Vísir - 24.09.1952, Blaðsíða 1
i
!
62. &xg.
Miðvikudaginn 24. september 1952.
216. tbl.
Hinn heimsfrægi þýzki flugvélafræðingur Henkel sést á mynd-
inni að cfan með kíki í höndunum, þar sem hann er staddur á
flugvélasýningunni í Farnborough í Englandi. Sagt er að hann
hafi verið stórhrifin af brezku þrýstiloftsvélunum. Hjá honum
stendur 14 ára gamall sonur hans, Karl Ernest, og meS honum
eru tveir þýzkir verkfræðingar dr. Walter og dr. Bentele.
jr
Isleifdingar taka þátt í lanas-
keppni norrænna farmanna.
Ikii11S©s@]hi©iiii foeffa Efceppm-
ina af Islemdmga ftálSa.
Um þessar mundir fer fram
landskeppni norrænna í'ar-
manna í frjálsum íþróttum, og
taka íslendingar þátt í henni.
Keppni þessi fer fram á tíma-
bilinu 15. ágúst til 15. október,
og er öllum norrænum far-
mönnum heimil þátttaka.
Vísir hefur átt tal við Axel
Magnússon, forstöðumann Sjó-
mannastofunnar hér, en hann
er hnútum vel kunnugur.
Gert er ráð fyrir, að skip-
verjar af Gullfossi muni keppa
meðan á viðdvöl skipsins stend-
Ur, en það kemur hingað á
morgun. Landskeppnin nær til
þessara íþróttagreina: 100 m.
hlaups, kúluvarps, hástökks,
langstökks og 4x100 m. boð-
hlaups.
Við útreikning á afrekum
farmannanna í keppninni, skal
notuð alþjóðlega stigataflan. —
Samanlögð stigatafla þjóðanna,
sem keppa, verður margfölduð
með stuðli, sem ákveðinn verð-
ur fyrir hvert land, en hann
er fyrir Noreg 1, Svíþjóð 1.5,
Danmörk 3, Finnland 7.5 og ís-
land 15.
Þjóðin, sem sigrar í keppn-
11 1
Heilsufar bæjarbúa má telja
gott, miðað við þenna tíma árs,
að því er borgarlæknir tjáði
Vísi í gær.
Kvefsótt og kverkabólga
hafa nokkuð aukizt, og kíg-
hósta hefir orðið vart. í vik-
unni sem leið var vitað um 12
kíghóstasjúklinga, en ekki voru
þeir alvarlega veikir. Nokkuð
hefir borið á hlaupabólu, en
vitað er um einn skarlatssótt-
arsjúkling, annan, sem hefir
rauða hunda, en að öðru leyti
má heilsfar teljast gott.
JVixan tíí €íM ssf imw***
fcatlm framboð sitt.
Ákvöröass* líklega tekin í «Iag.
Einkaskeyti frá AP. — New York í morgun.
Nixon, varaforsetaefni republikana, flutti í nótt varnarræðtt
þá, sem hann hafði boðað, og tilkynnti, að hann væri fus tif.
þess að afturkalla framboð sitt, ef talið væri rétt, að hann gerði.
það.
Ræðan var flutt í Los Angeles^
var sjónvarpað frá 60 sjón—
varpsstöðvum og útvarpað fra.
750, og má segja, að öll þjóðint
hafi hlustað á vörn Nixons.
Nixon kvaðst ekki hafa að-
hafzt neitt siðferðilega eða laga->-
lega rangt með því, að þiggjai
ökli.
Einkaskeyíí frá AP. —
Bandarísk björgunarflugvél
hefur biargað 3 brezkum leið-
angursmönnum af 12, sem
nauðlentu á Grænlandsjökli.
Björgunarflugvélin flutti
mennina til Thule-flugstöðvar-
innar.
jafnvel lokið um helgina.
inni, fær verðlaun, sem finnska
íþróttasambandið gefur. Enn
fremur fær stigahæsti einstak-
lingurinn verðlaun, svo og
skipið, sem hlutskarpast verð-
ur.
Landskeppninefnd norrænna
farmanna skipa þessir menn:
Kaj Lund, Danmörku, Urho
Rásánen, Finnlandi, Lorang
Ridder-Nielsen, Noregi og
Gunnar Heidenblad, Svíþjóð.
íslendingar eiga ekki fulltrúa í
nefndinni, en var að sjálfsögðu
boðin þátttaka.
Wfotaa&fÍMgg'"
utm í$ÞÍk£iL
London (AP). — Hinum
miklu æfingum N.A.-varnar-
samtakanna lauk í gær og hafa
herskipin rofið fylkingar og
halda heim á leið.
Æfingunum lauk 2 dögum
fyrr en gert hafði verið ráð
fyrir og var þeim hætt ein-
vörðungu vegna þess, að til-
ganginum með þeim var náð
fyrr en búist hafði verið við.
í dag komu tii Reykjavíkur
frá Vestfjörðum fyrstu bátarn-
ir með Iömb á fjárskiptasvæðið.
Voru það v.b. Hugrún og
Freydís, sem tóku lömbin í
fyrradag á Flateyri. Þriðji bát-
urinn mun og væntanlegur í
dag.
Allmargir bátar verða í þess-
urn flutningum, sennilega átta,
sem geta tekið frá 500 og allt
upp í 12-T-1500 lömb. Alls munu
verða flutt sjóleiðina um 6000.
lömb og fara þau á fjárskipta-
svæði vestan Ölfusár og Sogs,
að undanteknu Kjalarnesi, Kjós
og Þingvallahreppi vestan
vatns, en þangað verður féð
flutt af Vestfjörðum landleið-
ina. Féð er tekið á ýmsum stöð-
um á Vestfjörðum og Barða-
strönd. — Féð, sem flutt verður
til Hafnarfjarðar, verður flutt
á bifreiðum þaðan á Suðurnes-
in. — Sjóveður er nú gott fyrir
Vestfjörðum og er vonandi að
það haldist, svo að fénu líði vel
á leiðinni, en veðurútlit mun
fremur gott sem stendur.
Stefán Thorarensen lög-
regluþjónn tekur við fénu hér
fyrir hönd Fjárskiptanefndar-
innar, en Stefán og Þorlákur
Sveinsson á Sandhól í Ölfusi
annast sameiginlega flutning-
ana á fénu héðan.
Samkvæmt viðtali við Hjalta
Gestsson á Selfossi laust fyrir
kl. 11 munu um 10 þúsund lömb
komin suður eða á leiðinni. Þar
með eru talin lömb á 40 bílum,
sem lögðu af stað í morgun
Allt gengur vel og slysalaust,
en þoka og rigning fyrir norðan
í gær og nótt tafði nokkuð. „Við
erum ákaflega ánægðir með
hve allt gengur vel,“ sagði H.
G., „og viljum sérstaklega taka
fram, að allir sem að þessu
vinna, rækja störf sín svo að
til fyrirmyndar er. Vonir standa
til, að fjárflutningunum verði
að mestu lokið um helgina.“
Háhyrningur spillir
mtum i Miðnessjé.
Háhyrningur olli miklu
tjóni á netum Suðurnesja-
báta í gær.
Bátarnir létu flestir reka
sunnarlega í Miðnesjó, og
urðu þar fyrir alvarlegu
tjóni, er háhyrningar óðr.
Verst mun vb. Björgvin úr
Keflavík hafa orðið úíi, en
um eða yfir 40 net hans
voru rifin. Vitað er, að tveir
aðrir bátar urðu fyrir mikl-
um skemmdum á 20—30
netum, en aðrir urðu fyrir
minni spjölium.
í dag var gott veður á
síldveiðislóðum Suðurnesja-
báta og aflinn jafn, 40—100
tunnur á bát.
stuðning til kosningabaráttunn—
ar, er hann var í kjöri til öld—
ungadeildarinnar, en það hefðí
að minnsta kosti verið siðferði->-
lega rangt, ef hann hefði þegið!
stuðning til eigin þarfa eða meðí>
leynd. Nixon benti á, að í II—
linois, þar sem Stevenson eúr
ríkisstjóri, njóti embættismeni^
stuðnings úr tveimur sjóðum^
Nixon sagði ítarlega frá fj ár—
málum sínum og fjölskyldu, og:
litið er svo á, að hann hafi lagte
„spilin á borðið“.
Nixon sagði í ræðu sinni, a<S
hann ætlaði ekki að taka á—
kvörðunina um það, hvorte.
framboð hans yrði afturkallaðí
— hann legði það í vald flokks—
stjórnar republikana, en hannt
kvaðst ekki á nokkUrn hátte
vilja spilla fyrir Eisenhower.
Haft er eftir Eisenhower, aðf
hann hafi oft séð margan góðare.
dreng komast í hann krappan.„
en engan koma fram af meirit
drengskap og hugrekki ere.
Nixon.
Þeir félagar munu nú hittasfc
og er brátt vænst tilkynningarr
um þá ákvörðun, sem tekim
verður um framboð Nixons.
Verkalýðsfélagið A.F.L. hefutj
nú heitið Stevenson stuðningip.
en C.I.O. hafði áður heitið hon—
um stuðningi. Nýtur haniE:
þannig stuðnings tveggja mestut
verklýðssambanda landsins. ,
Engin opinber af-
skipti af máli
Nixons.
Véashington (AP). — Truman
forseti hyggst ekki hafa nein
afskipti af deilunni, sem risin cr
út af ásökunum gegn Nixon
varaforsetaefni republikana.
Tvær tilkynningar voru
gefnar út um þetta í gær, en
hina fyrri höfðu menn skilið
svo, sem dómsmálaráðherrann
myndi fyrirskipa rannsókn.
/iltranes:
16 báfar með
1106 fn. í gær«
í gær komu 16 reknetabátarr
til Akrauess með um 1100 tunii-»
ur síidar, og voru þeir ailir acg-
veiðum vestur undir jökli.
í dag er afli báta frá Akra—
nesi miklu tregari og hefur að—
eins heyrzt til eins báts, sem err
væntanlegur með 60—70 tunn—
ur, aðrir bátar eru með>lítið»
sem ekkert. Veiði mun líkat
vera misjöfn í Miðnessjó og
vestur við Snæfellsnes, en þó>
nokkru betri og jafnari hjá
Suðurnesjamönnum.