Morgunblaðið - 08.07.1915, Blaðsíða 1
Fimtudag
8.
JÚlí 1915
HOBfiDNBLADID
2. árgangr
243.
tölublað
Ritstjórnarbími nr. 500
Ritstjóri: Vilhjálmur Finsen.
Isafoldarprentsmiðja
Afgreiðslusimi nr. 499
3E
Rcykjavfkur
Biograph-Theater
Talsími 475.
|bio
Svartklædda
hefndarkonan
♦
Afar-áhrifamikill og fallegur
sjónleikur í 6 þáttum 120 atr.
Aðalhlutverkið leikur hin heims-
fræga leikkona Itala
Mlle Maria Carmi.
Þessi dýra mynd er útbúin hjá
Cines-félaginu í Róm sem bjó
til hina heimsfrægu mynd Quo
vadis ?
Aðgöngumiðar að þessari mynd
kosta 6o og 35 aura.
Theodor Johnson
Konditori og Kafé
stærsta og fullkomnasta kaffihús
í höfuðstaðnum.
Bezta dag- og kvöldkaffé. —
Hljóðfærasláttur frá 5—7 og 9—n1/*
Duglegan pilt,
til snúiiinga, 15—16 ára
gamlan, vantar mig nú
i>egar.
G. Eiríkss.
Reyktur lax
og
nyr selungur
fæst í
Ishúsinu.
Jóf). Jlordaí.
^iðjið- einungis um:
niðursoðna
grænmeti,
Fána
^ÍÖrlíkið viðurkenda, og tegundirn-
>kr*^0utiuet«, »Roma«, »Buxomac,
»E«, »D«, »C«,
Baldur
öS2kið á^æta-1 5 kii°gr- sp°r-
)Ul0guðum pappa-ílátum,
Juwel tr
keildsölu fyrir kaupmenn, hjá
Eirík.88, Reykjavík.
JTlóforisfa og 4 sfúíkur
til fiskvinnu vantar R. Joliansen kaupmann á Reyðarfirði.
Þeir, sem leituðu upplýsinga í fyrradag um þessa atvinnu geri svo
vel að tala við mig í dag milli kl. 3 og 4.
Kaup og kjör mjög aðgengilegt.
Björn Guðmundsson,
Aðalstræti 18. Sími 384.
Þingsetning.
Sú er venjan hér að þing hefst
með guðsþjónustu í dómkirkjunni.
Síra Eggert Pálsson frá Breiðaból-
stað steig í stólinn i gær. Lagði
hann út af orðum Páls postula í
Kolossubréfinu:
Hvað sem þér gerið, þá vinnið af
alhuga eins og Drottinn ætti í hlut,
en ekki menn. — En sá, sem rangt
gerir, skal fá gjöld fyrir það, sem
hann gerði rangt og þar er ekki
manngreinarálit. —
Að lokinni guðsþjónustu gengu
þingmenn i fylkingu, tveir og tveir
saman vestur i þinghúsið og gengu
þeir fyrstir ráðherra og síra Eggert
Pálsson en þá hver af öðrum, 37
alls, og vantar þvi þrjá, sem enn
voru ókomnir til bæjarins. Það
voru þeir Pétur Jónsson frá Gaut-
löndum, Magnús Kristjánsson, Akur-
eyri og Karl Einarsson, Vestmanna-
eyjum.
Fyrir utan stóð manngrúinn á
báðar hendur — og hefir þó stund-
um verið fjölmennara. En er síð-
asti þingmaðurinn skrapp inn úr
dyrunum ruddust þeir að sem vildu
fá aðgang og varð þröng i dyrun-
um. Lögreglumenn og dyraverðir
reyndu að gæta reglu og slysalaust
komust allir inn er þess óskuðu.
Þingmenn skipuðu sér þá i sæti
í sal neðri deildar, svo sem venja
er. Lýsti Einar ráðherra Arnórsson
þvi yfir, að alþingi íslendinga væri
sett og las upp boðskap frá konungi
viðvikjandi stjórnarskrá og fána og
heillaósk til islenzku þjóðarinnar i
tilefni af staðfestingu þessara mála.
Var síðan hrópað húrra fyrir kon-
ungi.
Aldursforseti alþingis, Eirikur
Briem prófessor stjórnaði þá forseta-
kosningu sameinaðs þings. Hlaut
þar kosningu sr. Kristinn Danielsson
með 19 atkv. (Hannes Hafstein
hlaut i4 atkv.). Settist hinn ný-
kjörni forseti í forsetasæli og ávarp-
aði þingið nokkrum þakklætisorðum
fyrir þann mikla sóma, sem sér
væri sýndur. Varaforseti sam. þings
var kosinn sr. Sigurður Gunnarsson
prófastur með 20 atkv., en skrifarar
þeir sr. Sig. Stefánsson með 33
atkv. og Magnús Pétursson læknir
með 27 atkv.
Þá var kosin 5 manna nefnd til
þess að prófa kjörbréf þingmanna,
en starf þeirrar nefndar mun undir
vanalegum kringumstæðum vera
fremur lítilfjörlegt.
Allar kosningar fóru fram skrif-
lega, margir seðlar voru auðir og
nokkrir vitlausir, t. d. vildi einn
kjósa Pétur Finnboqason(H) i kjör-
bréfanefndina og annar Hannes Hann-
esson(H). En þetta vonandi smávénst
af fulltrúunum þegar þeir fara aftur
að venjast loftinu í þingsölunum.
Forseti sam. þings las siðan upp
3 símskeyti sem konur á Stokkseyri
Eyrarbakka og Húsavik höfðu sent
alþingi — þakklæti fvrir aukin rétt-
indi kvenna.
Þingmenn skiftu sér nú í deild-
irnar og fóru þar fram kosnningar.
I neðri deild hlaut forsetatign 01•
ajur Briem með 20 atkv., varafor-
setar Pétur Jónsson og Guðmundur
Hannesson og skrifarar þeir Eggert
Pálson og Björn Hallsson.
1 ejri deild varð Stefán Stefánsson
forseti, kosinn i einu hljóði og vara-
forsetar Jósef Björnsson og Karl
Einarsson og skrifarar þeir Björn
Þorláksson og Steingrímur Jónsson.
Eftir kosningar þessar var fundum
slitið.
Jivenl)átíðin.
Austurvöllur var allur fánum
•skreyttur snemma í gær i tilefni af
kvenhátiðinni, sem halda átti þar
síðdegis.
Klukkan hálf fimm söfnuðust kon-
ur saman í Barnaskólagarðinum.
Voru þar bæði ungar konur og full-
orðnar, börn og gamlar kerlingar.
Hélt nú allur þessi sægur i skrúð-
fylkingu niður á Austurvöll og fór
lúðrasveit í fararbroddi.
Gengu smátelpur fremstar og
fyltist Austurvöllur skjótt, en úti
fyrir stóðu karlmennirnir — og
margar konur líka — og horfðu á
þessa dýrð.
Klukkan sex fór sendinefnd fimm
kvenna á fund alþingis og færði því
fagurt ávarp. Hafði fröken Ingibjörg
H. Bjarnason orð fyrir þeim, en
aðrarnefndarkonur voru þær frú
Bríet Bjarnhéðinsdóttir, frú Elín
NÝ J A BÍ Ó
Systurnar
Sjónleikur í tveim þáttum eftir
IULES MARAY,
leikinn af leikurum Pathé Fréres
félagsins í París.
Aðalhlutverkið leikur hin þekta
leikkona
jfr. Napierkowska.
Myndin er með eðlilegum litum.
K. F. U. BL
Jarðrækt. Fjðlmennið.
Stephensen, frú Kristín Jakobsson og
frú Þórunn Jónassen.
Þingmenn hlýddu standandi á er-
indi nefndarinnar og síðan þökkuðu
þeir báðir forseti sameinaðs þings
og ráðherra og óskuðu að aukið
frelsi kvenna mætti verða þeim og
landinu til aukinnar gæfu. Að því
loknu hrópuðu þingmenn ferfalt
húrra fyrir íslenzkum konum.
Eftir það var gleðskapur allmikill
á Austurvelli — söngur, ræðuhöld
og hljóðfærasláttur — og hátíðinni
lauk í Iðno seint um kvöldið.
Búlgaria
fer á stúfana.
í ensku blaði frá 27. júní eru
þessar fréttir hermdar frá Búlgaríu:
Allir búlgarskir þegnar í Salonika
og Cavalla hafa verið kallaðir til
vopna. Akafleg ókyrð er nú í öllu
landinu og konungur sjálfur og M.
Radoslavow forsætisráðherra eiga nú
daglega fundi með foringjum helztu
flokka i landinu og þingmönnum.
Búlgarskir menn, sem heima eiga
í Ítalíu hafa fengið tilkynningu um
það, að vera reiðubúnir að koma
heim í herinn hvenær sem kallið
kemur.
Mælt er að Tyrkir hafi yfirgefið
Adrianopel og flutt herlið sitt til
Chatalja.
Engan efa telja bandamenn á því
að Búlgarar muni snúast á sveif
með sér. Á hinn bóginn virðist
það einkennilegt að Tyrkir skuli
hafa flutt lið sitt frá Adrianopel,
ef þeir óttuðust áras af hálfu Búlg-
ara. Adrianopel er bezt víggirt allra
borga í Tyrklandi, enda varð hún
Búlgurum torsótt árið 1912. Það
virðist nú svo sem Tyrkjum veiti
eigi af öllum sínum vígjum og
ósennilegt að þeir gefi þau upp or-
ustulaust.
Tvennar sögur hafa farið af Búlg-