Morgunblaðið - 13.09.1917, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 13.09.1917, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ H. P. Duus A-deild Hafnarstræti. Nýkomið mikið úrval af allskonar veínaðarvörum. Dr.P.J.OIafson er fyrst um sinn að hitta í Kvennaskólanum við Frikirkjuveg kl. io—n og 2—3 á virkum dögum. Bretar hafa unnið dálít- inn sigur hjá Haricourt. Khöfn, 12. sept. Tltjja bijUingin i Hússíandi. — Árangurslaus tilraun hefir verið gerð í Búss- landi til þess að gera Alexieff að yfirhershofð- ingja (generalissimus). — 60 liðhlaupaherdeildir riddaraliðs úr Asíuliði Bússa fylgja Korniloff að málum og eru nú 30 míl- ur frá Petrograd, á leið þangað. — Setuliðið í Petrograd fylgir Kerensky að málum. Síjórnarskifíin i TrakMandi. Bibot hefir ekki tekist að mynda nýtt ráðuneyti i Frakklandi. Painleve er að reyna að mynda ráðuneytið. Suíþjóð og Bandaríkin. — Buist er við þvi, að Bandaríkin banni þegar i stað allan útflutning til Svía. Svíar og bandamenn. Ekkert verður enn um það sagt hvernig fer um deilumál það, sem upp er komið milli Svía og banda- manna. En af skeytum þeim sem Morgunblaðið hefir fengið má ráða það, að alvara er á ferðum. Og á þessum tímum má ekki mikið bera út af. Það getur verið að deilan verði jöfnuð í bróðerni — þannig að allri skuldinni verði skelt á sendi- Eerra Svía í Buenos Aires og utan- rikisráðherrann (eða ef til vill alla stjórnina). Að visu sézt það eigl hvenær þessar skeytasendingar milli Buenos Aires—Stokkhólms—Berlin- ar hafa fram farið, en líklega er það þó eftir að Swartz-stjórnin tók við völdum í Sviþjóð. En hafi það verið meðan Hammarskjöld-ráðuneyt- ið sat að völdum þá verður málið enn flóknara og verra fyrir Svía að smeygja s.ér út úr því, ef bandamenn verða harðir í kröfum sinum. Svo mikið er víst óhætt að segja að nlutleysi Svía er hætt. Og um leið og hlutleysi einnar Norðurlanda- þjófarinnar er hætt, þá er hlutleysi hinna i voða og okkar um leið — enda þótt við höfum engan her og engin vopn. Hór i blaðinu hefir oft verið vikið að því hver lífsnauðsyn okkur það er, að fá viðurkent hlut- leysi okkar hjá stórþjóðunum. En hvað hefir verið gert? Ekki neitt. Við erum enn taldir með Dönum erlendís og eitt verður látið yfir okk- ur ganga sem þá, ef þeir komast í striðið. Er hvorugri þjóðinni að þvi hinn minst hagur. Ef við aftur á móti fengjjum viðurkent hlutleysi okk- ar, hvernig svo sem um Dani fer, þá er okkar hag borgið, en Dönum enginn óhagur ger, vegna þess að við getum eigi orðið þeim að neinu liði í ófriði. Þetta er svo ljóst að hvert barnið ætti að geta skilið það. Fjárlðgin eftir 3. umr. í Ed. Við 3. umr. fjárlaganna í Ed. í fyrradag urðu þeir atburðir, að allar breytingartillögur, sem fram voru bornar, bæði frá fjárveitinganefnd og einstökum þingmönnum, voru samþyktar. Mun það vera einsdæmi í þingsögunni. Skulu nú taldar breyt- ingar þær, sem urðu á fjárlögunum og er atkvæðatölu getið í svigum. Þess skal getið, að Hannes Hafstein var lasinn og gat ekki sótt deildar- fundinn. Tillögur fjárveitlnganefndar. Að lækka fjárveitingu til póstflttn- ings úr 8o þús. kr. niður 1 68 þús. kr. (ii shlj ). Þess skal hér getið, að bjargráðanefnd deildarinnar ætlar aftur 20 þús. kr. til dýrtlðaruppbót- ar handa póstum. Að heimila stjórninni að fresta þvi að reisa Joftskeytastöð í Flatey, og verja fjárhæðinni til annara út- gjalda landssjóðs, ef brýn nauðsyn krefur (12 shlj.). Að bæta 400 kr. hvort árið við laun við mentaskólann (handa rektor fyrir aukastörf (10 : 1). Að veita Þórbergi Þórðarsyii 600 kr. hvoit árið til þess að safna fornum og sjaldgæfum orðum úr Is- lenzku alþýðumáli (n : i). Auk þess var samþ. I e. hlj. til- Iaga nefndarinnar um að sundurliða eftir stéttum og flytja út I dálka út- gjöld samkvæmt 18. gr. íjáilaganna, en áður var alt I einni bendu. Tillögur einstakra þingmanna. Till. Jóh. Jóh. um að heimila Waldemar Petersen að selja birgðir þær af Kínalifselixir, sem hann á nú hér á landi, gegn því að greiða 20 þús. kr. hvort árið I landssjóð (7 : 6). Till. Kristins Daníelssonar um 200 kr. styrk hvort árið til hrepps- búa í Kjósarhreppi til að leita sér Jæknishjálpir. (9 shlj.), Till. atvinnumálaráðherra um að ætla 1300 kr. hvort árið til viðbótar launum póstafgreiðslumanna (5) I Reykjavik (10 shlj.). Tiil. Kristins Dan. um að veita stórstúkunni 1 þús. kr. hvort árið (7:6). Till. Guðm. Ó!. um. að gera það að skilyiði fyrir styrk til Heimilis- iðnaðarfélags Islands og Heimilisiðn- aðarfél. Norðurlands, að félögin geri gangskör að því að gera íslenzkt prjónles vandaða og útgengiíega vö u (7 shlj.). Till. Karls Einarss. um að veita hafnarsjóði Vfestmannaeyja 3300 kr. fyrra árið, til endurgjalds útlögðum kostnaði við rannsókn á hafnarstæði og undirbúningi hafnargerðar (9 shlj.). Till. Kristins Danlelss. um að veita Jóni Hel^asyni, fyrrum vita- verði á Reykjanesi i þús. kr. fyrra árið (7 shlj.) Till. fjármálaráðherra um að veita sýslumönnum og bæjarfógetum utan Reykjavlkur styrk til skrifstofu- halds, samtals 10300 kr. hvort árið. Styrkurinn skiftist þannig á lög- sagnarumdæmin: Kr. r. Mýra- og Borgarfjs. . 600,00 2. Snæf. og Hnappads.. 600,00 3. Dalasýsla .... 300,00 4. Barðastrandarsýsla. . 600,00 5. ísafjs. og ísafjkaupst. 1000,00 6. Strandasýsla . . . 300,00 7. Húnavatnssýsla. . . 600,00 8. Skagafjarðarsýsla . . 600,00 9. Eyjafjs. og Akureyri . 1000,00 10. Þingeyjarsýsla . . . 600,00 11. N.-Múlas og Seyðisfj. 800,00 12. Suður Múlasýsla . . 600,00 13. Skaftafellssýsla . . . 400,00 14. Vestmannaeyjasýsla . 600,00 15. Rangárvallasýsla . . 300,00 16. Árnessýsla .... 600,00 17. Gullbr.-og Kjósaisýsla og Hafnarfjörður . . 800,00 Alls kr. 10300,00 Þessi till. var samþ. með 8: 3 atk. að viðhöfðu nafnakalli. Jásögðu: Karl. E., Kr. D., M. Kr., Sig. Egg., Sig. J., Egg. P., Guðj. Guðl., og G. B. Nei sögðu: Hjörtur Sn., Guðm. Ói. og Halld. Steinss. Sýslumennirnir Jóhannes Jóhann- esson og Magnús Torfason greiddu ekki atkv. Tekjuhallinn samkvæmt frumvarp- inu er nú 788,775 kr. 35 au. Fjárlögin fara nú aftur til Nd. og koma þar væntanlega til einnar um- ræðu I dag. Frá alþingi. Úr sameinuðu þingi í gær. Frv. um breyting á tolllögum; ein umr. Mál þetta hefir lent I hrakningum milli deilda út af to.li á tóbaki. Efri deild hefir felt burt tvisvar ákvæði, sem Nd. hafði sett inn, um að hækka tóbakstoll upp I 3 kr. á kilóið. Eftir langar umræður var samþykt brtill. um að bæta inn' I frv. hækk- un á þessum lið tolllaganna. Með tillögunni voru 19 atkv. en 17 á móti. Frv. marðist í gegn, með Svart Kamgarn ágætt í dragtir og kápur við Islenzkan búning. Eínnig Dömuklæði Og Silkiflauel á peysur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.