Vísir - 17.05.1952, Blaðsíða 1

Vísir - 17.05.1952, Blaðsíða 1
42. árg. Laugardaginn 17. maí 1952 110. tbl. Skemmdir í Krýsuvík af völdum jaröskjálfta í gær. Eliiii inælðiiioa fér ár í gærdag, laust eftir kl. hálf l>rjúT, varð vart við allsnarpan jarðskjálftakipp í Reykjavík •og á ýmsum stöðum um Reykjanes, en miklu snarp- astur mun hann hafa orðið í Krýsuvík. í Krýsuvík olli hann nokkru tjóni því þar féll niður lengja af röraleiðslum í gróðurhúsi og hlutust af því nokkrar skemmdir. Ennfremur datt leirtau af hillu og brotnaði, klukka, blómsturvasar o. fl. Telur fólk í Krýsuvík að kippur þessi hafi verið allmiklu snarpari en um daginn. Eftir að fyrsti kippurinn fannst, komu 3—4 kippir en mun væg- ari og síðan fundUst smáhrær- ingar öðru hvoru fram eftir degi. Samkvæmt þeim upplýsing- um sem Vísir fékk hjá Veður- stofunni hafði orðið vart alls 13 jarðskálftahræringa á tíma- bilinu kl. 14.30—16.00 í gær. Fyrsti kippurinn var lang harð- astur og var álíka snarpur og sá sem gerði vart við sig fyrr í vor. Var hann það harður að einn jarðskjálftamælirinn fór úr skorðum eins og þá. Upptökin eru ekki á sömu slóðum og jarðskjálftinn um daginn. Þau virðast vera eitt- hvað sunnar en fjarlægðin þó áþekk, eða nálægt 30 km. frá Reykjavík. Það er ekki unnt að segja nákvæmlega til um fjarlægðina, þar sem ekki er vitað með vissu hvað jarð- skjálftaöldurnar fa.ra hart í þeim berglögum, sem hér eru. 1 Keflavík fannst snarpur kippur á sama tíma og hér í Reykjavík, í Grindavík var hann vægari miklu og í Hvera- gerði urðu menn hans naumast varir. Eldgos á ftlýja- SiíhissÉýómin su'sas'tit' orðsendinaju MBr&taz Fjögurra mílna landhelgi var í gildi fyrir samninginn 1901. Telur ennfremur, að hvert ríki megi ákveða hana innan sanngjarnra takmarka. Eidtir á SkóBa- wöréesfilg !fj. Einlcaskeyti frá AP. — Auckland í morgun. — Eitt af þrem helztu eldfjöll- um á nyrðri eyju Nýja Sjá- lands er byrjað að gjósa. ’ ;t Hófst gosið með mikilli sprengingu, og þeyttust 50 lesta þungir klettar langar leiðir. Reyk mikinn leggur upp í 6000 m. hæð frá gígnum. Vaka heitir á stúdenta. Stórn Vöku, félags lýðræð- issinnaðra stúdenta, leggur áherzlu á hina miklu nauðsyn þess, að þjóðareining náist um kjör forseta íslands og heitir á alla stúdenta að stuðla eftir megni að kosningu séra Bjarna Jónssonar víglubiskups. Kl. 17 í gær var slökkviliðið kvatt á Skólavörðustíg 19, sem er steinhús, en bar hafði komið upp eldur í herbergi á annarri hæð. Þegar slökkviliðið kom, var mikill reykur í herberginu og talsverður eldur. Var hann fljótlega slökktur. Talsverðar skemmdir urðu á herberginu og munum, sem þar voru. útvarps- viðtæki, legubekk o. fl. Eldsupptök voru sennilega þau, að bilað hefir útvarps- leiðsla og kviknað í einangrun- inni, en leiðslan lá yfir svefn- legubekk, sem þarna var, og í honum kviknaði. Forsetakjör á frlandi 10. júní. Dublin (AP). - Sean O’Kelly, forseti írlands, hefir ákveðið að vera í k.jöri við forseta- kosningar, sem fram eiga að fara þ, 10. júní næstkomandi, en forseti íilands er kosinn til sjö ára í senn. Enn hefir ekkert annað framboð komið fram. Kjörtímabil hins nýja forseta hefst 25. júní n.k. 1S j örgiinarflugvél leit að bilaöri Sú bilaða — annar HreyfiBI hennar halði stöðvazt — komst til Kefíavíkur. Leit hafin á landi — undir- biiín 85 5* lofti. Saknað er amerískrar flugvélar af Keflavíkurflug- velli, sem flaug austur með landi eftir hádegið í gær. Leit er þegar hafin og verð- ur leitað bæði á landi og úr lofti. Um hádegisbilið í gær til- kynnti áhöfn amerískrar eftir- litsflugvélar, sem var á flugi fyrir suðaustan land, að hún væri í vanda stödd. Hafði annar hreyfill flugvél- arinnar bilað og stöðvazt, svo að óvíst var, hvort vélin mundi ná til Keflavíkur. Var þá þeg- ar gerð út björgunarflugvél til að svipast eftir þessari og fylgj- ast með henni. Fór hún af stað kl. 13,16 og hafði samband við Keflavíkurflugvöll síðast kl. 14,35 og var þá ekkert að henni. Síðan hefir ekki til hennar' spurzt, en bilaða flugvélih komst heilu og höldnu til Keflavíkur á öðrum hreyflin- um. Með flugvél þeirri, sem sakn- að er, eru fimm menn úr ame- ríska flugherum. Hafði flug- vélin benzín til 12 stunda flugs, en óttazt var um það þegar kl. 7,30 í gærkvöldi, þegár Vísir; átti tal við flugherstjórnina í Keflavík, að vélin mundi ekki vera á flugi, en þó voru um það bil 5 klst. liðnar, síðan heyrzt hafði til hennar síðast. Samkvæmt upplýsingum sem bárust austan úr Rangárvalla-. týnist í ílngvél. sýslu síðdegis í gær hafði heyrst til flugvélar, og hún reyndar sést á tveimur bæjum í Austur- Landeyjum á tímabilinu kl. 2—3 og getur það komið heim við flugtíma og staðarákvörðun hinnar söknuðu flugvélar, Veð- ur var um þetta leyti hvasst en ekki mjög þungskýjað þar eystra. f gærkveldi voru gerðir út tveir flokkar björgunarsveitar og þeir sendir austur undir Eyj afjöll. Voru 6—8 menn í hvorum flokki, búnir sjúkra- vörum og tækjum og með tal- stöðvar. f öðrum flokknum voru skíðamenn, en fjallgöngu- menn í hinum. Var gert ráð fyrir að þeir færu í býti í morg un upp á Éyjafjallajökul og í nærliggjandi fjöll og óbyggðir. í gærkveldi og nótt átti að skipuleggja leit úr lofti, þannig að flugvélar gætu lagt af stað strax og birti til. Mánudaginn 12. j3.m. afhenti utanríkisráðherra sendiherra Breta svar íslenzku ríkisstjórn- arinnar við orðsendingu brezku ríkisstjórnarinnar, varðandi hinar nýju reglur um verndun fiskimiða umhverfis ísland, sem sendiherrann afhenti utanríkis- ráðherra 2. b.m. Svarið er í meginatriðum á þessa leið: í upphafi segir að ríkis- stjórnin hafi athugað orðsend- ingu brezku stjórnarinnar varð- andi nýju landhelgisreglugerð- ina. Rakinn er gangur málsins frá því er samningnum frá 1901 var sagt upp, en þá var talið æskilegt að viðræður færi fram milli ríkisstjórna íslands og Bretlands um fyrirætlan.r íslendinga. Ólafur Thors fór í jan. s.l; til Bretlands til að ræda við brezku ríkisstjórnina og skýrði henni þá frá sjónarmió - um íslendinga. Lagði haim áherzlu á að við gætum ákveoi ð landhelgina á sama hátt 0o Norðmenn og málið væri undir- búið á þeim grundvelli. Bretar töldu aftur á móti a gera bæri nýjan samning um þetta mál. Atvinnumálaráðh. lagði þá á það höfuðáherzlu að fyrirætlanir okkar væru í samræmi við alþjóðalög, og ekki væri hægt með milliríkja- samningum að afsala réttinum til einhliða ákvörðunar um svo mikið velferðarmál þjóðarinnar. Þetta sjónarmið var endurtekið í erindi 17. marz 1952. Síðan segir í svarinu að við þessar umræður hafi ekki verið hægt að samræma sjónarmiðin. í orðsendingu Breta 2. maí er gagnrýnd grunnlínan, sem dregin er fyrir Faxaflóa. í svar- inu er gagnrýninni mótmælt og haldið fram að lína sú, er Bretar stungu upp á sé óeðlileg' miðað við staðhætti. Segir þar svo: ,,Hin eðlilegu takmörk Faxaflóa eru yztu mörk hans. Að norðanverðu eru eðlileg mörk grunnlínustaður sá, sem valinn var (Gáluvíkurtangi) eða e.t.v. jafnvel Hraunvör (grunnlínustaður 41.) Að sunn- an þrjár eyjar, sem mynda framhald af meginlandinu og framlengja þannig fauces terr- arum. Grunnlínustaður nr. 39 er Eldeyjardrangur, sem er lítil eyja í rúmlega mílu fjar- lægð frá Eldey, en milli Eldeyj- ar og lands er fjarlægðin 7 3 mílur. Ýmsir hafa talið, að no-a hefði mátt Geirfugladrang sem grunnlínustað, bæði fyrir lok- un Faxaflóa og fyrir beina llnu, sem dregin væri í Geirfugla- sker. Jafnvel þótt slík aðferð hefði verið viðhöfð myndi fisk- veiðilandhelgin einungis hafa náð yfir gömul og alkunn ís- lenzk fiskimið, og miðað hefði verið við „hagkvæmar þarfir og aðstæður allar“, án þess að Frh. a 8. síðu. Eisenhower hefir kvatt Breta. Einkaskeyti frá AP. París x gær. Eisenhower er kominn aftur að aflokinni kveðjuheimsókn sinni til Lundúna. Hann kvaðst vera þess full- viss, að tilraunir hinna frjálsu þjóða til að varðveita friðinn, myndu ná tilgangi sínum, ef þær væru samhuga og samtaka. Andlegur máttur ætti að vera j þeirra mesta stoð, þar næst ; efnahagslega sterk aðstaða og |í þriðja lagi hernaðarlegur I styrkleiki. 35.690 á kjörskrá hér. Um 900 þeirra mega þó ekki kjósa þ. 29. júní. Samkvæmt upþlýsingum fráog uppfylla búsetuskilyrði o. s. Manntalsskrifstofunni eru 35.690 manns á kjörskrá hér í bænum. Kjörskráin er í gildi frá 15. júní þ. á. til 14. júní 1953. Frá ofannefndum kjósendafjölda á kjörskrá munu dragast um 900, sem hafa ekki kosningar- rétt 29. júní, en fá harín síðar á gildistíma kjörskrárinnar. Rétt til að taka þátt í for- setakjöri hafa allir þeir, sem uppfylla skilyrði til þess að kjósa til Alþingis, þ. e. eru orðnir 21 árs, eru fjár síns í’áð- andi, hafa óflekkað mannorð frv. Við seinustu bæjarstjórnar- kosningar hér í bænum var í fyrsta sinni kosið á þremur stöðum, því að vegna fjölgunar í bænum og útþenslu hans, var orðið ófært að hafa sama fyr- irkomulag og þegar aðeins var kosið í Miðbæjarbarnaskólan- um og Iðnskólanum gamla. Verður vafalaust kosið á þrem- ur stöðum framvegis, þ. e. í Miðbæjar-, Austurbæjar- og Laugamesskólunum. Aukadeild verður sem áður í Elliheimil- xnu.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.