Morgunblaðið - 09.07.1915, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 09.07.1915, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Hvað er Danolit-málning? Það er nýjasta, bezta en samt ódýrasta málningin til allrar útimálningar Jafngóð á stein, tré og járn. Danolit er búinn til af Sadolin & Holmblad & Co’s Eftf., Kaupmannahöfn. Aðalumboðsmenn: Nathan & Olsen. Að spara. Brezku blöðin ræða nú alvarlega um nauðsynina á því að spara. í »Times* ritar bankastjóri einn eigi alls fyrir löngu á þessa leið, meðal annars: Það er tiltölulega ofur auðvelt að skilja það hvers vegna fjárhagur ein- staklinqanna þarf að vera i góðu lagi til þess að pjóðin geti tekið lán. Þegar undanskilin eru lán, sem tek- in eru í útlöndum, getur stjórnin eigi treyst á annað en þegna sína til þess að standast herkostnaðinn, Og þeir verða að greiða hann með sparsemi sinni, annaðhvort i fortíð eða framtíð. Fortiðarsparnað getum vér ekki aukið, en framtiðarsparnað- ur er oss í lófa laginn. Þvi meira sem hver einstaklingur sparar, þess meira fé er fyrir hendi, þegar stjórn- in þarf til að taka. Stjórnin hefir þegar tekið 350 miljón sterlings- punda lán. Auk þess hafa verið gef- in út ríkisskuldabréf fyrir 200 milj. Og þess verður eigi langt að biða að taka verði annað stórlán. Senni- lega verður stjórnin að taka 800 miljón sterlingspunda lán á ári. Venju- lega þurfum vér að taka 200 miljón punda lán á ári, svo að nú þurfum vér að hitta ráð til þess að ná þess- um 600 miljónum, sem fram yfir eru. Það er auðsætt að sparnaður er nauðsynlegur. -----■» | »------- Albania. Þess hefir verið getið í Morgun- blaðinu að Serbum mundi ekki vera mikið um þátttöku ítala í ófriðnum. Enda er svo að sjá, sem ítalir vilji hafa hönd i bagga með því hvernig löndum er skift á Balkan. Eitt af merkari blöðum ítala fer svofeldum orðum um herferð Serba til Albaníu. Serbía, Grikkland og Montenegro geta ekki bundið enda á Albaníu- málið. Það mál skiftir fyrst og fremst Ítalíu. ítalia gekk i ófriðinn til þess að gæta hagsmuna sinna í lðndum þeim sem liggja að Adria- hafi. Hagsmunir hennar eru ná- tengdir Albaníumálinu og þessvegna verður því ekki ráðið til lykta nema að Ítalía eigi þar hlut að. í Albaníu getur engin breyting orðið nema samkvæmt ákvörðun stórvelda þeirra, sem undirskrifuðu friðarsamn- inginn í Lundúnum, og fyrst og fremst Ítalíu. ----—---------------- Alt sem að greftrun lýtur: Líkkistur og Líkklæði bezt hjá Matthíasi Matthíassyni. Þeir, sem kaupa hjá honum kistuna, fá skrautábreiðu lánaða ókeypis. Simi 497. Reykti m Laxinn afbragðsgóði , frá Hvanneyri er nýkominn í Matardeild Sláturfélagsins Hafnarstræti. Sími 211. Sparið fé yðar og málið hús yðar utan og innan með Hall’s Distemper. Hann er búinn til í hær 100 litum af þeim fegurstu og smekklegustu sem hægt er að hugsa sér. Fæst í Verzl, Björn Kristjánsson Reykjavik og hjá 6 Slippfélaginu. Dýrafræði og heimspeki. (Nokkurskonar philosophie zoologique). — Etsi intellexerit nemo. Skriðdýr eru það, sem hér á jörðu hafa orðið stærst og sterkust, fuglar farsælastir, og skorkvikindi hafa hér langmestan taugakraft og er sizt hætt við að ofþreytast. Heimspek- ing þykir þetta ískyggilegt. Og menn geta reynt á því heimspekis- hæfileika sína betur en mörgu öðru, hvort þeim þykir þetta iskyggilegt eða ekki, og hvort þeir geta rakið þessa meirmagnan hins minna vits, til nokkurs sambands við suma meginheimsku mannlífsins, eins og t. a. m. styijaldir. 7. júlí Helqi Péturs. Starfsmenn sem þegar eru ráðnir á Alþingi. Skrifstofustjóri: Einar Þorkelsson. Skrifarar á skrifstofu: Einar Hjör- leifsson stud. med., Pétur Magnús- son cand. jur. Skrifarar í Efri deild: Árni Páls- son bókavörður og Pétur Zophonias- son. Skrifarar i Neðri deild: Vilmund- ur Jónsson stud. med. og Pétur Lárusson organisti. Gæslumaður á lestrarsal: Kristinn H. Ármannsson stud. Pallaverðir: Magnús Gunnarsson og Kristján Helgason. «"-~i D A6BÓÍJIN. Afmæli í dag: Ellen J. Sveinsson húsfrú. Elisabet Arnadóttir húsfrú. Fanny Valdemarsdóttir húsfrú. Helga J. Bjarnason húsfrú. Gunnar Egilsson skipamiðill. Ingólfur Lárusson skipstjóri. Páll Þorkelsson gullsm. 65 ára. Þorsteinn Jónsson járnsmiður. Arni Jónsson pr. Hólmum. Sólarupprás ki. 2.26 f. h. Sólarlag — 10.37 síðd. Háflóð í dag kl. 3.41 og í nótt — 4.3 Veðrið í gær: Vm. n. andvari, hiti 10.1. Bv. v. kul, hiti 10.1. ísf. v. st. gola, hiti 13.5. Ak. s. kul, hiti 12.0. Gr. s.s.v. andvari, hiti 22.0. Sf. logn, hiti 8.3. Þh. F. n. gola, hiti 9.0. Póstar 1 dag: Ingólfur til Garðs og kemur aftur. Póstvagn kemur frá Ægissíðu. - Austanpóstur frá Vík. Sterling kom frá Kaupmannahöfn í gærmorgun snemma. Farþegar voru Bogi Ólafsson gullsmiður, frú Debell og frú Magnús. Frá Vestmannaeyjum kom Karl Einarsson sýslumaður. »17. júni« ætlar að efna til sam- söngs í Bárubúð annað kvöld. Mörg lög á söngskránni, sem fólagið hefir eigi áður sungið opinberlega t. d. kafll úr Völuspá eftir Hartmann með 4 hentu flygelundirspili, »Matrósakórið« úr »Der fliegende Hollander« eftlr Wagner o. fl. Húsið verður auðvitað troðfult. »Snðurland« á að fara að koma út aftur innan skams. Hefir blaðið ekki komið út undanfarna mánuði, en nu er ráðinu ritstjóri þess, Páll Bjarna- son kennari á Stokkseyri, en við prent- smiðjunni á Eyrarbakka tekur l'ot' finnur KristjánssoD prentari. Gnðmnndnr Thorsteinsson list- málari kom með Ingólfi úr Borgarnesi síðast. Hefir hann dvalið á Austur- og Norður-landi um tíma og málað þ®r margt og mikið fagurt. Með honuni ferðaðist ungur danskur listmálarí Salto að nafni. Moldrykið var afskaplegt í bæn- um í gær. Ávarp til Alþingis frá kvennafundinum í Reykjavík 7. júlí 1915. Á þessum mikilvægu tímamótuffl, þegar hið háa alþingi kemur samuu i fyrsta sinni eftir að íslenzkar koo- ur hafa með nýjum stjórnarskrár- breytingum öðlast full stjórnmálaleg réttindi, þá hafa konur Reykjavíkur- bæjar óskað að votta hinu háa Al- þingi og hæztvirtum ráðherra voruffl gleði vora og þakklæti fyrir þau mikilsverðu réttindi, sem stjórnar- skráin veitir íslenzkum konum. Vér könnumst fyllilega við það frjálslyndi og réttlæti, sem hið háa Alþingi hefir sýnt í mörgum og mikilsverð- um réttarbótum nú á síðari aruffl, islenzkum konum til handa, seffl jafnan hafa verið samþyktar af mikl* um meirihluta allra hinna politísku flokka þingsins. Vér vitum vel, að auknum rétt- indum fylgja auknar skyldur. En vér tökum móti hvorutveggja með gleði. Vér vitum og skiljum að kosningaréttur til alþingis og kjör- gengi, er lykillinn að löggjafarvaldi landsins, sem á að fjalla um hagS' muni allrar þjóðarinnar, jafnt karla sem kvenna. Vér trúum því að fósturjörðin —' stóra heimilið vor allra, þarfnis1 starfskrafta allra sinna barna, jafnt kvenna sero karla, eins og einka- heimilin þarfnast starfskrafta all* heimilisfólksins, og vér trúum þv’> að vér eigum skyldum að gegna og störf að rækja í löggjöf lands og þjúð' ar, eins og á einkaheimilum. Vér vonum einlæglega að h10 nýja samvinna vor með bræðruu1 vorum á komandi tímum í lands' málum verði þjóðinni til heilla. Alþingi. Fundir voru í báðum deildurn 1 gær. Forsetar lögðu fram frufflv^ stjórnarinnar, en annað var ekki gefI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.