Morgunblaðið - 17.11.1913, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 17.11.1913, Blaðsíða 1
Mánudag 17. nóv. 1913 HORGUNBLADID 1« árgangr 16. tölublað Ritstjórnarsimi nr. 500 | Ritstjóri: Vilhjálmur Finsen. ísafoldarprentsmiðja Afgreiðslusími nr. 48 !• O. O. P. 9511149 Bio Biografteater Reykjavíkur. Bio Fyrir ættjörðina. Langur ófriðarleikur í 3 þáttum og 80 atriðuni. Bio~kaffif)úsic (inngangur frá Bröttugötu) mælir me sínum á la carte réttum, smurð ^tauði og miðdegismat, Nokkrir menn geta fengi' fult fæði. Tfarfvig JlÍ2ÍS2ti Talsími 349. Nýja Bíó Borgir fvær. Leikrit i 3 þáttum eftir hinni nafnfrægu sögu Charles Dickens. Ameriskir leikarar. Lidney Carton leikur Maurice Costello. Reykið Godfrey Phillips tókbak og cigarem sem fyrir gæði sín hlaut á sýning 1 London 1908 sjö gullmedaliur og tvær silfurmedalíur, Fæst 1 tóbaksverzlun _____ P. Í2VÍ. p31 Sælg =1 L L 3IE Sælgætis- og tóbaksbuðin LAN DSTJARNAN á Hótel Island DIE lin i |= 1E=JI Skrifstofa ^ Eimshipafélags Ísíands Austurstræti 7 Opin kl. 5—7._____Talsími 409. pii Illi l'TJ 1 MIl TTYTl TS H. Benediktsson. Umboösverzlun. — Heildsala. Hvar verzla menn helzt? Þar aem vörur eru vandaðastar I Þar sem úr mestu er að velja! Þar 8em verð er bezt eftir gæðuml Hver uppfyllir bezt þessi skilyrði? óefað Vöruhúsið Reykjavfk. Bróðurmorð í Reykjavík. Júííana Jónsdðffir bijríar Eijóífi Jónssijni, bróður sínum, oifur, S2m v^rður fjonum að bana. >Dúkskot< (Vesturgötu 13), þar sem Eyðlfur Jðnsson bjð og lagðist banaleguna. Myndin teiknuð i gær af teiknara Morgunblaðsins. Sá voða-atburður hefir orðið hér i bænum, sem eigi á sinn líka í annálum Reykjavíkur eða landsins, og þó víðar sé leitað. Morð framið af ásettu ráði hefir eigi heyrzt um getið hér i bæ í manna minnum. En hitt, að systir drepi bróður sinn, til þess að næla i nokkur hundruð krónur, það er svo einstætt, svo ferlegt, svo hörmulega hryllilegt, að maður fær naumast skilið, að satt sé. Og þó er það satt. Menn hafa tekið eftir smágrein í Morgunblaðinu í fyrradag: Manns- lát. Þar var frá því sagt, að Eyólj- ur Jónsson verkamaður hafi dáið þ. 13. nóv. og grunur lægi á, að dauðamein hans stafaði af eitri. Oss var þá kunnugt um, hvað um var að vera, en eftir tilmælum lögreglustjóra var eigi meira af þessu sagt þá. Hér skulu nti rakin öll aðalatriði þessa morðs. Aöalpersónurnar. Lyólýur Jónsson, sá er ráðinn hefir verið af dögum, var 48 ára gamall, ættaður frá Arnórsstöðum á Barða- strönd. Var nokkuð lengi á Bildu- dal við vinnu hjá Pétri Thor- steinsson og kallaður Eyólfur sterki. Eyólfur var þar talinn dugnaðarmað- ur, en maurapdki mikill, maður, sem alt lagði á sig fyrir peninga. Tókst hann oft mjög vondar vetrarferðir á hendur, ef peningar voru í boði og var oftast nær fylgdarmaður prestsins á Bíldudal, er hann fór á vetrum til Selárdals. Var Eyólfur þar vestra álitinn mjög vel efnaður, lánaði þar mörg- um fé, t. d. einum manni 1400 kr. Atti og i jörðum. Síðar vaý Eyólfur á Patreksfirði og réðst þar \ botnvörpung Péturs kon- súls, Eg^ert Olajsson. Var þar kynd- ari. Þar kyntist hann Agústi Bene- diktssyni veitingamanni, sem var mat- reiðslumaður skipsins. Varð það þá úr, að Eyólfur réðst til Ágústs sem vinnumaður. Út úr því lentu þeir í máli, töldu sig eiga hvor hjá öðrum og hermdi Eyólfur það loforð upp á Ágúst, að hann hefði átt að útvega sér vinnu við hafnargerðina, en eigi gert. Síðast var Eyólfur við vinnu úti á Melum, einhverja jarðræktarvinnu. Eyólfur bjó í Dúkskoti, Vesturgötu 13- Júlíana Jónsdóttir, systir Eyólfs, sú er játað hefir á sig að hafa byrlað bróður sínum eitrið, er 46 ára. Var áður gift Magnúsi hafnsögumanni i Elliðaey og átti í því hjónabandi dótt- ur, sem nú er gift Sigurbirni verkm. hjá Bergi sútara. Síðustu árin hefir hún búið með Jóni Jónssyni, sem er þriðja aðalpersónan i þessu morðmáli. Bjuggu þau á Brekkustíg fyrir vestan bæ. Var Jón áður kvæntur konu, er Ingibjörg heitir og nú býr inn við Lindargötu, en fullur skilnaður var ger milli þeirra í vor, og hafði Júlí- ana gengið fast fram i því, að skiln- aðurinn fengist. Jón þessi er mið- aldra maður, sagður fremur ófús til vinnu, og eigi allur þar sem hann er séður. Þessum Jóni kennir Júlíana um alr saman, hann hafi komið sér til að byrla eitrið. Morðið sjálft. Eyólfur heimsótti systur sína laug- ardag 1. nóv., milli kl. 5 og 6 siðd. Bauð hún honum þá að borða, og þá hann það. Skyr var fram reitt. Júlíana blandaði skyrið hvitu dufti, tvisvar úr skeið, að því er Eyólfur hermdi síðar. Fanst Eyólfi óbragð að skyrinu. »Hvaða vitleysa*, svar- aði Júliana, »eg setti dálitið brennivín saman við það. Láttu matinn í þig. Þú hefir gott af brennivínstárinuL Eyólfur hvolfdi í sig skyrinu og fór síðan niður i Iðnó, fekk þar kvöldmat og fór svo heim. En þá fór eitrið að verka. Hann fekk uppsölur miklar, er héldust fram undir morgun. En sunnudag 2. nóv. var hann þó það hress, að hann komst til systur sinnar og heimtaði þá kistu, sem hún geymdi fyrir hann og í voru sparisjóðsbók með 705 kr. i og peningar nokkurir og bendir sú heimsókn til, að eitthvað hafi Ey- ólfur verið farinn að gruna systur sína um græzku. Enda reyndist svo, að er hann skoðaði i kistuna, vant- aði sparisjóðsbókina og peninga (2 kr.), — krafði hann þá Júliönu bók- arinnar með vottum og f>orði hún

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.