Vísir - 04.11.1947, Blaðsíða 3
V I S I R
3
Þriðjudaginn 4. nóvembei’ 1947
ALÞINGI:
Fyrírmæli um sæðingu bufjar tekin
upp í nýtt frv. um búf járrækt.
Sæðingin getnr dregið úr hættu af
búljársíúkdémum.
Landbúnaðarnefnd Neðri
deildar ber fram — að beiðni
Búnaðarfélags íslands —
frumvarp til laga um búfjár-
rækt
Er þetta mikill bálkur i
samtals 9 köflum og 83
greinum. Er breytingin mikil
frá fyrri lögum, því að fjórir
nýir kaflar bætast við og hin-
ir fyrri eru talsvert breyttir.
Eitt merkasta nýmælið i frv.
er um sæðingu búfjár. Er
það ný og fljótvirk aðferð til
að kynbæta búfé, þar sem
auðvelt verður að útbreiða
Ijeztu og reyndustu karldýr-
in. Um þann kafla segir svo
í greinargerð fyr'ir frum-
varpinu:
.....Aðferð þessi hefir á
siðustú árum rutt sér ört til
rúms i öllum lielztu búfjár-
rætkarlöndum heims og gef-
ið góða raun. Það, sem m. a.
mælir sérstaklega með þess-
ari aðferð hér á landi, er, að
hún dregur mjög úr þeirri
liættu, að sjúkdómar berist
milli landa og landshluta
með kynbótadýrum, en þetta
atriði er mikilsvert fyrir ís-
lenzka bændur nú vegna
sjúkdómavarnanna, sem
gera víða ómögulegt að flvtja
lcynbótagripi milli héraða,
liversu brýn sem nauðsyn
þess kann að vera. Það hefir
allmikinn kostnað í för með
sér að koma á stofn sæðingar-
stöðvum, og rekstur þeirra
verður kostnaðarsamur í
fyrstu, meðan Starfsemin er
að komast i fast horf og
bændur að.fá traust á henni,
svo að þeir minnki við sig
nautahald og fallist á að
greiða sæðingarstöðvunum
nauðsynleg gjöld. Þvi er svo
ráð fyrir gert, að ríkissjóður
greiði laun sérfræðings, með-
an hann er að koma rekstri
stöðvarinnar í gott horf. Enn
fremur er ætlazt til, að ríkis-
sjóður greiði til reksturs
stöðvarinnar kr. 7.00 fyrir
hverja sædda kú og kr. 0.50
á sædda á. Útgjöld samkvæmt
lcafla þessum geta numið
nokkurri upphæð, þó ekki
mikilli fyrst um sinn, þar
sem aðeins ein sæðingarstöð
er starfandi nú sem stendur.
rlins vegar má búast við þvi,
ef áhugi er fyrir hendi, að út-
gjöld muni vaxa á næstu ár-
um, en því fé væri vel varið,
vegna þess að starfsemi þessi
mundi flýta mjög fyrir kyn-
bótum búfjárins yfirleitt ..“
Fyrsti vefirarfundur
álliance Francaise.
Alliance Francaise hélt
fyrsta fund sinn á vetrinum
s. 1. þriðjudag.
Ýmsum utanfélagsmönn-
um hafði verið boðið, m. a.
A. Jolivet kennara við Há-
skóla íslands. Flutti hann er-
indi um franska leikrita-
skáldið Jéan Anouilh, en á
undan erindinu ávarpaði rit-
ari félagsins, Magnús G. Jóns-
son, hinn franska sendikenn-
ara, og óskaði lionum til
hamingju með Fálkaorðuna,
sem forseti Islands sæmdi
hann fyrir skömmu. Hlaut
A. Jolivet lnð mesta lof fyr-
ir erindi sitt, enda er hann
mjög skemmtilegur fyrirles-
ari. Benli hann m. a. á að
Anouilh minnti oft mjög á
norska skáldið Ibsen. Að
loknu erindi Jolivet var sezt
að kaffidrykkju, en skömmu
áður en hófinu var slitið
kvaddi formaður félagsins,
Pétur Þ. .1. Gunnarsson stór-
kaupmaður, sér hljóðs og
þakkaði A. Jolivet fyrir kom-
una og hið ágæta erindi.
Færði hann A. Jolivet að gjöf
frá félaginu liið nýútkomna
rit Magnúsar Jónssonar. um
Hallgrim Pétursson og ósk-
aði honum góðrar lieimferð-
ar, en þetta var siðasti dagur
A. Jolivet hér á Islandi að
þessu sinni. Aður en hófinu
lauk þakkaði A. Jolivet fyrir
hinar ágætu viðtökur, sem
hann hafði fengið hér á landi.
Lokið við stækkun
é gistihúsinu
að Fornahvammi.
Um þessar mundir er ver-
ið að Jjúka við stækkun, sem
framkvæmd hefir verið á
Gistihúsinu að Fornahvammi
í Norðurárdal í Borgarfirði.
Gistihúsið hefir verið
stækkað allmikið og rúmar
það nú um 50 gesti í herbergi,
án þess að þröngt sé um þá.
Aðalbreytingarnar hófust i
fyrravetur og liefir þeim
verið haldið áfram siðan og
er nú svo komið, að verið er
að leggja síðustu hönd á
verkið. Aðalbvggingin er tví-
lyft með kjallara og risi og
er mjög haganlega frá öllu
gengið í húsinu. Gistihúsið i
Fornahvammi. mun vera
með einu af fullkomnustu
gistihúsum hérlendis.
Mikil umferð er á sumr-
um um Norðurárdal óg kem-
ur það sér vel fyrir ferða-
menn, að geta fengið gist-
inu i Fornahvammi og annan
beina. I>áta mun nærri að um
150 manns snæði þar máls-
verð, þegar áætlunarbifreið-
irnar milli Rvikur og Akur-
eyrar liafa þar viðstöðu.
Forstöðumaður gistihúss-
ins er Páll Sigurðsson og
liefir hann rekið gistihúsið
með miklum myndarbrag og
hafa menn tekið til þess, hve
öll þjónusta, sem gistihúsið
lætur ferðamönnum i té er
fullkomin og góð í alla staði.
Frá aðalfundi Þing-
eyingafélagsins.
Aðalfundur Félags Þing-
eyinga í Reykjavík var hald-
inn í Oddfellowhúsinu 30.
okt. s. 1.
Formaður félagsins var
kjörinn Stefán Björnsson fra
Grjótnesi á Sléttu. Meðstjórn-
eridur eru Aðalbjörg Guð-
mundsdóttir, Indriði Indriða-
son, Sigurður Kristjánsson
og Valdimar Helgason. Fé-
lagar eru tæplega 200 talsins.
A fundinum voru rædd
ýmis félagsmál, svo sem
starfsemi söngltórs, bókaút-'
gáfa, skemmtanastarfsemi á
komandi vetri o. fl. Innan fé-
lagsins hefir starfað blandað-
ur kór undanfarin 5 ár. I
honum eru um 10 manns, en
óráðið er um stjórnanda
hans í vetur.
Skýrt var frá útgáfu á Rit-
safni Þingeyinga. Af þvi er
nú þegar komið út fyrsta
bindið, en það er eftir dr.
Björn Sigfússon og fjallar
um landnám og sögu Þing-
eyinga til Þjóðveldisloka.
Gert er ráð fyrir að sjálf sag-
an verði í 3 bindum og nái
til vorra daga. Hinsvegar
verður rilsafnið miklu
slærra, a. m. k. 7—10 bindi.
Nú er í prentun 2 bindi af
Ritsafninu. Það eru þættir
eftir Indriða Þorkelsson á
Fjalli. Eru það frásagnir af
einstöku mönnum og mál-
efnum úr Þingeyjarsýslu, um
220 bls. að stærð og búin und-
ir prentun af Indriða syni
hans.
Óvist er hvað næst verður
gefið út í Ritsafninu, en með-
al þess sem er í undirbúningi
eru bvggðalýsingar sýslunn-
ar. Hefir einum manni i
hverjum hreppi beggja sýsln-
anna verið falið að skrjfa lýs-
inguna, hver fyrir sína sveit,
en siðan- verður tveimur
mönnum, sínum úr livorri
sýslu, falið að samræma lýs-
ingarnar og’ búa þær undir
prentun.
Þá má geta þess að Jóhann-
es Askellsson jarðfræðingur
hefir tvö undanfarin sumur
ferðast um Þingeyjarsýslur
til úndirbúnings samningu á
1 jarðfræðilýsingu.
Auk þessa verður að sjálf-
sögðu skrifað um margt
fleira þ. á m. um gróður og
dýralif, veiði, íþróttir, land-
búnað o. s. frv. Ritstjóri rit-
safnsins hefir verið ráðinn
Þorkell Jóhannesson prófes-
sor.
Bridgekeppnin
Tveir síðustu undan riðl-
arnir í bridgekepprdnni voru
spilaðir í gær.
I 4. riðli urðu þessir efstir:
1. Helgi Eiríksson 5714 st.
2. Guðm. Ólafsson 5114 —
3. Hörður Þórðarson 51 —
4. Jón Þorsteinsson 4814 —
5. Stefán Þ. Guðmunds-
son 48 -—
6. Halldór P. Dungal 47
7. Jens Pálsson 4614 —
I 5. riðli urðu efstir:
1. Þorst. Þorsteinss. 54 st.
Sa'jatýréttir
308. agur ársins.
Næturlæknir.
Læknavarðstofan, simi 5030.
Næturvörður
er i Laugavegs Apóteki, sími
1616.
Veðrið.
Norðan eða norðaustankaldi.
sums staðar alllivasst í dag. Yíð-
ast skýjað en úrkomulaust.
Höfnin.
Vatnajökull kom i gær frá Am-
eriku. Esja kom úr strandferð 1
gær. Enskur togari fór á veiðar
i morgun.
Frú Jóhanna Rokstað,
Marklandi í Garðalandi er scslíu
ára í dag.
Iíaupsamningar
liafa verið úndirritaðir milli
matreiðslu- og framleiðslumanna
og veitingahúseigenda í Rvik. —
Grunnkaup matreiðslumanna
verður kr, 650.00 á mánuði. Yfir-
matreiðslumenn fá 25% hærri
grunnlaun.
Útvarpið í kvöld.
18.25 Veðurfregnir. 18.30
Dönskukennsla, 2. fl. 19.25 Þing-
fréttir. 20.25 Mendelsohn, 100 ára
dánardægur: a) Erindi: Róbert
Abraham. b) Tónlist eftir Mendel-
sohn (plötur). 21.15 Smásaga vik-
unnar: „Ljónabúrið'* eftir Verner
von Heidenstam (Helgi Hjörvar).
21.45 Spurningar og svör um is-
lenzkt mál (Bjarni Vilhjálmsson).
22.00 Fréttir. 22.05 Djassþáttur
(Jón iM. Árnason).
Happdrætti Landbúnaðarsýning-
arinnar. Dregið hefir verið hjá
borgarfógetanum í Reykjavik i
happdrætti Landbúnaðarsýning-
arinnar. Þessi númer hlutu vinn-
inga: 26107: Reiðhestur. 24632:
Jeppabifreið. 20465: Farmal-
dráttarvél. — Vinninganna niá
vitja hjá Kristjóni Kristjónssyni
í S. í. S., sími 7080 eða 3978.
Félag Vestur-íslendinga.
Aðalfundur verður haldinn i
Oddfeilowhúsinu uppi, fimmtu-
daginn 6. nóvember kl. 8,30. —
Eftir aðalfundarstörf verður
kaffi, spil og dans. Allir, sem
dvalið hafa vestan hafs, geta
gerzt félagar. Félagar! Fjölmenn-
ið og takið með ykkur gesti. —
Stjórnin.
2. Kristj. Kristjánss. 53
3. Kristinn Bergþórs-
son 52 —
4. Pétur Emarsson 5114 —
5. Lárus Karlsson 49 —
6. Einar Jónsson 4614 —
7. Gunnar Möller 4614 —-
Spilað verður í 2 milli-
riðlum, en 8 menn í hvorunt
milliriðlum komast í úrslit.
Skrifstofur Stjórnarráðsins,
SJÚKRAMÁLADEÍLDAR,
eru fluttar á Klapparstíg 26, III. hæS.
Sendisveinn óskast
hálfan eða allan daginn.
Háteigsveg 2.
Jarðarför systur minnar,
Sofm Daníeisson,
fer fram fimmtudaginn 6. fí.m. og heíst með
húskveðju að heimili hennar, Aðalstræti 11
kl. 1,30 e.h.
Leopoldfna Eiríkss.
Innilegt fjakklæti fyrir auðsýnda samúð og
vináttu við andiát og jarðarför,
Snsönnu !. fónasdáttur,
hárgreiðslukonu.
Aðstandendur.