Morgunblaðið - 27.05.1915, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ
COBRA
ágxta skósverta og skóáburður íæst hjá kaupmönn-
um. í heildsölu hjá
G. Eirikss, Reykjavík.
Einkasali íyrir ísland.
Mótorbát vantar
til þess að flytja 500 poka af sementi úr skipi,
af Reykjavíkurhöfn til Hafnartjarðar.
Tilboð um flutninginn merkt
„500 pokar"
sendist skrifstofu Morgunblaðsins, sem fyrst.
Jiásefa vanfar
á seglsfiipió „cfflinerva",
sem liggur í Hafnarfirði.
Upplýsingar hjá
S. Bergmann, Sími 10.
DÖGMENN
Sveinn Bjðrnsson yfird.lögm.
Frfklrkjuveg 19 (Staðastað). Simi 202
Skrifsto/utími kl. io—2 og 4—6.
Sjálfur við kl. 11—12 og 4—6
Eggert Claessen, yfirréttarmáia
flutningsmaður Pósthússtr. 17.
Venjulaga heima 10—11 ep 4—5. Slmi 16
Olafur Lárusson yfird.lögm.
Pósthússtr. 19. Sími 215.
Venjulega heima 11 —12 og 4—s
Jón Asbjörnsson yfid.lögm.
Austurstr. 5. Sími 435.
Venjulega heima kl. 4—;;*/».
Ouðm. Olafsson yfirdómslögm.
Miðstr. 8. Sími 488.
Heima kl. 6—8.
Bjarni Þ. Johnson
yfirréttarmálafiutningsmaður,
Lækjarg. 4.
Heima 12—1 og 4—5. Sími 263.
Ullar-prjóna-
tuskur
keyptar hæzta verði gegn peningum
eða vörum
Konur Hvítabandsins
fjölmenni í kálgarð félagsins fyrsta
góðveðursdag kl. 10 árd. eða 3 síðd.,
hittist við Bræðraborgarstíg 25 eða
35, og hafi með sér áhöld.
VÁTSYGGINGAÍi
Vátryggið tafarlaust gegn eldi,
vörur og húsmuni hjá The Brithish
Dominion General Insurance Co. Ltd.
Aðalumboðsm. G. Gíslason.
Vátryggið hjá:
Magdeborgar brunabócafélagi
Den Kjöbenhavnske Söassurance
Forening limit Aðalumboðsmenn:
O. Johnson & Kaaber
A. V. Tulinius
Miðstræti 6. Talsími 254.
Brunatrygging — Sæábyrgð.
Strí ðs vatry ggin g.
Skrifstofutimi 9—11 og 12—3.
Det kgl octr. Brandassnrance Co,
Kaupmannahöfn
vátryggir: hns, húsgögn, ails-
konar vöruforða 0. s. frv. gegn
eldsvoða fyrir lægsta iðgjald.
Heimakl. 8—12 f. h. og 2—8 e. h.
i Austurstr. 1 (Búð L. Nielsen)
N. B. Nielsen.
Vöruhúsinu.
Carl Finsen Austurstr. 1, (uppi)
Brunatryggíngar.
Heima 6 x/*—71/*. Talsimi 331.
» O AGHÓEfi N. 1=3
Afmæii í dag:
Guðbjörg Jónsdóttir, jungfrú.
Helgi Helgasou, bókhaldari.
Itigvar Þorsteinsson, bókb.
Jósef Magnússon, trósm.
Tómas Petersen, verkstj.
f. ÞormóSur Torfason 1636.
6. vika sumars.
Þennan dag fyrir 169 árum voru
fyrst fyrirskipaðar húsvitjanir. Sá sið-
ur er nú mjög farinn að leggjast niður.
S ó 1 a r u p p r á s kl. 2.44 f. h.
Sólarlag — 10.8 siðd.
Háflóð í dag kl. 4.17
og í nótt — 4.41
Veðrið í gær:
Vm. n.n.v. gola, hiti 7.1.
Rv. v. andvari, hiti 7.3.
ísaf. s.v. stinningsgola hiti 8.4.
Ak. s. stinningsgola, hiti 10.0.
Gr. s. kul, hiti 10.5.
Sf. logn, hiti 7.7.
Þórsh., F. logn, hiti 9.0.
Leiðrétting. Prentast hafði í smá-
greininni um kríuna í gær 25. fyrir
22. maí. Maður sem hefði farið eitt-
hvað út úr mesta rykinu, dagana áður,
segist hafa séð hana fyr (20.1). H. P.
Oddfellowreglan hefir keypt hús
Guðjóns heitins Sigurðssonar úrsmiðs,
Ingólfshvol, fyrir 95.500 kr. Tjón það,
sem varð á húsinu við brunann mikla
í lok fyrra mánaðar, er metið 17.760
kr. Það er þegar farið að gera við
húsið.
Ben. S. Þórarinsson kaupm. er
kominn f mál við landsstjórnina út af
bannlögunum. Krefst hann skaðabóta
— að sögn um 50.000 kr., vegna þess
að hann varð að hætta vínsölu. Lárus
Fjeldsted lögmaður flytur málið fyrir
Benedikt, en Sveinn Björnsson fyrir
landsstjórnina.
Fróðlegt verður að vita hvernig máli
þessu lýkur. Vinni Benedikt málið og
verði honum dæmdar skaðabætur, mun
landsstjórnin eiga von á mörgum
skaðabótamálum út af bannlögunum.
Gullfoss ætti að geta komið hingað
á morgun — hafi ferðin frá New-York
gengið vel og ill veður eigl hamlað
för skipsins.
Nora kom af síldveiðum með góð-
an afla.
Kirkjukiukkan leikur sér nú að
því dag eftir dag að hætta gangi. Og
af því að svo óbeppilega vill til, að
aldrei sá til sólar, þá ruglast alt tíma-
tal 1 bænum og dagarnir verða ótrú-
lega langir. — Nú heita allir á
Magnús Benjamínsson að gera svo vel
við klukkuna, að hún hrekki mann
ekki framar.
Brunamenn þeir, sem eru í aðal-
liðinu, höfðu æfingu í fyrrakvöld suð-
ur við brnnastöðina í Tjarnargötu.
Þjóðmenjasafnið opið kl.
12—2.
Mannslát. í gærmorgun lózt hér í
bænum Gísli Hjálmarsson,. fyrverandi
kaupmaður, vanalega nefndur þing-
maður Bolvíkinga. Hann var hniginn
á efri ár og heilsa líkama og sálar
hafði lengi verið slæm. — Gísli var
einn af auðnuleysingjum þessa iands.
Stanrarnir í Tjörninni. Borgar-
stjóri gaf oss þær upplýsingai í gær,
að þrásinnis hefði Skautafólaginu verið
skipað að taka burtu staurana. Slðast
á föstudaginn hefði því verið tilkynt,
að staurarnir yrðu teknir upp á þess
kostnað, og átti að gera það á laugar-
daginn, en þá fekst enginn bátur til
þess. — Sennilega verður þess þó eigi
iangt að blða að þeir hverfi úr Tjörn-
inni.
Svartbaksegg voru seld hér í bæn-
um í gær á 15 aura hvert.
Jansen skipstjóri á Floru, sem mörg
undanfarin ár hefir verið í íslandsferð-
um á skipum Björgvinjarfélagsins,
hættir nú því ferðalagi. Lætur hann
af stjórn skipsins, er það kemur
til Bergen, og mun ætla að dvelja þar
framvegis sem umsjónarmaður í öðru
skipaféiagi. Jansen hefir boðið af sér
hinn bezta þokka fyrir kurteisi og
prúðmensku og á hór marga vini, sem
árna honum alls hins bezta.
í gær átti Geir kaupm. Zoega —
einn af þektustu og merkustu borg-
urum þessa bæjar, 85. afmælisdag sinn.
Flögg voru í því tilefni dregin á stöng
víðast hvar í bænum og á skipum hór
á höfninni. Kl. 10 í gærmorgun gekk
hljóðfærasveit K. F. U. M. að húsi
hans og lók nokkur lög á lúðra til
heiðurs honum. Var það gert fyrir
tilstilli bæjarstjórnar. Er sveitin hafði
leikið nokkur iög, gengu fólagarnir í
hús Zoega kaupmanns, til þess að óska
honum til hamingju. En í þakklætis
skyni afhenti hann sveitarforingjanum
100 kr. sem gjöf til lúðraflokksins.
Fjöldi bæjarmar.na heimsótti afmæl-
isbarnið og mörg voru heillaóskaskeyt-
in sem honum bárust.
Þorsteinn Jónsson járnsmiður og
frú hans Guðrún Bjarnadóttir, hóldu
silfurbrúðkaup sitt á þriðjudagskvöld-
ið. Sátu þau heiðurshjón kvöldverð
í Iðnó það kvöld, ásamt börnnm sín-
um og nokkrum nánustu vinum.
Maðnr bráðbvaddur. í gær varð
Sigurður Bjarnason, kaupfélagsstjóri
í Hafnarfirði, bráðkvaddur. Hann var
að klæða sig, en datt þá um og dó af
hjartaslagi. Hann var liðlega 40 ára
og dugnaðarmaður mikill og af hon-
um hin mesta eftirsjá.
Christianssnnd kom til Leith í
fyrradag.
í fyrradag lóst hór í bænum frú
Christiane Krabbe, tengdamóðir Th.
Krabbe verkfræðings. Hefir hún dval-
ið hjá honum nokkur ár. Hún var 77
ára görnul.
Kiew fór frá Khöfn að kvöldi hins
24. þ. m. beina Ieið til Reykjavikur.