Morgunblaðið - 12.08.1917, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 12.08.1917, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ 7 Dr P. J. Olafson tannlækni er fyrst um sinn að hitta í Kvennaskólanum við Fríkirkjuveg kl. io—ii og 2 — 3 á virkum dögum. Goðafoss. Þegar Eimskipafélagið og N. C. Monberg keyptu Goðafoss af vá- tryggingarfélaginu fyrir 18 þús. kr. var ekki með öllu voulaust um, að takast mundt að fleyta skipsskrokkn- um til ísafjaiðar, þegar tekið hafði verið úr skipinu vélin, dráttarspilin og alt það þungt, sem hægt var að taka í burt. Þetta var að eins lítil von, en auðvitað bygðust kaupin ekki á henni. Nú er öll von úti. Mótorskipið »Harry« hefir verið fynr vestan, hefir flutt hingað mestan hluta vél- arinnar, nær óskemt, en björgunar- mennsegjaað óhugsandi sé að skips- skrokknum verði fleytt. Goðafoss stendur á kletti, um miðskipa. Er skipið brotið um miðjuna og botn- inn að mestu rifinn úr þvi, svo skipið kemst aldrei á flot. Miklu mun enn verða bjargað úr skipinu. »Harry« fór héðan i fyrra- dag aðra ferð vestur og með honum kafarar, sem aðstoða eiga við björg- unina. Að líkindum hafa Eimskipafélagið og Monberg gert góð kaop, þá er þau keyptu Goðafoss strandaðann. Leiðrétting. í ágripi því er »Morgunblaðið« i dag gefur af ræðu minni í Fossa- málinu stendur: að einn af verkfræð- ingum landsins, Th. Krabbe, hefði gefið félaginu eða aðalmönnum þess beztu meðmæli. — Hér er annað- hvort um mismæli hjá mér eða mis- hermi hjá öðrum að kenna. — í stað verkfræðingsins Krabbe átti að vera skrifstofustjóri Krabbe. Eg átti sem sé við sama skjalið og forsætisráð- herra síðar vitnaði til. En um skoð- anir verkfræðings Krabbe á málinu var mér og er ennþá ókunnugt. Alþingi, 11. ág. 1917. Eggert Pálsson. Brauðmálið. Bjargráðanefnd Nd. segir svo i framhaldsáliti um frv. um eignarnám eða leigu brauðgerðarhúsa. Háttv. Ed. hefir samþykt nokk- urar breytingar á orðalagi frumv., og eru flestar þær breytingar heldur til skemda; frv. fært til verra niáls en áður var á því. Tvær efnis- breytingar smávægar hefir Ed. og gert á frv. þær: 1) að mánaðarleiga eftir brauðgerð- arhús skuli fyrirfram goldin, í stað eftir á, og 2) að skila skuli brauðgerðarhúsum með 3 mánaða fyrirvara, í stað 2. Nefndin telur rétt að ráða hv. deild til að samþykkja frv., eins og Ed. hefir skilað því Jörundur Brynjólfsson er fram- sögumaður. Frv. á að koma á dagskrá neðri deildar á morgun og verður þá vænt- anlega að lögum frá þinginu. Lík- legt er þá, að ekki verði látið drag- ast lengi að útvega konungsstaðfest- ingu símleiðis. DAGBOK T al s í m a r Alj>ingis: 354 þingmannasími. Um þetta númer þurfa þeir að biðja, er œtla að ná tali af þingmönnum i Alþingis- húsinu i síma. 411 skjalaafgreiðsla. 61 skrifstofa. Afmæli i dttg Elín Magnúsdóttir, verzlst. N. Jensen Krogh, kafari. Jón Jónsson, próf. Stafafelli. Guðsþjónustnr f dag (Guðspjall: Jesús grætur yfir Jerúsalem, Lúk. 19) í dómkirkjunni kl. 10 síra Friðrik Friðriksson. Kristján Linnet sýslumabur í Borg- arnesi er kominn til bæjarins snögga ferð. Samúel Eggertsson kennari er n}-- kominn til bæjarins úr ferðalagi um- hverfis landið alt. Hann annast mæl- ingar kaupstaða og kauptúna fyrir Brunabótafélag íslands, og hefir nú nær lokið því starfi. Patreksfjörður einn eftir. Sterling, eða Themis sem skipið nú heitir, kom hingað í gærmorgun kl. 5 beina leið frá Danmörku. Farþegar voru um 65. Meðal þeirra Axel Thor- steinsson skáld, Hóðinn Yaldimarsson cand. polit., Laufey Valdimarsdóttir, dr. Björn Bjarnarson, ungfrú Kristín Þorvaldsdóttir, Jón Norðmann piano- leikari, Arni og Rich. Riis kaupmenn, ungfrúrnar Helga og Bengta Andersen, Guðrún Snæbjörnsdóttir, Sigríður Þor- steinsdóttir, Lára Samúelsdóttir, Olga Kristinsdóttir, María og Ragna Hjalta- dætur, Kristín Norðmann,'studentarn- ir Kristín Ólafsdóttir, Asta Jónsdóttir og Jófríður Zoöga, Bjarni Asgeirsson frá Knararnesi, Kristján Guðjónsson prentari, Óli Vilhjálmsson verzlunarm. frá Húsavík, Jóhann Tryggvason verzlm. frá Þórshöfn o. fl. Fredericia fór hóðan í fyrrakvöld áleiðis til útlanda til þessa að sækja annan steinolíufarm fyrir Steinolíu- félagið. Halldór Kristinsson læknir hefir verið skipaður hóraðslækuir í Reykjar- fjarðarhéraði. Hefir þar eigi verið læknir áður. Síðastliðinn vetur var Halldór á Siglufirði settur læknir í stað Guðm. Hallgrímssonar. Gnðm. Thoroddsen hefir fengið lausn frá hóraðslæknisembætti í Húsa- vík, án eftirlauna. Hefr hann fengið læknisembætti við spítala í Danmörku. Frá alþingi. Úr etri deild í gær 1. Frv. um þóknun til vitna, (endursent frá Nd.); ein umr. Alisherjarnefnd Ed. hafði enn gert breytingartillögur við frv. Fyrir þeim talaði Kristinn Daníelsson, framsögum. nefndarinnar. Karl Einarsson mald- aði f móinn, gegn einni breytingar- tillögunni, og segja kunnugir, að hann hafi haft á réttu að standa, en deildarmenn heyrðu illa til hans, og brtt. gekk fram. Málið endursent Nd. 2. Frv. um bæjarstjórn á Akur- eyri; 3. umr. Breytingartillögur allsherjarnefndar voru samþyktar og frv. sent til Nd. 3. Frv. um ábyrgð landssjóðs á fé kirkjusjóðs; 3. umr. Samþykt umræðulaust og afgreitt til Nd. 4. Frv. um ábyrgð fyrir að gefa saman hjón í sveitarskuld; 3. umr. Samþ. og afgr. til Nd. 5. Frv. um breyting á fasteigna- matslögunum; 3. umr. Guðjón Guðlauqsson hafði nú borið fram brtt. um að prjóna framan við það af frv., sem eftirstóð á dögun- um (launahækkun fasteignamatsm.) ákvæði um að nema úr gildi 9. gr. fasteignamatslaganna, sem fjallar um hvernig leggja eigi matsverð jarða og húsa í skatt. Guðmundur Olafsson þumbaðist við þessari breytingu og áttu þeir um þetta stutt orðakast, hann og Guð- jón. Svo fór, að breytingartill. var samþ. með 7:1 atkv. Frv., svo breytt, var samþykí með 10 : 1 atkv. og afgr. til Nd. 6. Þigsál.till. um konungsúrskurð um siglingafána; ein umr. Eggert Pálsson stóð einn upp — að eins til þess að lýsa yfir, að hann teldi ráðlegast að ekki yrði farið að ræða málið í deildinni á þessu stigi, heldur yrði því visað til nefndar þeirrar, er kosin var til að íhuga fánafrv. Karlamagnúsar. Till. vísað til fánanefndar með öllum atkv. (14) og umræðunni frestað. 7. Frv. um rekstrarkostnað lands- símastöðva (komið frá Nd.) 1. umr. Visað umræðulaust til 2. umr. og samgöngum álanefndar. Stúlka óskast í vist nú þegar til hausts eða lengur. Ritsti- v. á. Ostar margar teg. í verzlun G. Zoéga, 8. Frv. um skiftingu bæjarfóge- embættisins í Reykjavik og stofnun sérstakrar tollgæzlu þar (komið frá' Nd.) 1. umr. Visað til 2. umr. án þess, að nokkur tæki til máls, og til alls- herjarnefndar. 9. Frv. um Eiðaskólann (komið’ frá Nd.) 1. umr. Enginn sagði orð. Visað til 2. umr. og mentamálanefndar. 10. Frv. um hækkun á launum hreppsnefndaroddvita og sýlsu- nefndarmanna um þriðjung (komið frá Nd.); 1. umr. Umræðulaust visað til 2. umr. og; allsherjarnefndar. 11. Þingsáltill. um ásetoing bú- penings (hefir verið samþ. i Nd.)j hvernig ræða skuli. Ein umræða ákveðin. Fundurinn stóð í 50 mínútur. ---- —„r; .;,*!?■.—■ -■«"--- „Lalla Rookh“. í færeyska blaðinu »Dimmalætt- ing« frá 21. júli er sagt frá því, að skonnortan »Lalla Rookh« hafi verið kafskotin af þýzkum kafbáti fyrir sunnan Orkneyjar. Skip þetta átti áður J. P. Evensen & Sön í Færeyjum, en, segir blaðið, hafði verið selt íslenzku félagi tveim mán- uðum áður. Skipverjar voru allir færeyskir, og komust þeir allir lifs af.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.