Morgunblaðið - 16.08.1917, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 16.08.1917, Blaðsíða 1
Fimtudag 4. árgangr 16. ágúst 1917 I 282. tðlublað R'tstjórnatsími nr. 500 Ritstjóri: Vilhjálmur Finsen ísafoldarprentsmiðja Afs'reiðslnsimi nr. 500 |> Tlýja Bíó < 1 Þypnibrautin. Nútíðar siónleikur i 4 þáttnm. — Aðal-leikendur: Olaf Fönss, Agneta Blom, Johs. Ring. Hvar sem þessi mynd er sýnd, munu þúsundir áhorfenda fyllast meðaumkun með hinni ógæfusömu fósturdóttur skóar- ans, sem hrakin er frá sælu lífsins og lendir í mannsorpinu. Gamatileikarnir JTÍaíarakonan í TFlarltj og VinnusfúíknaáfyijgQÍur verða leiknir í Iðnó fhntudagixm 16. þ. m. kl. 9. í síéasía sinn. Tekið á móti pöntunum í Bókverzlun ísafoldar. Unglingsdrengur sókast til þess að keyra tveggja hesta lystivagn. Uppl. gefur Eggert Jónsson, Tungu. Sími 602. Tjórfjjófaður hjsfwagn með tveim hestum fyrir, fæst leigður í lengri og skemmri ferðir. Uppl. i sima 602 (Tungu). Stórt úrval af Hengi-, Borð-, og Eldhús-, Lömpum. Lampaqlös og Kveiki, allar stærðir. Stormlugtir og lausir Kúplar. Prímusar, Prímusnálar, og Prímushausar, nýkomið til F. Hansen, Hafnarfirði. gin I Reykjavtkur IRIQI I Biosrauh-Theater I _ Talslmi 475 örlagadómur Fallegur og efnisríkur sjónl. í 3 þáttum, leikinn af ágætum dönskum leikurum. Aðalhlutv. leika: Fru Luzzy Werren, Hrr. Herm. Florentz. Efni myndarinnar er mjög áhrifamikið, og fádæma fagurt, og myndin er án efa með þeim beztu sem hér hefir verið sýnd. gBfui.4uui'iajtwgw—MWJumimaMEa Erl. simfregnir. frá fréttaritara Isaf. og Morgunbl.). Khöfn 14. ágúst Stjórnir bandamanna hafa bannað þegnum ríkj- anna að sækja fnndinn í Stokkhólmi. Rússar hafa gert gagn- áblaup og hafa tekið 1200 fanga. — Hjá Yiocsani hörfa Rússar undan. Alm©ut verkfali hafid ú Spáni. Barnes er orðinn stjórn- armeðlimur í Bretlandi í stað Hendersons. Gounaris heflr verið stefnt fyrír herrétt. Uppeldismál, Svo látandi þingsál.till. flytur Bjarni frá Vogi um uppeldismál. Neðri deild Alþingis skorar á stjórnina að rannsaka uppeldismála- kerfi og athuga þetta: 1, Hvort eigi mundi réttara að láta skólaskyldu koma á menn 16— 20 ára, en láta þá foreldra og héruð sjá fyrir því, að börn hafi tilskilda þekking undir staðfest- inguna, en landið kosti ekki ann- að við þá kenslu en eftirlit með prófum. 2. Hvern veg þá skyldi haga skól- um handa mönnum á skólaskyldu- aldri, og einkum hvernig kensla i öltum þjóðlegum, islenzkum fræðum megi njóta sin sem bezt, og söngur og iþróttir og annað Bifreið. Sæti í bifreið á laugardag 18. að Ægissiðu eða Þjórsá óskast. Eggert Pálsson, alþm. það, sem fegrar lifið og gleður mennina. 3. Hvern veg breyta þyrfti kenn- araskólanum til þess, að kennar- ar verði vel hæfir til kenslu þeirrar, er þá yrði að ætla þeim. 4. Hver kjör þá yrði að bjóða þeim, svo að viðunanlegt væri. 5 Hvort eigi mætti gera hvort- tveggja að spara fé og bæta gagnfræðaskóla með því að fækka þeim, og steypa saman bók- fræðikenslu karla og kvenna i öll- um almennum námsgreinum, og styrkja síðan eigi aðra kvenna- skóla, en þá, er kenna það, er konur einar læra. Enn fremur skorar deildin á stjórn- ina að rannsaka, hversu bætt verði úr verstu göllunum á þvi fyrirkomu- lagi sem er, þar til lokið er rann- sókn þeirri, sem greinir hér að of- an, eða önnur skipun verður á ger, einkum hvern veg megi komast hjá að láta kennara sæta miskunnarlausri meðferð. Vátrygging sveitabæja Frá landbúnaðarnefnd Ed. er nú komið álit um frv. Sveins i Firði um breyting á lögum um vátrygg- ing sveitabæja. Nefndin tekur það fram að hún hafi athugað frumvarp þetta og bor- ið það nákvæmlega saman við lögin. Breytingar þær á lögunum, er farið er fram á í frumvarpinu, eru þessar: 1. að brunabótasjóðir i sveitum bæti brunaskaða með 6/ð i staðinn fyrir »/•-. 2. að tryggja megi í öðru áreiðan- legu brunabótafélagi, hvort held- ur innlendu eða útlendu. 3. að oddviti sveitarstjórnar hafi alla stjórn sjóðsins á hendi i stað sveitarstjórnar, en henni sé þó heimilt að fela öðrum úr sveitarstjórninni þessi störf. Samkvæmt skýrslu, er nefndin hefir aflað sér frá hagstofunni um hag hins sameiginlega brunabóta- sjóðs, þykir henni tryggingin góð þó að brunabætur hækki um */6, og er því sammála um að ráða deild- inni til að samþykkja frv. óbreytt. Guðjón Guðlaugsson er framsm. Nefndarálit um frv. til laga um aukna löggæslu. Frá allsherjarnefnd. Einn nefndarmanna vill eigi sinna frv., en meiri hlutinn leggur til, að deildin samþ. það óbreytt. Teljum við að ógerningur sé að gæta landslaga, svo að eigi sé stór- tjón að, án þess að lögieglustjórar fái til þess mun styrkari aðstoð en nú eiga þeir ráð á; og sérstaklega virðist óverjandi, að eigi sé haft ör- uggara eftirlit með siglingum til lands- ins en hingað til hefir verið kostur á. Lagasetning þess efnis, sem hér er farið fram á, bætir að nokkru úr þeirri nauðsyn, án þess þó að baka landssjóði neina verulega byrði, enda yrði að sjálfsögðu í fjárlögum ákveð- ið, hve mikið fé skuli veitt til fram-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.