Morgunblaðið - 10.04.1917, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 10.04.1917, Blaðsíða 1
'JÞriðjudag aptíl 1917 4. ara'angr 155 tðlublað Ritst;órnarsími nr 500| -Ritstjóri: Vilhjálmur Finsen, Isafoldarprentsmiðja Afgreiðslnsimi nr. 500 Gamla Bio (The Girl of Mysteri) Stærsta og langbezta kvikmynd sem hingað til lands hefir flezt, verdur sýncí í kvöíd kí. 9. Aðalhlutverkin leikin af tveimur frægustu kvikmyndaleikurum Ameriku cFrancis c&orá og fBracc Bimaré, sem sjálf hefir samið myndina og orðið heimsfræg fyrir. Þetta skemtilega æfintýri um hina rösku stiilku JSucÍÍÍC JSoVQ, er svo spennandi og efnisrikt að á hvergi sinn líka í nokkurri kvikmynd um víða veröld. Leikendur eru: Sumpter Love, hershöfðingi Sucille Love, dóttir hans Gibson lautinant, ænn- usti Lucielle. Hougu Loubeque, njósnari. Thompson, þjónn og spæjari Villimaðurinn, galdraiæknir- inn. Myndin er öll hér fyrir- liggjandi, en sökum þess hve hún er löng, verður hún að skiftast niður á fleiri kvöld. Fylgist með frá byrjun, því aldrei áður hefir verið sýnd hér jafn spennandi kvik- myndasaga. Pantið aðgöngumiða í síma 475. Erí. simfregnir frá fréttar. Isafoldar og Morgunbl. K.höfn 8. apríl Bandamenn sœkja fram hjá St. Queniin, Pjóðveijar hafa gett áhlaup hjá Rheims, en ekk- ert unnið á. Rússar hafa beðið ósig- ur hjá Stochod og hand- tóku Þjóðverjar par /o pús hermenn. Danska skipinu ,Bergen- hus' hefir verið sökt. »Bergenhus« var eign Satnein- aða félagsins og var 1017 smá- lestir að stærð. Vatnið. Það er orðinn daglegur við- burður hér í bæ, að fólk í upp- bænum kvarti yíir þvi, að vatns- laust sé í húsunum og er alla jafnan því kent um, að vatns- veitan sé orðin oflítil eða að eft- irlit með henni sé svo ilt, að vanrækt sé að gera við bilanir þegar í stað. Það kann vel að vera, að vatnsæðarnar séu nokkuð þröng- ar eða að vatnsnotkun hafi auk- ist svo mjög siðan vatnsveitan komst á, að æðarnar fullnægi ekki þörfinni. Mun þó hafa verið gert ráð fyrir töluvert aukinni vatns- þörf þegar æðarnar voru lagðar. En ef svo er, þá ber mönnum skylda til þess að fara eins spar- lega með vatnið og frekast er unt. Athuga ber þó i þessu máli, að það mundi einu gilda, hve víð- ar æðarnar væru, vatnsskortur getur samt komið fyrir. Það er hægt að eyða svo miklu vatni til einkis, að æðar, þó mjög víðar væru, gætu ekki flutt vatnið. Og það er enginn vafi á þvi, að það er eytt miklu meira vatni í þess- um bæ en þörf er á — og mest- um hluta þess er eytt alveg að óþörfu. í kuldatíð er fólk gjarnt á það, að láta vatn renna úr æðunum í húsum inni dag og nótt af hræðslu við það, að vatnið muni frjósa í æðunum. Þegar látið er þannig renna í mörgum húsum í senn eykst vatnsnotkunin fram úröllu hófi — og þá getur vatnsveitan auðvitað ekki fullnægt kröfunum. Húsin, sem hæst standa, verða verst úti. Þau verða vatnslaus vegna hinna, sem dögum saman láta renna úr æðunum að óþörfu. Svo mikil brögð hafa orðið að þessari óþarfa vatnseyðslu nú upp á síðkastið, að það hefir orðið að loka fyrir vatnið i öllum bænum undanfarnar nætur til þess að hægt væri að fylla vatnsgeym- inn, sem tæmdur hefir verið á hverjum degi. Þetta er neyðar- úrræði, því hættulaust er það ekki að láta bæinn vera vatns- lausan, ef t. d. bruna bæri að höndum. Borgarstjóri hefir auð- vitað séð svo um, að maður er Sjónleikur í z þáttum 50 atr., tekinn af Vitagraph Films Co. Efni þessarar myndar eru nokk- ur atriði úr lífi mjög fallegrar e« iéttúðugrar konu. Bfáa undrið. Skopleikur í 25 atr., tekinn af Nordisk Films Co. Skemtileg frásaga um ótrúan eiginmann og hin hræðiiegu af- reksverk hans. Sýning í kvöld kl. 9. Tölusett sæti. Ársmann vantar að Bessa- stöðum til algengrar sveitavinnu. Semja ber við undirritaðan. Heima eftir kl. 7 á kvöldin. Skólavörðustíg 31 (Litlihvoll) Rvk Jón H. Þorbergsson. látinn vera á verði inni við vatns- veitu til þess að geta opnað fyrir æðarnar þegar í stað, ef eldur kæmi upp einhversstaðar i bæn- um. En alvarlegar afleiðingar gæti það haft, að ekki er vatn þegar til taks, ef á þarf að halda. Fólk verður að fara sparlega með vatnið. Það þarf að banna það mjög stranglega, að láta vatn renna að óþörfu í húsum inni og tilkynna fólki, að brot gegn þeim fyrirskipunum verði kærð fyrir lögreglunni. Þegar sá ósiður, að láta vatn renna að óþörfu, hefir verið upprættur, þá mun það áreiðanlega koma í ljós, að vatns- veitan er oss nægileg, að minsta kosti í nokkur ár enn. Sex ára styrjðld. Stríðið hefir nú bráðum staðið í þrjú ár. En samkværat skeyti þvi, er birtist í blaðinu í fyrra- dag, búast Bandaríkin við því, að það muni standa í þrjú ár enn. Þótt maður voui, að eigi verði sú reyndin á, þá er þessi fregn þó athugaverð mjög, því að eigi munu Bandaríkin grípa þetta al- veg úr lausu lofti. En hvernig

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.