Morgunblaðið - 11.09.1917, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 11.09.1917, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Dr.P.J.OIafson tannlækni er fyrst um sinn að hitta í Kvennaskólanum við Frikirkjuveg kl. xo—ii og 2—3 á virkum dögum. að hækka skrifstofukostnað vega- málasljóra úr 1500 upp i 2 þiis. kr. (9 shij.) að hækka tillag til símastöðvarinn- ar í Vestmannaeyjum um 300 kr. (10 shlj*) að hækka laun vitamálastjóra um 200 kr. á ári, upp í 4200 kr. (8; 2) og skrifstofufé hans um 300 kr., upp í I þús. kr. (10 samhlj.). Tiil. Magnúsar Torfasonar um að hækka styrk til kvenfélagsins Ósk á ísafirði, til matreiðsluskólahalds upp í 1800 kr. úr 1600 kr. (9: Tili. fj.n. um: að hækka styrkinn til unglingaskóla um 500 kr. á ári og ætla Hvamms- tangaskólanum þá upphæð (10 shlj.). að hækka laun 1. bókavarðar Landsbókasafnsins um 200 kr. (10:1). að hækka bókakaupastyrk Lands- bókasafnsins um 1 þús. kr. hvort árið og verja þessari viðbót til að kaupa söogfræðasafn Jónasar þing- húsvarðar Jónssonar (1. og 2. greiðsla) (11 shlj). að hækka styrk til aðstoðar við Þjóðmenjasafnið um 250 kr. á ári (9 shlj.). að veita Einari Gunnarssyni 1300 kr. hvort árið til þess að ljúka við útgáfu safnsins »Lög íslands, öll þau, er nú gilda« (10 : 1). að hækka skálda- og listastyrkinn um 2 þús. kr. síðara árið, upp i 14 þús. kr. (9 shlj.). Till. Halldórs Steinssonar um að heimila stjórninni að fresta fjárveit- ingunni til listasafnshúss Einars Jóns- sonar meðan stríðið stendur yfir og efni og vinna veiðnr ekki að mun ódýrari (10 shlj.). Till. fj.n. um 1200 kr. styrk fyrra árið til Gunnlaugs P. Blöndals til teikni- og pentlistarnáms (9 shlj.). Ttll. fj.n. um: að lækka styrkinn til íslenzkrar orðabókar um helming, eða niður í 3 þús. kr. (9 : 5). að ætla dr. Helga Jónssyni að eins fyrra árið 1200 kr. styrk til rann- sóknar á næringargildi þörunga (9 : 3). að hækka styrk til Helga H. Ei- líkssonar, til verkfræðisnáms um 300 kr. hvort árið, upp í 1500 br. (8 shlj.þ. að fella burt t þús. kr. styrk til Sigurðar regluboða (stórstúkustyrk- inn), (10 shlj.), en veita honum aft- ur ellistyrk, 500 kr. hvort árið (13 shlj.). að fella burt fyrra árið 2 þús. kr. styrk til undirbúnings húsmæðra- skóia (11 shlj.). að veita 2200 kr. til að fullgera Miklavatnsmýraráveituna (9 shlj.). að hækka sandgræðslustyrkinn um 1 þús. kr. upp í 6 þús. kr. (9 shlj.). 300 kr. hækkun á styrk til gerla- rannsókna (8: 1). að hækka styrk til erindreka Fxski- félagsins erlendis úr 4 þús. kr. hvort árið upp í 12 þús. kr. eins og fjn. Nd. hafði lagt til, en ekki gekk fram þar i deildinni (10:2) hækkun á launum síldarmátsmanna um samtals 800 kr. (9 shlj), að veita Elínu Eggertsdóttur Briem 1 þús. kr. styrk í eitt skifti fyrir öll í viðurkenningarskyni (8: 1), en fella aftur til hennar 300 kr. á ári. 500 kr. til Magnúsir Guðlaugs- sonar á Bjarnastöðum, til viðurkenn- ingar (10 : 1). að veita Emilie Loran2e að eins 500 kr. í eitt skif*, en ekki 300 kr. hvort árið (11 shij.). að veita prófastsekkju Jóhönnu S. Jónsdóttur 300 kr. eftirlaunaviðbót (í stað 150 kr.) (8 shlj). að veita Jónasi Eiríkssyni, fyrrum skólastjóra á Eiðum, 500 kr. hvort árið (12 shlj.). Till. Magnúsar Torfasonar um 90 þús. kr. lánsheimild aír viðlaga- sjóði til raflýsingar á ísafirði (13 shlj.). Feldar tillöjjur. Till. fjárv.n. um að gera það að skilyrði fyrir styrk til Flensborgar- skólans, að veittar verði til hans að minsta kosti 1 þús. úr bæjarsjóði Hafnarfjarðar og sýslusjóði Gull- bringusýslu (8 : 6). Till. Kristins Daníelssonar um að hækka skálda- og listamannastyrkinn upp i 13400 kr. f. á. og 15400 s. á. (8 : 3) og varatillaga sama manns um að hækka styrkinn upp i 13 Jús. kr. f. á. og 15 þús. s. á. (8 : 5). Till. Guðjóns Guðlaugssonar um að fella burt fjárveitingu til listasafns ins (10 : 2). Till. Halldórs Steinssonar um að hækka fyrirlestrastyrk til Guðmundar Hjaltasonar upp í 1 þús. kr. úr 800 kr. (7 : 7). Till. fj.n. um að fella burt 600 kr. styrk síðara árið til Frímanns B. Arn- grimssonar (7 : 7). Lokun skólanna. Á fundi 10. september 1917 samþykti bæjarstjórnin svohljóð- andi tillögu: »Bæjarstjórn Reykjavíkur felst í einu og öllu á mótmæli þau, sem skólanefnd Reykjavíkur hef- ir sent Alþingi gegn því, að frum- varp til laga um frestun á skóla- haldi skólaárið 1917—1918 verði gert að lögum á þann hátt, að það nái til barnaskóla Reykja- víkur eða barnaskólans i Berg- staðastræti 3, sem er styrktur af bæjarsjóði. Bæjarstjórn Reykjavíkur mæl- ist þess vegna fastlega undan því, að löggjafarvaldið ' hindri ráðstafanir þær, sem hún hefir gert um fræðslumál á komandi vetri«. DAGBOK I A f’uæli í dag; Ásta Jónsdóttir, ungfrú. T al s í m a r Alþ in g i s: 354 þingmannasími, Um þetta númer þurfa þeir að biðja, er œtla að ná tali af þingmönnum í Alþingis- húsinu í síma. 411 skj alaafgreiðsla. 61 skrifstofa. Sjúkdómar í Reykjavík i júní- mánuði. Hór fer á eftir skýrsla hér- aðslæknis yfir sjúkdóms-tilfelli og teg- undir í Reykjavík í júnímánuði. Er það sfðasta skyrslan, sem út er komin: Taugaveiki 2, skarlatsótt 3, rauSir hundar 1, hálsbólga 1, barnaveiki 5, lungnabólga 5, niSurgangur 33, lek- andi 6, syfiiis 2, kláSi 16, kvefsótt (Bronchitis) 37. Gufuskip brezkt, sem Andrés Guð- mundsson í Leith á, kom hingaS í gær meS um 300 smál. af kolum til iands- stjórnarinnar og mikiS af saltfyltum kjöttunnum til Sláturfólags SuSurlands og BorgfirSinga. Frakkneskt gufuskip kom hingað í gærmorgun hlaðiS salti til landsstjórn- arinnar. \ ____ Mótorbútur kom frá Akranesi í gær með fjölda kaupafólks. Annar bátur fór frá Akranesi til Borgarness í gær til þess að sækja þangað kaupafólk. Er sagt að fólkið noti Ingólf minna en áður — vegna hækkunarinnar á fargjöldunum. Sterling fór í gærmorguu frá Djúpa- vogi áleiðis til Vestmannaeyja og Reykjavíkur. Knattspyrnnkappleikurinn, sem Víkingur og Knattspyrnufólag Reykja- víkur þreyttu í fyrradag á íróttavell- inum, fór svo aS Víkingur 3ÍgraSi meS 2:0. Kvartað er um það hve brýrnar á veginum; sem liggur inn að Lauganesi, sóu slæmar og jafnvel hættulegar yflr- ferSar. Brýr þessar eru ekki svo stór- ar, að það geti verið ýkja kostnaðar- samt aS gera almennilega við þær — en hvað sem um það er, þá þarf það að gerast sem fyrst. Aðsókn er svo mikil aS mynd þeirri er Nýja Bíó sýnir núna, að helzt verð- ur því líkt við þaS, þá er »Skrifar- inn« var sýndur þar, enda leikur sama#. stúlkubarnið í báðum myndun- um. Aðgöngumiðar hafa þessi kveldin verið uppseldir áður en sýning hefir byrjað og fjöldi fólks orðiS frá að hverfa. Hefir jafnvel gengiS svo langt, aS fólk, sem ekki gat fengið aðgöngumiða, hef- ir ruðst inn. A þessu má sjá þaS hve mikinn mun fólk gerir á þessari mynd og öðrum myndum og er það sízt aS furða, því aS leikur litlu barnanaa, »stóra bróður og litlu systur«, er al- veg framúrskarandi, enda er efni mynd- arinnar hugnæmt og áhrifamikið frá upphafi til enda. Manni koma ósjálf- rátt í hug gömlu, íslensku þjóSsagn- irnar um kongsbörnin og vondu stjúp- urriar — enda þótt sjónleikurinn só meira við hæfi nútímans. — Myndin Erik Ravnkilde tannlæknir, (Licenc;d dental Sargeon England}' Hafnarstr. 8. Viðtalstími 1 — 5. Lansar tenrmr eiga helzt, eftir því sem hægt er,.. að koma í stað hinna uppranalegu tanna, án þess þó að skemma þær, sem e'tir eru. Þetta fæst að eins með »Broarbejdet« eða »Stifttanden«, sem kemur í stað hinna upprunalegu tanna, án þess að gómur fylgi með. verður sýnd eitthvaS frameftir vikunni svo að sem flestir geti fengið að sjá hana. Dagskrá efri deildar í dag ki. 1. 1. Frv. um aS sveitaskuldir hindri ekki hjónaband; ein umr. 2. Till. um styrk til búnaðarfólaga;: ein umr. 3. Tili. um vegamál; fyrri umr. 4. Till. um tekjuskatt; frh. 2. umr. 5. Frv. til fjárlaga 1918—19; 3.umr. Dagskrá neðri deildar í dag kl. 1 1. Frv. um fiskiveiSasamþyktir og lendingasjóði; ein umr. 2. Frv. um iokunartíma sölubúða; 3. umr. 3. Frv. um veðurathugunarstöS; 2. umr. 4. Frv. um loftskeytastóðvar; 1. umr. 5. Till. um mó- og kola-vinBÍu, síðari umr, 6. Till. um verS á landsgjóðsvöru;:. frh. einnar umr. í opinbera skeytinn í blaðinu f gær hafSi óvart fallið burt í umbroti nokkrar línur. Þar sem talað er um Bkrúðgöngur (hersýningar) í Bandaríkj- unum stendur: forsetinn og þing og stjórn gengu í broddi fylkingar. Þar við bætist: »u m stræti Washingtons. Verkalýðurinn hefir lýst því yfir ab hann vilji gera alt sem í hans valdl stendur til þeas aS hjálpa stjórninni að ráða ófriðnum til farsælla lykta. Nú hafa Bandaríkin 0. s. frv. Gnnnlangar Claessen læknir ætlar að hafa ijóslækningastofu sfna í hinu nýja húsi Nathan & Olsens. En það verður tilbúið innan skamms. Fermingarbörn síra Jóhanns komi í kirkjuna miðvikudag kl. 5 síðd. og fermingarbörn sfra Bjarna f i'ba tudag kl. 5 síðd. Vörur írá Bandaríkjnnnm. Eim- skipafólagið hefir fengið tilkynningu um það aö eigi þurfi að koma til sam- þykki StjórnarráSs íslands um útflutn- ing frá Bandaríkjunum á vörum þeim, sem Lagarfoss og Gulifoss koma með í þessari ferS, sbr. auglýsingu frá fólag- inu hór í blabinu í dag. Það er þakkarvert að stjórn Eim- skipafólags íslands lætur blöðin altaf fá þær upplýsingar jafnharðan, sem fólagið fær frá Ameríku um horfur með það að fá útflutulngsleyfi fyrir vörur, og einnig þegar slík leyfi eru veitt. Annars mundu menn yfirleitt ekkert vita um það, hvað skipunum líður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.