Morgunblaðið - 04.01.1917, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 04.01.1917, Blaðsíða 1
Ritstjórnarsími nr. 500 ísafoldarprentsmiðja Afgreiðslusími nr. 500 4 argangr 61. tölublað IPimtudag jan. 1917 1016 BIOJ Reykjavíknr Biograph-Theater Talstmi 475 BIO í kvöldbirtu Lundúna er mynd sem allir ættu að sjá, hdn er spennandi, áhrifamikil og snildarlega vel leikin, Myndin verður að eins sýnd í kvöld og annað kvöld Tryggið yður tölusett sæti í síma 475. Erl. simfregnir. frá fréttaritara Isaf. og Morgunbl.). Kaupmannahöfn, 2. jan. Áköf stórskotaliðsviður- eign á vesturvigstöðvun- um. Mackensen hefir tekið Tulzea, isaccea og Stear í nánd við Braila. Þýzkur liðsauki er kom- inn til vígvallarins hjá Saloniki. Bandamenn hatna frið- arboðunum. Miðríkjunum veitir bet- ur í vopnaviðskittum. ----... . .... vsri.ís? i""———~- Brunabótafélag íslands og Sig. Thoroddsen. Herra skólakennari Sig. Thor- oddsen, hefir reynt með greinum í tveim blöðum (Lögréttu og Morgunblaðinu) að vekja óhug landsmanna á Brunabótaíélagi ís- lands. Tvö eru þau atriði, sem hann finnur að. Án þess að ætla mér að fara í deilur við hr. Sig. Thc^roddsen um Brunabótafélags- lögin, ^em eg raunar hefi orð mjög merks erlends brunabóta- sérfræðings fyrir að séu ágœt lög, tel eg mér þó skylt að leiðrétta misskilning þann sem lýsir sér i greinum þessum. Fyrra atriðið, sem hr. Sig. Thoroddsen athugar, er það, að lögin séu gagnstseð stjórnar- skránni, að því leyti sem þau leggja skyldu á menn að bera sjálfir áhættuna að 76 hluta á húsum þeim, sem skylt er að tryggja hjá félaginu. Eg lít svo á sem þetta sé firra ein, sem mun vera fundin upp af einhverj- um vátryggingarmanni í Kaup- mannahöfn. Einn danskur lög- fræðingur sem er handgenginn dönskum vátryggarfélögum, er telj.i stofnun Brunabótafélags ís- lands koma í bága við hagsmuni sína, mun hafa brotið upp á þess- ari firru. Annars hefir mér vitan- lega enginn lögl'ræðingur látið sér detta þetta í hug, hvorki þeir, sem upprunalega unnu að samn- ingu laganna, né neinn þeirra sem um þau hafa fjallað þau 9—10 ár sem liðin eru síðan um- rætt atriði var fyrst í lög leitt, árið 190T. Hér er því varla um annað að ræða en misskiling hr. Thoroddsens á lögum. Hitt atriðið er tilraun til að sýna fram á að bæði félagið, þeir sem vátryggja í félaginu, lands- menn og landssjóður geti orðið fyrir stórstjóni af félagsstofnun þessari. Hr. Thoroddsen kemst að þeirri niðurstöðu, að ef allur Isa- fjörður og öll Akureyri (með Oddeyrj) brynnu til kaldra kola á fyrsta ári félagsins, þá yrði að jafna á vátryggjendur 866,000 kr. Eg býst við því, að svo öfga- fult dæmi sem þetta er, hljóti í sjálfu sér að vera nóg til þess að sannfæra menn um að ervitt er um sönnun fyrir því, sem hr. Th. vill sanna, þ. e. að það baki landsmönnum mikla áhættu að félag þetta er stofnað. Slíkur bruni, allur ísafjörður og öll Akureyri með Oddeyri á sama ári, yrði einsdæmi i ver- aldarsögunni, og á slíku er ekkert brunabótafélag bygt. Eg vil að eins benda mönnum sem kunnug- ir eiu á Akureyri, hve sennilegt það er að brunnið geti alla leið frá Gróðrarstöðinni 0g út á Odd- eyrartanga, gagnfræðaskólinn og húsin upp á brekkunni, í sama brunanum! Annars fer allur útreikningur hr. Th. fyrir ofan garð og neðan vegna þess að í slíkum stórbrun- um mundi að eins nokkur hluti af tjóninu lenda á Brunabótafélagi íslands. Félagið hefir mjög víð- tœJca endurtryggingu, hversu víð- tæka er mér. ekki heimilt að segja ?egna þeirra sem endur- tryggja fyrir félagið. En svo mikið get eg sagt að hús eru endurtrygð að því leyti sem lög- in frá 3. nóv. 1915 gera ráð fyr- ir að endurtryggja skuli, ef fáan- legt er, og að auki mun meira. Svo er gengið frá því máli, að algerlega ófyrirsjáanleg stór- óhöpp hvað ofan í annað á sama árinu þyrftu að koma fyrir svo taka yrði til ábyrðar félagsmanna. Ef hr. Thoroddsen hefði aflað sér Ungur maður vanur ritstörfum óskar eftir skrifstofuvinnu nokkra tíma á dag. Ritstj. vísar á. Ungur maður óskar eftir atvtnnu við verzlun utan- eða innanbúðar. Ttlboð, merkt VII, leggist á afgreiðslu Morgunblaðsins sem fyrst. upplýsinga um þetta áður en hann ritaði grein sína, þá hefði hann getað sparað ummæli sín um þetta atriði. Eg hefi fyrir mér danska blað- ið »Forsikrings-Kongressen» frá 27. sept. 1916. Þar er sagt að þau erlendu félög sem hafi bruna- tryggingar á íslandi muni gefa umboðsmönnum sínum »skýrandi tilkynningu*, sem geti orsakað að sem minst verðí úr því að Brunabótafélag íslands svifti þau (erlendu félögin) viðskiftum þeirra hér. í sama blaðinu er verið að tala um að í lögunum sé framan- greint stjórnarskrárbrot. Ég nota tækifærið til þess að benda á það, að þrátt fyrir þessar góð- gjörnu tilraunir erlendra félaga til að spilla fyrir Brunabótafé- lagi íslands, hefir enginn umboðs- manna þeirra viljað flytja þetta erindi þeirra, fyr en nú einn maður. Svo samtaka erum vér Islend- ingar nú orðnir um að styðja þjóðþrifafyrirtæki vor. Reykjavík, 2. janúar 1917- Sveinn Björnsson. Fyrirspurn. »Áhugi þingsins* stóð í Morg- unblaðinu 28. f. m. Hafi sá er ritar þökk fyrir það sem þar er sagt. En hví skildi hann eftir sira Eggert Pálsson sem fór líka af þinginu með Einari, jafn lengi sem hann. Hafi síra Eggert verið hræddur við sálnahrun í sóknum sínum, ef ekki væri messað þar í 1—2 helgidaga. þá munu hans núm bíó cffiýít prógram i fivolé! g. F. U. M. A. D. fundur í kvöld kl. 874 Allir ungir menn velkomnir. málsbætur betri en Einars. Ann- ars alveg eins fyrir báðum, hvað vanrækslu þingsins snertir. Fá þessir menn dagpeninga sína þenna tíma sem þeir eru í erindagerðum sínum austur ísveit? Þjóðinþarf að fá að vita það. Til hvers eru þessir þingmenn að gefa kost á sér til] þingsetu, fyrst þeir hafa slíkt heimilisannríki sem þeir virð- ast hafa. Kjósandi. Svar: Vér erum sammála »Kjósanda«. Þetta er mesta óhæfa, og miklu fremur til þess að gráta yfir en brosa að. Sr. Eggert virð- ist þó hafa haft dálitlar málsbæt- ur, þar sem hann þurfti að sinna prestverkum um hátíðarnar eystra. Einar á Geldingalæk mun aftur á móti ekki hafa farið austur til þess að »messa«. — Auðvitað fá báðir þessir áhugasömu fulltrúar sín fullu launa (10 kr. á dag) með- an þeir dvelja eystra, en líklega þó ekki ferðakostnaðinn greiddan. Hver ætlar annars á? Austnrrikskur sendiherra fer til Bandarikjanna. Svo sem kunnugt er var dr. Dumba, sendiherra Austurrikis i Bandaríkjunum, kvaddur heim i fyrra. Hefir Austurríki eigi haft þar neinn útsendan ræðismann síðan. En Tarnowski greifi var útnefndur eftirmaður Dumba fyrir æði löngu og fóru Austurríkismenn fram á það við Breta að hann fengi að fara vestur um haf, frjáls og óáreittur. Vildu Bretar lengi Smurningsolían cylinder og lager, sem vér seljum, er viðurkend að vera sú bezta og jafnframt ódýrasta eftir gæðum, sem til landsins flyzt. — — Mótorbátaeigendur ættu sjálfs sín vegna að reyna olíuna.- Beynslan er bezt. ASG. G. GUNNLAUGSSON & Co.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.