Vísir - 14.07.1943, Blaðsíða 3
VISIR
Bankainnstæður námu
rúml. 400 millj. kr. í maílok
Seðlaveltan nám 119 millj, kr. á sama tíma.
Innlög almennings í bankana eru nú orðin meira en 400
milljónir króna og hafa aldrei verið meiri. — í nýútkomn-
um Hagtíðindum er skýrt frá þessu ásamt ýmsum öðrum atrið-
um úr reikningum bankanna.
I lok maí námu innlög sam-
tals tæplega 408 milljónum
króna og höfðu þau aukizt þann
mánu'ð um rúmlega 19 milljón-
ir króna. Er það mesta mánað-
arhækkun siðan í október í
fyrra, þegar innlög jukust um
rúmlega 20 milljónir, en þar
áður höfðu innlög orðið mest i
júlímánuði þess árs. Þá jukust
þau um rúmlega 28 milljónir
króna.
Síðan i ársbyrjun 1942, þeg-
ar bankainnstæða landsmanna
nam samtals rúmum 224 mill-
jónum króna, hefir hún farið
jafnt og þétt vaxandi, nema
einn mánuð — febrúar síðast-
liðinn — þegar menn tóku
þremur og hálfri milljón rneira
út úr bókum sínum en lagt var
inn.
Seðlaveltan hefir einnig farið
jafnt og þétt vaxandi og var
orðin tæplega 119 milljónir í
mai. Hafði hún aukizt um rúm-
lega 6,3 milljónir þann mánuð.
1 maí í fyrra var hún rúmlega
68 milljónir króna og liefir að
eins lækkað einu sinni, i janúar
síðastliðnum, þegar hún minnk-
aði um rúmlega 5 milljónir.
Mesta hækkun í einum mánuði
varð í desember síðastliðnum,
er hún hækkaði um 11,3 mill-
jónir.
Aðsfaða bankanna gagnvart
útlöndum hefir farið batnandi
undanfarið. í lok maí áttu þeir
næstum því 350 milljónir inni í
erlendum bönkum. Hafði inn-
eignin hækkað i mánuðinum úr
322 milljónum í 348 milljónir.
f ársbyrjun 1943 áttu þeir inni
156.6 milljónir króna.
Skemmtun í Hallorms-
staðarskógi.
Á skemmtisamkomu Skóg-
ræktarfélags Austurlands í
Ilallormsstaðaskógi á sunnudag
fluttu þessir menn ræður og á-
vörp: Gunnar Gunnarsson
skáld, Sigurður Nordal prófess-
or, Ágúst H . Bjarnason próf-
essor, Hákon Bjarnason skóg-
ræktarstjóri, Þórarinn Þórarins-
son skólastj. og Eysteinn Jóns-
son alþingismaður.
Karlakór Akureyrar söng og
Páll fsólfsson stjórnaði „Þjóð-
kórnum“, og tóku flestir undir.
Austfirðingar í Reykjavik
hafa fært JSkógræktarfélagi
Austurlands 5000 krónur að
gjöf.
„Orustan um
Stalingrad“
Rússnesk mynd í
Xj arnaríó.
Tjarnarbíó sýnir á næstunni
yfirlitsmynd um orustuna xun
Stalingrad. Myndin sýnir fyrst
borgina, eins og hún Var fyrir
stríð, mannvirki, skrúðgarða og
byggingar, siðan hemaðarað-
gerðirnar og loks sigur Rússa.
Meðal annars er sýnd uppgjöf
Paulusar hershöfðingja.
Myndinni fylgja kort og yfir-
litsteikningar, er segja sögu um-
sátursins.
Bæj af
fréttír
Næturlæknir.
Slysavar'ðstofan, sími 5030.
Næturvörður.
Ingólfs apótek.
Næturakstur.
Geysir, sími 1633.
Útvarpið í kvöld.
Kl. 19.25 Hljómplötur: Lög úr
frönskum óperum. 20.30 Útvarps-
sagan: „Liljur vallarins". (Karl ís-
feld). 21.00 Hljómplötur: Laga-
flokkur eftir Debussy. 21.15 Er-
indi: Um Frakkland (Þórarinn
Björnsson mentaskólakennari).
21.35 Hljómplötur: Frönsk tónlist.
Ameríska útvarpið.
1 dag: 16.00 Þjóðlagasyrpa, Roy
Harris. — A morgun : 16.00 Negra-
sálmar, Dorothy Maynor o. fl. Er-
indi um listir i Ameríku.
Gunnar frá Selalæk
á 55 ára afmæli í dag.
Leiðrétting'.
Það voru rúml. 13.600 kr., sem
söfnuðust hjá starfsfólki hafnar-
innar í minningarsjóð Þórarins
hafnarstjóra, og er ætlunin, að það
verði stofnféð, en Slippfélagið gaf
kr. 1000.00 að auki, svo að sjóð-
urinn nemur nú rúml. kr. 14.600.00,
en ekki kr. 13.600.00, eins og sagt
var frá í blaðinu um daginu.
Húsaleiguvísitalan
fyrir júlí—september 1943 er ó-
breytt, 132.
Bruce Belfrage,
einn af kunnustu útvarpsþulum
BBC starfar nú i brezka flotanum
hér við land. Hann mun lesa frétta-
yfirlit í enska útvarpinu héðan í
dag og flytja erindi þar á sunnu-
dag.
\
Björn B. Jónasson,
verkfræðistúdent í Sviþjóð, son-
ur þeirra Sofie og Benedikts Jón-
assonar verkfræðings, andaðist á
heilsuhæli í Sviþjóð 11. þ. m.
Hedtoft Hansen
dvelur ekki í London, eins og
getið var um hér i blaðinu í gær,
heldur í heimalandi sinu. Nýlega
skýrði ríkisútvaruið frá áliti hans
varðandi samband Norðurlanda,
sem gert var grein fyrif í London
og stafaði misskilingur þessi af
þeim sökum.
Hafofirðingar
sigruðu.
1 gærkveldi kom 3. flokkur
Knattspyrnufélags Hafnarfjarð-
ar lúngað til bæjarins og keppti
„gaman“leik við K. R., sem er
meistari í þessum aldursflokki.
Leikar fóru svo, að Hafnfirðing-
ar sigruðu með 3:1. — í haust
ætlar K. H. að taka þátt í mót-
um allra aldursflokka. Verður
þá vafalaust hægt að sjá
skemmtilega leiki.
æææsæsæææææææ
æQD
\ Co
gg ÞAÐ BORGAR SIG gg
gg AÐ AUGLtSA gg
æ 1 visn »
æ æ
æææsæsæææææææ
FJELAGSPRENTSmfUUNNAR
fiESTVB
Frá Happdrætti Hallgrímskirkjn I Reykjavik
Happdrættismiöasalan er nú 1 fullum gangi i Reykjavik
Hallgrímskirkja
er kirkja allrar
jijdöarinnar!
Happd rættis—
vinnin g upinn
ep sá stærsti
sem vepið
hefip taiéx*
á landLi.
Miðarnir fást á eftirtöldum stöðum:
Alþýðubrauðgerðinni, Laugveg 61 og Banka-
stræti 2.
Bókabúð Sigfúsar Eymundssonar.
Bókabúð ísafoldar.
Bókabúð Finns Einarssonar.
Bókabúð KRON.
Bókabúð Austurbæjar.
Bókabúð Þór. B. Þorlákssonar.
Bókabúð Snæbjarnar Jónssonar.
Bókabúð Kristjáns Kristjánssonar, Hafnarstr.
Bókabúð Sigurjóns Jónssonar, Þórsgötu 4.
Verzlun Hjartar Hjartarsonar, Bræðraborgar-
stíg 1.
Verzlunin Ásbyrgi, Laugaveg 139.
Ludvig Storr,verzlun, Laugaveg 15.
Verzlun Guðjóns Jónssonar, Hverfisgötu 50.
Barónsbúð.
Blómabúðinni Garður, Garðastræti 2.
Verzlunin Drífandi, Hringbraut 193.
KRON, Verkamannabústöðum við HringbrauL.
Verzlunin Lögberg, Holtsgötu 1.
Áfram, Laugaveg 18.
Húsgagnaverzlun Reykjavíkur, Vatnsstíg 3.
Höfðabakarí, Höfðahverfi.
Alþýðubrauðgerðinni, Leifsgötu 32,
Ásgeir Ásgeirsson, verdun, Þinghottsstræti.
Kiddabúð, Þórsgötu 14.
Verzlun Sveins Þorkelssonar, Sólvallagötu 9.
Bristol, Bankastræti, verzlun.
Kaktusbúðinni, Laugaveg 23.
Bókabúð Æskunnar, Kirkjuhvoli.
Ennfremur fást happdrættismíðarnir hjá afgr.
Morgunblaðsins, K.F.U.M. og hjá prestum saf»-
aðarins.
iiið ið letjiskitts- oi itsoaisW iiniiigsins islit litið iinii
Skrifstofa happdrættisins er í Tryggvagötu 28, II. — Sími 5195.
Snmarbúistaðnr
i nágrenni Reykjavikur er til sölu af sérstökum ástæðum.
Tækifærisverð, ef samið er strax. — Nánari uppl. á skrifstofu
Guðlaugs Þorlákssonar
Austurstræti 7. — Sími: 2002.
Hatar§tell
fyrir 12, falleg gerð. Einnig sérstakir
Kaffibollar. — Takmarkaðar birgðir.
Héðinshöfði h.f.
Aðalstræti 6 B. — Sími 4958.
Orðrómur um
tveggja íiokka
stjórn.
Kommarnir ekki samvinnu-
hæfir á þeim grundvelli. —
Spekingamir í kommúnista-
flokknum eru sífellt að reyna
að nugga sér upp við sjálfstæð-
ismenn, sumpart til þess að
gera ýmsa flokksmenn tor-
tryggilega, en þó einnig af þeim
orsökum að hentistefnumönn-
unum í flokknum finnst það
henta, — ekki sízt innan bæjar-
stjórnar Reykjavíkur.
Þetta mun hafa leitt til þess
að sá orðrómur hefir gengið
um bæinn að undanförnu, að
mönnum innan Sjálfstæðis-
flokksins lægi það ríkt á hjarta
að efna til stjórnarsamvinnu
með kommúnistum á hausti
komanda. Orðrómur þessi hefir
við engin rök að styðjast, en
þykir vafalaust vatn á myllu
andstæðinga Sjálfstæðisflokks-
ins, sem með þessu tekst ef til
vill að gera einstaka flokks-
menn tortryggilega i augum
auðtrúa sálna.
Kommunum er það hinsveg-
ar Ijóst að sjálfstæðismenn sjá
við refjum þeirra og prettum í
hvaða mynd, sem slikt birtist,
og hefir hér í blaðinu þráfald-
lega verið sýnt fram á hvers-
kyns manntegund kommamir
væru, og hvers mætti af þeim
vænta. Af þessum sökum „lek-
ur annað veifið úr honum afa“
i bæjarpósti Þjóðviljans, og
ávalt finnast einhverjir sultar-
dropar á nefbroddinum á Örv-
aroddi. En það er þetta með
Örvarodd, að hann skortir
skyrtuna góðu, sem nafni hans
átti. „Hylja varla götin göt á
garmskinninu“, — og svo er
það óværan, —- já þvílík for-
smán. Og svo halda þessir
menn að þeir geti nuggað sér
utan í aðra og aðrir vilji nugga
sér utan i þá. Yisir mun eftir
frekustu getu gæta þess að boð-
skapur hreinlætisvikunnar verði
i lieiðri hafður í sjórnmálum,
sem á öðrum sviðum og takist
það, sem ekki er að efa, mega
kommarnir vita hvar þeim ei-
markaður bás, þótt sjálfir vilji [
þeir teljast í tölu siðaðra manna
Tilkynning
í gær hætti
»Restaurationin í Oddfellowhúsinucc
starfrækslu, en við rekstrinum hefír tekið
„TJARNARCAFÉ h.f.“
Virðingarfyllst
Ejgrill Benedikt§§on.
Samkvæmt ofangreindu höfum vér tekið við
rekstri veitingasalanna í Vonai'stræti 10 (Odd-
fellowhúsinu) og verður fyrirkomulag það
sama og áður. Egill Benediktsson verður á-
fram framkvæmdastjóri.
Virðingarfyllst
V erzlunar jöfnuður-
inn hagstæður í júní
Samkvæmt bráðabirgða yfir-
liti Hagstofu Islands nam inn-
flutningur til landsins i júní
rúml. 21 millj. kr., en útflutn-
ingur tæplega 24.7 millj. kr.
Verzlunarjöfnuðurinn hefir því
verið hagstæður i júní um tæpl.
3.7 millj. kr.
Á tímabihnu jan.—júni er
verzlunarjöfnuðurinn aftur á
móti óhagstæður um 9.2 millj.
Innflutningur á tímabilinu nem-
ur 119.4 millj. krónum, en út-
flutningur 110.2 millj. kr.
Vörnlager til söln
Búsáhöld, burstavörur, jámvörur, kristall og kera-
mik, ritföng, leikföng, leðurvörur, snyrtivörur, vefn-
aðarvara, ýmsar smávörur, hreinlætisvörur og ýmis-
konar matvara.
Verður selt allt í einu lagi, eða í einstökum yöinjr
flokkum.
Tilboð sendist undirrituðum, sem gefur allar nánarí
upplýsingar.'
Sigurgeir Sigurjónsson
hæstaréttarlögmaður.
Aðalstræti 8. Sími: 1043.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarð-
arför systur okkar,
Þóru Sigurveigar Vilhjálmsdóttur
frá Sandfellshaga.
Jóhanna Vilhjálmsdóttir. Aðalbjörg Vilhjálmsdóttir.
Margrét Vilhjálmsdóttir. Björn Vilhjáhnsson.