Morgunblaðið - 09.07.1917, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 09.07.1917, Blaðsíða 1
Mánndag 4. árgangr 9. júlí 1917 M0R6UNBLAÐID 244. tölublað Ritstjörnarsimi nr. 500! Ritstjóri: Vtlhiilmur Finsen ísdoldarprentsmiója Afgreiðsiusimi nr. 500 Soíia Soíia Soíia Solia Solia Sotia Soíia ? Gamla Bio Undrahundur Fattys Fram oir hófi skemtilegur gamanleikur í 2 þattum. Saminn og leikinn af kvikmyndnfélagi okkar góðkunna skopleikara Charles Chapllnss »Keystonc«. Aðalhlutverkið leikur: Fatty og hundurinn hans. Afar-spaugsamir félagar, sem ahir verða að sjá. Vegna þess, að jafn skemtilegur og spennandi gamanieikur hefir aldrei sézt hér iður í nokkurri kvikmynd. Kyndari óskasf. • ■ . , ■ ,i ’ ■ . ■ Hátt kaup í boði! Aígr. vísar á. Hér með tilkynnist, að móðir og tengdamóðir okkar andaðist að heim- ili sfnu Hákoti við Garðastræti í Reykjavik 5. þ. m. Jarðarförin er ókveðin 12. þ. m. kl. II f. hád. frá Hákoti. Börn og tengdabörn hinnar látnu. Tonograf með völsum, óskast til kaups nú þegar. R. v. á. Vestmannaeyjasíminn Um það mál ritar hr. konsúll Gunnar Ólafsson í Vestmanna'eyjum nýle; a mjög eftirtektarverða grein í »Landið«. Bæði er greinin mjög skýr og vel rituð og sérstakt gildi hefir hiin vegna stöðu og kunnug- leika höfundarins á þvi máli. Hr. Gunnar Ólafsson sat nefnil. á þingi álrið 1911, þegar lofskeytasamband- ið við Vestmannaeyjar var þar til umræðu og heimastjórnarmenn sællar tninningar drápu það í samein. þingi síðasta daginnsem alþingisat. Hr.G.Ó. vildi ekki eins og heimast|órnar- flokkurinn, byggja alt í því rriáíi á fullyrðingum Forbergs símastjóra, sero, eins og G. Ó. kemst að orði, »vissi alt, gat alt og þekti alt«, — að eigin áliti. Hann vissi sem sé að landssímastjórinn bar ekkert skyn- bragð á loftskeyti og að fullyrðing- ar hans hvað viðgerðir á biluninni á sæsimanum sneiti, bæri að taka mjög varlega, þar sem áætlanir landssíma- stjórans sumar, væru þannig gerðar, að á þeim væri ekki beint byggjandi, sbr. kostaaðaráætlunin yfir Vestm.- eyja símann, sem varð um 5000 kr. lægri eft r að tilboðið kom um loftskeyrasambandið við Eyjarnar — styðsta leiðin meira að segja heil- um kflómetra styttri 1911 en 1909. Hr. G. Ó. barðist gegn sæsímanum þar sem haDn áleit, að erfitt mundi verða að gera við hann ef hann bil- aði og að sambandið yrði því mjög ótrygt. Það sem G. Ó. sagði á þingi 1911 er, svo sem allir vita, komið á daginn, og allar fullyrðingar lands- símastjórans eru rokuar um koll. Hr. Gunnar Ólafsson rekur fyrst sögu Veyjasímans, hvernig þingið feldi tillögu stjórnarinnar, þar sem meiri- hluúnn bygði eingöngu á fuliyrðing- um landssímastjórans. Þegar frum- varpið var felt, var komið á hluta- félagi til þess að leggja og reka sím- ann og géfur höfundurinn þar mjog skýrandi upplýsingar í málinu. — Hann staðfestir nfl. að sjálfur lands- símastjórinn hafi verið hluthafi í fé- laginu, í fyrirtækinu, sem hann — landssímastjórinn — síðar átti að ráða landsstjóm og alþingi heilt um hvoit kaupa skyldi eða ekki! Aukaþingið 1912 veitti svo fé til þess rað kaupa símaDn — sem vit- anlega alt af var ætlun þeirra, sem til félagsins stofnuðu. Segir böf. að einn þingmanna hafi sagt í ræðu að »simastjóritin hafi lýst því yfir, að hann hafi öil tæki til að gera við slmslit hér heima. Til þess megi nota hvort heldur vill mótorbát eða botnvörpuskip*. Aðrir hafa haft eftir- landssirrastjóranum, að botnvörpur mundu ekki slita sfmaDn, því hann yrði lagður á hraun þar sem engin skip væru að veiðum. En nú segði símastjórinnað enginn hefði vitað um hraunið, þar sem síminn hefði slitn- að. Svo segir hr. G. ó.: »Eg sé ekki betur, en að það sé sanngjðrn krafa, hvernig sem á er litið, að við hendina hefði verið það, sem nauðsynlegt var til að bæta þennan símaspotta á hvaða tíma árs sem var. Hitt er aftur á móti ómögu- legt að heimta af simastjóranum, að hann gerði við simann á mótorbáti með ?ngum tækjum, þótt hann hafi þótzt geta það hérna um árið, þegar mest var ofurkappið í honum gegn loftskeytunum. Það atriði er að eins leiðara fyrir hann, en þess gætir þó lítið, samanborið við það, að hafa ekki nóg efni til*. Nú er sagt að verið sé að gera við Vestmannaeyjasímann. Á að nota til þess Viðeyjarsfmann — og er það vonandi, allra hluta vegna, að það takist að koma á sambandi aftur. En hve varanlegt það samband verði og hve örugt, ja, um það bíða menn umsagnar landssímastjórans. Það verður fróðlegt að vita, hvað alþingi það sem nú starfar, gerir í þessu máli. Vafalaust lætur það sima- hneyksli þetta ekki afskiftalaust. Mótekja bæjarins. Hver sá, er gerir sér ferð inn í Kringlumýri til þess að athuga það starf, er þar er rekið á kostn- að bæjarins, sannfærist fljótt um, að þar er um að ræða eitt hið mesta og myndarlegasta þarfa- fyrirtæki, er komið gat til mála að ráðast í eins og nú standa sakir og jafnvel á hvaða tíma sem var. Kringlumýrin er nokkuð af- skekt; hún liggur fyrir innan holtið, sem nýi vatnsgeymirinn stendur á. Allur fjöldi bæjar- manna hefir varla vitað að þessi mýri væri til, sem þó nú á að verða eitt aðal-bjargráð manna í kuldanum að vetri komandi. mn prógram í kvöídf Enda hefir þessi mýri verið tii lítils nýt. Hún er smáþýfð, en allstórt flæmi, yfir 160 dagsláttur og blaut mjög, nema rétt um þurrasta árstímann. Eg gerði mér ferð núna einn morguninn inn í Kringlumýri til þess að lítast þar um og skoða framkvæmdirnar. Það fyrsta, sem vakti athygl- ina var heilmikið kerfi af skurð- um, sem nýbúið er að grafa um mýrina þvera og endiianga. Þá er líka búið að plægja upp þúf- urnar af stórum svæðum á milli skurðanna og sópa þeim burt. Hafa myndast þar heljarmiklir þurkvellir, og er mórinn breiddur þar til þerris. Um holtin í kring gnæfa alstaðar við móhlaðar og hraukar, svo og lika meðfram sjálfum mógröfunum niðrí í mýr- inni, og blika við í sólskininu hvít tjöld hingað og þangað á milli. Nú er mýrin ekki lengur sökkvandi fen, heldur skraufþur, því að vatnið hefir fengið frá- rensli um skurðina, sem nefndir eru og svo lokræsi hingað og þangað. — Fjöldi fólks er að vinnu. Karlmenn stinga mó- hnausa niðri í gröfunum og fleygja þeim upp, en kvenfólk er uppí og tekur við þeim og hagræðir þeim til þurks. Á tveimur stöðum ganga eltir vélar fyrir mótorafli og jörðin gengur í bylgjum alllangan spöl frá þeim. Sjálf eltivélin er alveg eins og stór kjötkvörn. Tveir menn moka upp í hana blautum mó 0g einn stappar niður í hana til þess að skrúfan geti náð í móinn og pressað hann út. Kem- ur hann svo út í mjúkri ferkant- aðri lengju, sem er höggvin í sundur í smástykki, lögð á burð- arfjalir og borin út á völlinn til þurks. Eg fer til verkstjórans, Felix Guðmundssonar, til þess að fá nánara yfirlit yfir verkíð. — Hvernig gengur ýerkið? — Eftir öllum vonum. Fjöld- inn af fólkinu var óvanur þess- ari vinnu og kraftarnir mislagnir. En síðan vatnið fór að síga úr mýrinni og æfingin fór að vaxa

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.