Morgunblaðið - 12.12.1917, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 12.12.1917, Blaðsíða 1
5 árgangr ^Hiðv.dag 12. des. 1917 42. tðlublað Ritstjórnarsinni nr. 500 Ritstjóri: Viihjálmnr Finsen ísafoldarprentsmiðja Afgreiðsinsimi nr, 500 Byltingamaðurinn Nana Sahib. Stórfenglegur sjónleikur í 5 [>áuum, saminn eftir hinum sögulega viðburði tippreistinni á Indlandi 1857. Hinir góðkunnu leikarar Grace Cunard og Francis Ford, sem allir muna eftir frá hinni feiknastóru mynd »Lucille Love«, leika aðalhlutverkin. Yfir 500 manns leika með í þessari mynd, sem er einhver sú allra skrautlegasta og áhrifamesta mynd, sem hér hefir verið sýnd. í Victoria-leikhúsinu í Kaupmannahöfn var mynd þessi sýnd í samfleyttar 3 vikur. Sýnlng stendur yfir 1 '/a klukkustund. Tölusett sæti 85 og 60 aura, barnasæti 25 aura. Söngfélagið 17. júní. Samsöngvar í Bárubúð fímtudag 13. og föstudag 14 desember. Aðgöngumiðar á kr. i-jo í bókaverzlunum ísafoldar og Sigf. Ey- hluridssonar, frá því á miðvikudag. Dansíeik heldur « 77/// dansskóíinn fyrir nemendur sína, laugardaginn 15. desember 1917 kl. 9 siðdegis i Báruhúsinu. ^göngumiða má vitja í Litlu búðina. Erl. símfregnir ^rá fréttaritara isafoldar og Morgunbl. Khöfn 10. des. / Byltingarflokkur lýðveldissinna efir rekið stjórn Alfonso Costa og ^°mið á fót bráðabirgðastjórn, sem er ^andamönnum trygg. S i d o n i o a 1z heitir hinn nýji forsætisráð- ^erra. Tscherbotschefl foringja á vig- ^Öðvnnj Rúmena og yfirhershöfð- n8Ía Rússa hefir verið falið að semja VÍð Miðrikin. ^^raine viðurkennir samninga við bandamenn, en hefir þó etgi til fulls tjáð sig í móti sérfriðarsamningum Rússa, Lenin skýtur málinu til þingsins. Kinverjar hafa tekið Charbin og japanat Vladivostock. 2000 menn hafa beðið bana við hið mikla slys i Halifax. Njálu-leikrit Jóhanns Sigurjónssonar. Jóhann Sigurjónsson er fluttur til Kaupmannahafnar um tíma, en hann býr annars i húsi sinu i Charlotten- lund. Tilefnið er það, að Jóhann þarf að vera viðstaddur æfingar á leik- riti sinu, sem nú fara að byrja á konunglega leikhúsinu. Blaðamaður við »Berl. Tid.« hefir hitt Jóhann að máli og spurt hann um leikinn. — Það er nú bújð að skifta hlut- verkunum. Er það mér mikið gleði- efui, að allir beztu leikendur kon- unglega leikhússins eiga að leika í Njálu-leikritinu. Johs. Poulsen á að leika »lygarann«, Reumert leikur Njál, Sigrid Neiiendam leikur Bergþóru, Lieman leikur Skarphéð- inu og Ella Uugermann leikur aðal- hlutverkið. Johs. Nielsen, forstjóri leikhússins, býr leikritið undir leik- sviðið. Jóhann Sigurjónsson væntir mik- ils af leikriti þessu. Bókin er kom- in út, og hefir hún hlotið einróma lof. — Dómsmálafréttir. Yfirdómiir 10 des Gísli Hjálmarsson útgerð- armaður í Sandgerði gegn Ólinu Einarsdóttur. Kaupkrafa, sem var tekin til greina,. þó með nokkrum frádrætti. G. H. dæmdur til þess að borga kr. 73.00 með vöxtum 3 °/0. Hann hafði og gagnstefnt til skaðabótagreiðslu, en eigi voru kröfur hans þar teknar til greina. Skipaður málaflutningsm Ólinu fær úr landssjóði 30 kr. fyrir undirréttar-málskostnað, þar sem málið var gjafsóknarmál, en fyrir yrfidómi greiði áfrýjandi (G. H.) hon- um 20 kr. í málskostnað. Að öðru leyti féll málskostnaður niður. Gísli Hjálmarsson útgerð- armaður í Sandgerði gegn Stefáni Magússyni. Af sömu rótum runnið. Krafist kr. 407,82. G. H, dæmdur i bæjar- þinginu til þess að greiða kr. 344,22, og gagnsóknarmál hans til skaða- bóta ekki tekið til greina. Dæmd- ur í yfirdómi til þess að greiða kr. 302,52 með vöxtum 5 °/0. Mála- flutningsm. Stefáns fær úr lands- sjóði 45 kr. fyrir undirrétti og 20 kr. fyrir yfirrétti. Sjónleikor í 4 þáttum tekinn af „Itala Film“ eftir sögu hins fræga ítalska rithöfundar Gabriele d’Annuncio Nýja Bíó hefir látið setja íslenzkan texta í þessa ljómandi fögru og skemtilegu mynd. Tölusett sæti 85 aura Almenn — 70 aura Barna — 23 — Pantaðir aðg.m. sækist fyrir kl. 9, annars seldir öðrum. Útlent öl fæst á Nýja Landi Merkileg uppgötvun. Ungur danskur vélameistari, Albin Schroeder að nafni, hefir nýlega gert stórmerkilega uppgötvun, er vakið hefir mikla eftirtekt. Honum hefir tekist að smíða hreyfivél, sem gengur án olíu, gass, benzins eða kola. Notar hann þéttað loft til þess að reka motorinn, en til þess að koma honum á stað verður hann að nota olíu. Dönsk blöð telja þessa uppgötvun einhverja hina merkilegustu, sem gerð hafi verið á seinni tímum. Sigurjón Pjetursson Siml 137. Hafnarstræti 18

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.