Morgunblaðið - 17.07.1917, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 17.07.1917, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ 9 P^NOTIÐ AÐ E!N$~. . ^ vr* Par sem ^unlight sápan er fullkomie0a ,brem 'vog óínengaá, þá er bún sú ©ina' sápa,} sem * óhaDtt er afö’ þvo úr fína , knippliniga annað tín. sterlingpunda til flugvélagej ðar, og io þús. flugvélar eru þegar í smíð- um. — Goethals hershöfðingi, hinn al- þekti yfirverkfræðingur við smiði Panamaskurðsins, hefir nýlega flutt erindi á afarfjölmennum fundi í New York. Þar sagði hann, »að yfirburðir í lofthernaði og stórskota- liði mundi vera hið eina, sem gæti bundið skjótan enda á ófrið þennan. Geti Bandaríkjamenn sent svo marg- ar flugvélar til Frakklands, að yfir- burðir bandamanna á því sviði séu auðsæir, þá muni ófriðnum lokið mjög bráðlega«. Það er ætlun Ameríkumanna, að nota flugvélar, eða öllu heldur flug- báta, ! þúsundatali til þess að eyða kafbátum. Hyggja fróðir menn að flugbátar muni geta komið að góðu haldi í baráttunni gegn kafbátunum. Sprengiefnið í Kristianiu. Fyrir nokkru flutti síminn hingað þær fregnir, að lögreglan í Kristiania heíði fundið allmiklar sprengiefna- birgðir þar í borginni, sem Þjóð- verjar hafi átt. I brezka blaðinu »The Scotsman« frá 26. júni er nánar getið um atvik þetta. Er þar birt opinber skýrsla frá norsku stjórninni og hljóð- ar bún svo: Á laugardagskvöldið handtók lög- reglan mann nokkurn, von Rauthen- fels baróh, sem kvaðst vera finskur að ætt, en er nú þýzkur borgari, og tvo Finna, Ohrsson og Witauen að nafni. í herbergjum þeirra fann lög- reglan mikið af sprengiefni (um iooo kílógrömm), mjög sterku. Nokkuð af sprengiefninu var útbúið eins og »kolabrikettur« og munu hafa átt að smygla þeim um borð i gufa- skip innan um önnur kol skipsins. í vörzlum barónsins fundust og cigar- ettur og vindlar, sem carborandum var i, en það mun hafa átt að nota þetta til þess að ónýta vélar í skip- inu. Barónninn og hinir mennirnir Frá Balkan. ' Manntjón Þjóðverja Menn höfðu alment búist við því, að bandamannaliðið á Balkan- skaga mundi hefja sókn í vor eða sumar, en einhverra hluta vegna hefir ekki orðið úr því. Vitanlegt er það, að MiðiLjaherinn hafði mikin.n út- búnað þar, Og ætla menn að hann hafi einnig hugsað til sóknar,* til þess að reyna að koma bandnnannahernum nndir forysta Sarrail fyrir kattar- nef. En fyrirætlanir Miðríkjanna hafa einnig farist fyrir. A myndinni hér að ofan sjást bú'garskir hermenn í bæ á Balkan skaga. Virðist þeir vera fremur óhermannlegir á að sjá. Alls mist 4356760 menn Brezk blöð biita opinberai,skýrslu Þjóðverja yfir manntjón þeirra í maí- mánuði síc$stliðnum: Fallnir og dauðir af sárum 19,006 Dauðir af sjúkdómum 2,994 Handteknir 886 Horfnir 25,676 Hættulega sárir 14,348 Sárir 3,858 Litið sirir 36,133 Sárir, en á vigvellinum 8,055 Alls 110,956 Séu tölur þessar lagðar við þá opinberu manntjónslista, sem Þjóð- verjar hafa áður birt, verður alt mann- tjón þeirra frá ófriðarbyrjun þannig: Fallnir óg dauðir af sárum 998,439 Dauðir af sjúkdómum 69,688 Handteknir 303,309 Horfnir 254,101 Hættulega sárir 571,386 Sárír 310,616 Lítið sárir LS99»743 Sárir, en á vígvellinum 249,478 Alls 4,356,760 í skýrslu þessari er talið manntjón alls þýzka hersins, en flotinn, loft- hersveitirnar og Afrikuliðið er ekki talið með. segja, að það hafi átt að nota sprengi- efnið í Finnlandi Engipn veit nein deili á þessum barón von Rauthenfels. Þykir mönn- um óliklegt, að hann segi rétt frá um það, til hvers hafi átt að nota sprengiefuið. Eru Norðmenn ekki i neinum vafa um til hvers það hafi verið flutt til Kristiania. Flugárásir á London. ✓ Svo sem skeytin hafa hermt hér i blaðinu, fóru Þjóðverjar flugferð til London 13. júní og vörpuðu niður mörgum sprengikúlum. Samkvæmt opinberri skýrslu stjórnarinnar varð manntjón af árásinni sem hér segir: Dauðir Meiddir Karlmenn ....... 91 222 Kvenfólk ...... 24 110 Börn ... ........42 100 Samtals 157 432 Þess er getið, að Vilhjálmur Þýzka- landskeisari hafi sæmt foringja far- arinnar, Brandenburg höfuðsmann, heiðursmerkinu »Pour le Mérite«. Mun mörgum, sem lesa um árang- angur fararinnar, finnast sem það þurfi sterkar taugar til þess að bera heiðursmerki, sem fengið er fyrir að drepa og særa nálega 280 saklausar konur og börn. ---- 'rTimBgi-Sg Morð, þjófnaðnr og verkföll. Herlög hafa verið lögleidd í borg- inni Tomsk i Vestur-Stberíu, segja brezk blöð 22. júni. Ástæðnn er sú, að þangað höfðu þyrpst hundruð af glæpamönnum, sem frelsi höfðu- fengið hjá nýju stjórninni og slept hafði verið út úr fangelsi, sem er í nánd við Tomsk. Yfirvöldin höfðu kvatt menn þessa til herþjónustu, en i stað þess að hlýða þvi, myrtn þeir marga embættismenn, rændu búðir og gerðu mikinn óskunda í bænum. Fréttir annarsstaðar frá Rússlandi herma að ástand sé mjög ilt viða. Þessir glæpamenn, sem frelsi hafa fengið, myrða og ræna og lögregl- an fær ekki rönd við reist. Verkföll eru mjög tíð í Rússlandi, og lítur helzt út fyrir að stjórnin ráði ekki við neitt. T. d. gerðu járn- brautarmenn á Petrograd—Moskva- línunni verkfall, svo að sambands- laust var milli þeirra borga i nokkra daga, en regla ekki komiti á þegar síðast frétist. í hergagnaverksmiðj- unum ríkir og mikil óregla og stöðng verkföll í einhverjum verksmiðjun- um. * 2 kanariufuglar hann og hún, söngfugl ágætur, til sölp með búri og fóðri til tveggja ára, ef vill. Uppl. { síma 394. fl tJtaupsMaptír Sumarsjöl til sölu. Vesturgötu 15, UPPÍ-____________________ Augnlæknirinn hefir aftur fengið dökk gleraugn. ^ ^inna ^jj- Stúlka eða telpa óskast í sumar á Kárastíg 13, niðri. Sig. Guðmunds- son magister. £aisa Duglegur vagnhestur óskast þriggja vikna tíma. Margrét Arnason, Suður- götn 14. Wolff & Arvé’s j- Leverpostei i */* sg V pd. dósum er bezt — Heimtið það Sirœnar Saunir í ‘á Beauvais eru ljútlengastar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.