á dag, eða samtals um 30.000 manns þessa þrjá daga. * Liðsstyrkur Þjóðverja. Meðan ekki er útséð um það, livort þetta er aðalsókn Þjóð- verja í Rússlandi í sumar, er erfitt að gera sér grein fyrir því, hve miklu liði þeir tefla fram. Rússar telja, að þeir hafi 30 herdeildir (divisions) á svæð- inu frá Orel til Byelgorod, eða alls um hálfa milljón manna. Eru þarna 15 bryndeildir, ein fótgönguliðsdeild með sérstök- um úlbúnaði og 14 venjulegar fótgönguliðsdeildir. Rússar segjast gera miklar á- rásir á stöðvar þessara her- deilda að baki sjálfum vígvöll- unum. Nýjar olíulindir. Rússar liafa fundið nýjar oliulindir i Kákasus, suður und- ir landamærum Persíu. Eru þessar lindir svo auðugar, að þær ganga næst olíulindunum í Baku. Er það Rússum mjög rnikill hagur að hafa fundið þessar lindir á þessum stað, þvi að þegar þeir hafa sett upp bor- turna geta þeir flutt hana eftir gömlum flutningaleiðum. Engir kafbátar smíð- i aðir í Stettin. Ferðamenn, sem komið hafa ! til Svíþjóðar að undanförnu frá j Stettin í Þýzkaland, skýra frá því, að nýsmíðar kafbáta megi heita úr sögunni þar í borginni. Það er rúmlega liálft ár, síðan Bretar gerðu harða árás á þessa mestu hafnarborg Þjóðverja við Eystrasalt og var henni einkum beinl að skipasmíða- stöðvunum og hafa þær aðeins hleypt einum kafbáti af stokk- unum siðan. Það er þó ekki eingöngu því að kenna, hvað Bretar unnu mikið tjón þarna, heldur eru orsakirnar líka þær, hvað mjög er unnið að viðgerð- um á kafbátum, efni fer þverr- andi og kunnáttuverkamönnum fækkar. í borginni eru þrjár skipa- smíðastöðvar, Stettiner Oder Werke, Vulkan Werke og Gol- now Werke. Þessi fyrirtæki hafa um 13000 menn í þjónustu sinrii, en um 3000 þeirra eru er- lendir, flestir Rússar eða Frakk- ar. Þar við bætist svo það, að meira en helmingur þeirra er yfir fimmtugt. Tveim kafbátum riiöndul- veldanna liefir verið sökkt af i flugvélum. Öðrum var sökld á Miðjarðarhafi og hinum á At- j lantshafi. ★ Tvær milljónir amerískra hermanna hafa nú verið flutt- ar til annara landa. 1 þeim ferð- um hafa aðeins tvö liundruð menn farizt. Lokasókn hafin til Munda-flugvallar. Itandaft'Ikjamenii g,ang,a á land fyrii* au§tau liann «§• vcstan. Hæð tekin hjá Mubo á Nýju-Guineu Bandarík jamenn láta skammt stórra högga á milli í hinni ný ju sókn sinni gegn Japönum á Salo- ónseyjum. I morgun var tilkynnt, aÖ þeir hefði gengið á land á tveim nýjum stöðum á Nýju- Georgiu og að þcssu sinni fyrir austan og vestan aðal- bækistöð Japana, Mundaflugvöllinn. Herstjórnartilkynningin var stuttorð um þetta og sagði ein- ungis, að herlið það, sem þarna var notað, hefði komið frá Rendova, enda er aðeins 8 km. sund á milli eyjanna. Hafa Bandaríkjamenn með þessu neytt Japani til að lieyja úrslita- orustu um flugvöllinn iniklu fyrr en ]>eir munu liafa húizt við. I liðinu var ekki aðeins fót- ( gerðu þeir meðal annars árás göngulið, heldur var einnig um . á Port Darwin og Port Mores- skriðdreka — litla að vísu — by. Varð eitthvað tjón á liöfn og stórskotalið að ræða. Það fór fyrrnefndu borgarinnar, en á næturþeli yfir sundið og tókst Japanir misstu 12 flugvélar og að komast á land, enda þótt Jap- skutu sjálfir niður 7 Spitfire- anir yrði þess varir. Japanir sendu í gær stóran lióp sprengjuflugvéla, sem var var- inn um 50 orustuflugvélum, til að hjálpa landhernUm á Nýju- Georgiu gegn Bandaríkjamönn- um. Amerískar orustuflugvélar hittu þær, áður en þær komust yfir eyjuna og skutu tólf niður — þrjár orustuflugvélar og 9 an bardaga. Japanir skutu nið- ur eina ameríska flugvél. Nánari fregnir af sjóorustunni. Það hefir lítið eitt hætzt við þær fregnir, sem áður voru komnar af sjóorustunni á Kula- flóa. Segir ameríska herstjórn- in, að það sé nú upplýst, að am- eríska flotadeildin liafi sökkt eða laskað níu japönsk beiti- skip og tundurspilla, einu færra en fyrst var tilkynnt. Ameríska flotadeiklin beindi fyrst skothríð sinni á 4 eða 5 japanska tundurspilla og kvikn- aði þegar í þeim flestum eða öllum. Síðan var tekið til við 3 eða 4 beitiskip, sem með þeim voru og fengu þau sömu útreið. Var allt um garð gengið eftir 20 mínútur. Beitiskipið, sem Japanir sökktu, hét Helena. Það hafði laskazt mikið i árásinni á Pearl Harbor, en var nýlega orðið sjó- fært aftur. Þegar verið var að bjarga mönnunum af Helena varð vart við 3 japönsk skip sem voru að leitast við að komast út úr Kulasundi og var tveim sökkt. Loftárás á Mubo. Flugvélar bandamanna á Nýju-Guineu gerðu i gær liarða árás á Mubo, en þegar hún var um garð gengin gerði fótgöngu- liðið þar skyndiárás á hæð eina, sem nefnd hefir verið Útsýnis- liæð. Tókst þeim að ná hæðinni eftir harðan hardaga. Eins og nafnið bendir til er útsýni gott af hæðinni og því mikilsvert að hafa hana á valdi sinu. Lofíárásir Japana. Japanir hafa gert árásir á ýmsar bækistöðvar banda- manna að undanförnu. í gær vélar. Norðuríör K. R. Svo sem frá var skýrt í Vísi fyrir skemmstu var ákveðið að K. R. færi íþróttaför til Norður- og Austurlands þessa dagana. Lögðu þeir af stað í fyrradag er það stærsta íþróttaför sem farin hefir verið hér á landi. í fyrrakvöld liélt hópurinn að Laugum og gisti þar. Þaðan var haldið um hádegisleytið í gær til Mývatnssveitar og til Húsa- vikur seinni hluta dags í gær. Þar fór fram kappleikur í liand- knattleik kvenna og sýning í gærkveldi. 1 dag verður förinni haldið á- fram til Eskif jarðar og lceppt og sýnt þar á morgun. einnig á Reyðarfirði, en aðalmótið fer fram á Norðfirði á sunnudaginn kemur. Um miðjan mánuðinn verður flokkurinn á Seyðisfirði. I fjarveru Benedikts Jakobs- sonar, sem nú er einn fyrirliða í íþróttaför þessari, kennir Sig- urður Finnsson bæði frjálsar iþróttir og einnig handknattleik kvenna hér í bænum. „010“ vekor iirltfii 0 Mm. Leikfélag Reykjavíkur sýndi „Orðið“ eftir Kaj Munk í fyrsta sinn á Akureyri í gærkveldi. Var sýningu Reykjavíkurleik- aranna tekið forkunnar vel af leikhúsgestum og leikendurnir margkallaðir fram að sýning- unni lokinni. „Orðið“ verður sýnt aftur í kvöld og annað kvöld á Akur- eyri. Heyskapur er almennt að byrja í Eyjafirði um þessar mundir. Spretta er allgóð orðin og hefir grasvextinum fleygt fram síðasta liálfan mánuðinn. Grískur kafbátur hefir sökkt litlu flutningaskipi undan eynni Samos. Indverskur ráðherra. Indverjar eiga fulltrúa í brezku stríðsstjórninni og er hann Jam Sahib, fursti af Naw- anagar. Myndin er af honum. Vícisld Hólabiskups íWashington Washington í nótt, UP. Að aflokinni vigslunni í gær hafði sendimaður páfa boð inni á Mayflower Ilotel i Washing- ton fyrir Jóhannes biskup, sendilierra íslands og frú hans og fjölda íslendinga aðra, bæði frá Washington og New York, auk starfsmanna sendiráðs páfa. Síðar um daginn hafði sendi- herra Thor Thors og frú lians móttöku að heiinili sínu fyrir sendimann páfa og förunauta hans, Jóhannes biskup og fjölda annarra gesta úr hópi íslend- inga og hinnar kaþólsku kirkju i Bandaríkjuntim. Óvenju mikill ferða- mannastraumur til Norðurlandsins. Ferðamannastraumurinn til Norðurlandsins hefir sjaldan eða aldrei verið meiri en nú undanfarið og hafa að jafnaði verið 5—6 bílar eða jafnvel þar yfir í hverri ferð norður. Övenju miklár hópferðir liafa verið farnar héðan norður i land að undanförnu, og liafa þær nokkru um ráðið livað ferðamannastraumurinn hefir verið mikill. Er nú heldur farið að draga úr honum aftur. Bifreiðastöð Steindórs annast Akureyrarferðirnar mánudaga, fimmtudaga og laugardaga, og er þá farið um Akranes, en B. S. A. annast ferðirnar alla liina dagana og þá um Borgarnes. Þjóðverjar hafa handtekið 120 lögreglumenn i Brússel og nágrenni. Hafa þeir verið sett- ir i fangabúðir hjá Liege. sprengjuflugvélar — eftir harð- ! héðan úr bænum, 60 talsins, og

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.