Morgunblaðið - 20.01.1914, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 20.01.1914, Blaðsíða 2
372 MORGUNBLAÐIÐ atkvæði og Ólafur G. Eyjólfsson sagðist hafa 40—jo atkvæði í um- boði annara, en ekki fara með rreitt. Síðan héldu þeir ræður Garðar kaupm. Gíslason og J. Bíldfell. Þá var kl. orðin 8 og frestaði fundaistjóri þá fundi þangað til kl. 9. Fluqmaður. Símfregnir. Vestmannaeyjum í gœrkvöldi. Ceres liggur hér enn og fer ekki fyr en með morgni. Brim er hér mikið og ilt aðstöðu. Nokkrir menn Jskutu út báti hér við Eyðið i morgun og ætluðu að komast fram í Ceres. Meðal þeirra var Gunnar Egilsen. En kvikan sló bátnum flötum og hvolfði skamt undan landi. Allir menn björguð- ust þó. Frá útlöndum. Nýlega tók sér fari á þýzku far- þega og flutningaskipi dýratemjari nokkur með dýrasafn sitt, 27 ljón, 8 tígrisdýr, 8 leoparda, 2 jagúara, 7 ísbirni, 3 svartabirni, hýenur, fíla og grimma hunda. Dýrin voru i búr- um á þiljum, en illviðri skall á og urðu þau óróleg mjög. Eitthvað komst i ólag og fór þvi dýratemjar- inn og menn hans að koma búrun- um i lag. Til þess varð dýratemj- arinn að fara inn í ljónabúrið og réðst þá ljónið á hann og beit af honum hendina. Annar maður misti fingur, hinn þriðji marðist mjög á lærinu. Mennimir voru fluttir á sjúkrahús skipsins. Þýzk blöð segja frá þvi, að hepni megi það kallast, að ekki kæmist dýrin út úr búrun- um. Því þá hefði slysið orðið enn meira. Tveir úrvalshestar drápust nýlega í dýragarðinum í Lúndúnum og það á sama tima. Dýralæknar, sem finna áttu dauðaorsökina, fundu eitur í innýflum hestanna. Einhver, sem verið hafði í garðinum til þess að skoða dýrin, hafði gefið hestunum eitrið. Hestarnir voru afarmikils virði. Frá París. í fyrra mánuði skaut kona mann sinn úti á miðri götu. Hún kvað orsökina þá, að hann hefði oft misþyrmt sér og farið illa með sig á annan hátt. Þau hjónin áttu tvö börn, fjögra ára gamla dóttur og þriggja ára gamlan snn. Konan er að eins 23 ára gömul og fögur með afbrigðum. Innbrot í Sápukúsið. Brotist hefir verið inn i geymslu- hús Sápuhússins í Austurstræti, ann- •ðhvort aðfaranótt stnnudags eða mánudags. Enginn kom i búðina á sunnudaginn, en i gærmorgun varð Frk. Gunnþórunn Halldórsdóttir, sem rekur verzlunina, vör við að dyrnar á geymsluhúsinu voru opnar. Lás- inn hafoi verið brotinn. Eigi er unt að segja, hve miklu stolið hefir verið, þar eð mikið er af vörum og allskonar varningi í húsinu. Lögreglan hefir málið til athugun- ar — og vonandi nær hún í söku- dólginn. Fyrirspurn. Hvernig stendur á því, að Stjórn- artíðindin, sem komu út 18. nóv. f. á. voru eigi send út um bæinn fyr en 9. þ. m.? í þessu hefti Stjórnartiðindanna voru flestöll þau lög, sem gildi öðluðust 1. jan. Kaupandi. Vér vísum spurningunni til hlut- aðeiganda, þar eð vér eigi vitum orsökina. Smávegis. Áhyggjur hinna riku. Oliukongurinn J. D. Rockefeller hefir 400 kr. tekjur á minútu hverri. Er það þvi sízt að kynja þótt hann hafi ýmsar áhyggjur af þvi, hvað hann eigi að gera við auð sinn. — Síðan Standard-olíuhringurinn upp- leystist hefir auður hans vaxið stór- kostlega. Það er álitið að hann eigi nú 3.240 miljónir kr. Þessi upp- hæð getur að vísu verið mismun- andi dag frá degi, og kemur þar til greina gangverð verðbréfa. Rockefeller er varkár i kaupbralli sínu. Þegar gangverðið er hátt þá selur hann verðbréf sin, og þegar það er lágt, þá kaupir hann þau aft- ur. Mestur hluti auðæfa hans er i olíunámum, járnbrautum, bónkum og iðnaðarstofnunum. Árið 1865 átti Rockefeller að eins 18 þús. kr. Tíu árum síðar höfðu eigur hans vaxið um 18 miljónir, og árið 1890 átti hann 360 milj. Síðan hefir auður hans vaxið svo afskaplega, að slikt er eins dæmi. — Arið eftir oliumálin 1907 óx auður hans svo að hann varð 49j milj. Oliu-hlutabréf hans gefa honum 144 milj. kr. tekjur á ári og annar kaupskapur J4—90 miljónir á ári. Eru þvi tekjur hans hér um bil 216 milj. kr. á ári, eða á mánuði hverj- um 18 miljónir, 4,160 þús. á viku, 24 þús. kr. á klukkustund, 412 kr. á mínútu, eða hér um bil 7 kr. á sekúndu hverri. Hann veit ekki sjálfur fyrir víst hve mikið fé hann á, en nú eru nokkur ár síðan hann sagði það eitt- hvað á milli 1,040 og 1,440 milj. Nær sagðist hann ekki geta gizkað á það. En mismunurinn er 36 milj., og mundi einhverjum draga minna. Hann hefir gefið 628 miijónir til ýmsra fyrirtækja og góðgerðastofn- ana. En þess þó ekki sýnileg merki, að það hafi skert auð hans að nein- um mun. Hann hefir að eins varið til þess nokkru af ársarði sínum. — Þingið hefir ekki viljað veita honum staðfestingu á Rockefelles-stofnuninni, sem hann fór fram á af ótta fyrir því, að það mundi valda ríkinu tjóni. Hon- um var að eins veitt leyfi til þess, að ánafna stofnuninni 360 miljónir. Það er mælt, að hann sé önnum kaf- inn alla daga við það að finna ein- hver úrræði til þess að koma tekjum sínum fyrir. 1=3 DAGBÓfýlN. C=3 Afmæli í dag: Guðlaug Oddgeirsdóttir ungfrú Jón Jónsson kaupm. Sveinn Ingvarsson, verzlunarm. Arni Þorarinsson prestur Miklhoiti Bjarni Pálsson prestur Þingeyrarklaustri Gísli EinarsBon prestur Hvammi Benedikt Sveinsson sýslum. f. 1826. Sólarupprás kl. 9.50 árd. Sólarlag kl. 3.27 siðd. Háflóð er í dag kl. 10.39 árd. og kl. 11.18 síðd. Veðrið í gœr: Rvk a. andvari, hiti 2.7 ísaf. logn, regn, hiti 1.8 Ak. s. gola, hiti 3.1 Gr. s. v. andvari, frost 2.0 Sf. s. v. andvari, hiti 4.1 Vm. s. a. andvari, hiti 4.5 Þórsh. F. s. s. v. kaldi, regn, hiti 4.7. Þjóðmenjasafnið opið kl. 12-2. Tannlækning ókeypia kl. 2—3 í Austurstræti 22. Lækning ókeypis kl. 12—1 í Austurstræti 22. Bæjarstjórnarkosning fer fram í Hafnarfirði í dag. Þrír,menn víkja úr stjórninni, þeir Böðvar Böðvarsson, Agust Flygenring og Guðm. Helgason. A verkmannaliata eru: Guðm. Helga- Son, Magnús Jóhannesson og Sigurður Kristjánsson. A hinum eru: Guðm. Helgason, Agúst Flygenring og Ólafur Valdemarsson. F j ö 1 d i manns skrifaði sig fyrir hlutum í Eimskipafólagi íslands i gær. Eigi ólíklegt að á fimtudaginn, þegar framhaldsfundurinn verður haldinn, verði upphæðin orðin 350 þús. kr. A laugardaginn var, safnaði Morgunblaðið 525 kr. í hlutum í Eim- skipafélaginu. Alls hefir því á skrif- stofu blaðsins verið teknir hlutir fyrir 2275 kr. Hjálpræðisherinn hólt 7 samkomur á sunnudaginn, og flestar þeirra fyrir fullu húsi. Csres er væntanleg hingað í dag anemma. Utsein, fiskflutnigsskip til h/f Kveldúlfur, kom hingað í gær beina leið fra ísafirði. Skipið hafði engan ís séð fyrir Vesturlandi. Það tekur hór fisk og heldur svo til Spánar. Helgi Helgason tónskáld, fyrr- um kaupm. hér í bænum, kvað vera einn farþeganna á Ceres. Helgi hefir verið í Vesturheimi nær 12 ár, en hef- ir dvalið í Khöfn nú um hríð. Sagt- er að hann só alkominn hingað. Bráðabyrgðastjórn Eimskipa- fólagsins hefir bætt við sig þrem mönn- um, þeim Jóni Kristjánssyni prófessor, Garðari Gíslasyni kaupm. og Ólafi Johnson konsúl. Fyrsti fundur fór fram í fyrrakvöld. E£AUPj^E£APUÍ^ Hús til sölu i Hafnarfirði ásamt stórri og góðri lóð. Semja má við Ögmund Ólafsson, Brekkugötu 11, Hafnarfirði. Clarinet til sölu. Ritstj. vís- ar á. Ferðakoffort og klifsöðlar til' sölu. Uppl. bjá blaðinu. Laglegur grímubúningur handa feitum manni, er keyptur i Godthaab i dag kl. j—6. iKlendingasögur til sölu í ágætu standi afgr. v. á. K.ven-grímudansbúningur fæst keyptur eða lánaður í Þingholtsstræti 7. Sömuleiðis fæst þar keyptur alls- konar fatnaður nýr og brúkaður. Minningarritið um Björn Jonsson, fyrra bindi með mörgum myndum, er komið út og fæst í bókaverzlunum. Verð kr. 1.50. í Vöruhúsinu eru prjónaðar karimaniis- peysnr og nærfatnaður, mnn ódýrar en annarstaðar. 50 aura gefur Klæöaverksmiöjau Ið- unn fyrir pundið af hvítri, góðri og vel þurri haustull. Verð á annaii ull þar eftir. Vatnsstígyél og Sjóstigvél kosta kr. i8.jo. Trollarastigvél kosta kr. 3J.00. Efni og vinna vönduð. Jón StefánMKon.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.