Vísir - 25.10.1957, Blaðsíða 1

Vísir - 25.10.1957, Blaðsíða 1
12 síður #7. árg. Fösíudaginii 25. október 1957 251. tbl. MRP veitir Mollet stuðn- ing við st|órnarmyndun. — ¥erkföll, é©i;/ðir og ogg- væniegar horfur. MRP-flokkurbm franskt liefur tilkynnt, að hann muni taka þátt í stjórn, er Guy Mollet myndi. — Hafa nú hatnað allmjög- horfur á því, að fulltrúadeildin fallist á Mollet sem forsætisráðherra á mánudag n. k., er hann fer fram á traust fulltrúadeildariimar. Talið er, að það hafi ráðið úr- slitum um afstöðu MRP-flokks- ins hve horfur eru ískyggilegar, á sviði fjármála og atvinnulífs. Komið hefur til alvarlegra verk- falla og hætt er við, að þau breið- ist út. Flugferðir liggja næstum niðri í dag milli Lundúna og Par- ísar. Bæði kaþólska vei'kalýðs- sambandið og samband komm- únistisku verkalýðsfélaganna standa að verkföllum, en jafn- aðarmenn hafa lýst yfir, að þeir telji ekki réttan tíma nú til að gera verkföll. Það er nú nærrl 4 vikur frá því er Bourges-Maunorey fór frá. — Coty forseti sneri sér í upphafi til Mollet, en hann hafnaði til- mælum um að mynda stjórn, og var talið, að hann mundi frekar vilja reyna, ef öðrum mistækist. Varð það svo. Mollet ræddi hin- ar alvarlegu horfur í fjármálum og gjaldeyrismálum í gærkvöldi. Hann kvað allan erlendan gjald- eyri Frakka mundu verða upp urin um áramótin eða byrjun næsta árs og yrði þá ekki annars kostur en að takmarka innflutn- ing og taka upp skömmtun. Hann kvaðst vilja skipa stjórn- arskrárnefnd, sem ynni að breyt- ingu á stjórnarskránni, er yrði hemill á mjög tíð stjómarskipti. Öeirðir i St. Nazaire. Tilátaka kom milli lögreglu og skipasmiða í verkfalli í gær í St. Nazaire. Þar hafa verkamenn gert hvert skyndiverkfallið á fæt ur öðru til þess að reyna að knýja fram kjarabætur. Margir, bæði lögreglumenn og verka- menn, meiddust í átökunum, upp undir 30 illa, þar af helming- urinn lögreglumenn. Einn verka- maður beið bana. 1 Nantes hefur einnig komið til óeirða. Fyrir ári: 3. dagur upp- reístar Ungverja Budapest 25. okt. Á þlng- hústorginu liggja í hrönnuni lík frelsisvina, sem féllu í val- inn fyrir skothríð rússnesku hermannanna, og þar er lika margt særðra, deyjandi manna .... frelsisvinir eiga áfram í áköfum bardögum við rússnesku hermennina og leynilögregluna .... eldtung- ur leika um margar frægar byggingar í Budapest, þeirra meðal þjóðminjasafnið, og áfram er haldið skothríð úr byssum Rússa á uppreistar- menn, þeirra meðal konur og . ... í útvarp frelsisvina í Mis- breiðst út tif borganna Szol- nok, Szeged, Gyor og Pecs ... Janos Kadar verður fram- kvæmdarstjóri Kommúnista- flokksins .... Nagy forsætis- ráðherra Iofar samkomúlags- umleitunum um, að herlið Rússa verði flutt burt, „þeg- i friður er kominn á og kyrrð" ' . . . . í útvarpi frelsisvina Mis- kolc er lesin þessi aðvörun: „Hættið að brytja niður ung- I verskt fólk í Bndapest, Festið ekki trúnað á íýgar. Krefjist þess, að þeir flytji burt úr landinu hersveitir Rússa. Hefjið verkföll". Picdonl sýkn af ákænmni um tnor&ft á Wilmu Montesi. Ekki talinn vafi verið Montesi-málið hefur nú verið til Iykta leitt að sinni, og var Gian- Piero Piccioni sýknaður af á- kærunni um að hafa orðið gleði- meyjunni Wilmu Montesi að bana. Réttarhöldin hafa staðið mánuð um saman, og var þeim veitt mik il athygli, er þau hófust í Fen- eyjum, en síðan hefur dofnað yf- ir þeim, unz dómur var um síð- ir kveðinn upp í síðustu viku. Dómsorð og forsendur fyrir því eru hvorki rneira né minna en 130 vélritaðar síður. á, að hún hafi myrt. Dómarinn var sammála ákær- ■ anda hins opinbera um það, að Wilma Montesi, sem fannst ör- end á baðströnd .skarnmt frá Rómarborg fyrir liölega þrem árum, hafi verið myri, og að ein- hver hafi verið vitiii að dauða hennar. Hins vegar vill dómar- inn alls ekki fallast ó, að hún hafi framið sjálfsniorð, og han'n tekur til greina sa-nnánir þær, sem Picconi færöi .fyi ir -því, nð hann heíði verið \ íós ijnrri (með kvikmyndaleikkomurí íi Valli), þegár stúlkan dó. , Stjórnarvöldin í Búdapest leitast við að láta gera sem mest við þau hús, sem standa við aðal- götur borgariimar og voru illa útleikin eftir byltingartilraunina í fyrra. Myndirnar hér að ofan eru teknar í febrúár og nú fyrir skömmu af sömu byggingum. — • » '«i Olóðir brennuvargar brenna íbúiar- e§ gripahús í Þingvallasveit. Hétuðu að skjóta bóndanm á Svartagili og réfat á hann með barefli. Árekstrar tíðir á Akureyrí. í gær sýndu tveir drukknir Reykvíkingar það einstaka ó- ■þokkabragð að brenna bœ ofan af bónda og útihús hans austur í Þingvállasveit. Bærinn var Svartagil í Þing- vallasveit, en þar býr Markús bóndi Jónsson einsamall sem stendur, því tengdadóttir hans, sem verið hefur þar að undan- förnu ásamt bömum sínum, var í Reykjavík þegar árásin var gerð, og Markús því einn heima. Vísir átti í morgun tal við hreppstjórann í Þingvallasveit, Guðbjörn Einarsson á Kárastöð um, og hefur blaðið frásögn sína eftir honum í aðalatriðum. Það var í rökkurbyrjun í gær kveldi, að leigubifreið úr Rvík renndi heim að Svartakoti í Þingvallasveit. Auk bílstjórans voru í bílnum tveir bræður, báðir drukknir og hafði ann- ar þeirra unnið um tíma hjá Markúsi á Svartagili í sumar. Þá var enn fremur stúlka í bíln um og loks danskur piltur í bílnum. Þegar heim að Svartagili kom, fóru bræðurnir út úr bíln um og leituðu uppi Markús bónda, en bílstjórinn, Stúlkan og Daninn héldu kyrru fyrir í bílnum og áttu enga hlutdeild í því sem fram fórheima á bæn- um. Eftir því sem Markús skýrði sjálfur frá segir hann, að for- sprakki fararinnar og sá, sem verið hafði hjá Markúsi í sum- ar, hafi tekið byssu, gamlan heimilisgrip, sem lengi hafði verið í eigu Svartagilsheimilis- ins, miðað henni á sig og kvaðst rétt mundu að drepa hann. Ekki varð þó af lífláti, enda skot- vopnið óhlaðið. Markús segir, að það hafi þá ekki skipt togum, að báðir bræð urnir réðust á hann og börðu hann í höfuðið með barefli, Framh. á 11. síðu. Norðmenn svara Krúsév. Verkalýðsflokluirinn norski hefur svarað bréfi Krúsévs. 1 svarinu segir, að lýðræðis- ílokkarnir norsku hafi verið og séu einhuga um utanríkisstefnu stjórnarinnar, og norski verka- lýðsflokkurinn kjósi ekki að hvika frá samstarfinu eða stefn- unni, sem fylgt hafi verið, og fara aðrar götur upp á eigin spýtur. Vakin er athygli á þvi, að mál- ið (ófriðarhætta vegna ástands- ins á landamærum Tyrklands og Tyrklands og Sýrlands) hafi ver- ið lagt fyrir Samelnuðu þjóðirn- ar, og von flokksins sé, að þær leiði deiluna farsællega til lykta. Mjög mikið hefur borið á árekstrum bifreiða á Akureyri að undanförnu, og miklu meír en venjulega. Samkvæmt viðtali, sem Vísir átti við Jón Benediktsson yfir- lögregluþjónn á Akureyri í gær sagði hann að frá því um síð- ustu mánaðamót hefði borið ó- venjumikið á árekstrum farar- tækja þar í bæ. Oft hefði lög- reglan haft afskipti af tveimur árekstrum á dag, sem teljast verður mikið miðað við fólks- og bílafjölda bæjarins. En svo undarlega brá við, sagði Jón, að í fyrradag, fyrsta daginn sem ökuskilyrði voru verulega slæm á þessu hausti, varð eng- inn árekstur. Þá hafði snjóað nóttina áður og var snjóföl á götunum og hálka. Ennfremur tjáði Jón Vísi að meira hafi borið á því að menn ækju bifreiðum undir áhrifum áfengis það sem af væri þessu ári, lieldur en nokkurn tíma á heilu ári áður. Frakka? kaupa farþ©gaþ©t?ur. tjfcflutnings- og innflutnings- bankhm í Bandarikjununi veitir Frökkum lá til kaupa á farþega- þotum. Þær verða af gerðinni Boeing- 707. Gert er ráð fyrir kaupum á 15 flugvélum af þessari gerð.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.