Vísir - 17.07.1943, Blaðsíða 1

Vísir - 17.07.1943, Blaðsíða 1
Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson Hersteinn Pálsson Skrifstofur: Félagsprentsmiöjan (3. hæð) Ritstjórar | Blaðamenn Slmi: Auglýsingar 1 1660 Gjaldkeri Afgreiðsla 5 llnur 33. ár. Reykjavík, laugardaginn 17. júlí 1943. 160. tbl. Rússar stefna til Orel úr 3 áttum. Þegar Pantellaria gafst upp. Þegar ítálir á Pantellariu sáu sitt óvænna og gáfust upp fyrir loftsókn bandamanna máluðu þeir stóran hvitan kross á flug- völl á eynni. Sést hann á miðri myndinni. Borgfin I yfirvofandi hættn. Þrír rússneskir herir stefna nú til Orel á miðvígstöðvunum í Rússlandi úr norðri og austri. Varð Rússum allmikíð á- gengt í gær, svo að borgin er í yfírvofandi hættu fyrir fram- sókn þeirra. Sóknin fyrir norðan borgina er mun hættulegri, því að þótt borgin falli eklti í hendur Rússa, þá getur herinn fyrir norðan hana sótt svo langt vestur á bóginn, að hann júfi járnbraut- ina frá Bryansk, og segja sumar fregnir, að þegar sé húið að rjúfa þá járnbraut. Hersljórnartilkynning Rússa i gærkveldi sagði aðallega frá framgöngu hersveitanna, sem eru fyrir norðan Orel. Þar sóttu fram 10—15 kílómetra og tóku margvíslegt herfang. Suður hjá Byelgorod er að- eins um aðgerðir njósnaflokka að ræða. Hergögn frá bandamönnum. 1 fréttum frá hlaðamönnum í Moskva er gert mikið úr þvi, að Rússar nota að þessu sinni meira af amerískum hergögn- um og brezkum en nokkru sinni. I fylkingarbrjósti sólmar- hersins fara skriðdrekasveitir, sem liafa hrezka Churchill- dreka og ameriska Sherman- dreka, en það voru þeir sem Mesti sigur flug- véla á kafbátum. 2 bátum sökkt, e.t.v. 8 að auki. Fyrir skemmstu sökktu flug- vélar af litlu flugstöðvarskipi tveim kafbátum á Atlantshafi og ef til vill átta að auki. Flugstöðvarskipið, sem er af hinni nýju gerð bandamanna og var að fylgja tveim skipalestum, hélt uppi svo strangri gæzlu á leiðinni yfir hafið, að kafbát- arnir komust ekki í færi við þær nema tvisvar sinnum, en þótt þeir gæti þá gert árásir voru þær árangurslausar. Meðal bandamanna er þetta talinn mesti sigur, sem flug- véiar hafi nokkru sinni unnið á Lafhátiun Þjóðverja. reyndust sem bezt í bardögun- um í Norður-Afríku. Loftárás á Gorki. Þjóðverjar segjast liafa það eftir rússneskum fanga, sem þeir hafi teldð, að í einni loft- árás á Gorki fyrir skemmstu hafi 4000 verkamenn farizt. Orsök hins mikla manntjóns var sú, að stjórn verksmiðjanna lokaði þeim, þegar árásin hyrj- aði, til þess að vinna liætti ekki. Þjóðverjar taka við hlutverki Breta. ' ! Þýzka útvarpið sagði í gær, að Þjóðverjar hefði í stríðinu tekið við því hlutverki Breta, að vera mesta jám- og stálútflutn- ingsland í Evrópu. Ctvarpið sagði, að útflutn- ingur á allskonar vörum úr járhi og stáli hefði margfaldazt frá Þýzkalandi síðan 1941, svo að ef gerður væri samanburður á útflulningi fyrra árshelmings þá og nú, þá kæmi í ljós, að sum lönd fengju nú frá Þjóð- verjum tvisvar eða þrisvar sinn- um meira af málmvörum en fyrir tveim árum. Þar við hættist svo, að Þýzka- land sæi Evrópu að miklu leyti fyrir öllum kolum, sem liún þyrfti. Norðurlönd fengi til dæmis öil kol sin frá Þýzka- landi sjálfu og ítalir fengju um 13 milljónir sniálesta á ári. Fyrir stríðið liefði Bretland fullnægt að mestu kolaþörf Ev- rópuþjóða og þá hefði það einnig selt mikið af stál- og járnvai-ningi úr landi, en nú yrði þeir að flylja þær vörur inn. Straumhvörf, 3. hefti, er komið út og flytur m. a.: Atvinnutæki og hagnýting þeirra (Luðvík Kristjánsson), Fjörefnahungur (S. Sörenson), Jazz-músik og siðraui uppeklis- áhrif (Hallgr. Helgason) og heim- ili og þjóðfélag (Broddi Jóhannes- son). SIKILEY: Bandamenn um samgöngumiðstöðvum á vald sitt. I . ) j MéndulheFinn eflist, en gjetni* ek:ki stöðvað þá. Loftsóknin í algleymingi. Eftir sjö daga bardaga á Sikiley er svo komið, að bandamenn hafa náð öruggri og góðri fótfestu á ströndum eyjarinnar. Þeir hafá náð nokkrum góðum höfnum á sitt vald, þar sem allt að tíu þúsund smálesta skip geta athafnað sig. Nú stefna þeir sókn sinni upp á land til borga, sem eru mikilvægir liðir í flutningum möndulhersveitanna og jafnframt þeirra sjálfra. I gær tóku bandamenn tvær horgir, sem erg báðar mjög mikl- ar samgöngumiðstöðvar. Önnur þeirra er Vizzini, sem er um 50 km. frá Sýrakúsu og er við veg, sem liggur þvert vestur yfir eyjuna. Taka þessarar borgar stofnar Cataniu í hættu fyrir möndulherinn og skiptust hann og bandamenn á að taka hana fimm sinnum, áður en bandamenn gátu loks náð henni fyrir fullt og allt. Floti og her vinna saman. Góð samvinna þessara manna hefir ráðið miklu um það, hversu innrásin á Sikiley hefir gengið vel til þessa. Þeir eru frá vinstri: Willis flotaforingi, sem stjórnar hluta af brezka Miðjarðarhafsflotanum, Eisenhower hershöfðingi og Andrew Cunningham flotaforingi bandamanna á Miðjarðarhafi. Hin samgöngumiðstöðin, sem bandamenn hafa tekið, er vest- ast á því svæði, sem þeir liafa og er hún í höndum Bandaríkja- manna. Heitir hún Carmicata og um hana liggja margir veg- ir. Bandaríkjamenn hafa sótt lengst 45 km. upp á land. Engin eyðilegging. Það hefir vakið eftirtekt handamanna, að möndulsveit- irnar liafa ekki unnið nein skemmarstörf í undanhaldinu. Hefir það komið sér mjög vel, ið svo mikið fát liefir verið á þeim, að þær liafa ekki gefið sér neinn tíma til að sprengja hrýr í loft upp eða leggja jarð- sprengjur í vegi og með fram þeim. Hefir þáð ráðið miklu um það, hversu hratt banda- menn liafa getað sótt fram. Harðari mótspyrna. Mótspyrna möndulsveitanna hefir farið jafnt og þétt vax,- andi undanfarna daga, en eink- um er liún meiri þar sem 8. iierinn er til sóknar. Þar eru 15. bryndeild Þjóðverja og Her- mann Göring-deildin, sem báð- um var eytt í Tunis, en Hitler lét endurreisa þegar í stað. Hafa þessar deildir meðal annars tigrisdreka, en þrátt fyrir það hefir þeim ekki tekizt að stöðva 8. herinn. ítalir eru einkum áhyggju- fullir vegna sóknar 8. hersins og í gær sagði ítalska útvarþið. að orus'tan um Cataniu gæti orðið úrslitaorustan um Sikiley. Loftsóknin. Þegar handamenn fóru að nota flugvellina á Sikiley óx loftsókn þeirra skyndilega mjög mikið. Síðan hefir hún farið jafnt og þétt vaxandi, eftir því sem vellirnir liafa verið lag- færðir og fleiri flugvélar fengið hækistöðvar á þeira. Þó er hér aðeins um orustuvélar að ræða, því að sprengjuvélarnar hafast við í Tunis eða Malta. ' Þegar ekki er ráðizt á flug- velli möndulherjanna er árásum einkum beint að vegamótum og járnbrautum, og hafa flugvélai' bandamanna eyðilagt mikinn fjölda eimreiða fyrir fjand- mönnunum. Undanfarinn sólarhring var meðal annars ráðizt á Palermo, Neapel og ýmsar fleiri horgir. Kafhátasókn á næstunni. Bandamenn eru varaðir við of mikilli bjartsýni í baráttunni við kafbátana, því að þeir megi búast við mikilli sókn af þeirra hálfu bráðlega. Það var Knox flotamálaráð- herra Bandarikjanna, sem lcom með þessa aðvörun á blaða- mannafundi í gær. Hann sagði, að því færi fjarri, að kafbáta- liættan væri úr sögunni, því að enda þótt færri skipum hefði verið sökkt á Norður-Atlants- iiafi að undanförnu en áður, þá ætti Þjóðverjar enn nokkur tromp eftir. „Við eigum í höggi við mjög hættulegan fjandmann,“ sagði Knox, „sem er æfðari í kafbáta- hernaði en nokkur önnur þjóð heimsins. Eg er ekki i vafa um það, að kafbátasókn mun verða hafin einhversstaðar annars- staðar.“ Bæjar fréttír Verðlagsbrot. Nýlega hafa eftirtaldar verzlanir og veitingahús verið sektuð fyrir hrot á verðlagsákvæðum: Hafliði Bjaldviusspn fisksali, sektaður um kr. 300,00 fyrir of hátt verð á laxi. Hótel ísland sekta'ð um kr. 500,00 fyrir of hátt verð á veitingum. Hattabúð Ingu Asgeirs sektuð um. kr. 1000,00 fyrir of hátt verð á kvenhöttum. Heildverzlun Ágústs Ármanns sektuð um kr. 1000,00 fyrir of háa álagningu á hnífa. Snorri Halldórsson, héraðslæknir að Breiðabólsstað á Síðu andaðist á Landakotsspítala í fyrradag. Sigurjón Jónsson, á'ður skipstjóri á Arctic er ný- látinn á sjúkrahúsi i London, 54 ára að aldri. Hann átti heimá í Hafnarfirði, kvæntur, 6 uppkomin hörn. Banamein var krabbi. Tóbakseinkasalan ítrekar í dag aðvörun til al- mennings um tóbakskaup og sölu. Það varðar þungum sektum og refs- i ingum að verzla með annað tóbak en það, sem einkasalan hefir ann- azt innflutning á. Handknattleiksmótið. í gærkveldi vann Þór I. R. 7:2. Haukar unnu liitt Hafnar- fjarðarfélagið, F. H., með 5:1. Loks kepptu Vestfjarðastúlk- urnar sinn fyrsta leik móti K. A., K. A. sigraði í. R. V. með 3:1 ! eftir jafnan leik. Mótinu heldur áfram i kvöld, og keppa Ármann við F. I4„ Þór við í. R. V. og K. A. við í. R. Leiki'r hefjast kl. 8 í kvöld, en ekki kl. 9, eins og undanfarin kvöld. Rafmagnsleysi. í morgun var aðeins önnur vél Sogsstöðvarinnar í gangi ásamt EIl- iðaárstöðinni, svo að rafmagnsleysi var mikið í bænum. Var Vísir því óvenjulega seint á ferðinni í dag. Það vakti mikla furðu í Bandaríkjunum fyrir nokkuru, þegar það komst upp, að stjórnin hafði fengið fanga „að láni“ frá Kanada, því að maður þessi var enginn annar en dr. Ernst Hanfstángl, sem var um langt skeið ráðunautur Hitlers og trúnaðarvinur. Myndin er af Ilanfstángl. Utvarpið NÚTÍMATÓNLIST. / kvöld: 20.30 Leikrit: „Blekk- ingar“ (Haraldur Björnsson og Ævar R. Kvaran). 21.25 Hljóm-, plötur: Klassískir dansar. 22.00" Danslög til miðnættis. Á morgnn: 11.00 Messa í Dómk. (síra Garðar Svavarsson). 15.30—- 16.30 Ballett-tónlist: Þyrnirósa eft- ir Tjaikovski og Petrúsjka eftir •Stravinski. 19.25 Ballett-tónlist: Sjöslæðudans og Till Eulenspiegel eftir Richard Strauss. 20.20 Barna- svítan eftir Debussy. 20.35 Ef lenzk nöfn og dönsk, erindi Björns Sigfússonar. 21.00 ísl. kórar. 21.10 Sögukaíli eftir Guðmund Daníels- son. Höf. les. 21.35 Danslög til kl. 23.00. Ameríska lítvarpið: í dag: 13.00—15.30 m. a. Fjórða symfónían eftir Brahms. Á morg- un: 10.00 Guðsþjónusta, hljómh, fréttir til 10.55. 13.00 Kathryn. Ov- erstreet, píanóleikur. •— Tosca- nini stjórnar „Hymn of the Nations.“ A morgtm: 16.00 Fimmta sýmfóníán eftir Sibelius. Það er sérstök ástæða til að benda tónlistarunnendum á dag- skrárliðina 15.30—1Ö.30, 19.25— 19.50 og 20.20—20.35. Tjaikovski og Stravinski eru glæsilegustu full- trúar rússneskrar ballett-tónlistar, Tjaikovski fulltrúi klassiska „skól- ans“ en Stravinski brautryðjandi nýtízku tónlistar. Richard Strauss hefir hlotið heimsfrægð íyrir Till . Eulenspiegel, sem upphaflega var hugsað sem ballett, og barnasvíta Debussy’s (The Children’s Corner) er eitt af yndislegustu verkum hans. Dagskráin er öll í merki nútímatón- listar. Á píanóleik ungfrú Overstreet í ameríska tímanum 13.30 er minnst á.öðrum stað í blaðinu. Heilsufræði. Níels Dungal flutti í gærkveldi stór-fróðlegt erindi um sýkla, sjúk- dóma og fagnaðarboðskap heilsu- fræðinnar. Þetta „handraða“efni er úr læknabókinni, sem verið er að taka saman, og verður það góð bók, ef allt er eftir þessu. En þrátt fyrir óhuggulegar lýsingar á sýklum í stjarnfræðilegum upphæðum, gat prófessorinn ekki varizt því að hósta fram nokkrum milljónum þeirra öðru hverju. Möð þessu er náttúrlega full-langt gengið í út- skýringum, því að þar fyrir utam er prófessorinn með áheyrileguetu mönnam.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.