Morgunblaðið - 05.04.1917, Blaðsíða 1
Ritstjórnarsimi nr 500 I Ritstjóri: Vilhjálmnr Finsen. | Isafoldarpreptsmiðja I Afgreiðslpsimi nr. foo
í. 0. 0. F. 98469 — I. E.
1. s. 1.
Víðavangshlaup.
Eins og áðar hefir auglýst
verið, fer víðavangshlaup fram 1.
sumardag n. k. Væntanlegir
þátttakendur gefi sig fram skiif-
lega fyrir 12. þ. m. Innritunar-
gjald er 5 kr. fyrir hvern flokk,
er verður endurgreitt þeim, sem
ekki skerast úr leik.
Iþrótf.afélag Reykjavíkur.
diiSliujyrirfasfrar
i cSefaí.
(Ingólfsstræti og Spitalastíg).
á föstudaginu langa
kl. 7 siðdegis.
Efni: Friðþægingarfórn frelsarans.
Allir velkomnir.
O. J. Olsen.
Erl. simfregnir
frá fréttaritara ísafoldar og Morgunbl
Kaupmh. 3. apríi
I».lóðverjar halda enn
undan á vesturvígstððvun-
iim. Bandamenn sækja
stoðugt á.
Samkomulags tllraunir
standa yflr milli þýzkra
og riíssneskra jafnaðar-
manna. Eru þess vegna
engar orustur háðar á
austurvígstöðvunum.
í»ing Bandarfkjanna er
komið saman til þess að
ákveða hvort segja eigi
í»jóðverjum stríð á hendur.
Símfregnir.
Húsavík, í gær.
Mislinqar hafa geysað hér um
^itirnar, en eru nú heldur í rénun.
þeir lagst mjög þungt á menn,
niargir dáið. í Skógum i Axar-
lá alt heimilisfólkið, um 30
5útts, i einu, og dóu þrír: Jón
Við höfnm fyrirliggjandi nokkrar birgðir af:
Niðursoðnum ávöxtum:
Apricots — Epii — Kirsuber — Perur — Ananas.
Þurkuðum ávöxtum:
Apricots — Epli — Perur — Ferskjur — Kúrennur.
Beauvais:
Græaar Baunir — Bay. Pylsur — Aspargas.
Cocoa — Kerti — Niðurs. Lax — Niðurs. Nautakjöt — Línsterkju.
þvoffasápu.
Ennfremur: Sjóföt — Seglastriga — Fiskábreiður — Léreft — Nær-
fatnað og Skófatnað.
Að eins fyrir kaupmerin og kaupfólög.
Ó. Jofjnson & Haaber.
Björnsson bóndi, kona hans Kristin
Þórarinsdóttir og Tryggvi Níelsson
búfræðingur, kvæntur maður. Öll
voru þau á bezta aldri og er fráfall
þeirra jafu sorglegt sem sviplegt.
Athugasemd.
í 148 tölublaði Mbl. þ. á. birtist
grein með fyrirsögninni: »Undrið
mesta«, og stendur undir henni:
»Gamall templar*.
Méð því að greinarkorn þetta
fjallar um stúku þá, er nokkrir
Mentaskólapiltar hafa stofnað, og
mig persónulega, þá finn eg ástæðu
til að rita þessar linur.
Allir þeir, er minst hafa á grein-
iua við mig, og þeir eru margir,
telja hana óskaplegan óburð og furða
sig á að Mbl., sem er þekkt að því
að vanda lesendum sinum sem
bezta andlega fæðu, skuli hafa hent
sú skissa, að flytja þessa grein.
Það er að eins vegna þeirra les-
enda Mbl., sem ekki þekkja mig
persónulega, að eg rita línur þessar,
til þess að koma í veg fyrir mis-
skilning þeirra á meðai á afstöðu
minni til banns- og bindindis-máls-
ins. Einning vil eg leiðrétta það,
er þessi greinarhöf. skrifar um stúku
og andbanningafélag í skóla.
Hann má vera þess jullviss, að st.
»Minerva« er stofnuð í jullri alvöru
til höfuðs Bakkusi, og hvað svo sem
sagt kann að vera um það, að hún
sé grímuklætt andbanningafélag, þá
er það að eins andvana fædd tilraun
til að ala á tortrygni gegn stúkunni.
Þá segir greinarhöf., að andbanninga-
félag sé stofnað í skóla með ca. helm-
ingi fleiri féiögum en stúkan. — Hér
um daginn mun hafa verið eitthvað
talað um andbanningafélagsstofnun-
ina í skólanum í glensi og með
gáska. Það er alt og sumt. — Ekk-
ert andbanningafélag hefir verið stofn-
að í skólanum nc starfar þar nú. Og
eg þykist mega fullyrða, að sliki fé-
lag verði eiqi stofnað þar. Af þessu
má ráða, að iítt sé mark á því tak-
andi, er greinarhöf. segir að æ. t.
stúkunnar standi framarlega í and-
banningafélagi í skólanum! Enn seg-
ir greinarhöf., að eg hafi setið á stofn-
fundi andbanningafélags í skólanum
og látið mér vel líka það, sem þar
fór fram. Félag þetta er eiqi til,
eins og eg hefi áður tekið fram; hef-
ir stofnfundur þess aldrei verið hald-
inn, og þetta þvi alt uppspuni. —
En taka vil eg það fram til þess að
koma í veg fyrir misskilning meðal
ókunnugra, að eg er einlægur stuðn-
ingsmaður aðflutningsbannsins, —
Þessi greinarhöf. skórar á mig að
leggja öll spilin á borðið! Heyr á
endemi! — Hann lætur sem væri
hann yfirmaður minn eða mætti sín
séistaklega mikils, og eins og eg
hefði framið eitthvert ódæði sem eg
þyrfti að hreinsa mrg af.
Það er annars undarlegt, að menn
skuli hafa gaman af að birta slikt
rugl, fult af hræsni og öðru verra,
sem grein sú er, sem nú hefi eg
svarað.
En um það tjáir víst ekki að fást.
Brynkijr Tobiasson.
Brynleifur Tobiasson hefir sýnt
mér ofanritaða svargrein og get eg
vottað, að það er satt, sem hann
segir, að í Mentaskólanum er ekkert
andbanningafélag, og að eigi mundi
verða leyft að stofna slíkt félag þar.
G. T. Zo'éaa.
Sfiusfu simfregnir
frá fréttaritara ísaf. og Morgunbl.
Kaupmannahöfn, 4. apríl,
Wiíson forseti ræður
þinginu þess að segja
t>jðÖverjum síríð d þend-
ur og brjóía á bak aflur
þtjzka „miliíarismann,,.
Búisí við því að þingið
samþgkki friðsiií.
Oruslur á vesíurvíg-
sföðvunum. Bandamönn-
um veifir beíur þjá Vaux.
Tijrkir þafa afíur beðið
ósigur í JBesopoíamia.
Hússar og Bretar þafa
náð þöndum saman þar.
Danir afþentu Veslur-
beimset/jar opinberíega
þinn 31. marz.
Jlorðmenn bafa veitt
14 miíjönir af fiski í veí-
ur, en veiddu 26 miíjónir
á sama tíma í fyrra.
Kaupmannahöfn, 4. apríl.
Bandaríkin bafa sagí
Pýzkaíandi sfríð á bend-
ur.
Ætla þau fyrst í staö aö
hjálpa handamönnum með
því að lána þeirn fó og
senda þeim hergögn, —Al-
menn herskylda verður
lögleidd. Að ári liðtm bú-
ast Bandaríkin við því að
geta sent mikið lið til víg-
vallanna í Evrópu. — Öll
þýzk skip í Bandarfkja-
höfnum, samtals 500,000
smálestir, hafa verið gerð
upptæk.
Stjórnarráðinu barst í gœrdag
simskeyti frá Birni Sigurðssyni,
erindreka i Lorídon, um það, að
Lagai foss
hefði fengið leyfl brezkra
yfirvalda til þess að fara
með vörufarm beina leið
frá Kaupmannahöfn til ís-
lands. — Fer þá að vaenk-
ast hagur okkar, þótteigi
sé nú víst hvernig fer um
samgöngur milli íslands
og Ameríku.