Morgunblaðið - 02.11.1913, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 02.11.1913, Blaðsíða 6
MORGUNBLAÐIÐ Vefnaðarvöruverzlun TH. THORSTEINSSON, _______ Ingölfshvoli ______ Höfundur neðanmálssögunnar. Övre Richter Frich —svo heitir hann fullu nafni maöurinn, sem eftir nokkra daga verður á hvers manns vörum um allan bæinn og út um alt land. Þau 2 ár, sem liðin eru síðan hann gaf út hina fyrstu bók sína, hef- ir nafn hans flogið örskjótt um alla Norðurálfu og engar bækur eru víð- lesnari, en þær fádæma hugsjónaríku og djörfu sögur hans, sem prentaðar hafa veriö neðanmáls í stórblöðum Breta, Þjóðverja, Frakka, Hollendinga, Dana, Svía og Norðmanua. Draum- órar hans og hugsjónarafl álíta menn að náð hafi hinu hæzta stigi allra nú- lifanda rithöfunda. Hann er fyrirmynd þess aragrúa rithöfunda, sem reyna sig í listinni, og þeir dást að honum og viðurkenna hann sem »konung hug- sjónaraflsins«. En það sem gerir sög- urnar enn læsilegri og skemtilegri er list frásagnarinnar. Hr. Frich er blaða- maður í Noregi og þar hefir hann fengið æfingu i að vera stuttorður. Engir útúrdúrar eða vífilengjur; hann ræðst undir eins á efnið, blátt áfram og umsvifalaust, og lætur viðburð reka viðburð á lipru, skemtilegu máli, sem fáir aðrir. Hr. Frich er víðförull mjög. Um allan heim hefir bann ferðast og æfin- lega skín úr bókum hans frámunaleg reynsla og þekking á því, sem hann ritar um. Hann ritar um líf Gauchoa á hinum miklu Pampassléttum. Líf og hætti alla, sem með gullnemum í Alaska tíðkast, hefir hann gefið oss betri mynd af en nokkur annar rit- höfundur. Einnig var hann fyrstur til að rita sögu, sem gerist á Spitzbergen. »Svörtu gammarnir« er ein hin bezta saga hr. Frich. Hún hefir verið prent uð víðsvegar um heim og vakið fádæma eftirtekt. Vór leiðum bérmeð þenna víðþekta rithöfund fram fyrir lesendur vora og efumst eigi um, að hann muni verða þeim til mikillar skemtunar í framtíðinni, ----------------------- Hæns drepa rottur. Norskur maður, sem stundar hænsa- rækt, vaið þess var í sumar hvað eftir annað, að dauðar rottur lágu innan hænsagirðingarinnar hjá hon- um. Manninum þótti þetta undarlegt, því honum hafði verið kent það, að rotturnar dræpu hænsaunga, en aldrei hafði hann heyrt þess getið, að hæns dræpu rottur. Var hann lengi að velta þessu fyrir sér, en komst ekki að neinni niðurstöðu. Svo var það einn góðan veðurdag að honum varð gengið út að hænsa- garðinum, og sér þá sér til mikillar skelfingar að rotta er komin inn í garðinn og mundi ætla sér að drepa unga sem þar voru. En hvernig fór? Hænan sem átti ungana réðst í móti rottunni, og hófst nú grimt hefir stærst og bezt úr- val, selur ódýrast alla Yefnaðarvöru. Léreft frá 0.17. Tvisttau frá 0.16. Flónel frá 0.21. Sirts, Dreiglar Fóðurtau. Sængurdúkur. Dömuklæði 1.50—2.90. Kjólatau. Silki. Leggingar. Vetrarkápur. Regnkápur. Allar Smávörur o. m. m. fl. kaupið þér bezt hjá Th. Th„ einvígi milli þeirra, sem endaði með því, að rottan féll dauð til jarðar, en ungarnir stóðu forviða hjá og eig- andinn ekki síður. — Varð fiann þess nú smárn saman vísari, að eng- in rotta kom svo inn í hænsagarð- inn, að hún slyppi þaðan aftur lif- andi. Jafnvel hálfstálpaðir ungar lögðu til bardaga við þær og báru sigur úr býtum. Væri eigi gott fyrir bæjarstjórn- ina að útvega sér hænsakyn þetta og láta t. d. nokkrar hænur út í Orfiris ey? Þá væri grútnum óhætt! Fádæma frímerkjastuldur. í Paris er frimerkjasali að nafni Mirza Hadi, persneskur að ætt. Hann átti bæði unga og fríða konu, en þrátt fyrir það var samkomulagið milli hjónanna ekki sem bezt. Fyrir skömmu urðu þau ósátt, og hún gekk í burtu — til Belgíu. Þó rætt- ist síðar svo úr, að hún hvarf heim til hans aftur. Hann þurfti þá að skreppa snöggvast til Vínarborgar, og bað hana að gæta bússins á með- an. — Það gerði hún dyggilega, því með aðstoð annars manns stal hún frá honum frímerkjasafni hans, sem kostaði háifa miljón franka, og hljóp svo á brott. Þegar húsráðandi kom heim frétti hann um ráðabreytni konu sinnar, og nagar sig nú í handarbökin vegna missis síns. Hvernig Japanar varðveita heilsuna. Það er kunnugt að japanskar stúlk- ur halda lengur æskufegurð sinni en annara þjóða kvenfólk. Einnig eru japanskir karlmenn hraustari en aðr- ir og þar að auki langlifari. Japanskur læknir kveður orsök þessa vera þá, að landar hans gæti heilsu sinnar betur en aðrir. Þeir sé aldrei inni, þegar þeir geti verið úti. Loftið inni i húsum segi þeir sé eitri blandið, og myrkrið valdi þvi að menn eldist snemma. Sólar- ljósið sé hollast, og fái líkaminn að njóta þess sem mest, þá sé maður siungur. Kjöt borða þeir aldrei oftar en einu sinni á dag, nema því að eins að kalt sé i veðri. Þeir lifa mest á eggjum, grófu brauði, grænmeti og ávöxtum Þeir fá sér heitt bað á hverjum degi, og ganga aldrei í nærskornum fötum., né með þunga skó á fótun- um. Þeir hátta snemma og fara snemma á fætur. Kaffi, te, tóbak og áfengi hafa þeir mjög lítið um hönd. Erf- iðisvinnu telja þeir holla ef hvíldin Th.Th.&co, Föt r Frakkar Karlm. og Drengja frá okkur 1 fara bezt, endast leny-st, kosta minst. Nærföt Höfuðföt. Hálslín. Skyrtur. stærst úrval ódýrast hjá fylgir, en miklar kyrsetur eyðileggi heilsuna. Eitt af því sem hafi áhrif á heils- una og langlífið telja þeir hláturinn. Hann sé hollari en nokkur geti gert sér í hugarlund. Enskur læknir nokkur hefir látið þess getið, að ef allir vildu gæta vel þessara ráða og lifa eftir þeim, þá mundi fljótt reka að því að lækna- stéttin hyrfi að mestu úr sögunni, vegna þess að henni væri þá ofauk- ið. Þá yrði ekki framar til aðrir sjúklingar en þeir sem meiddust af slysum. Auðmaönr og jafuaðarmaður Maður er nefndur Winstor ^Astor og á heima i Bandaríkjunum. Hann er sonur Johns Astors, auðmannsins nafnkunna, sem fórst með Titanic. Það hefir vakið eftirtekt um allan heim, að Astor hinn yngri hefir hall- ast á sveif með jafnaðarmönnum, og ákveðið að taka til ræktunar 6000 ekrur af landi því er hann á, en þar hafa eigendurnir hingað til stytt sér stundir með dýraveiðum. Auk þess hefir hann látið í veðri vaka, að hann ætlaði að koma þar á fót iðnarfyrir- tækjum. Laun verkamanna sinna hefir hann eintiig hækkað að mikl- um mun, og gefið ýmsum nýjum ábúendum stórar landspildur. Astor þessi er að eins 21 árs að aldri og er ríkastur maður sinna jafn- aldra. Landeignir hans eru virtar á 400 milj. kr., og dagtekjur hans eru hérumbil 80,000 kr. Móðir haus, sem vanalegast dvel- ur i Evrópu, frétti af tiltektum stráks- ins, og leizt ekki á blikuna. Tók hún sig því til, og fór fyrir nokkru síðan vestur um haf, til þess að setja ofan í við son sinn og koma honum aftur á rétta braut. Það verður nógu gaman að því að vita hvernig henni gengur, kerl- ingunni. Cacao, kökur og kex fá menn að vanda ódýrast hjá mér Jón Zoéga. fæst að eins í Liverpool. 30 sekkir af föðurméli fást í stórkaupum til kaupmanna hjá J. Aall-Hansen. Fataverzlun TH. THORSTEINSSON & CO., Austurstræti 14.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.